Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003
xyxr
Fréttir
Veislugleði hertekur Austfirðinga eftir ákvörðun stjórnar Alcoa um byggingu álvers:
Langþráðar ákvarðanir
sem skipta sköpum
- segir Smári Geirsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi
Álveriö mun rísa
Mikil gleöi ríkir meöal Austfiröinga þar sem allt útlit er fyrir aö álver muni rísa
í Reyöarfiröi. Myndin er frá fyrirhuguöum byggingarstað.
Stjórn bandaríska álfyrirtækis-
ins Alcoa samþykkti á fundi í gær
að hafnar yrðu framkvæmdir við
nýtt álver í Reyðarfirði. Álverið er
hluti af einni umfangsmestu fjár-
festingu sem ráðist hefur verið í á
íslandi. Áætlað er að framkvæmdir
hefjist árið 2005 og það verði tilbúið
árið 2007. Byggingarkostnaður er
áætlaður 1,1 milljarður dala, eða
um 90 milljarðar króna.
Álverið mun bera heitið Fjarðaál
og mun það gegna lykilhlutverki í
áætlunum Alcoa um aukin umsvif í
framleiðslu áls, sagði Alain Belda,
aðalforstjóri og stjómarformaður
Alcoa í dag, en hann sagði jafn-
framt að hann væri mjög ánægöur
með að nú sé ljóst að álverið verði
byggt.
Belda segir að forsvarsmenn
Alcoa geri sér grein fyrir hve sér-
stök náttúra íslands sé. „Við lofum
að ganga um umhverfið mjög var-
færnislega þegar framkvæmdir
hefjast. Við búumst við því að sú
mikla reynsla og sú tækni sem við
höfum þróað muni koma að góðum
notum við að tryggja að fram-
kvæmdirnar hafi lágmarksáhrif á
umhverfið,“ segir Belda. Þá segir
Belda að hann hlakki til aö starfa
með íslendingum og kjömum full-
trúum þeirra við að tryggja þessu
verkefni brautargengi á Alþingi
Mest fjölgun banaslysa í um-
ferðinni hefur orðið á íslandi á
tímabilinu 1990-2000 samkvæmt
tölum sem nýlega voru gefnar út
af IRTAD (International Road
Traffic and Accident Database)
sem er alþjóðlegur gagnagrunnur
um árekstra og slys á vegum
OECD. Hefur tölulegum upplýsing-
um verið safnað í gmnninn frá
1990. Frétt um málið má m.a. lesa
á vefsíðu franska blaðsins L’Ex-
press undir fyrirsögn sem þýða
má sem „íslenskir ökuníðingar“.
Banaslysum á íslandi fjölgaði
um 33 prósent á þessu tímabili
sem er langmesta fjölgun
þegar kemur til afgreiðslu heimild-
arfrumvarps og annarra reglna.
Austfirðingar héldu veglega veislu
í tilefni dagsins í gær og voru
margir á því að Austfirðingar
myndu frá og með deginum í gær,
10. janúar, halda daginn hátiðlegan
banaslysa í álfunni. Tékkar koma
næst á eftir okkur á þessum vafa-
sama lista en fjölgun banaslysa
þar nam 15 prósentum. Þá koma
Norðmenn með 9 prósenta fjölgun,
Slóvakar með 2 prósent og Grikkir
með eins prósents fjölgun
banaslysa á þessu 10 ára tímabili.
Af 22 löndum á listanum hefur
fjölgun banaslysa orðið í 6 löndum
en fækkun í 16. ísland sker sig al-
gerlega úr í þessu sambandi eins
og sjá má í meðfylgjandi grafi.
Mesta fækkun banaslysa á tíma-
bilinu 1990-2000 er í Ungverja-
landi, þar sem þeim hefur fækkað
um 51 prósent. Af Norðurlanda-
þjóðunum standa Finnar sig best
þar sem banaslysum hefur fækkað
um 39 prósent, þá Svíar með 23
prósent og Danir með 21 prósents
fækkun. Norðmenn eru hins vegar
á syndalistanum með íslendingum
en fjölgun banaslysa þar nemur 3
prósentum.
Máttur tölfræöinnar
Óli H. Þórðarson, formaður Um-
ferðarráðs, sagði það vissulega
koma illa út fyrir ísland í augum
almennings í Evrópu að vera í
efsta sæti þessa lista. En þegar
betur væri að gáð væri þróunin
ekki svona slæm.
„Árið 2000 fer alveg með þetta
hjá okkur en það verður að skoða
þennan lista í samhengi. Þarna er
máttur tölfræðinnar á ferðinni og
afskaplega lítið sem við getum
gert til að rétta okkur hlut i því
sambandi. Staðreyndin er sú að
og gengu sumir svo langt að kalla
daginn þjóðhátíðardag Austfirð-
inga.
„Það er búið að taka tvær lykil-
ákvarðanir varðandi uppbyggingu
atvinnulífs á Austurlandi. Þetta
eru langþráðar ákvarðanir og þær
það eru mun færri á bak við
hverja prósentu hér á landi en
annars staðar - lítil íjölgun tölu-
lega getur þýtt mikla Qölgun hlut-
fallslega. Þannig höfum við upplif-
að um 100 prósenta fækkun um-
ferðarslysa hér á landi en beinar
tölur á bak við þá fækkun eru hins
vegar ekki mjög háar,“ sagði Óli
þegar DV bar þessar tölur undir
hann.
Máli sínu til stuðnings nefnir
munu skipta sköpum fyrir þennan
landshluta og landið allt. Ég vil
segja að menn hafi unniö samstiga
að þessu verkefni, samfellt í þess-
ari lotu frá 1997, og nú eru menn að
sjá árangur erfiðisins. Þess vegna
er þetta mikill gleðidagur," segir
Smári Geirsson, formaður Samtaka
sveitarfélaga á Austurlandi.
„Verkefnið hefur mörg neikvæð
efnahagsleg áhrif, mikla þenslu,
verðbólgu, vaxtahækkanir og skap-
ar tiltölulega litla atvinnu," segir
Helgi Hjörvar en áætlað er að
Fjarðaál muni skapa allt að 450
störf í álverinu og um 300 störf í
tengdum iðnaði og þjónustu, en alls
eru það um 750 störf. Bygging ál-
versins er liður í áætlun ríkis-
stjómar íslands að bæta lífskjör ís-
lendinga, ekki bara á Austurlandi
heldur landinu öllu. Hin nýju störf
munu renna styrkum stoðum undir
atvinnulif á Austurlandi en á und-
anfornum árum hefur atvinnutæki-
færum fækkað þar samhliða breyt-
ingum I sjávarútvegi og landbúnaði
og brottflutningi íbúa frá svæðinu
en menn sjá nú að svo virðist sem
Reyðarfjörður eigi nú bjarta fram-
tíð. Þegar blaðið fór i prentun í
gærkvöld stóð til að halda veislu í
tilefni dagsins langt fram á nótt og
átti hátíðin að enda með flugelda-
sýningu. -ss
Óli að flöldi látinna milli áratuga
hafi farið minnkandi, var 260 ára-
tuginn 1971-1980, 246 árin
1981-1990 og 206 árin 1990-2000.
Óli segir að frá 1990 til 2000 hafi
7,8 látist í umferðarslysum á ári að
meðaltali, miðað við 100 þúsund
íbúa. Árið 2000 hafi þessi tala ver-
ið um 11,5. Tölur yfir fjölda lát-
inna á hverja 100 þúsund íbúa séu
afar sveiflukenndar þennan ára-
tug. -hlh
Ogmundur og Kolbrún efst
Alþingismenn-
irnir Ögmundur
Jónasson og Kol-
brún Halldórsdóttir
verða í efstu sætum
vinstri grænna í
Reykjavíkurkjör-
dæmunum.
Fækkar i þjóðkirkjunni
Enn fækkar í þjóðkirkjunni; nú
eru 86,6% landsmanna í kirkjunni
og hefur fækkað nokkuð frá því í
fyrra en fyrir 10 árum tilheyrðu
92% landsmanna henni. RÚV
greindi frá.
Leikskólar loka
Ákveðið var í leikskólaráði í gær
að halda sumarlokunum á leikskól-
um Reykjavíkur, sem DV hefur
greint frá, til streitu. Til að koma til
móts við þá foreldra sem ekki geta
tekið sumarfrí á þeim tíma sem
leikskólar verða lokaðir hefur verið
ákveðið að ef nógu margir foreldrar
krefjast þess verði haldið opnu yfir
sumarfríið. Bylgjan greindi frá.
Gjald til viðhalds
Ákveðið hefur verið að greiða
hjúkrunarheimilum, dvalarheimil-
um og dagvistarstofnunum ákveðið
gjald til að mæta viðhaldskostnaði
húsnæðis sem nýtt er undir rekstur-
inn. Mbl. greindi frá.
Líffærasamstarf
Heildarkostnaður Trygginga-
stofnunar rikisins vegna líffæra-
ígræðslna sem fram fóru á árinu
2001 var tæpar 34 milljónir króna á
móti 47,7 milljónum króna árið 2000.
Nefndin um líffæraflutninga leggur
til að kannað verði samstarf við
Norðmenn og Svia varðandi líffæra-
flutninga en íslendingar eiga sam-
starf við Ríkisspítalann í Kaup-
mannahöfn um líffæraígræðslur.
Mbl. greindi frá.
Átján sækja um
18 umsækjendur eru um starf
framkvæmdastjóra Heymar- og tal-
meinastöðvar íslands. Heilbrigðis-
ráðherra ætlar að skipa þriggja
manna nefnd til að meta hæfni um-
sækjenda.
Fær ekki tölvurnar
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu
Ástþórs Magnússonar um að fá af-
hentar tvær tölvur sem lögregla
lagði hald á í starfsstöð Friðar 2000
vegna rannsóknar á dreifíngu tölvu-
pósts með viðvörun um sprengjutil-
ræði gegn íslenskri flugvél.
Gæsir trufla flug
Óvenjumikið er um gæsir á
Reykjavíkurflugvelli miðað við árs-
tíma og hafa þær valdið truflun á
flugi. RÚV greindi frá.
Sigurður kosningastjóri
Samfylkingin í
Norðausturkjör-
dæmi hefur ráðið
Sigurð Þór Salvars-
son, fjölmiðlafræð-
ing á Akureyri, 1
stöðu kosninga-
stjóra flokksins fyr-
ir alþingiskosningarnar í vor.
-hlh
Haldið til haga
Rangt feðraður
Þau leiðu mistök urðu í frásögn
blaðsins af Hafnarstrætismálinu á
forsiðu og bls. 7 í gær að fómarlamb
líkamsárásarinnar, Magnús Freyr,
var rangt feðraður. Hið rétta er að
Magnús Freyr var Sveinbjömsson.
Blaðið harmar þessi mistök og bið-
ur hlutaðeigandi velvirðingar. -hlh
Ekki í félaginu
í frétt DV um Ásatrúarfélagið
sem birtist á bls. 9 í gær kom fram
að Steindór Andersen væri meðlim-
ur í Ásatrúarfélaginu. Það er ekki
rétt, Steindór er ekki meðlimur í
Ásatrúarfélaginu. -ss
Listi yfir þróun banaslysa í Evrópu 1990-2000 setur íslendinga á vafasaman stall:
Hlutfallslega flest
dauðaslys hér á landi
- hvert tilvik vegur mun þyngra hér en annars staðar, segir Oli H. Þórðarson
Banaslys í umferðinni í Evrópu 1990-2000 - hlutfallslegar breytingar
ísland “Sr'-V' - ';l
Tékkland 1
Lúxemborg 1
Noregur □
Slóvakía
Grlkkland ]
[ Ítalía
[ írland
1 Pólland
i Danmörk
1 ‘ Svfþjóð
1 Belgía
r msm BM1 Frakkland
[ Portúgal
1 Þýskaland
i H M 11 g 8 B ~ Bretland
r j ■ 11 MBB Spánn
p Svlss
Austurríkl
1 Tyrkland
. . Rnnland
MBBBmMBIMÉMBIIMIIM Ungverjaiand Helmlld: IRTAD
-60 -50 -40 -30 -20 -10 1 > 10 20 30 40