Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Qupperneq 46
50
Helcjarhlaö X>V LAUGARD AGU R 11. JANÚAR 2003
t
Bílar
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
B
o
A
•d
c
>
Q
Reynsluakstur nr. 731
Öflugur borgar-
jeppi með torfæru-
eiginleika
Kostir: Aflmikil vél, staðalbúnaður
Gallar: Staðsetning aksturstölvu, farangursrými, eyðsla
Ræsir hefur nú hafið aftur sölu á Chrysler- og
Jeep-bifreiðum og býður nú öfluga jeppalínu. Einn
þeirra er Jeep Cherokee sem kallast Liberty i Vest-
urheimi og er minni en Grand Cherokee. Hann
verður boðinn með fjórum gerðum véla, tveimur
bensínvélum og tveimur dísilvélum, og reyndum
við hann á dögunum með stærri bensínvélinni, 3,7
lítra V6.
Farþegavænn
Þótt Cherokee sé litli jeppinn er hann nú samt
þokkalega rúmgóður, sérstaklega í farþegarými, og
fer þar vel um þá fimm sem hann tekur í sæti. Far-
angursrými er þó í minni kantinum þrátt fyrir að
varahjóli sé komið fyrir á afturhlera. Gott er að
stíga inn og út úr bílnum enda opnast allar dyr vel.
Afturhleri opnast til hliðar en um leið smellur opn-
anlegur afturgluggi upp sem þarf að loka aftur
sérstaklega.
Vel búinn að mestu
Um vel búinn bíl er að ræða og var reynsluakst-
ursbíllinn búinn leðurinnréttingu sem setur mikinn
svip á hann. Meðal staðalbúnaðar eru 6 öryggispúð-
ar, geislaspilari með 6 hátölurum, aðfellanlegir
speglar, loftkæling, spólvörn, skriðstillir og rafstillt
hæðarstýring á bílstjórasæti. Athygli vekur þó að
hemlalæsivörn er aukabúnaður. Hann er líka búinn
aksturstölvu sem staðsett er við lesljós á frekar
óþægilegum stað sem kemur í veg fyrir mikla notk-
un í akstri. Á henni mátti lesa að meðaleyðsla í
reynsluakstrinum var um 20 lítrar sem er frekar
hátt.
Einrýmisbíll með lággír
Jeep Cherokee er svokallaður einrýmisbíll, enda
ekki byggður á stigagrind eins og hefðbundinn
jeppi. Yfirbyggingin er því stifari og hann liggur vel
á vegi án þess að vera stífur á holóttum malarvegi.
Selec-Trac drif gerir ökumanni kleift að velja um
afturdrif, aldrif, fjórhjóladrif eða lágt drif og er því
geta hans utan vega nokkur. Gaman væri því að sjá
hvað stærri dekk myndu gera fyrir hann. Stýrið er
frekar létt og þægilegt, án þess að koma nokkurn
tímann á óvart. Vélarhljóð er nokkurt á snúningi en
annars er bíllinn tiltölulega hljóðlátur og vindhljóð
lítið þrátt fyrir litla straumlínulögun.
I dýrari kantinum
í þessari útfærslu kostar Jeep Cherokee Limited
4.390.000 kr. sem er nokkuð fyrir bíl í þessum stærð-
arflokki en á móti kemur öflug vél og góður búnað-
ur. Dæmi um hugsanlega keppinauta eru Suzuki
Grand Vitara V6, Freelander V6 og Ford Escape.
Vitara Exclusive er nokkuð ódýrari, á 3.098.000 kr.,
en á svipuðu verði eru Freelander á 4.200.000 og
álíka búinn Ford Escape Limited á 4.285.000 kr.-NG
JEEP CHEROKEE LIMITED 3,7
Vél:
3,7 lítra, V6 bensínvél
Rúmtak:
3700 rúmsentímetrar
Ventlar:
12
Þjöppun:
9.1:1
Gírkassi:
4ra þrepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan:
Sjálfstæð, gormar
Fjöðrun aftan:
öxull. gormar
Bremsur:
Diskar/skálar, ABS
Dekkjastærð:
235/70 R16
YTRI TOLUR:
Lengd/breidd/hæð:____________4490/1820/1865 mm
Hjólahaf/veghæð:__________________2650/200 mm.
Beygjuradius:________________________11,5 metrar.
INNRI TOLUR:
Farþegar m. ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/4
Farangursrými: 820-1950 lítrar.
!' ___
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 14,6 lítrar
Eldsneytisgeymir: 70 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn: 3/8 ár
. Grunnverð: 3.490.000 kr.
Verð prófunarbíls: 4.390.000 kr.
Umboð: Ræsir hf.
Staðalbúnaður: 6 öryggispúðar, útvarp/geislaspilari
með 6 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir speglar, að-
fellanlegir, loftkæling, spólvörn, fjölstillanleg
framsæti, rafstillt hæðarstýring á bílstjórasæti,
skriðstillir, litað gler, þrjár 12 V innstungur, leður-
innrétting, sportfjöðrun, þokuljós, áttaviti, króm-
aðar álfelgur, aksturstölva
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 214/5200
Snúningsvægi/sn.: 319 Nm/4000
Hröðun 0-100 km: 10,8 sek.
Hámarkshraði: 180 km/klst.
Eigin þyngd: 1870 kg.
Heildarþyngd: 2390 kg.
o Vélin er 3,7 lítra V6 sem skilar honum vel
áfram en er jafnframt nokkuð eyðslufrek.
© Bíllinn er þokalegur í torfærum en
skemmtilegastur í „smálátum".
0 Afturhleri opnast með varahjólinu og þá
smellur upp afturrúða um leið.
© Mælaborðið er án syllu og allt í blágrænum
ljósuin sem setja skeinmtilegan svip á það.