Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Blaðsíða 47
LAU GARDAGUR II. JANÚAR 2003
Holgarblac? 33V
51
Mini er bíll ársins í Bandaríkjunum
Það kom mörgum á óvart síðast-
liðinn sunnudag þegar hinn bresk-
smíðaði Mini var valinn „Bdl ársins
í Bandaríkjunum“ við opnun bíla-
sýningarinnar í Detroit á sunnudag.
Um valið sáu 49 bílablaðamenn þar í
landi. Ekki var síður tekið eftir val-
inu á jeppa ársins en hann var
einnig evrópskur, hinn nýi XC90
lúxusjeppi frá Volvo. Mini, sem
framleiddur er undir hatti BMW,
hafði betur í hópi 12 nýrra bíla og
má þar nefna hina nýju 7-línu BMW,
Honda Accord, Nissan Z350 og Ponti-
ac Vibe. Síðan Mini kom á markað í
Bandaríkjunum er þegar búið að
selja 24.000 bíla sem er meira en
helmingi meira en sala gamla bilsins
á sjöunda áratugnum. Meðal kepp-
enda í trukkaflokki voru Ford Ex-
pedition, Honda Element, Hummer
H2 og Kia Sorento. Vinningshafamir
frá því í fyrra voru Nissan Altima,
fyrsti japanski bíllinn til að bera
þennan titil, og Chevrolet Trailblaz-
er. Við valið er byggt á þáttum eins
og frumleika, hönnun, öryggi, akst-
urseiginleikum og hagkvæmni. -NG
Tilraunajeppi frá Audi
Á alþjóðlegu bílasýningunni í
Detroit frumsýndi Audi nýjan til-
raunajeppa, Audi Pikes Peak Qu-
attro. Nafn bílsins er dregið af fjall-
inu Pikes Peak sem er 4.300 metra
hátt fjall í Klettaíjöllum í Colorado í
Bandaríkjunum. Með Pikes Peak
hefur Audi ákveðið að skella sér í
slaginn í flokki lúxusjeppa og mun
þar án efa keppa við bíla eins og
VW Touareg, Porsche Cayanne,
BMW X5 og Benz M-línu.
Bíllinn er sérstakur útlits og
margt vekur athygli í hönnun hans.
Hurðarhúnamir koma einungis i
ljós þegar réttur ökumaður bílsins
nálgast. Útispeglarnir eru hannaðir
með það fyrir augum að lýsa upp
svæðið í kringum bifreiðina þegar
farþegar nálgast hana og fara frá
henni. Audi Pikes Peak verður knú-
inn V8-vél með tveimur forþjöppum.
Audi nýtir hér tækni sem þróuð hef-
ur verið í LeMans-kappakstrinum
og skilar vélin um 500 hestöflum og
nær hámarkstogi, 630 Nm, við 2000
sn./mín. Þetta gerir Audi Pikes
Peak kleift að komast frá 1-100
km/klst. á 5,0 sekúndum. Hámarks-
hraðinn er takmarkaður við 250
km/klst.
Leikur eitt adalhlutverkanna
í nýrrí X-men mynd
.4L, i
n jzw » f
¥ 1 wuf*1
Dodge-mótorhjól með
650 km hámarkshraða
Dodge frumsýndi þetta frumlega
mótorhjól í Detroit um síðustu helgi.
Gripurinn kallast Tomahawk eftir
eldflaugaflugskeytinu fræga og er
hann drifinn áfram af 8,3 lítra VIO
vél, þeirri sömu og er í sportbílnum
Dodge Viper. Hjólin eru fjögiu- og
fjöðrunin sjálfstæð sem þýðir að þeg-
ar hjólið beygir leggjast hjólin mis-
langt niður eftir því í hvaða átt það
hallast. Að sögn talsmanna Dodge á
hjólið að ná hvorki meira né minna
en 650 km hraða á klukkustund. Nú
er bara að biða eftir því hvort við
eigum eftir að sjá þá staðfesta það á
saltsléttum Utah fljótlega. -NG
Meðal frumsýningargesta á nýaf-
staðinni bílasýningu í Los Angeles
var einn aðalleikarinn í X-men 2.
Leikarahópurinn er álitlegur enda
meðleikaramir ekki af verri endan-
um, Hugh Jackman og óskarsverð-
launahafinn Halle Berry. Leikarinn
sem um ræðir stendur þó ekki á
tveimur jafnfljótum heldur fjórum
hjólum því hér er um sérstaka út-
gáfu af nýjum RX-8 sportbíl frá
Mazda að ræða sem kemur á mark-
að á næsta ári. Leikstjóri myndar-
innar, Brian Singer, vann náið með
hönnuðum Mazda með það fyrir
augum að gera bílinn að einum að-
alleikara myndarinnar. Einnig var
upphaflegu handriti breytt með það
fyrir augum. RX-8 á eflaust eftir að
taka sig vel út í hlutverki ofurhetj-
unnar. Undir húddinu er öflugur er yfir 300 hestöfl og skilar þessum
Wankel-mótor af Renesis-gerð sem litla bíl því vel áfram. -NG
Tveir nýir Mustang-sportbílar í Detroit
Ford frumsýnir á bíla-
sýningunni í Detroit tvo
nýja Mustang tilrauna-
sportbíla, Mustang GT og
Coupé. Ford Mustang hefur
verið vinsæll í gegnum tíð-
ina síðan hann var fyrst
kynntur fyrir 39 árum en
síðan þá hafa 8 milljónir
Mustangbíla verið fram-
leiddar. Siðan fyrsti bíllinn
kom á markað árið 1964 er
þetta í þriðja skipti sem hann fær
nýtt andlit sem ætla má að verði
endanleg útgáfa hans þegar hann
fer á markað á næsta ári. Ytri auð-
kenni, eins og langur vélarsalur og
stutt skott, halda sér, einnig C-laga
loftinntökin á hliðunum og þrískipt
afturljósin. Fyrsti Mustang sport-
bfllinn þróaöist upp úr tilraunabíl
sem kallaðist Mustang 1. Við hönn-
un nýja bílsins skoðuðu hönnuðir
upphaflegu teikningarnar mikið og
voru uppnumdir af krafti þeirra,
enda sóttu þeir sinn innblástm- mik-
ið í þær. Líkt og Mustang 1 og Must-
ang Mach 1 sýningarbíllinn frá 1968
eru nýju Mustangbílamir að þeirra
mati fágæt hönnun sem höfðar til
allra bílaáhugamanna. Vélina í bíl-
unum ættu líka margir að kannast
við, 4,6 litra MOD V8 sem er yfir 300
hestöfl. -NG
Toyota frumsýnir
tvinnjeppling
Á mánudaginn frumsýndi Toyota
nýjan tvinnbíl/jeppling á bílasýn-
ingunni í Detroit. Það var enginn
annar en forstjóri Toyota Motor
Corp., Fujio Cho, sem kynnti bílinn,
en hann byggist á nýrri tækni sem
þeir hjá Toyota kalla „Hybrid
Synergy Drive“. Kerfið er fyrsta
fjöldaframleidda tvinnkerfi i bíla í
dag og er grunnurinn ný 3,3 lítra V6-
vél sem ásamt rafmótorunum skilar
svipuðu afli og V8-vél. Bíllinn eyðir
ámóta og lítill fjölskyldubíll og verð-
ur því sparneytnasti jepplingurinn
þegar hann kemur á markað. Skipt-
ingar í bílnum eru hnökralausar,
með stiglausri CVT-sjálfskiptingu,
og fjórhjóladrifið er rafstýrt eins og
bremsukerfið. -NG
Cadillac SRX kemur á
markað en
Cadillac sýndi nýjustu útgáfu
SRX-tilraunabílsins í Detroit á
þriðjudag en hann er lúxusjeppi
sem byggist á hönnun CTS- og
Vizon-tilraunabílanna og vænta má
fljótlega á markað. Bíllinn er ein-
rýmisbill og þar af leiðandi ekki
byggður á grind og er hann aðeins
lægri heldur hinn dæmigerði jepp-
lingur. Hann verður þvi eflaust
sportlegur í akstri enda verður
hægt að velja um annaðhvort aftur-
drif eða fjórhjóladrif í bilinn. Vél-
amar verða V6 og V8 af Northstar-
gerð. Lúxusjeppar og jepplingar eru
ört vaxandi markaður í Bandarikj-
unum en á síðasta ári seldust yfir
200.000 slíkir bílar. Áætlað er að
markaðurinn aukist í um 350.000
ekki Saab
bíla á þessu ári en í Bandaríkjunum
er von á 14 nýjum módelum á mark-
aö á næstunni. Við frumsýningu
bílsins var einnig sagt frá því að GM
hefði ákveðið að leggja á hilluna sjö
sæta jeppa frá Saab sem byggja átti
á sama undirvagni og SRX. Ástæðan
var sögð vera mikill kostnaður
vegna breytinga, enda um ólíka
framleiðendur að ræða. -NG