Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2003, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR II. JANÚAR 2003
HelQctrblaö 13 "V
55
Kolviður Ragnar Helgason
blikksmíðameistari í Kópavogi verður 50 ára á mánudaginn+
Kolviður Ragnar Helgason blikksmíðameistari,
Digranesheiði 3, Kópavogi, verður fimmtugur á mánu-
daginn.
Starfsferill
Kolviður fæddist í Reykjavik og ólst þar upp í Smá-
ibúðahverfinu. Eftir skólagöngu í Breiðagerðisskóla og
Réttarholtsskóla fór hann í Verknámsskóla og verk-
námsbraut í Iðnskólanum í Reykjavík.
Kolviður stundaði jafnframt sjómennsku og ýmsa
verkamannavinnu með skólanum. Hann hóf síðan
nám í blikksmíði í Blikksmiðjunni Vogi í Kópavogi,
lauk sveinsprófi þaðan 1976 og öðlaðist meistararétt-
indi í greininni 1979.
Kolviður starfaði hjá Landvélum á árunum 1979-81
eða þar til hann stofnaði eigin blikksmiðju, Funa ehf.
Hann hefur verið framkvæmdastjóri þess fyrirtækis
síðan.
Kolviður hefur tekið virkan þátt í félagsmálum á
vegum samtaka iðnaðarins og félags blikksmiðjueig-
enda. Hann hefur verið í stjórn Félags blikksmiðjueig-
enda frá 1990 og formaður þess félags sl. sjö ár. Hann
hefur einnig setið í sveinsprófsnefnd frá 1994.
Kolviður hefur löngum haft gaman af söng og
annarri tónlist og syngur nú með Karlakórnum Þröst-
um úr Hafnarfirði.
Sigvaldi Hólm Pétursson
vélfræðingur á Seltjarnamesi verður sextugur á sunnudaginn
Sigvaldi Hólm Pétursson vélfræðingur, Látraströnd
4, Seltjarnarnesi, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Sigvaldi fæddist í Ólafsfirði og ólst þar upp til 1951
og á Hofsósi til 1960. Hann lauk námi í vélvirkjun við
Vélskóla íslands 1965 og síðar við Tækniskóla Islands
í útgerðartækni 1979.
Sigvaldi var vélstjóri til sjós 1968-79, á Ásbergi RE
og Guðmundi RE. Árið 1984 stofnaði hann ásamt
Kristni Halldórssyni fyrirtækið Stjörnustein hf. sem
framleiðir frauðplastumbúðir og starfaði þar um ára-
bil. Hann er nú stjórnarformaður Tempru hf. 1 Hafn-
arfirði.
Fjölskylda
Sigvaldi kvæntist 13.5.1967 Ragnheiði Pálsdóttur, f.
17.2. 1941, íþróttakennara. Hún er dóttir Páls Diðriks-
sonar og Laufeyjar Böðvarsdóttur, bænda að Búrfelli
í Grímsnesi.
Sigvaldi og Ragnheiður eiga þrjú börn, þau eru Páll
Sigvaldason, f. 16.11. 1966, iðnhönnuður og fram-
kvæmdastjóri Tempru hf. en dóttir hans og Guðrúnar
Margrétar Hannesdóttur markaðsfræðings er Stefan-
ía Hanna Pálsdóttir,
f. 9.1. 1994; Ásta Sig-
valdadóttir, f. 18.1.
1971, bókari, en mað-
ur hennar er Harald-
ur Eyvindur Þrast-
arson og er dóttir
þeirra Ragnheiður
Kristín, f. 4.6. 2000;
Laufey Alda Sig-
valdadóttir, f. 30.12.
1972, kennari, en
sonur hennar og
Eggerts Garðarsson-
ar er Sigvaldi Egg-
ertsson, f. 9.6. 2000.
Systkini Sigvalda eru Sigríður, f. 5.4.1944, d. í októ-
ber 2000, húsmóðir í Reykjavík; Sigurður, f. 1.4. 1948,
vélvirki, kvæntur Jónínu Pálsdóttur.
Faðir Sigvalda var Pétur Sigurðsson, f. 15.7.1920, d.
6.10. 1972, vélstjóri. Móðir hans er Ásta Sigvaldadótt-
ir, f. 8.3. 1924, húsmóðir í Reykjavík.
Sigvaldi verður ásamt fjölskyldu sinni í felum á af-
mælisdaginn.
Álfþór B. Jóhannsson
fyrrv. bæjarritari á Seltjamarnesi verður 70 ára á sunnudaginn
Alíþór Brynjarr Jóhannsson, fyrrv. bæjarritari á
Seltjarnarnesi, Látraströnd 2, Seltjarnarnesi, verður
sjötugur á morgun.
Starfsferill
Álfþór fæddist á Siglufirði og ólst þar upp og á
Seyðisfirði til tíu ára aldurs en flutti þá með foreldr-
um sínum til Reykjavíkur og bjó þar lengst af til 1969
er hann flutti á Seltjarnamesið.
Álfþór lauk stúdentsprófi frá VÍ 1953. Hann var full-
trúi hjá Innflutningsskrifstofunni til 1960, aðalbókari
Tóbakseinkasölu ríkisins 1960-61, fulltrúi hjá Ríkis-
endurskoðun 1961-66, skrifstofustjóri hjá Fosskrafti
við Búfellsvirkjun 1966-69, skrifstofustjóri Heildversl-
unar Alberts Guðmundssonar 1969-73, aöalbókari Sel-
tjarnarnesshrepps frá 1973 og hefur verið bæjarritari
Seltjarnarnesshrepps frá 1976.
Álfþór sat í stjórn Gróttu 1971-73 og 1978-82 og sat
í stjórn UMSK 1980-82.
Fjölsltylda
Álfþór kvæntist 6.10. 1956 Björgu Bjarnadóttur, f.
7.7. 1932, húsmóður. Hún er dóttir Bjarna Björnsson-
ar, leikara og gamanvísnasöngvara, og Torfhildar
Dalhoff gullsmiðs.
Börn Álfþórs og Bjargar eru Álfhildur, f. 8.6. 1956,
BA og starfsmaður á nefndarsviði Alþingis, búsett í
Reykjavík; Bjami Torfi, f. 8.5. 1960, kerfisfræðingur
hjá Skýrr og bæjarfulltrúi, búsettur á Seltjarnarnesi,
kvæntur Erlu Lárusdóttur leikskólakennara og eiga
þau fjögur böm;
Þóra Björg, f. 19.9.
1962, húsmóðir á Sel-
tjarnarnesi, gift
Kjartani Felixsyni
húsasmíðameistara
og eiga þau fimm
börn; Bergur Brynj-
ar, f. 20.7. 1964, út-
flytjandi, búsettur í
Vogum á Vatnsleysu-
strönd, kvæntur
Svanborgu Svavars-
dóttur, þjónustufull-
trúa hjá SPK, og eiga
þau fjögur börn og eitt barnabarn; Jóhann Frimann,
f. 24.9. 1968, píanó- og sembalsmiður, búsettur á Sel-
tjarnarnesi, og á hann þrjú börn.
Systir Álfþórs er Brynhildur Hjördís, f. 26.8. 1926,
ekkja eftir Albert Guðmundsson sendiherra og eiga
þau þrjú börn. Önnur systir Álfþórs lést í barnæsku,
Álfhildur Helena, tvíburasystir Brynhildar.
Foreldrar Álfþórs voru Jóhann Fr. Guðmundsson,
f. 14.1. 1899, d. 1966, framkvæmdastjóri Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði og síðar starfsmaður hjá
Verðlagseftirlitinu í Reykjavik, og k.h., Þóra Aðal-
björg Jónsdóttir, f. 23.8. 1895, d. 1966, húsmóðir.
Álfþór og Björg taka á móti ættingjum og vinum í
Golfskálanum í Suðurnesi, Seltjarnarnesi, laugardag-
inn 11.1. kl. 17.00-20.00.
Fjölskylda
Kona Kolviðs er Margrét Hreinsdóttir, f. 11.3. 1954,
skrifstofumaður. Foreldrar hennar: Hreinn Hauksson,
framkvæmdastjóri frá Mosvöllum Önundarfirði, og
Ragnheiður Þorbjarnardóttir, húsmóðir frá Kambsseli
í Álftafirði. Þau búa í Kópavogi.
Börn Kolviðs og Margrétar eru Helgi Kolviðsson,
13.9. 1971, knattspyrnumaður í Austurríki, en hans
kona er Michaela Deni og barn þeirra er Anna Karen;
Ragnheiöur Kolviðsdóttir skrifstofumaður, búsett í
Hafnarfirði, en hennar maður er Halldór Helgi Back-
man og börn Sylvía Líf og Margrét Eva; Hrönn Kol-
viðsdóttir nemi, búsett í Svíþjóð, en hennar maður er
Gustaf af Ugglas og börn Ludvig Emil og Victor Helgi.
Systkini Kolviðs eru Jónína Helgadóttir, f. 19.5 1947,
búsett í Keflavík, en maður hennar er Víkingur
Sveinsson; Einar Helgason, f. 14.6. 1949, búsettur i
Kópavogi, en hans kona er Inga Guðmundsdóttir.
Foreldrar Kolviðs eru Helgi Óskar Einarsson frá Ur-
riðafossi í Flóa, bifreiðastjóri, og Rósa Sveinbjarnar-
dóttir frá Snæfoksstöðum í Grímsnesi, matráðskona.
Þau búa í Reykjavík.
Kolviður tekur á móti gestum í Félagsheimili Kópa-
vogs Fannborg í kvöld, laugardaginn 11.1. 2003, kl.
20.00.
Höfuðstafir nr. 61_____
Þann 10. desember sl. var haldið hagyrðingamót á
Selfossi. Þar áttust við tvö lið, annars vegar alþingis-
menn og hins vegar svokallað landslið. Hér verða tínd-
ar til helstu perlur kvöldsins. í liði þingmanna var
Jón Kristjánsson sem kynnti sig þannig:
Ég er drengur aó noröan, hef dvaliö á Austurlandi,
hjá Davíö ég nú viö Lœkjartorgið sit.
Heilbrigöiskerfinu aö stjórna víst er vandi
og vera aöfjalla um krampa og þursabit.
í liði alþingismanna var líka Halldór Blöndal. Hann
gerði að umtalsefni þá nýafstaðna skoðanakönnun
sem leitt hafði í ljós að Guðni Ágústsson væri langvin-
sælasti ráðherrann:
Dómgreind svíkur margan mann,
ég marka af Guðna lœrdóm þann.
Veslings þjóó sem velur hann
vinsœlasta ráöherrann.
Hákon Aðalsteinsson, sem var í landsliðinu, orti
líka um Guðna. Þá var til umræðu umsókn Húsvík-
inga um leyfi fyrir krókódílarækt:
Húsvíkingar sitja nú í sárum,
sviptir eru góöri tekjuvon.
Grætur köldum krókódílatárum
kvikindiö hann Guöni Ágústsson.
Og enn var ort um Guðna. Að þessu sinni var það
séra Hjálmar Jónsson, sem var í landsliðinu:
Orstír hans aldreigi deyr,
ekki er hann veikur sem reyr.
Þótt elski hann kýr
og alls konar dýr
þá elskar hann Margréti meir.
Steingrímur Sigfússon var í liði þingmanna. Hann
orti til gestgjafanna á Suðurlandinu:
í Þistilfiröi erfegurö slíka
að finna, aö Drottinn sjálfur hrœrist,
en í Flóanum er fallegt líka
og flatneskjan sem slík, hún lœrist.
Einn af landsliðsmönnum var Flosi Ólafs-
son. Hann hafði þetta að segja um námsfer-
il sinn:
Las ég mér til menntunar
margan doörant vœnan.
En lœrdómsríkust lesning var
Litla, gula hœnan.
Og svo að öðru. Fyrir jólin birti ég vísu þar
sem vísað var í netfangið gud@himnum.com.
Þessi kveðskapur mæltist vel fyrir meðal lesenda.
Frá Helga Haraldssyni í Noregi hefur nú borist
önnur visa sem sýnir aðra hlið á málinu:
Þá hátíö er liöin heims um ból
og hljóðnaö er skraf í Paradís,
trúi ég sumir sœki í skjól
hjá satan@viti.is
Umsjón