Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
M
agasm
I>V
„Eg hef hins vegar ekki legiö á skoðunum mínum um Fréttablaöiö. Þaö er í sjálfu sér fullt af fréttum og gerir á margan hátt fína hluti en hefur kosiö að
segja almenningi ekki frá nöfnum elgenda sinna. Ritstjórinn er elnn í stjórn og þar meö leppur eigendanna sem ég tel mig vita núna aö eru Baugur og
Húsasmlöjan, en forstjóri Húsasmiðjunnar hefur einn vlöurkennt að eiga blaöiö.“
tölvur og OfFice one Superstore. Þetta
eru allt fyrirtæki í eigu Baugs, og það
er ekkert óeðlilegt við það, en almenn-
ingur á að fá að vita að það er Baugur
sem sendir þeim Fréttablaðið heim.“
Afrek Davíðs
Margir halda því fram aö baráttu-
vettvangur þjóðfélagins hafi fœrst frá
stjórnmálum yfir á svió viðskiptalífs-
ins. Ertu sammála því að stjórnmála-
menn hafi ekki sömu áhrif og áður?
„Það er engin spuming að stjórn-
málamenn eru að verða áhrifaminni.
Þegar ég var búinn að lesa greinaflokk
Agnesar Bragadóttur um átökin um ís-
landsbanka fór ég að velta því fyrir
mér af hverju kerfið þarf að rísa upp,
jafnvel úr forsætisráðuneytinu, jafn-
vel úr Valhöll, sannanlega LÍU og ann-
ars staðar, vegna þess að tveir ungir
menn, Þorsteinn Már og Jón Ásgeir,
vilja kaupa banka. Ég skil betur lætin
sem urðu þegar Eyjólfur Sveinsson og
Jón Ólafsson voru inni í Orca-hópn-
um. Það eru menn sem eru umdeildir
í þjóðfélaginu vegna flármála sinna.
Ég held reyndar að Davíð Oddsson
hafi leynt og ljóst stefnt að því aö
minnka áhrif stjórnmálamanna, til
dæmis með einkavæðingu í þjóðfélag-
inu, einkavæðingu bankanna og laga-
breytingum sem hafa breytt við-
skiptaumhverfmu þannig að fólk get-
ur efnast án þess að þurfa að borga af
því risaskatta. Ég held að sagan muni
sýna að í hans valdatíð hafi orðið
mestu hömluafléttingar íslandssög-
unnar.
Davíð Oddsson er óumdeildur leið-
togi, maður sem eftir tólf ár í forsætis-
ráðherrastóli situr með 50-60 prósent
ánægðra þegna og flokkurinn undir
hans stjóm hreyfist um 1 til 2 pró-
sentustig öðru hvoru megin við 40 pró-
sent. Þegar Davíð Oddsson kemur til
útlanda á leiðtogafundi þá horfa menn
eins og Schröder og Blair á hann og
spyrja sig: „Hvemig fer þessi piltur að
þessu?“
60 mínútur á teikniborðinu
Þú starfaóir lengi á sjónvarpsstööv-
um. Langar þig stundum aftur í sjón-
varpiö?
„Nei. Ég hitti Karl Garðarsson um
daginn þar sem hann var á harða-
hlaupum með spólutösku rétt fyrir
fréttaútsendingu, varð litið á hann og
Villi ekki á mér heimildir
- segir Ingvi Hrafn Jónsson sem stjórnar þættinum Hrafnaþing á Útvarpi Sögu
Útvarp Saga hefur verib
starfandi í tæpt ár og er
eina útvarpsstöóin sem
sendir einungis út talað
mál. Ein af röddum stöðvar-
innar er Ingvi Hrafn Jóns-
son en þáttur hans, Hrafna-
þing, er með vinsælasta
efni stöðvarinnar. Ingvi
Hrafn var í fjölda ára einn
þekktasti
fjölmiðlamaður þjóðarinnar
en dró sig síðan í hlé og
hefur sinnt laxabúskap við
Langá á Mýrum. Endur-
koma hans í fjölmiðla var
mörgum fagnaðarefni.
„Jón Axel Ólafsson hafði alið með
sér draum um út-
varpsstöð sem sendi
einungis út talað mál
og vildi fá endurhannaða ellismelli til
að tala um þjóðmál og gefa þeim laus-
an tauminn," segir Ingvi Hrafn. „í
fyrra hafði hann samband við mig og
bað mig að vera með eins klukkutíma
þátt. Hann sagði að ég mætti ráða
hvenær dagsins þátturinn yrði, bara
ef ég vildi koma. Ég var ekki mjög
spenntur fyrir því að vera daglega í
beinni útsendingu en hann sagði þetta
vera sex mánaða tilraun. Ég fann að í
mér leyndist enn þá fjölmiðlafikill
þannig að ég féllst á að gera þetta. Þar
með varð Hrafnaþing til. Samningur
minn við íslenska útvarpsfélagiö er
þannig að ég ber algjöra ábyrgð á
mínu efni. Ef mér skyldu verða á
meiðandi ummæli þá er ég ábyrgðar-
maður og svara fyrir þau.“
Allaballinn, framsóknarmað-
urinn, kratinn og íhaldið
Aðrir vinsælir fjölmiðlamenn, Sig-
urður G. Tómasson, Amþrúður Karls-
dóttir, Hallgrímur Thorsteinsson og
Valtýr Bjöm Valtýsson, em meöal
starfsmanna Útvarps Sögu og mæta
stundum á Hrafnaþing til að spjalla
við Ingva Hrafn um fréttir vikunnar.
„Við erum vinnufélagar og hittumst
reglulega - höfum nánast ekkert sam-
ráð um efni en samt hafa aldrei orðið
árekstrar," segir Ingvi Hrafn. „Við
vinnum þætti okkar nánast eins og við
væmm einyrkjar."
Nú hafió þió öll sem þáttastjórnend-
ur ákveönar skoðanir; það er engin
hlutleysisstefna ígangi í þáttum ykkar.
„Við komum úr ólíkum áttum.
Siggi, gamli allaballinn og borgarfull-
trúinn, er komminn. Adda, varaþing-
maður Framsóknarflokksins, er fram-
sóknarmaðurinn, og Halla Thorst hef
ég alltaf talið vera mikinn krata. Svo
er ég, gamla Moggasálin, fhaldið í
hópnum. Ég leyfi mér að hafa skoðan-
ir í mínum þætti. Ég er ekkert að
reyna að villa á mér heimildir. En
fyrstu tíu eða fimmtán mínútur þáttar-
ins hugsa ég upphátt. Þegar ég hringi
í mína viðmælendur er ég búinn að
ákveða mig og legg fyrir þrjá til fjóra
punkta sem ég ætla að tala um. Síðan
fabúlera ég um daginn og veginn og ef
ég er úrillur þá læt ég það koma fram
og ef ég er i góðu skapi þá kemur það
líka fram en númer eitt, tvö og þrjú vil
ég ekki vera meiðandi. Enn þann dag
I dag hefur enginn viðmælandi farið
frá mér öðruvísi en þakklátur og kvatt
með hlýju handabandi.“
Baugur sendir Fréttablaðiö
Hvernig finnst þér, sem gömlum
fréttahauki, dagblöðin standa sig?
„Mér fannst vera komin full mann-
réttindi á íslandi þegar Mogginn kom
út á mánudögum. Morgunblaðið og
DV eru að mínu mati heimsklassafjöl-
miðlar. í Vestur-Evrópu væru þetta
blöð sem myndu sóma sér hvar sem
væri. Ég hef hins vegar ekki legið á
skoðunum minum um Fréttablaðið.
Það er í sjálfu sér fullt af fréttum og
gerir á margan hátt fina hluti en hef-
ur kosið að segja ekki almenningi frá
nöfnum eigenda sinna. Ritstjórinn er
einn í stjóm og þar með leppur eigend-
anna sem ég tel mig vita núna að eru
Baugur og Húsasmiðjan, en forsfjóri
Húsasmiðjunnar hefur einn viöur-
kennt að eiga blaðið. Ragnar Tómas-
son, vinur minn, „sem pakkaði þeim
díl inn“, sannfærði þá um ágæti þess
að senda auglýsingar Baugs inn á nær
hvert heimili í landinu, pakkaðar inn
í fréttir, í stað þess að dreifa þeim með
Mogganum eða DV. Þetta er auðvelt
fyrir fyrirtækjasamsteypu eins og
Baug. Þegar vantar pening i Frétta-
blaðið þá koma fjórar litasíður í röð
frá Hagkaupum og næstu þijár eru frá
Bónus. svo koma Húsasmiðjan og BT-
varð að orði: „Mikið skelfing er ég feg-
inn að þú ert á hlaupum en ekki ég.“
Þegar Markús Öm réð mig frétta-
stjóra RÚV gegn meirihluta útvarps-
ráðs árið 1985 þá ætlaðist hann til að
ég færði sjónvarpsfréttir til nútímans.
Hann gaf mér algjörlega fijálsar hend-
ur og bakkaði allt upp sem ég gerði.
Þegar ég fór upp á Stöð 2 gerði ég
ákveðnar breytingar og kom með frétt-
ir á klukkutíma fresti á Bylgjunni. Frá
þessum tíma hefur afskaplega lítið
breyst. Helsti gallinn er sá að það eru
ekki til peningar til að framleiða vand-
aða fréttaskýringaþætti. Kastljósið er
að minu viti afskaplega vandaður púls
á pólitíska og menningarlega og við-
skiptalega umræðu í landinu. ísland í
dag er það líka, aðeins á öðrum vett-
vangi. En það vantar fréttaskýringa-
þátt á við 60 mínútur þar sem frétta-
menn hafa burði til að bijóta mál til
mergjar."
Vœruð þið, félagarnir á Sögu, ekki
finir í það?
„Við erum með slikan þátt á teikni-
borðinu en það vantar peninga.“
Ætlaróu að vera áfram í fjölmiðla-
starfi og hvernig samrœmist þaö laxa-
útgerðinni?
„Ég er með stúdíó uppi í veiðihús-
inu mínu við Langá og sendi í beinni
útsendingu þaðan í allt sumar. Útvarp
getur verið hvar sem er. Ég hef frjáls-
ar hendur til að segja það sem mér
finnst og tala við þá sem mig langar til
að tala við. Hvað er hægt að hugsa sér
betra?“ -KB
Sími 550-5000
Útgefandi: Útgáfufélagið DV ehf., Skaftahlíö 24.
Ábyrgðarmenn: Óli Björn Kárason og Jónas
Haraldsson.
Umsjónarmaöur: Stefán Kristjánsson.
sk&magasln.ls
Blaöamaöur: Sigurður Bogi Sævarsson.
s igbogi@magasin.ts
Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttír - kata@dv.is
og Inga Gísla - inga@dv.is
Prentun: Árvakur hf.
Upplag: 80.000 eintök.
Drelfing: Póstdreifing ehf.
Dreift ókeypis á höfuðborgarsvæöinu, á Akureyri
og til áskrifenda DV úti á landi.