Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
I>V
Svín og aurar í verðlaun
Yfirvöld í norska smábænum Soja sjá fram á litla fólks-
fjölgun í bænum og hafa brugðið á það ráð að verðlauna
þau hjón sem verða duglegust við að fjölga bæjarbúum á
þessu ári.
Yfirvöld í bænum hvetja hjón til ástarleikja og segja það
ekki verri iðja en hverja aðra á tímum mikilla kulda og
hárra orkureikninga að skríða upp í funheitt fletið og
elskast. Hjón sem eignast eitt barn á árinu fá um 35 þúsund
krónur íslenskar fyrir eitt barn og hálft svin að auki. Þau
hjón sem „framleiöa" tvíbura eiga von á peningunum og
öllu svíninu ofan í kaupið.
Vanhugsuð pitsupöntun
Þrír ungir Bandaríkjamenn eiga yfir höfði sér allt að 20
ára fangelsi eftir að hafa rænt einum ríkasta manni Banda-
ríkjanna, Edward Lampert.
Lampert var rænt fyrir utan fyrirtæki sitt og kröfðust
ræningjamir um 250 miiljóna króna fyrir auðkýfinginn.
Þeir fóra með Lampert á hótelherbergi og pöntuðu sér pitsu
enda svangir eftir þrekvirkið. Skömmu eftir aö þeir höfðu
greitt fyrir pizzuna með kreditkorti Lampberts komst upp
um allt saman. í herberginu fundust skotvopn og mikið
magn skotfæra ásamt grímum. Þremenningamir hafa kom-
ið fyrir rétt og neita öllu saman.
Festi vininn vib skýlið
Koma þurfti rússneskum manni til bjargar þar sem hann
hafði fest typpið við strætóskýli.
Ungi maðurinn var á heimleið af bar í borginni Stavropol
i þrjátíu stiga frosti. Hann stoppaði tfl að pissa og hálfvalt-
ur á fótunum hallaði hann sér upp að skýlinu tfl að fá
stuðning. Svo Ola vOdi tO að honum skrikaði fótur með
þeim afleiðingum að typpið á honum festist við skýlið. Hóp-
ur fólks safnaðist í kringum hann og hrópaði ýmis ráð. Að
lokum var það Valery Levchenko sem frelsaði manninn
með volgu vatni. Maðurinn neitaði frekari aðstoð og hafði
sig á brott i snatri.
Helgarblaö []
Faraldur kvíða
og þunglyndis
í Helgarblaði DV á laugardag-
inn er ítarlegt viðtal við Jóhann
Ágúst Sigurðsson prófessor og
heimilislækni sem hefur skO-
greint mikla og vaxandi neyslu
íslendinga á þunglyndislyíjum
og kviðastiflandi lyfjum sem
faraldur.
Hann hefur sagt að
grunnvatn samfélagsins sé
mengað og grípa þurfi til aö-
gerða. Skoðanir Jóhanns hafa
vakið mikla athygli meðal al-
mennings en nokkra úlfúð með-
al stéttarbræðra hans.
í blaðinu er einnig rætt við
Hauk Gunnarsson leikstjóra
um undarlegan starfsferil hans
meðal Japana og Sama en
Haukur leikstýrir nú nýju leik-
riti eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í
Þjóðleikhúsinu.
DV ræðir einnig við Björk
Jakobsdóttur sem hefur sagt
skilið við Hafnarfjarðarleikhús-
ið tO að sinna skyndilegri vel-
gengni einþáttungsins SeUófans
sem hún samdi og hefur flutt í
nokkra mánuði en stefnir nú á
heimsfrægð og hefur flutt sýn-
ingar í stærra húsnæði.
DV hittir nær 100 ára gamla
prestsfrú sem lifað hefur tím-
ana tvenna í bókstaflegum
skilningi þess orðs. Einnig er
fjallað um hæð fræga fólksins í
sentímetrum, veitt sérstæð
veisluráðgjöf og skyggnst yfir
feril Pete Townsend gítarleik-
ara sem á dögunum komst í
fréttir fyrir annað en tónlist.
Diana Ross er í miklum vanda þessa dagana. Eftir að rúmlega tvöfalt leyfilegt magn áfengis mældist í blóði hennar
neitar hún staðfastlega að hafa ekið undir áhrifum áfengis.
Steríó er líka á
Breiðbandinu
á tlðninni 95,2
STERÍÓ 895 OG MAGASÍN
KYNNA STERÍÓUSTANN TOPP 20
15.-21. JANÚAR 2003
Nr. SÍDAST LAG FLYTJANDI VIKUR
1 (D Allt sem ég sé írafár 6
2 (3) Stronger Sugarbabes 8
3 (5) Don't stop dancing Creed 8
4 (2) Loose yourself Eminem 10
5 (4) Sorry seems to be the.. Blue ft. Elton John 5
6 (13) Beautiful Christina Aguilera 5
7 (7) The last goodbye Atomic Kitten 7
8 (9) Feel Robbie Williams 7
9 (17) Cry me a river Justin Timberlake 2
10 (10) When l'm gone 3 doors down 6
11 (13) Boys of summer DJ Sammy 2
12 (8) Billy Jean Remix The sound Bluntz 6
13 (11) Sk8ter Boi Avril Lavigne 10
14 (6) Dag sem dimma nátt f svörtum fötum 10
15 (18) Sound of the underground Girls Aloud 2
16 (19) l'm with you Avril Lavigne 2
17 (-) Á einu augabragði Sálin 1
18 (14) All the things she said T.A.T.U 10
19 (-) Sacret trust One true voice 1
20 = \ J (-) Nýtt Still in love with you No angels 1
ADDI ALBERTZ KYNNIR LISTANN
ÖLL MIÐVIKUDAGSKVÖLD KL 22:00
Endurfluttur á sunnudögum kl. 20.00
[www.sterio.is]
Lögregla mældi tvöfalt
leyfilegt magn áfengis:
Diana Ross
þverneitar
Það hefur vakið mikla athygli í
Arizona í Bandaríkjunum að þrátt
fyrir að mælingar lögreglu hafi sýnt
tvöfalt leyfilegt magn áfengis í blóði
söngkonunnar Diönu Ross neitar
hún staðfastlega að hafa ekið bifreið
sinni undir áhrifum áfengis.
Söngkonan, sem er 58 ára gömul,
hefur ekki mætt fyrir dómstóh þar
sem mál hennar hefur tvívegis verið
tekið fyrir. Undanfarna daga hafa
staðið yfir þrætur lögfræðinga Ross
og saksóknara varðandi það hvort
leyfa eigi að myndbandsupptaka af
mælingum lögreglunnar á vettvangi
verði lögð fram í réttarhaldinu. Nú
hefur dómarinn í málinu ákveðið að
myndbandið verði spilað í réttar-
salnum en með engu tali.
Þetta er talið mikið áfall fyrir Ross
sem er sögð með tapað mál i höndun-
um. Kunningjar söngkonunnar segja
að hún eigi við áfengisvandamál að
stríða og hafi svo verið í langan
tíma. „Þetta verður kannski til þess
að Ross fer að hugsa sitt mál. Hún á
að viðurkenna mistök sín í stað þess
aö neita öllu saman. Mælingar lög-
reglunnar bregðast ekki og mynd-
bandið mun leiða hið sanna í ljós,“
sagði kunningi söngkonunnar sem á
yfir höfði sér þunga sekt og jafnvel
vist bak við lás og slá.
Diana Ross er ein þekktasta söng-
kona heims og skaust á himin stjarn-
anna þegar hún söng með The
Supremes. Hún er önnur heims-
þekkta söngkonan sem kemst í frétt-
ir heimspressunnar á skömmum
tíma.
Fyrir nokkru viðurkenndi Whitn-
ey Houston mikla neyslu eiturlyfja
og áfengis og virðist sem þessar
þekktu „dívur“ séu í miklum vanda
staddar þessa dagana sem ekki sér
fyrir endann á.
Barátta
kynjanna
í Survivor
í nýjustu þáttaröð Survivor,
sem byrjað verður að sýna í
Bandaríkjunum 13. febrúar,
munu liðin, sem hefja keppnina,
verða kynjaskipt í fyrsta skipti í
sögu Survivor.
Sjötta þáttaröðin var tekin
upp í Amazon. í kvennaliðinu,
Jabara, eru meðal annars sýn-
ingarstúlka, saksóknari og leið-
sögumaður heyrnarlausra bama
en hún er sjálf heymarlaus. í
karlaliðinu, sem heitir Tamba-
qui, eru meðal annars þríþraut-
arþjálfari, geimvísindamaður og
endurskoðandi.
Aniston er
tábrotin
Jennifer
Aniston,
eiginkona
Brads
Pitts og
stjarna i
sjónvarps-
þáttaröð-
inni
Friends,
tábraut sig
á heimili
sínu á dög-
unum. Var
leikkonan
svo óhepp-
in að rekast harkalega á hús-
gagn með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Aniston var á dögunum kosin
vinsælasta leikkonan í sjónvarpi
í Bandaríkjunum og átti hún í
mestu vandræðum með að staul-
ast upp á sviðið til að veita verð-
laununum viðtöku. Studdist hún
við hækju og meðleikari hennar
í Friends, Matthew Perry, bjarg-
aði því sem á vantaði.
Föðurástin
Hinn tveggja ára Efliot
O’Sullivan var mjög leiður yfir
þvi að ekkert skyldi snjóa i hans
heimabæ, hann vildi gera snjó-
karl. Pabbinn, Shaun O’Sullivan,
sem vann á svæði þar sem nóg
var af snjónum, fyllti Mercedes
Sprinter sendibílinn sinn af snjó
og keyrði hann heim, 200 km, til
að koma syni sínum á óvart.
„Þetta var erfiðisins virði þegar
ég sá svipinn á Elliot þótt það
væri ískalt á leiöinni."
-abh