Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
Tónleikar i Háskólabsói til styrktar krabbami
Oaman að leagia
W 1
góðum málum lið
Um 2,6 milljóna króna afrakstur varð af tón-
leikum þeim sem haldnir voru í Háskólabíói sl.
sunnudag til styrktar Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra bama. Þetta er 600 þús. kr. meiri
inntekt en af tónleikunum síðasta ár en þetta
var í fimmta sinn sem tónleikar sem þessir eru
haldnir. Var bíóhúsið raunar troöfullt á tón-
leikum þessum - og komust færri að en vildu.
Gaman hvernig til tókst
„Mér finnst afar gleðilegt hvemig tókst tii.
Það er ævinlega gaman að leggja góðum mál-
um lið, krabbameinssjúkum börnum og að-
standendum þeirra í þessu tilviki. Ekki er síð-
ur ánægjulegt hve tónlistarmenn hafa verið til-
búnir ár hvert að styðja við tónleikahaldið með
því að koma fram og gefa vinnu sína. Hafa
raunar allir aðrir gert það sem koma að þessu
máli,“ sagöi Einar Bárðarson sem stóð að þess-
um tónleikum. Þessir tónleikar hafa veriö
haldnir ár hvert að frumkvæði hans.
Landslió listamanna
Meðal þeima listamanna sem fram komu á
tónleikunum á sunnudaginn vom Bubbi
Morthens, Papar, Stuðmenn, írafár, KK, Sálin
hans Jóns míns, í svörtum fotum, Land og syn-
ir og Eyjólfur Kristjánsson, svo einhverjir séu
nefndir. í raun var þetta landslið íslenskra tón-
listarmanna.
Árlega greinast hér á landinu á bilinu tíu til
tólf böm með krabbamein. Styrktarfélag
krabbameinssjúkra bama styður meðal annars
við bakið á þeim ungmennum og aðstandend-
um þeirra, bæði félagslega og íjárhagslega, og
inntekt tónleikanna gefur félaginu enn meira
og betra svigrúm til þess.
-sbs
Afraksturinn afhentur. ívar Guðmundsson, útvarpsmaður á Bylgjunni, afhendir Elsabeth Kristinu
Vang Inntektina af tónlelkunum en hún var samtaks 2,6 milljonir kr. Með honum á myndinni er
WST:
Hljómsveitin í svörtum
fötum var meöal þeirra
sveita sem fram komu á
tónlelkunum - og sýndi
stórsöngvarinn Jónsi
snllldartakta á sviðinu.
Magasín-myndir Hari
Þessir kátu snáðar voru meðal þeirra sem
tónleikana sóttu. Á myndinnl eru þeir Konráð
Karl, Marteinn Már, Þórður Ingi og Birglr Þór.
Hvert sæti í Háskólabíól var þéttskipað - og æska landsins, sem fjölmennti á tónleikana,
skemmti sér hið besta.
KK sló gítarstrengi - og söng þangað sem vindurinn blés honum.
Hreimur í Landi og sonum lét ekki sitt eftir liggja.