Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
M
agasm
Fimm ára og
kynþroska!
Læknar í Chile hafa fundið
flmm ára gamlan dreng sem ber
öll einkenni tánings. Drengur-
inn, Saul Verastegui, er í mút-
um, með bólur og hárvöxt á kyn-
færum. Læknar fundu barnið
þar sem þeir voru í bólusetning-
arherferð í bænum San Miguel
de Pallenque. Saul hefur hlotiö
viðumefnið ‘Ofur drengurinn’
hjá fjölmiðlum á svæðinu. Hann
hefur verið fluttur á spítala þar
sem vísindamenn rannsaka
hann.
í fjölmi&la-
bindindi
Guy
Ritchie hefur
gefið upp að
hann og
Madonna,
konan hans,
séu sjálfvilj-
ug í fjöl-
miðlabind-
indi.
Þau hafa Madonna.
ekki horft á
sjónvarp né lesið dagblöð í þrjú
ár. Leikstjórinn, sem er nú að
framleiöa raunveruleika-þátta-
röðina Swag, segir hugmyndina
hafa kviknaö eftir lestur lyga-
sagna I blöðunum. Við lestur lé-
legra og ónákvæmra greina hafi
þau farið að hafa efasemdir um
sig sjálf. „Þetta byrjaði því sem
sjálfsvörn," sagði Guy í viðtali.
Ropar í aua-
lýsingunni
Penelope
Cruz missir
út úr sér
dónalegan
ropa i nýrri
kóka kóla-
auglýsingu.
Kærastinn,
Tom Cruise,
er einn af
stjórnendum Cruiseog Cruz.
auglýsingar-
innar sem er liður í milljarða
króna herferð til að markaðsetja
drykkinn sem „náttúrulegan og
viðeigandi" eins og það er orðað.
Hin 28 ára gamla Cruz sést
drekka flösku af gosinu við bar-
borð, þar sem stendur tjöldi karl-
manna, og af slysni ropar hún
svo hressilega. Hún er ein af
þónokkmm stjömum, þar á með-
al Courteney Cox og Muhammad
Ali, sem koma fram í auglýsing-
unum.
Þessi nýja herferö var ákveðin
eftir að ljóst var að sú fyrri, sem
bar yfirskriftina Lífið bragðast
vel, hafði floppaö. Aftur á móti
hefur Pepsi átt velgengni aö
fagna siöastliðin tvö ár með aug-
lýsingar þar sem fram koma
frægar poppstjömur, eins og
Britney Spears og hér á íslandi
Birgitta i írafári.
Alicia leikur
lögfræðing
Alicia Silverstone, sem er lög-
fræðingur í New York, mun
leika lögfræðing í New York í
nýrri sjónvarpsþáttaröð sem
verður arftaki Sex and the City.
Hún mun fara meö aðalhlutverk-
iö sem hjónabandsmiölari i hjá-
verkum í þessum þáttum en
hennar eigið ástarlíf er allt ann-
að en fullkomið.
„Alicia gæðir þessa hugmynd
lífi. Hún er trúverðug sem
manneskja sem hefur trú á ham-
ingju annarra og getur sýnt
blíðu og hluttekningu," er haft
eftir talsmönnum þáttanna.
-abh
M:VU<»
Keppnlsllð Seljaskóla. Snllllngamlr sem komu af þelm bænum voru þeir Guðjón Gunnarsson, Gunnar Örn Guðmundsson og Freyr Sævarsson.
. íffVil \\\ '.ylJI
iyf Á
Spurningakeppni grunnskólanna í Reykjavík:
Skarpir krakkar og skjótir me& svörin
„Þátttakendur í Nema hvað eru
virkilega skarpir krakkar sem
standa sig vel. Þau eru bæði fljót að
koma með rétta svarið en einnig laus
við allan taugaspenning eins og oft
er í svona keppnum," segir Eygló
Rúnarsdóttir hjá íþrótta- og tóm-
stundaráði Reykjavíkur. Fyrsta lota í
spurningakeppni ÍTR á meðal grunn-
skólanema í borginni hófst á mánu-
dagskvöld. Þar öttu kappi nemendur
efstu bekkja grunnskóla í Breiðholti
og Árbæ.
Væntanlega útvarpaö
Alls tóku sex skólar þátt í þessari
lotu. Seljaskóli vann Breiðholtsskóla.
Nemendur Árbæjarskóla báru sigur-
orð af. liði Hólabrekkuskóla og þau
sem nema við Fellaskóla reyndust
sýnu skarpari en liðið úr Öldusels-
skóla. Sigurliðin komast áfram í
milliriðil - sem og liðið úr skólanum
sem kennt er viö Hólabrekku, en það
var stigahæsta tapliðið.
í framhaldinu tekur svo við
keppni liða skóla í öðrum borgar-
hlutum. Endanlegar lyktir þessa
leiks, þar sem leitaö er að skörpustu
skólanemum borgarinnar, ættu svo
að liggja fyrir undir lok febrúar.
Keppninni í fyrra var útvarpað á Rás
2 og er þess vænst að sama fyrir-
komulag geti orðið á hlutunum
einnig á þessu ári.
þeir Hjalti Snær Ægisson, Sverrir
Teitsson og Svanur Pétursson. Þeir
eru gamalreyndir í keppni af þessum
toga, voru árin 2000 og 2001 í liði
Menntaskólans í Reykjavik í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna - en
MR-ingar hafa unnið þá keppni ár
hvert nú um langt skeið.
„Mér fannst keppnin á mánudags-
kvöldið fara vel af stað, þarna voru
nokkur býsna góð lið. Sérstaka
ánægju vekur hvað það eru margar
stelpur í þessum liðum sem þama
keppa, en þvi miður hafa þær verið
fáar í framhaldsskólakeppninni síð-
ustu árin,“ sagði Hjalti Snær. -sbs
Brosandl konur. Á myndlnnl eru frá vlnstri tallö: Tlnna Elnardóttlr, Eygló Rúnarsdótlr sem er umsjónarmaður keppninnar á vegum ÍTR
og Andrea Elísa Agústsdóttir.