Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Page 18
18
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
M,
agasm
I>V
„Mín sannfæring er sú að allt for-
varnarstarf gegn vímuefnum og tóbaki
skili mestum árangri sé boðskapnum
komið á framfæri á þann hátt sem
krökkunum þykir skemmtilegur. Það
höfum við kappkostað í þessu starfi og
ég held að árangurinn sé strax farinn
að koma í ljós,“ segir Sigurður Grön-
dal. Hann er leigutaki íjallaskálans I
Hólaskógi í Gnúpverjahreppi, sem er á
hálendisbrúninni skammt ofan við
Búrfellsvirkjun, og þangað hefur á síð-
ustu misserum verið hóað saman
krökkum úr Hveragerði í tveggja daga
dvöl. Þar hafa þeir verið fræddir um
hætturnar sem fylgja vímuefnum
hvers konar. Reynt er að flétta þann
boðskap saman við annars fjölbreytta
dagskrá, svo sem kvöldvökur, göngu-
ferðir, leiki og draugasögur í gangna-
mannakofa.
Hugsjónastarf í Hólaskógi
Sigurð Gröndal þekkja sjálfsagt
margir sem gitarleikara úr vinsælum
hljómsveitum eins og Rikshaw og Plá-
í gangnamannakofanum. Þangað mættu krakkarnir og þar voru þeim sagðar mergjaðar draugasögur svo ætla má að hrollur hafi farið um þá. Kannski má
síðan segja að dóp og dílerar séu draugar nútímans.
Ævintýraferóir æskufólks
Fyrirtæki i Hveragerði hafa, að sögn
Sigurðar, styrkt þessar ævintýraferðir
æskufólks í bænum af rausn. Hann
segir í bígerð að unglingum í öðrum
byggðum austan fjalls, og raunar víð-
ar, standi svona ferðir til boða. For-
eldrar og skólafólk víða á landinu hafi
haft samband til þess að kynna sér þær
leiðir í forvömum sem famar eru með
ferðum í Hólaskóg.
Getur Sigurður sérstaklega stuðn-
ings tveggja þingmanna Sunnlendinga,
þeirra Guðna Ágústssonar og Margrét-
ar Frímannsdóttur, við þetta framtak
og að raunar hafl margir sem starfa á
sviði forvama gegn fikniefnum sýnt
málinu áhuga.
-sbs
Fjör í fjallaskála. Góðir gestir hafa heimsótt Hveragerðiskrakka þegar þeir hafa dvalist í Hólaskógi og þessi mynd var tekin þegar hljómsveitin írafár með
hina ástsælu söngkonu Birgittu Haukdal mætti þangað.
hnetunni, svo nokkrar séu nefndar. Nú
er Sigurður búsettur í Hveragerði og
hefur snúið sér að ferðaþjónustunni í
Hólaskógi og því að fá þangað unglinga
og fræða þá um þá vá sem vímuefni
eru. „Vissulega er þetta hugsjónastarf
hjá mér. Það hvetur mig líka áfram
þegar ég finn hversu krökkunum
flnnst þetta skemmtilegt," segir hann.
Fyrir áramót fór 8. bekkur Grunn-
skólans í Hveragerði í Hólaskóg. Farið
var í tveimur hópum, um 25 krakkar í
hvort sinn. Meðal þeirra sem fræddu
krakkana voru Eiríkur Pétursson frá
fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykja-
vik, sem talaði um flkniefni og áfengi,
og Þorgrímur Þráinsson frá Tóbaks-
varnarnefnd sem ræddi um skaðsemi
reykinga. Séra Bára Friðriksdóttir,
sóknarprestur í Hveragerði, lagði líka
orð í belg og þótti hennar tillegg vel
við hæfi en í 8. bekk eru einmitt þeir
unglingar sem eiga að fermast í vor.
Félagar úr hljómsveitunum Landi
og sonum og írafári komu einnig og
sungu og spiluðu með krökkunum.
„Þegar Birgitta Haukdal var hér sagð-
ist hún aldrei myndu kyssa strák sem
reykti. I hópnum voru tveir strákar
sem reyktu og ég hef sannfrétt að þeir
séu steinhættir eftir þetta,“ segir Sig-
urður.
Sterk tengsl í litlum hópi
Sigurður Gröndal minnist þess frá
því hann var strákur á fermingaraldri,
fyrir um þrjátíu árum, að hafa gjarnan
farið með skátunum og skólanum í úti-
vistarferðir í fjallaskála. Slíkt hafi ver-
ið sem eitt stórt ævintýri og inntak
ferða Hveragerðiskrakka í Hólaskóg
nú segir hann vera í sama anda. Að
blanda saman fræðslu og fjöri.
„Að mínu mati skilar fræðslustarf
líka góðum árangri þegar við fórum
svona út fyrir bæinn með, til þess að
gera, lítinn hóp. Við svona aðstæður,
þegar ytri áreiti eru varla fyrir hendi -
myndast sterk tengsl milli krakkanna
og þeir verða opnir fyrir fræðslunni
sem er auðvitað megintilgangurinn
með þessu öllu,“ segir hann.
Auk þessa fá svo foreldrar sina
fræðslu, svo sem hver helstu einkenni
vímuefnaneyslu séu og hvernig halda
megi unglingum á heillavænlegum
brautum. Leiðist krakkarnir hins veg-
ar út af þeim segir Sigurður að leiðin á
botninn sé oft stutt og fljótfarin.
Krakkar í
Hveragerbi fá
fræáslu um
fíkniefni í
fjallaskála:
Skemmti-
legar for-
varnir
skila
mestu
Segir frá bláköldum staáreyndum fíkniefnaheimsins:
Náum mjög vel til krakkanna
- segir Eiríkur Pétursson lögreglumaáur
„Þá leið í forvamar- og fræðslu-
starfi að fá krakkana út fyrir bæ-
inn í til þess að gera litlum hóp tel
ég vera árangursríka. Mér fmnst
að með þessu náum við mjög vel
til krakkanna, þá ekki síst þegar
maður af heiðarleika og á skiljan-
legri islensku segir þeim frá
bláköldum staðreyndum fikni-
efnaheimsins," segir Eiríkur Pét-
ursson lögreglumaður. Hann er
meðal þeirra sem fræddu krakk-
ana sem fóru í Hólaskóg og kveöst
hann mjög áhugasamur um að
fræðslustarfi í þessum dúr veröi
haldiö áfram.
„Mest um vert er að ná trausti
krakkanna. Mér hefur alltaf fund-
ist best að ná til krakka í litlum
hópum, til dæmis eins bekkjar í
senn. Þannig tekst töffurunum
síður að splundra hópnum eins og
stundum gerist," segir Eiríkur
sem lengi starfaði við fræðslustarf
hjá Lögreglunni í Reykjavík, til
að mynda á vegum forvama- og
fræðsludeildar.
Á vegum lögreglunnar hefur
verið lögð nokkur áhersla á að ná
í fræðslustarfi þessu til krakka í
7. bekk grunnskólans, það er tólf
ára. „Það gerist ótrúlega margt í
lífi krakkanna á þessum aldri. 1
erindunum minum hef ég meðal
annars verið að segja þeim frá
flkniefnasölunum sem í raun bíða
þeirra á bak við næsta götuhom
þegar þau eru komin á þennan
aldur. Eru tilbúnir að selja þeim
dóp fyrir fermingarpeningana,"
segir Eiríkur.
Fræösluerindi Eiríks í Hóla-
skógi tekur nær tvær klukku-
stundir og segir hann ánægjulegt
að allan þann tima hafi honum
tekist aö halda óskiptri athygli
krakkanna. „Mér finnst mikil-
vægt að svona fræðslustarf haldi
áfram. Erum við Sigurður Grön-
dal, staðarhaldari í Hólaskógi,
raunar tilbúnir að koma inn ým-
iss konar fræðslustarfi af þessum
toga ef við teljum það geta skilað
góðum árangri," segir Eiríkur.
Getur hann að síðustu góðfúslegs
leyfis sem hann fékk frá yfir-
mönnum síniun í Lögreglunni í
Reykjavík til þess að sinna þessu
starfi og sýni þeir málinu raunar
mikinn skilning. -sbs
„I erlndunum mínum hef ég meöal
annars verlö aö segja krökkunum
frá fíkniefnasölunum sem í raun
bíöa þeirra á bak viö næsta götu-
hom og eru tilbúnir aö selja þeim
dóp fyrlr fermingarpeningana,“ seg-
ir Elríkur Pétursson lögreglumaöur.
Magasfn-mynd Hari