Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Page 21
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
21
Smáauglýsingar
bílar, bátar, jeppar, húsbílar,
sendibílar, pallbílar, hópferðabílar,
fornbílar, kerrur, fjórhjól, mótorhjól,
hjólhýsi, vélsleðar, varahlutir,
.w*jT -
viðgerðir, flug, lyftarar, tjaldvagnar,
vörubílar... bílar og farartæki
DV
550 5000
Rottweilerhundar
Þessir prúöu kórdrengir munu ,
ásamt mörgum öörum skemmta ís-
firöingum á Sólarkaffi þeirra á Hót-
el Sögu í janúar. Sagt er að reynsla
ísfirðinga af kjaftforum pólitíkusum
hafi fyrir löngu bólusett þá fyrir viö-
kvæmni gagnvart afar hressilegu
málfari eins og þekkist hjá
Rottweilerhundum sem eru reyndar
aö hluta til ísfirskir að uppruna.
Sólarkaffi
isfiröinga 2003:
hundar og
Pönnukökur
með rjóma
Isfirðingafélagið í Reykjavík hefur
um áratugaskeið haldið veglegan dans-
leik sem kallaður er Sólarkaffi til að
halda upp á þann merka atburð er sól
sést að nýju á ísafirði eftir tveggja mán-
aða fjarveru i skammdeginu. Sólarkaff-
ið 2003 verður haldið á Hótel Sögu 24.
janúar og er það 58. í röðinni. Að þessu
sinni verður farið nær óskum unga
fólksins en oftast áður og m.a. teflt
fram skemmtiatriði þar sem
Rottweilerhundar gelta af mikium móð.
Þessi hljómsveit á reyndar að hluta
rætur á ísafirði en tveir hijómsveitar-
meðlimir eiga foreldri frá ísafirði, þeir
Erpur Eyvindarson og Lúðvík Páll Lúð-
víksson.
Undirbúningur er á lokastigi en
meðal annarra skemmtiatriða má
nefna leik Gunnars Þórðarsonar og fé-
laga í Guitar Islancia og Helga Braga
mun troða upp eins og henni einni er
lagið. Þá mun Sólarkaffihljómsveitin
Pönnukökur með rjóma halda uppi
fjöri en hún er skipuð brottfluttum Is-
firðingum.
Ólafur Hannibalsson, formaður fé-
lagsins, mun hafa látið í ljós einhveijar
áhyggjur vegna Rottweilerhunda. Þetta
muni kannski ekki vera alira penasta
hljómsveit sem völ er á fyrir þá prúö-
'búnu gesti á Sólarkaffi sem komnir eru
yfir unglingsárin. Þetta sjónarmiö for-
mannsins mun hins vegar hafa verið
snarlega kafífært með þeim rökum að
allir eldri ísfiröingar séu vel bólusettir
fyrir grófu orðbragði. ísfirskir póli-
tíkusar hafi nefnilega í gegnum árin
verið landsþekktir að þvi að vera þeir
kjaftforustu sem um getur og án þess
að hafa nokkum tíma verið bannaðir á
samkomum sem þessum.
Ræðumaður kvöldsins verður hinn
síungi og spræki töframaður og ljós-
myndari Jón A. Bjamason.
Þess má geta að miðamir að Sólar-
kaffmu gilda líka sem happdrættismið-
ar og þeir heppnu munu fá flugferðir tfl
Ssafjaröar fyrir tvo, ásamt vikudvöl í
bústað ísfirðingafélagsins, Sóltúnum á
ísafirði.
Isfirðingafélagið hefur einnig haldiö
uppi margvíslegri annarri starfsemi.
Má þar nefna útgáfu jólakorta fyrir fé-
lagsmenn og útgáfu á Vestanpóstinum
sem er ríkulega myndskreytt um 100
síðna rit sem kemur út um miðjan jan-
úar ár hvert. Þá hefur félagið veitt ár-
lega styrki til ísfirskra nemenda og
staðið fýrir kirkjukaffi á hverju vori. Á
haustin hefur undanfarin ár verið hald-
in svokölluð Sólkveðjuhátíð, sem féli þó
niður í ár af óviðráðanlegum ástæðum.
-HKr.
Leðurtaska
krókódílamunstur
Buxur • Blússur • Peysur • Pils Ifr- im
i]wj í wJwij íikijriwi]
Yfirhafnir • Oraktir • Jakkar
2.990-
Pcc éeúut v&tci!
VerslBB Balvegi 2 • Kápavsgi • SíbiI SB4 2000
t."
<
í