Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Page 24
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
tt
24__________
Lw'iagasín
I>V
Árinu eldri
Árni
Tryggvason
leikari verður
79 ára 19. jan-
úar. Hann er
gjarnan á
heimaslóðum
sínum í Hrís-
ey á sumrin og gerir út trillu.
Til áratuga hefur hann verið
einn dáðasti leikari landsins og
hver þekkir hann t.d. ekki sem
Lilla klifurmús í Dýrunum í
Hálsaskógi.
Árni
Björnsson
þjóðháttafræð-
ingur verður
71 árs 16. jan-
úar. í áraraðir
starfaði hann
á Þjóðminja-
safninu og
safnaði frásögnum um þjóðhætti
fyrri tíðar og sagði frá þeim.
Hann var áberandi í röðum sós-
íalista hér á landi, meðan þeir
voru og hétu í pólitík.
Gunnar
Kristjánsson,
prestur á
Reynivöllum í
Kjós, verður
58 ára 18. jan-
úar. Hann hef-
ur lengi verið
sálnahirðir
Kjósverja en þó ekki síst fengist
við skrif um ýmis trúarleg og
kirkjusöguleg efni. Gunnar var
einn fjögurra kandídata í síð-
asta biskupskjöri.
Davíó Odds-
son forsætis-
ráðherra verð-
ur 55 ára 17.
janúar. Lista-
maöurinn sem
nam lögfræöi.
Bóheminn
gerðist borgarstjóri. Matthild-
ingurinn breyttist í landsföður.
Eru fleiri orð um þetta ólíkinda-
tól ekki óþörf.
Björn
Mikaelsson,
yfirlögreglu-
þjónn á Sauð-
árkróki, verð-
ur 53 ára 17.
janúar. Laga
og reglna í
Skagafirði hef-
ur Björn, sem er Akureyringur
að upplagi, gætt til fjölda ára og
famast vel. Jafnframt er hann
hestamaður - rétt eins og vera
ber af Skagfirðingi.
Finnbogi
Jónsson,
sfjómarfor-
maður Sam-
herja, verður
53 ára 18. jan-
úar. Hann er
lærður verk-
fræðingur en sjávarútvegur hef-
ur lengst verið starfsvettvangur
hans. Lengi stýrði Finnbogi
Síldarvinnslunni í Neskaupstað
og er nú formaður stjómar Sam-
herja, fyrirtækis frænda sinna.
Óttar Felix
Hauksson
poppari verð-
ur 53 ára 19.
janúar. Sem
unglingur
sótti hann
Bítlamyndina
A Hard Days Night 30 sinnum.
Frá því er sagt í öldinni okkar.
Um dagana hefur hann fengist
viö grautargerð og tónlist og
rekur nú verslanir Japis.
Adolf H.
Berndsen,
oddviti á
Skagaströnd,
verður 44 ára
19. janúar.
Þegar Alþingi
kemur saman
eftir jólafrí tekur hann sæti sem
aðalmaður, þegar Vilhjálmur
Egilsson fer til starfa í Was-
hington. Nyrðra sinnir Adolf
ýmsu, rekur m.a. fyrirtæki í
fisksölu ýmiss konar.
Sigríöur
Hrólfsdóttir
viöskipta-
fræðingur
verður 36 ára
16. janúar.
Hún stýrir
fjármálum
Eimskips og
má segja að hún sé að sínu leyti
tákngervingur þess hve langt
konur geta náð á framabraut,
það er að verða fjármálastjóri
óskabams þjóðarinnar. Væntan-
lega viðhefur hún í þvi starfi
hagfræði hinnar hagsýnu hús-
móður.
Nafn: Sigríður Arnardóttir.
Aldur: 37 ára.
Maki og böm: Kristján Franklín og syn-
irnir Haraldur Franklín og Kjartan Frank-
lín. Þeir eru þriggja og ellefu ára.
Starf: Sjónvarpsskona.
Bifreið: Opel.
Hver eru þín helstu áhugamál og hvað
gerir þú í frístundum? Mín helstu áhuga-
mál eru íjölskylda, vinir og svo vinnan.
Einnig hef ég mjög gaman af þjóðfélagsmál-
um og þvl að fylgjast með erlendum fjölmiðl-
um, lesa, fara í leikhús og hreyfa mig. Úti-
vist verð ég að stunda helst á hverjum degi
og þá vil ég oftast hafa útvarp í eyranu og
hlusta mikið á BBC. Það gefur mér innblást-
ur og víðari sjóndeildarhring.
Hvernig eru þín ráð til þess að krydda
hvunndagsleikann? Mér finnst hvunndags-
leikinn ljómandi góður og hef gaman af því
að fara á kaffihús með skemmtilegu fólki,
eða ein og kíki í blöðin. Svo finnst mér
ákveðin tegund tónlistar geta breytt gráum
degi í gleðistund. Maður getur líka kryddað
tilveruna með því að hlaupa hressilega, fá
adrenalínið á fullt og fara svo út að borða á
eftir.
Uppáhaldsmatur: ítalskur matur.
Fallegasti staður innanlands: Þingvellir
á haustin og Snæfellsnes á sumrin. Mér
fannst eiginlega allt landið fallegt þegar ég
fór hringinn.
Uppáhaldsstaður erlendis: Ég hef nú
verið svo heppin að geta ferðast víða, t.d. til
Kína, Rússlands, Austur- og Vestur-Evrópu,
Ameríku. Og ég er á því að skemmtilegustu
staðimir eru þar sem maður nær að kynnast
góðu fólki og fá innsýn í lif þess. Því nefni ég
Bandaríkin bæði miðvesturríkin og austur-
„Menntun, heilsugæsla, listlr og íþróttir verða að vera fyrir
alia. Viö megum ekki glata samstöðu og samkennd með þeim
sem minna mega sín. Það tapa alllr á því ef misskiptingin fer
vaxandl á Islandi," segir Sigríður Arnardóttir, umsjónarmaður
þáttarins Fólk á Skjá einum.
Ufivist og útvarp í eyranu
- Sigríður Arnardóttir á Skjá einum sýnir hina hlióina
ströndina.
Hvernig finnst þér þátturinn Fólk gera sig og
hverjar eru viðtökur? Þátturinn hefur fengið gríð-
arlega góðar viðtökur og ég er þakklát fyrir það. Og
ég er líka ánægð með hvað fólk tjáir sig mikið um
þáttinn við mig á fömum vegi og hvar sem ég kem.
Þetta er vinsæll þáttur - en ég vil alltaf gera miklu
betur. Fólk heldur því áfram að þróast.
Hvaða þjóðþrifamálum á íslandi er brýnast að
vinna brautargengi? Við erum ekkert stikkfrí í
heimsmálunum og þurfum að leggja okkar af mörk-
um til að vinna að friði. Svo þurfum við íslendingar
að læra að slaka á og draga úr kapphlaupinu. Sinna
börnum okkar og okkur sjálfum betur. Þurfum að
standa saman í að vinna gegn fátækt og fíkniefna-
böli. Menntun, heilsugæsla, listir og íþróttir verða að
vera fyrir alla. Við megum ekki glata samstöðu og
samkennd með þeim sem minna mega sín. Það tapa
allir á því ef misskiptingin fer vaxandi á íslandi.
Hvaða mál hvíla helst á íslensku þjóðarsálinni
í dag? Það er af mörgu að taka og þjóðarsálin er ekki
einsleit. Sumir hafa það fínt og margir eru þakklátir
fyrir frið og fallegt land tækifæranna. Aðrir hafa
ástæðu til að óttast vaxandi atvinnuleysi og ójöfnuð.
En við erum þegar á heildina er litið forréttindafólk
og því meira sem ég ferðast því ánægðari verð ég
með ísland.
Helstu persónuleg markmið fyrir næstu mán-
uði: Að láta ekki skammdegið draga mig niður held-
ur taka fagnandi í móti hækkandi sól.
Hvað ætlaðir þú að gera þegar þú yrðir stór?
Ég ætlaði að verða fjölmiðlakona. Ég var alltaf að
leika mér að því að taka viðtöl. Notaðist við kassettu-
tæki, brúðuleikhús, heimatilbúið sjónvarpstæki og
skrifaði blöð. Og vinur minn lék fólkið á götunni og
brá sér í ótrúlegustu gervi. I dag er hann leikari og
ég hef unnið við að taka viðtöl síðan ég var 19 ára.
Snemma beygist krókurinn.
Lífsspeki: Hlúa að því sem manni er trúað fyrir.
dv.is
550 5000
Skaftahlíð 24