Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2003, Síða 27
FTMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003
27
DV
M,
agasm
Vínar-
tónlist
og Jón
Múli
„Ég ætla að halda tónleika um
helgina, bæði á heimaslóðum mín-
um í Mosfellsbænum og í Kópavog-
inum,“ segir Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari. Hljóm-
sveit nokkurra valinkunnra tónlist-
armanna sem Anna skipar að þessu
sinni mun í Hlégarði á fostudags-
kvöld og Salnum síðdegis á laugar-
dag flytja Vínartónlist - eins og víða
er gert í ársbyrjun - sem og lög Jóns
Múla Ámasonar við ljóð Jónasar
bróður hans. Flytjendur eru söngv-
ararnir Hanna Dóra Sturludóttir og
Ólafur Kjartan Sigurðarson. Þá
mun Sigrún Eðvaldsdóttir leika ein-
leik á tónleikum þessum en hún er
meðal þeirra sem hljómsveitina
skipa.
„Efnisskráin er geysilega
skemmtileg. Vínartónlist stendur
alltaf fyrir sínu og nýtur vaxandi
„Efnisskráin er skemmtileg. Vínartónlist stendur fyrir sínu og sama gildir
um lögin hans Jóns Múla,“ segir Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari.
vinsælda. Sama gildir um lögin
hans Jóns Múla enda þótt gjörólík
séu. Sigurður Snorrason klarínettu-
leikari hefur útsett þau fyrir þenn-
an flutning og mér fmnst útkoman
vera mjög áheyrileg. Ég vona að
sveitungar mínir í Mosfellsbænum
taki vel við sér og fjölmenni. Hins
sama vænti ég raunar varðandi tón-
leikana í Kópavoginum," segir
Anna Guðný sem er
bæjarlistamaður í Mosfellsbæ.
Hún segir að alltaf fylgi tónleika-
haldi talsverð fyrirhöfn. Sitt hlut-
verk sé raunar talsvert meira en að
setjast bara við flygilinn og spila eft-
ir nótum og samkvæmt tilfinningu.
Þannig verði hún við undirbúning í
Hlégarði á föstudaginn, svo sem að
selja miða og ganga frá hlutum
þannig að allt verði eins og það eigi
að vera þegar hátíðarstund með
Vínartónlist og Jóni Múla gengur í
garð. -sbs
Að heyra til meistara sveiflunnar og djass-
ins er oft alveg stórkostlegt, segir Hulda
Björk Garðarsdóttir. Með henni á myndinni
er sonur hennar, Egfll Elfar.
Tónlistin í hlustunum
Ella og Algjör
sfrumpur
„Gamla grammófónplatan Algjör strumpur með Gísla Rún-
ari Jónssyni er það sem fjölskyldan hlustar á þessa dagana.
Þar er Gísli í hlutverki Palla sem þekktur var í Stundinni
okkar og var mjög vinsæll þegar ég var stelpa. Við höfum öll
óskaplega gaman af þessari plötu og við eldri þá ekki síst að
rifja upp brandarana og tilsvörin hans Palla,“ segir Hulda
Björk Garðardóttir óperusöngkona.
„Um þessar mundir erum við í íslensku óperunni að æfa
Macbeth eftir Verdi en sagan byggist auðvitað á hinni frægu
skáldsögu Shakespeares. Þá er ég ekki endilega að hlusta á
upptökur af því sem ég er að vinna heldur er gott að hlusta
á eitthvaö allt annað til að hvíla sig eftir vinnudaginn," seg-
ir Hulda.
„Fyrir utan þetta þá setjum við líka oft djass á fóninn. Að
heyra til meistara sveiflunnar og djassins er oft alveg stór-
kostlegt, að ég tali nú ekki um þegar maður hlustar á snilld-
argóðar söngkonur, eins og til dæmis Ellu Fitzgerald."
-sbs
Bækurnar á náttborbinu:
„Varla verður sagt að ég liggi í hábókmenntalegu efni þessa
daga. Öll kvöld núna upp á síökastið hef ég verið fastur í sögun-
um um Basel fusta og hef mjög gaman af þeim. Höfundurinn er
óþekktur en góöur hefur hann verið. Furstinn er svona eins og
James Bond, fer víða um lönd og leysir ótrúleg og næsta dular-
fúll mál. Titlar sagnanna vitna um það, svo sem Indverska amb-
áttin, Týndi fjársjóðurinn og Vofan í gullnámunni, svo ég nefhi
nú einhverja sem ég man eftir svona í svipinn," segh Ari Gísli
Bragason, fombókasali í Bókavörðunni við Vesturgötu i Reykja-
vik.
„Gaman hefur verið að lesa bók um jóga sem meistari Þórberg-
ur og Ingimar Jónsson þýddu og gáfu út fyrir um áttatíu árrnn.
Hef haft hana við höndina undanfariö. Af bókum sem komu út
núna fyrir jólin þá hef ég veriö meðal annars verið að lesa nýju
Ijóðabókina hennar Ingibjargar Haraldsdóttur, Hvar sem ég verð.
Skáldsöguna Sagan af sjóreknu píanóunum eftir Guörúnu Evu
Mínervudóttir skáldkonu hef ég einnig verið aö lesa - og líkar sú
bók bara býsna vel.“
-sbs
„Sagan af sjóreknu píanóunum eftir Guö-
rúnu Evu Mínervudóttir hef ég einnig veriö
að lesa - og líkar sú vel,“ seglr Ari Gísli
Bragason.
Tyson þarf
ab opna
budduna
Tveggja ára deilur hnefaleika-
kappans Mikes Tysons og Dr.
Monicu Tumer í kjölfar skilnaðar
þeirra fyrir tveimur árum hafa
loks verið leiddar til lykta.
Tyson fer ekki vel út úr þessum
samningum því hann hefur fallist
á að greiða sinni fyrrverandi eig-
inkonu 320 milljónir króna. Ef
hann greiðir ekki skuldina innan
tUskilins tíma hækkar upphæðin
í 480 milljónir króna.
Hér er ekki öll sagan sögð. Að
auki lét Tyson eftir tvær gríðar-
lega stórar fasteignir sem metnar
em á um hálfan mUljarð króna.
Þá hefur hann samþykkt full yfir-
ráð Monicu yfir bömum þeirra en
saman áttu þau tvö böm. Tyson
kemur hins vegar tU með að
halda húsi sínu í Las Vegas.
Tyson hitti Monicu. fyrst við
réttarhöld yfir honum í kjölfar
kæru á hnefaleikakappann um
nauðgun. Þau giftu sig í aprU 1997
en hjónaband þeirra entist aðeins
í tvö ár. Monica hefur sakað
Tyson um miklar barsmíðar og
Ula meðferð. Hafa margir tekiö
hana trúanlega því Tyson hefur
verið eitt mesta vandræðabam
íþróttanna undanfarin ár og oft
sýnt með framferði sínu að hann
á viö mikla andlega erfiðleika að
stríða.
Tyson var um tíma heims-
meistari í þungavigt hnefaleik-
anna og nær ósigrandi í hringn-
um. Hann varð hins vegar á svip-
stundu einn óvinsælasti íþrótta-
maður heimsins er hann beit
stórt stykki úr eyra Ewanders
Holyfields í baráttu þeirra fyrir
nokkrum árum.
Tyson og Monica svara fréttamönnum þegar allt lék í lyndi. Nú þarf
Tyson aö sjá á eftir rniklum peningum til fyrrverandi konu sinnar.
SMÁAU5-
LVSIN&AR
Á NETINU!
► www.dv.is