Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003
Fréttir :o'V
DV-MYNDIR JÚLÍA IMSLAND
190 kílóa góðmetl
Etvar meö lúöuna góöu, 190 kíló, en karl faðir hans hefur enn betur og á Hornafjarðarmetið og kannski íslandsmetið, 197 kílóa lúðu. Baráttan við lúðuna var
klukkutíma spennandi viðureign og þurfti hjálparlið til að landa henni.
Stórlúður á handfæri trillukarlanna:
Barðist í klukkutíma við
að landa 190 kílóa lúðu
Trillukarlarnir Ásgeir Gunnars-
son og Elvar Unnsteinsson á
Homafirði fengu sína stórlúðuna
hvor á fóstudaginn. Lúöan sem El-
var veiddi var 190 kg, næststærsta
lúða sem veiðst hefur á veiðisvæði
Homaijarðarbáta. Stærstu lúðuna,
197 kíló, fékk Unnsteinn Guð-
mundsson, faðir Elvars, fyrir
nokkrum árum. Lúðan sem Ásgeir
fékk vó 140 kg.
Elvar var að veiðum við Horna-
fjarðardýpi en Ásgeir djúpt út af
Hálsum og voru 16 mílur á milli
þeirra. Unnsteinn var að veiða
skammt frá og kom hann Ásgeiri
til hjálpar og síðan fóru þeir báðir
til Elvars því útilokað er fyrir
einn mann að ná svona stórum
fiski um borð.
„Lúðan var 20 mínútur að koma
upp og það tók okkur klukkustund
að koma henni upp í bátinn,"
sagði Ásgeir. „Við vorum þó ekki
nema hálftíma að koma lúðunni
hjá Elvari um borð en þar þurfti
að brjóta úr rekkverkinu til koma
lúðunni í bátinn.
Veiði hefur verið mjög góð hjá
trillukörlum á Höfn og segir Ás-
geir að þetta sé besti maímánuður
síðan hann byrjaði með handfæri
1994. „Lúðuveiði var óvenjumikil
hér í fyrra og þessi byrjun lofar
góðu fyrir sumarið. Lúðan hagar
sér líkt og laxinn þegar hún er
komin á færið og það er alveg
meiriháttar skemtilegt að lenda í
svona veiði,“ sagði Ásgeir og
bætti við að handfærarúllurnar
stæðust svona álag með prýði.
Lúðurnar fara báðar á fisk-
markað en ekki vissu þeir félagar
hvað fengist fyrir svona gripi. -JI
Fjöltefli í Narsaq
Hrafn Jökulsson teflir viö börn og
unglinga í Narsaq. Mikill áhugi á
skák er aö vakna á Græniandi.
Hrókurinn og Skák í norðri:
Skákgyðjan
nemur land á
Gnænlandi
Skákfélagið Hrókurinn, í sam-
vinnu við félagið Skák í norðri, vinn-
ur nú aö skipulagningu fyrsta alþjóð-
lega skákmótsins sem nokkru sinni
hefúr verið haldið á Grænlandi. Efnt
verður til skákhátíðar í Qaqortoq 24.
júní til 4. júlí, og má segja að þar
með hefjist landnám skáklistarinnar
hjá þessum næstu nágrönnum okkar.
Hápunktur hátíðarinnar er opið al-
þjóðlegt atskákmót, 28.-30. júní, með
10.000 dollara verðlaunum.
Skákmótið er hugsað sem gjöf ís-
lendinga til að minnast Daniels W.
Fiskes (1831-1904), eins mesta vel-
gjörðamanns íslands, og hefur ríkis-
stjórn íslands ákveðið að styðja verk-
efnið. Sjálf framkvæmd hátíðarinnar
er í höndum félagsins Skák í norðri,
og er Benedikte Thorsteinsson, fv.
ráðherra í grænlensku landsstjórn-
inni, framkvæmdastjóri hátíðarirmar.
Flugfélag íslands, sem í sumar
mun fljúga tvisvar í viku miili land-
anna, er stór aðili að mótshaldinu og
sama máli gegnir um Icelandair sem
tekur að sér flutning erlendra blaða-
manna og skákmeistara til íslands.
Þá er Prentsmiðjan Oddi hf. mjög
mikilvægur bakhjarl verkefnisins, en
Hrókurinn gefúr út tímarit í tilefni
hátíðarinnar sem fer í viðamikla
dreifmgu á Grænlandi. Timaritið
verður á dönsku og grænlensku og er
hugsað sem vinarkveðja íslendinga
til Grænlendinga. Tímaritið verður
m.a. sögulegt fyrir það að þar verður
í fyrsta sinn fjallað um skák á græn-
lensku.
Meðal þeirra skákmanna sem þeg-
ar eru skráðir til leiks eru íslensku
meistararnir Jóhann Hjartarson,
stigahæsti skákmaður Norðurlanda,
Hannes Hlifar Stefánsson stórmeist-
ari og Stefán Kristjánsson alþjóða-
meistari. Stigahæstur allra er þó
Ivan Sokolov, sem teflir undir fána
HoOands, en af öðrum meisturum
sem mæta tU Grænlands má nefna
Predrag Nikolic (Bosníu), Luke McS-
hane (Englandi), Tomas Oral (Tékk-
landi), Nick de Firmian (Bandaríkjun-
um), Regínu Pokoma (Slóvakiu) og
Flovin Þór Næs (Færeyjum). Upplýs-
ingar um mótið er að fmna á slóðinni
http://icechess.com/icelandic. -aþ
Skráðu þig í tilboðsklúbb
lceland Express á Netinu
IBH
Og njóttu þess að fá reglulega send til þín frábær tilboð sem
eingöngu eru veitt félögum í tilboðsklúbbi lceland Express. Skráðu þig á
www.lcelandExpress.is núna! DaglegtflugtilKaupmannahafnarog London.
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðuriandsbraut 24, opið 9-17 virka daga Sími 5 500 600 www.lcelandExpress.is
DV-MYND ÞÓK
Þriðjungur íbúða frátekinn
Ný íbúðaþyrping á vegum hiutafélagsins 101 Skuggahverfi, sem er í eigu
fasteignafélagsins Stoða og Burðaráss, var kynnt í Listasafni íslands í gær.
Voru áhugasömum sýndar teikningar og líkön af húsunum en fasteignasöl-
urnar Eignamiðlun og Húsakaup munu annast söiu á öllum íbúðum í þeim.
Tæþlega 100 íbúðir verða seldar í fyrsta áfanga og hafa áhugasamir þegar
skrifað sig fyrir um þriöjungi þeirra. A0 sögn Einars I. Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra 101 Skuggahverfis, verða um 250 íbúöir reistar á vegum fé-
lagsins en byggingum þeirra á að vera lokiö í ársbyrjun 2007. Upplýsingar er
einnig að finna á www.101skuggi.is