Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Síða 6
6 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ2003
Landakotsskóli hæstur í íslensku og stærðfræði í 10. bekk:
l^Esju
gönguleiðir Nýtt stafrænt unnið
útivistarkort af 42 gönguleiðum Esjunnar
meðöllum hugsanlegum upplýsingum.
Hvert sem leiðin liggur, vísum við þér veginn -
út í náttúruna, út í heim, uppá fjall og í átt að sögu og
menningu, hvort sem (xi ferðast í flugvél, á reiðhjóll,
kajak eða tveimur jafníljótum. I
Komdu við hjá okkur og skoðaðu frábært ún'al
íslenskra og erlendra ferðakorta. göngukorta og bólca... “
BOKA
Jf
J i
BUDIR
j/cy yj /
Laugavegí • Bankastræti • Siðumula • Mjódd
Nær helmingur
er ári á undan
Fjölmargt er fréttnæmt í niðurstöð-
um samræmdra prófa í 10. bekk í
vor. Stúlkur standa sig mun betur
en strákar, miklu færri nemendur á
landsbyggðinni ná góðum árangri
en á höfuðborgarsvæðinu og
landsmeðaltal í stærðfræði er að-
eins 5,6. Góður árangur barna í
Landakotsskóla er einnig mark-
verður.
Landakotsskóli hafði mjög mikið for-
skot í stærðífæði, eins og sést á með-
fylgjandi töflu. Þar eru gefnar upp
normaldreifðar meðaleinkunnir (sjá
umfjöllun neðar á síðunni) en raun-
veruleg meðaleinkunn nemenda skól-
ans í stærðfræði var 7,7. Til saman-
burðar fengu böm á öllu landinu að
meðaltali aðeins 5,6 í einkunn í stærð-
fræði. Meðaleinkunn Landakotsskóla í
íslensku var 7,8, hún var 6,6 á landinu
öllu. Skólinn hefur nú nokkur ár í röð
verið með hæstu meðaleinkunn í ís-
lensku.
Þá var Landakotsskóli með hæstu
meðaleinkunn á landinu í dönsku,
ensku og samfélagsfræði. Sex nemend-
ur á landinu öllu náðu 9,5 í ensku og
þeir vom allir úr 20 manna útskriftarár-
gangi Landakotsskóla!
Opinn öllum
„Skýringin er náttúrlega fyrst og síð-
ast gott skipulag og mikill námsáhugi
og það góða starf sem fer fram bæði í
bamaskólanum og í unglingadeild-
inni,“ segir Marta Guðjónsdóttir, um-
sjónarkennari útskriftarárgangsins í
Landakotsskóla.
Marta bendir á þá athyglisverðu
staðreynd að níu þeirra tuttugu bama
sem útskrifuðust úr 10. bekk í vor með
þessum ágæta árangri em ári á undan í
skóla, þ.e.a.s. fædd árið 1988. „Sam-
kvæmt nýju námsskránni mega þau
KAT í LANDAKOTI: Námsáhugi nemenda í Landakoti á stóran þátt í góðum árangri þeirra,
að sögn kennara þeirra.
þreyta samræmdu prófin ári fyrr. Ég tel
að þessi breyting, sem Bjöm Bjamason
átti veg og vanda af, skipti gríðarlegu
máli og mörg bamanna hafa nýtt sér
það. Sum færðust hins vegar upp um
bekk þegar þau vom yngri," segir
„Skýringin er náttúrlega
fyrst og síðast gott skipu-
lag og mikill námsáhugi."
Marta.
Landakotsskóli er ásamt Isaksskóla
annar tveggja gmnnskóla sem bjóða
upp á 5 ára bekk. Marta segir að margir
þeirra sem útskrifuðust ívor hafi byrjað
í 5 ára bekk og hugsanlega hafi það haft
áhrif, þótt erfitt sé að henda reiður á
því. Hins vegar telur hún þennan ár-
angur 1988-árgangsins til marks um að
skynsamlegra væri að stytta gmnnskól-
ann um eitt ár en að stytta ffamhalds-
skólann úr fjómm ámm f þrjú.
Landakotsskóli er rekinn af kaþólsku
kirkjunni. Hann er hins vegar opinn öll-
um bömum og kaþólsk böm em raun-
ar í minnihluta. „Við veljum ekki nem-
endur inn í skólann heldur fömm ein-
Fjölmiðlar hafa birt rangar tölur um samræmdu prófin:
Meðaleinkunnin í
Eyjum var ekki 2,8
Það er alls ekki rétt sem fullyrt
hefur verið í fjölmiðlum að með-
aleinkunn 10. bekkjar Barna-
skóla Vestmannaeyja í stærð-
fræði í vor hafi verið 2,8. Raunar
hafa engar upplýsingar um
raunverulegar meðaleinkunnir t
einstökum skólum verið birtar.
Fjölmiðlar hafa ekki látið það
stoppa sig.
Það var sjálfsagt mörgum Eyja-
mönnum áfall að heyra og sjá hvem
fjölmiðilinn á fætur öðmm fuflyrða
um helgina að meðaleinkunn í
stærðffæði í bamaskólanum hefði
verið 2,8. En þessi og raunar allar
aðrar tölur sem fjölmiðlar hafa
kynnt sem „meðaleinkunnir" í ein-
stökum skólum em hreint ekki með-
aleinkunnir.
Það sem Námsmatsstofnun hefur
birt em svokallaðar „normaldreifð-
ar" einkunrúr. Það þýðir að einkunn-
um hefur verið breytt þannig að
dreifing þeirra falli að svokallaðri
„normalkúrfu", sem felur f sér að fyr-
ir ffam ákveðinn fjöldi nemenda fær
lægstu einkunn, næstlægstu ein-
kunn og svo framvegis.
Mikilvægt er að hafa í huga að ein-
kunnaskalanum er fyrst breytt úr
0-10 í 1-9. Síðan em þau 4% nem-
enda sem fengu lægsta einkunn lát-
in fá einkunnina 1; næstu 7% fá ein-
kunnina 2; 12% fá 3; 17% fá 4; 20% fá
5; 17% fá 6; 12% fá 7; 7% fá 8; og síð-
Einkunnirnar sem
Námsmatsstofnun birt-
ir gefa fátt annað til
kynna en hlutfallslegan
mun á milli skólanna.
ustu 4% fá einkunnina 9. Þetta þýðir
að sjálfsögðu að meðaltal yfir allt
landið verður 5,0 í hverri námsgrein.
Það er því rangt sem fjölmiðlar
hafa haldið ffam að meðaleinkunn í
stærðfræði í Landakotsskóla hafi
verið 7,0. Það eina sem hægt er að
fullyrða um raunverulega meðalein-
kunn út frá tölunni er að hún er vel
yfir landsmeðaltali. Afla þarf upplýs-
inga hjá skólanum sjálfum til að fá
sjálfa einkunnina - sem var 7,7 í
þessu tilviki. Aðstoðarskólastjóri
Bamaskóla Vestmannaeyja vissi
hins vegar ekki hver meðaleinkunn-
in í stærðffæði hefði verið í vor
þannig að enn er allt á huldu um
hana.
En kannski er eftirfarandi dæmi
Vestmannaeyingum huggun harmi
gegn: Segjum að enginn nemandi á
gervöllu landinu hafi fengið lægri
einkunn en 5 í stærðfræði. Normal-
dreifingin þýðir að jafrivel þótt allir
nemendur í tilteknum skóla fái 5 í
einkunn þá verður meðaleinkunn
skólans í kringum 1 eða 2, vegna
þess að nemendur hans em allir í
hópi þeirra lægstu á landinu. - Það
er því óþarft að gera of mikið veður
úr hinni normaldreifðu einkunn 2,8
áður en fyrir liggur hvaða raunveru-
leg meðaleinkunn liggur að baki
henni.
Einkunnimar sem Námsmats-
stofriun birtir gefa sem sagt fátt ann-
að til kynna en hlutfallslegan mun á
milli skólanna. Sigurgrímur Skúla-
son hjá Námsmatsstofhun segir að
þetta sé gert til þess að gera ein-
kunnimar samanburðarhæfar á
milli ára. Prófin séu til dæmis mis-
jafrilega þung eftir árum, sem þýði
að samanburður á sjálfum einkunn-
unum sé ekki marktækur. Normal-
dreifingin leiðrétti þessa skekkju.
olafur@dv.is