Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ2003 SKOÐUN 15 Flokkarnir geri grein fyrir afstöðunni til hersins JP' | KJALLARI ÖgmundurJónasson * þingflokksformaður VC _______________ Ólafur Teitur Guðnason, blaða- maður á DV, skrifar ágæta grein í DV sl. helgi undir fyrirsögn- inni: Er leyndin í lagi? Kveikjan að greininni er umræð- an undanfarna daga um hvort rétt- mætt hafi verið að leyna þjóðina upplýsingum um framvindu her- stöðvamálsins, þar á meðal bréf til íslensku ríkisstjórnarinnar frá bandarískum stjómvöldum skömmu fyrir kosningar þar sem skýrt var frá þeim ásetningi Banda- ríkjamanna að draga stórlega úr umsvifum Bandaríkjahers hér á landi. í grein sinni kemst blaða- maður DV að þeirri niðurstöðu að þögnin hafi ekki skaðað þjóðar- hagsmuni en það réttlæti hana hins vegar ekki: „Þögnin á ekki að ríkja - ekki heldur í varnar- og öryggis- málum - nema þegar almanna- hagsmunir kreíjast þess. Og stjórn- völd hafa ekki gefið sannfærandi skýringar á nauðsyn þess að þegja í þetta sinn.“ Þetta segur Ólafur Teitur og vindur sér því næst aftur í tímann og rekur hvernig stjórnmálamenn hafi á fyrri hluta 8. áratugarins beitt blekkingum í herstöðvamálinu. Hann telur að sá tími sé liðinn að blekkingum sé beitt en það sé hins vegar ekki nema skömminni skárra ef þögnin hafi tekið við. Blekking og leynd Þetta er rétt ábending að mínu mati en jafnframt vert að hafa í huga að í skjóli leyndar þrífst blekk- ingin. Hið gagnstæða á einnig við. Fari umræða fram fyrir opnum tjöldum aukast líkur á því að hún verði jaftiffamt heiðarleg. Vilji menn í alvöru ná farsælli niðurstöðu í þessu máli til framtíðar gengur ekki að berja höfðinu við steininn. Þetta er samhengið sem rétt er að hafa til hliðsjónar í þessari um- ræðu. Jafnvel þótt það kunni að vera rétt að þögnin hafi ekki gert þjóðinni stórskaða þá er það engu að síður vafasamt að umræða um þetta stórmál fari fyrst og fremst fram á bak við luktar dyr og lokuð tjöld. Lýkur nú þeim hluta greinar minnar þar sem ég er sammála blaðamanni DV. Hverjum er best treystandi? Þar skilja nefnilega leiðir með okkur þegar hann gefur til kynna að núverandi stjórnarflokkum sé bet- ur treystandi í herstöðvamálinu en okkur sem myndum stjómarand- stöðuna: „Eða hverjum ætli þjóðin hefði treyst betur“, skrifar Olafur Teitur Guðnason, „til að freista DAVIÐ ODDSSON OG HALLDOR ASGRIMSSON: £g hef grun um að þeir viti innst inni að þeir láta stjórnast af blöndu af íhaldssemi og óskhyggju. þess að telja Bandaríkjamönnum hughvarf og semja við þá um far- sæla niðurstöðu um varnarliðið: ríkisstjóminni eða stjórnarand- stöðunni?" í þessu sambandi verður að taka fram að fráleitt er að setja stjórnar- andstöðuna alla undir einn hatt. Horfi ég þá sérstakiega tif Samfylk- ingarinnar og Vinstrihreyfingarinn- ar - græris framboðs. Samfylkingin vill áframhaldandi vem Bandaríkja- hers í landinu. VG er því hins vegar andvíg. Jnnan Samfylkingarinnar hafa einnig kvatt sér hljóðs tals- menn þess að komið verði á fót ís- Ienskum her á þeim nótum sem nú- verandi dómsmálaráðherra, Björn Bjamason, hefur boðað um árabil. Þetta er vfðs fjarri málflutningi VG sem vill efla öryggsivarnir á borð við landhelgisgæslu og af- menna löggæsiu en leggst gegn því að stofnaður verði her í landinu. En nánar að herstöðvarmálinu. Tillögur VG í apríl árið 1996 undirrituðu for- svarsmenn fslands og Bandaríkj- anna sérstakt samkomulag til fimm ára og var það staðfest í sérstakri bókun eða viðhengi við her- stöðvasamninginn. í þessari bókun var kveðið á um viðbúnað í herstöð Bandaríkjamanna hér á landi. Að fjómm ámm liðnum frá und- irritun samkomulagsins gæti hvor ríkisstjórnin um sig farið fram á endurskoðun þess og skyldu þá viðræður hefjast innan fjögurra mánaða. Á þinginu 1999/2000 fluttu þingmenn VG þingsályktun- artillögu um að gengið yrði til við- ræðna við Bandaríkjamenn um framtíð Keflavíkurflugvallar. Þar segir m.a.: „Stefnt skal að niður- stöðu áður en gildandi samkomu- lag við bandarísk stjórnvöld um umfang starfseminnar á Keflavík- Hér þarfhins vegar að hafa langtímahags- muni i huga. Það skyldi því aldrei vera að það sé Vinstrihreyfingin - grænt framboð sem öðrum flokkum fremur hafi reynt að taka á þessum málum afraunsæi. urflugvelli rennur út." Samkvæmt þingsályktunartillögunni var gert ráð fyrir að áfangaskýrslu yrði skil- að til Alþingis - „áður en núgild- andi bókun um umfang starfsem- innar á Keflavfkurflugvelli rennur út.“ Hvatt til raunsæis í greinargerð með tillögunni er rakið hvernig jafnt og þétt hefur dregið úr umsvifum Bandaríkja- hers hér á landi í samræmi við breytta heimsmynd og þannig hvatt til þess að íslendingar sýni raunsæi og fyrirhyggju. Orðrétt segir: „Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að gera áætlun um sérstakt átak til atvinnuuppbygg- ingar og þróunar fyrir svæðið, sam- hliða því að unnið verði að sam- komulagi við Bandaríkjamenn um hvemig að þessum breytingum verði staðið." Undir þennan málflutning VG tók því miður enginn annar stjórn- málaflokkur í þinginu og í umræð- unni nú er VG enn á ný eina stjórn- málaaflið á Alþingi sem hvetur til þess að hér verði ekki erlendur her og að ísland standi utan hernaðar- bandalaga. Fyrirhyggju þörf í atvinnumálum Um þýðingu hersins í atvinnu- legu tilliti er Vinstrihreyfmgin - grænt framboð mjög meðvituð og höfum við ítrekað hvatt til þess að tekið verði á atvinnumálum á Suð- urnesjum í tengslum við samdrátt og brottflutning bandaríska hers- ins. Fyrir Suðurnesjamenn er ástæðulaust að örvænta. Við skul- um ekki gleyma því að sú starfsemi sem rekin er á Keflavíkurflugvelli mun að ýmsu leyti þurfa að halda áfram, til dæmis hvað snertir rekst- ur flugvallar og þætti sem snúa að gæslu og öryggi. Yfir þetta þarf hins vegar að fara skipulega og út á það hafa okkar til- lögur gengið á Alþingi á síðasta kjörtímabili og einnig í aðdraganda síðustu kosninga. Með þessu móti höfum við viljað hvetja til þess að menn nálgist þessi mál af fullu raunsæi og fyrirhyggju. Verst er að horfast ekki í augu við vandann. Eflaust er það rétt hjá Ólafi Teiti Guðnasyni að ríkisstjórnarflokk- arnir séu líklegir til að reyna „að telja Bandaríkjamönnum hug- hvarf' en þegar hann botnar setn- inguna og segir að þannig megi „semja um farsæla niðurstöðu" þá þykir mér hann sama markinu brenndur og forsvarsmenn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks, að hugsað er til skamms tíma. Hér þarf hins vegar að hafa langtíma- hagsmuni í huga. Það skyldi því aldrei vera að það sé Vinstrihreyf- ingin - grænt framboð sem öðrum flokkum fremur hafi reynt að taka á þessum málum af raunsæi. Vilji menn í alvöru ná farsælli niðurstöðu í þessu máli til framtíð- ar gengur ekki að berja höfðinu við steininn og telja sjálfum sér trú um að heimurinn hafi engum breyting- um tekið á síðustu áratugum og að ekki þurfi að bregðast við þeim breytingum. Ég hef grun um að þeir Davíð Oddsson og Halldór Asgrímsson viti innst inni að þeir láta stjórnast af blöndu af íhaldssemi og ósk- hyggju í þessu máli. Þess vegna finnst þeim ágætt að geta pukrast með þetta í leyni. Það verður hins vegar að gera kröfu til þeirra og allra stjórnmálaflokka f landinu að þeir geri grein fyrir afstöðu sinni: Hvaða stefnu hafa þeir og hver eru markmiðin? - Þetta er þungamiðj- an í málinu og um hana má aldrei ríkja nein leynd. Við sippum „Ég hef aldrei þótt sýna kvenlega •" hegðun «að nokkru leyti, Enema hvað mér Efannst gaman að Glsli Marteinn sippa þeg- Baldursson. ar ég var yngri, en annað var það ekki." Gísli Marteinn Baldursson I árs- ritinu 19.júnl, I grein undirfyrir- sögninni„Við erum kerlingar, við sippum". Soldið yfirþyrmandi „Eflaust hef ég til að bera mik- ið af skapferli kvennanna (minni ætt, en gleymum ekki að ég á nú líka föður sem á heilmikið í mér. Og það eru nú svo sem engir skapleysingjar þeim megin heldur. Þannlg að útkoman er kannski dálftið yfirþyrmandi." Steinunn Óllna Þorsteins- dóttirí viðtali við ársritið 19. júnf. Ykkurvar nær „Þegar samkeppni við RÚV um auglýsingar er kennt um uppsagnir fólks á fréttastofu Stöðvar 2, fer ekki hjá því að upp rifjist þau yfirboð sem vlðgengizt hafa fyrr og síðar, þegar Stöð 2 hef- urtalið sig þurfa að ná til sín góð- um og gegnum starfskröft- um frá RÚV. [...] Hafa for- Markús Örn Antonsson. ráðamenn Stöðvar 2 nú gert sér grein fyrir að þessi yfirboö hafi verið of dýr og ódýrari starfskraftar séu nú látnir hverfa af vettvangi af þeim sökum?" Markús Örn Antonsson út- varpsstjóri i grein IMorgun- blaðinu. Úti að aka „Ökumenn eru boðnir velkomnir I Árnessýslu og hvattir til þess að sýna sér- staka aðgæzlu, eins og reynd- arallir sem verða úti að aka um helg- ina." Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaðurog lögreglustjóri i grein í Morgun Ölafur Helgi Kjartansson. blaðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.