Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Page 15
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ2003 SKOÐUN 15
Flokkarnir geri grein fyrir
afstöðunni til hersins
JP' | KJALLARI
ÖgmundurJónasson
* þingflokksformaður VC
_______________
Ólafur Teitur Guðnason, blaða-
maður á DV, skrifar ágæta grein
í DV sl. helgi undir fyrirsögn-
inni: Er leyndin í lagi?
Kveikjan að greininni er umræð-
an undanfarna daga um hvort rétt-
mætt hafi verið að leyna þjóðina
upplýsingum um framvindu her-
stöðvamálsins, þar á meðal bréf til
íslensku ríkisstjórnarinnar frá
bandarískum stjómvöldum
skömmu fyrir kosningar þar sem
skýrt var frá þeim ásetningi Banda-
ríkjamanna að draga stórlega úr
umsvifum Bandaríkjahers hér á
landi. í grein sinni kemst blaða-
maður DV að þeirri niðurstöðu að
þögnin hafi ekki skaðað þjóðar-
hagsmuni en það réttlæti hana hins
vegar ekki: „Þögnin á ekki að ríkja -
ekki heldur í varnar- og öryggis-
málum - nema þegar almanna-
hagsmunir kreíjast þess. Og stjórn-
völd hafa ekki gefið sannfærandi
skýringar á nauðsyn þess að þegja í
þetta sinn.“
Þetta segur Ólafur Teitur og
vindur sér því næst aftur í tímann
og rekur hvernig stjórnmálamenn
hafi á fyrri hluta 8. áratugarins beitt
blekkingum í herstöðvamálinu.
Hann telur að sá tími sé liðinn að
blekkingum sé beitt en það sé hins
vegar ekki nema skömminni skárra
ef þögnin hafi tekið við.
Blekking og leynd
Þetta er rétt ábending að mínu
mati en jafnframt vert að hafa í
huga að í skjóli leyndar þrífst blekk-
ingin. Hið gagnstæða á einnig við.
Fari umræða fram fyrir opnum
tjöldum aukast líkur á því að hún
verði jaftiffamt heiðarleg.
Vilji menn í alvöru ná
farsælli niðurstöðu í
þessu máli til framtíðar
gengur ekki að berja
höfðinu við steininn.
Þetta er samhengið sem rétt er að
hafa til hliðsjónar í þessari um-
ræðu. Jafnvel þótt það kunni að
vera rétt að þögnin hafi ekki gert
þjóðinni stórskaða þá er það engu
að síður vafasamt að umræða um
þetta stórmál fari fyrst og fremst
fram á bak við luktar dyr og lokuð
tjöld. Lýkur nú þeim hluta greinar
minnar þar sem ég er sammála
blaðamanni DV.
Hverjum er best treystandi?
Þar skilja nefnilega leiðir með
okkur þegar hann gefur til kynna að
núverandi stjórnarflokkum sé bet-
ur treystandi í herstöðvamálinu en
okkur sem myndum stjómarand-
stöðuna: „Eða hverjum ætli þjóðin
hefði treyst betur“, skrifar Olafur
Teitur Guðnason, „til að freista
DAVIÐ ODDSSON OG HALLDOR ASGRIMSSON: £g hef grun um að þeir viti innst inni að þeir láta stjórnast af blöndu af íhaldssemi og óskhyggju.
þess að telja Bandaríkjamönnum
hughvarf og semja við þá um far-
sæla niðurstöðu um varnarliðið:
ríkisstjóminni eða stjórnarand-
stöðunni?"
í þessu sambandi verður að taka
fram að fráleitt er að setja stjórnar-
andstöðuna alla undir einn hatt.
Horfi ég þá sérstakiega tif Samfylk-
ingarinnar og Vinstrihreyfingarinn-
ar - græris framboðs. Samfylkingin
vill áframhaldandi vem Bandaríkja-
hers í landinu. VG er því hins vegar
andvíg. Jnnan Samfylkingarinnar
hafa einnig kvatt sér hljóðs tals-
menn þess að komið verði á fót ís-
Ienskum her á þeim nótum sem nú-
verandi dómsmálaráðherra, Björn
Bjamason, hefur boðað um árabil.
Þetta er vfðs fjarri málflutningi
VG sem vill efla öryggsivarnir á
borð við landhelgisgæslu og af-
menna löggæsiu en leggst gegn því
að stofnaður verði her í landinu. En
nánar að herstöðvarmálinu.
Tillögur VG
í apríl árið 1996 undirrituðu for-
svarsmenn fslands og Bandaríkj-
anna sérstakt samkomulag til fimm
ára og var það staðfest í sérstakri
bókun eða viðhengi við her-
stöðvasamninginn. í þessari bókun
var kveðið á um viðbúnað í herstöð
Bandaríkjamanna hér á landi.
Að fjómm ámm liðnum frá und-
irritun samkomulagsins gæti hvor
ríkisstjórnin um sig farið fram á
endurskoðun þess og skyldu þá
viðræður hefjast innan fjögurra
mánaða. Á þinginu 1999/2000
fluttu þingmenn VG þingsályktun-
artillögu um að gengið yrði til við-
ræðna við Bandaríkjamenn um
framtíð Keflavíkurflugvallar. Þar
segir m.a.: „Stefnt skal að niður-
stöðu áður en gildandi samkomu-
lag við bandarísk stjórnvöld um
umfang starfseminnar á Keflavík-
Hér þarfhins vegar að
hafa langtímahags-
muni i huga. Það skyldi
því aldrei vera að það
sé Vinstrihreyfingin -
grænt framboð sem
öðrum flokkum fremur
hafi reynt að taka á
þessum málum
afraunsæi.
urflugvelli rennur út." Samkvæmt
þingsályktunartillögunni var gert
ráð fyrir að áfangaskýrslu yrði skil-
að til Alþingis - „áður en núgild-
andi bókun um umfang starfsem-
innar á Keflavfkurflugvelli rennur
út.“
Hvatt til raunsæis
í greinargerð með tillögunni er
rakið hvernig jafnt og þétt hefur
dregið úr umsvifum Bandaríkja-
hers hér á landi í samræmi við
breytta heimsmynd og þannig
hvatt til þess að íslendingar sýni
raunsæi og fyrirhyggju.
Orðrétt segir: „Að sjálfsögðu er
nauðsynlegt að gera áætlun um
sérstakt átak til atvinnuuppbygg-
ingar og þróunar fyrir svæðið, sam-
hliða því að unnið verði að sam-
komulagi við Bandaríkjamenn um
hvemig að þessum breytingum
verði staðið."
Undir þennan málflutning VG
tók því miður enginn annar stjórn-
málaflokkur í þinginu og í umræð-
unni nú er VG enn á ný eina stjórn-
málaaflið á Alþingi sem hvetur til
þess að hér verði ekki erlendur her
og að ísland standi utan hernaðar-
bandalaga.
Fyrirhyggju þörf í
atvinnumálum
Um þýðingu hersins í atvinnu-
legu tilliti er Vinstrihreyfmgin -
grænt framboð mjög meðvituð og
höfum við ítrekað hvatt til þess að
tekið verði á atvinnumálum á Suð-
urnesjum í tengslum við samdrátt
og brottflutning bandaríska hers-
ins. Fyrir Suðurnesjamenn er
ástæðulaust að örvænta. Við skul-
um ekki gleyma því að sú starfsemi
sem rekin er á Keflavíkurflugvelli
mun að ýmsu leyti þurfa að halda
áfram, til dæmis hvað snertir rekst-
ur flugvallar og þætti sem snúa að
gæslu og öryggi.
Yfir þetta þarf hins vegar að fara
skipulega og út á það hafa okkar til-
lögur gengið á Alþingi á síðasta
kjörtímabili og einnig í aðdraganda
síðustu kosninga. Með þessu móti
höfum við viljað hvetja til þess að
menn nálgist þessi mál af fullu
raunsæi og fyrirhyggju. Verst er að
horfast ekki í augu við vandann.
Eflaust er það rétt hjá Ólafi Teiti
Guðnasyni að ríkisstjórnarflokk-
arnir séu líklegir til að reyna „að
telja Bandaríkjamönnum hug-
hvarf' en þegar hann botnar setn-
inguna og segir að þannig megi
„semja um farsæla niðurstöðu" þá
þykir mér hann sama markinu
brenndur og forsvarsmenn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks,
að hugsað er til skamms tíma. Hér
þarf hins vegar að hafa langtíma-
hagsmuni í huga. Það skyldi því
aldrei vera að það sé Vinstrihreyf-
ingin - grænt framboð sem öðrum
flokkum fremur hafi reynt að taka á
þessum málum af raunsæi.
Vilji menn í alvöru ná farsælli
niðurstöðu í þessu máli til framtíð-
ar gengur ekki að berja höfðinu við
steininn og telja sjálfum sér trú um
að heimurinn hafi engum breyting-
um tekið á síðustu áratugum og að
ekki þurfi að bregðast við þeim
breytingum.
Ég hef grun um að þeir Davíð
Oddsson og Halldór Asgrímsson
viti innst inni að þeir láta stjórnast
af blöndu af íhaldssemi og ósk-
hyggju í þessu máli. Þess vegna
finnst þeim ágætt að geta pukrast
með þetta í leyni. Það verður hins
vegar að gera kröfu til þeirra og
allra stjórnmálaflokka f landinu að
þeir geri grein fyrir afstöðu sinni:
Hvaða stefnu hafa þeir og hver eru
markmiðin? - Þetta er þungamiðj-
an í málinu og um hana má aldrei
ríkja nein leynd.
Við sippum
„Ég hef
aldrei þótt
sýna
kvenlega
•" hegðun
«að nokkru
leyti,
Enema
hvað mér
Efannst
gaman að Glsli Marteinn
sippa þeg- Baldursson.
ar ég var yngri, en annað var það
ekki."
Gísli Marteinn Baldursson I árs-
ritinu 19.júnl, I grein undirfyrir-
sögninni„Við erum kerlingar, við
sippum".
Soldið yfirþyrmandi
„Eflaust hef ég til að bera mik-
ið af skapferli kvennanna (minni
ætt, en gleymum ekki að ég á nú
líka föður sem á heilmikið í mér.
Og það eru nú svo sem engir
skapleysingjar þeim megin
heldur. Þannlg að útkoman er
kannski dálftið yfirþyrmandi."
Steinunn Óllna Þorsteins-
dóttirí viðtali við ársritið 19.
júnf.
Ykkurvar nær
„Þegar samkeppni við RÚV
um auglýsingar er kennt um
uppsagnir fólks á fréttastofu
Stöðvar 2, fer ekki hjá því að
upp rifjist þau yfirboð sem
vlðgengizt
hafa fyrr og
síðar, þegar
Stöð 2 hef-
urtalið sig
þurfa að ná
til sín góð-
um og
gegnum
starfskröft-
um frá
RÚV. [...]
Hafa for-
Markús Örn Antonsson. ráðamenn
Stöðvar 2 nú gert sér grein
fyrir að þessi yfirboö hafi
verið of dýr og ódýrari
starfskraftar séu nú látnir
hverfa af vettvangi af þeim
sökum?"
Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri i grein IMorgun-
blaðinu.
Úti að aka
„Ökumenn eru boðnir
velkomnir I Árnessýslu og
hvattir til þess
að sýna sér-
staka aðgæzlu,
eins og reynd-
arallir sem
verða úti að
aka um helg-
ina."
Ólafur Helgi
Kjartansson
sýslumaðurog
lögreglustjóri i
grein í Morgun
Ölafur Helgi Kjartansson. blaðinu.