Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Side 9
f
FIMMTUDAGUR 3. JÚLl2003 DVSPORT 9
Hvaða stöðu spilar þú?
„Framherja."
Hvert er uppáhaldslið/leik-
maður í enska boltanum?
„Man. Utd. og Ryan Giggs."
Hverjir verða íslandsmeistar-
ar?
„Fylkir."
Hvað er skemmtilegast við
Akureyri
„Sundið."
Óttar Guðlaugsson,
11 ára, úr Hetti.
Hvaða stöðu spilar þú?
"Varnarmanns."
Hvert er uppáhaldslið/lelk-
maður íenska boltanum?
„Liverpool og Steven
Gerrard."
Hverjir veröa íslandsmeistar-
ar?
„(A.“
Hvað er skemmtilegast við
Akureyri?
„Stelpurnar."
Reynir Magnússon,
lOára, úr Breiðablikí.
Stuðningshópur HK úr Kópavogi vulinn stuðningshópur Esso-mótsins í fyrra:
Margar æfingar hjá stuðningsliðinu
Eins og kom fram í DV í gær var
stuðningshópur HK úr Kópavogi
valinn stuðningshópur Esso-
mótsins í fyrra. Blaðamaður DV-
Sports leit til hópsins þar sem
hann var að styðja strákana í A-
liði HK í leik gegn KA og var stað-
an 1-0 fyrir HK-strákanna og
hópurinn með bros á vör.
Hópurinn kemur vel undirbú-
inn til leiks á þessu Esso-móti og
samkvæmt heimildum DV
sögðustt þau við forráðamenn
mótsins vilja bikarinn fullan af
konfekti þegar þau sæktu hann
aftur á laugardagskvöldið. Æfing-
ar hjá stuðningshópnum hafa
verið margar að undanförnu og er
þema þessa móts línudans, en
þau hafa komið reglulega saman
og æft dansinn. í farteskinu hjá
hópnum er nýtt stuðningslag til
að dansa við en lagið er eftir einn
pabbann í hópnum og einn pabb-
inn (Stefán Hilmarsson) syngur
lagið, auk þess sem ein frænkan
semur textann. Viðlagið syngja
síðan strákarnir sjálfir.
Að sögn Auðar Þórhallsdóttur,
einnar mömmunnar í hópnum,
er það skylda hópsins að fylgja
öllum liðum HK á alla leiki, ekíd
bara A-liðinu heldur B, C og D
einnig.
„Við leggjum áherslu á þennan
ungmennafélagsanda, jákvæðnin
skiptir öllu máli," segir Auður en
hún er ein í hópnum sem nefnir
sig „Magnaðar mæður“ en auk
þess að fylgja sínu liði hittast þær
alltaf reglulega í Fagralundi
klukkan 8 á þriðjudagskvöldum
þar sem þær fara í fótbolta eða
göngutúra.
„Við hjá HK leggjum áherslu á
að allir okkar strákar fái að spila
og að þeir læri að sýna andstæð-
ingunum vinsemd og virðingu,"
segir Auður og greinilegt er að
hópurinn skemmtir sér konung-
lega á Akureyri en stuðningsfólk
HK er með tjaldbúðir við Hamra,
við Kjarnaskóg en strákarnir gista
í Lundarskóla. akureyri@dv.is
BESTU STUÐNINGSMENNIRNIR? Það var mikið fjör hjá stuðningshópi HK úr Kópavogi í gær en hópurinn var valinn stuðn-
ingshópur Esso-mótsins í fyrra og stefnir að því að verja titilinn í ár. DV-mynd Ægir
Upplýsingar og pantanir 444 4000 • www hoteledda is
Hefur þú komist
á réttan KjÖl?
Húnavellir eru kjörinn áningarstaður fyrir þá
sem koma norður yfir Kjöl. Þar er líka gott að
dvelja um kyrrt og renna fyrir silung, fara í
sund eða skreppa á hestbak.
Sjanghæ
kínverskur veitingastaður
Elsta kínverska veitingahúsið á íslandi
Hlaóborð í hádeginu
Kr. 980 - 6 réttir
Við erum einnig með aðstöðu fyrir allt
að 100 manns, tilvalið fyrir veisluna þína!
Laugavegi 28 • 101 Reykjavík • Sími: 551 6513
f