Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Side 12
12 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson
Netfang: gube@dv.is
Sími: 550 5829
Vilja fá að hitta Suu Kyi
BURMA: Alþjóðanefnd
Rauða krossins lýsti í morg-
un yfir bjartsýni á að herfor-
ingjastjórnin í Burma myndi
leyfa fulltrúum RK að hitta
stjórnarandstöðuleiðtogann
Aung San Suu Kyi sem hefur
verið í haldi (rúman mánuð.
Michel Ducreaux, fulltrúi
Rauða krossins í Burma,
sagði Reuters fréttastofunni
að hann hefði heyrt orðróm
um að Suu Kyi hefði verið
flutt úr hinu alræmda Insein-
fangelsi á „meira viðeigandi"
stað. Hann sagðist þó ekki
geta staðfest það en sagðist
vonast til að hitta hana.
Dýr hráki
BANDARlKIN: Maður nokkur í
Oklahoma, sem var handtekinn
fyrir að berja eiginkonu sína, og
átti yfir höfði sér eins árs fang-
elsisdóm og sekt fór heldur illa
að ráði sínu. Hann hrækti fram-
an í lögregluþjóninn sem
handtók hann og var umsvifa-
laust dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Ástæðan er sú að líkamsvessar
eru taldir geta borið smit.
Evrópuþingið í Strassborg:
Berlusconi
veldur titringi
Líkti þingmanni við fangavörð nasista
Leiðtogar Evrópuþingsins í
Strassburg hafa farið fram á
formlega afsökunarbeiðni frá
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, vegna ummæla
hans á þinginu í gær þar sem
hann líkti þýska þingmann-
inum Martin Schulz við fanga-
vörð í útrýmingarbúðun nasista
í seinni heimsstyrjöldinni.
Hafi Berlusconi, sem segist
harma ummælin, ekki farið að
kröfu þeirra fyrir klukkan 12.30 í
dag hóta þeir að íhugað verði að
slíta öll tengsl við ráðherraráð ESB
sem Berlusconi leiðir næstu sex
mánuðina en ítalir tóku í gær við
formennsku í ráðinu af Grikkjum.
Berlusconi líkti þýska
þingmanninum Martin
Schulz við fangavörð í
útrýmingarbúðun nas-
ista í seinni heims-
styrjöldinni.
Berlusconi viðhafi þessi ummæli
í þinginu í gær eftir að Schulz, sem
er þingmaður sósíalista, gagnrýndi
hann en viðbrögð hins blóðheita
Berlusconis við gagnrýninni voru
að segja Schulz tilvalinn í hlutverk
fangavarðar í kvikmynd sem verið
er að gera á Ítalíu um útrýmingar-
búðir nasista á Hitlerstímanum.
Fleiri þingmenn gagnrýndu
Berlusconi þegar hann reyndi að
gera grein fyrir því hvaða mál hann
hygðist setja á oddinn á því hálfa
ári sem hann fer með formennsku í
ráðherraráðinu. Þar höfðu þing-
menn þýskra græningja sig mest í
frammi og mættu með mótmæla-
spjöld á þingpalla þar sem hann
var sakaður um að hafa hindrað
framgang réttvísinnar heima á
Ítalíu og á einu þeirra stóð: „Engan
guðföður fýrir Evrópu".
Þegar Schulz hafði ítrekað gripið
fram í fyrir Berlusconi var honum
nóg boðið og lét umrædd ummæli
flakka.
í kjölfarið var sendiherra ítala í
Berlín kallaður til fundar í aðal-
stöðvum Gerhards Schröders
kanslara og honum afhent formleg
mótmæli æðstu stjórnvalda þar
sem ummæli Berlusconis voru
sögð óásættanleg og frekari skýr-
inga krafist.
Stuttu síðar var sendiherra Þjóð-
verja í Róm kallaður á fúnd í ítalska
utanríkisráðuneytinu þar sem
framferði og ummælum Schulz var
mótmælt.
Að ítalski sendiherrann skuli
kallaður til fundar í aðalstöðvum
kanslarans en ekki f utanríkisráðu-
neytið eins og venjan er þegar
milliríkjamál bera á góma, þykir
sýna að málið er litið mjög alvar-
legum augum.
Eftir að hafa neitað að biðjast
afsökunar á ummælum sfnum að
kröfu forseta Evrópuþingsins, hef-
ur Berlusconi boðist til þess að
aðstoðarmaður sinn biðji Evrópu-
þingið afsökunar á sumum um-
mælum sínum en ekki öllum en alls
ekki Schulz sjálfan.
Sendiherra ítala var
kallaður til fundar í
aðalstöðvum Gerhards
Schröders kanslara og
honum afhent formleg
mótmæli stjórnvalda
þarsem ummæli
Berlusconis voru sögð
óásættanleg og frekari
skýringa krafist.
Þessi uppákoma á fyrsta degi
ítala í forystu ESB þykir að vonum
ekki gefa góð fyrirheit um fram-
haldið og virkar að mati stjóm-
málaskýrenda eins og olía á bál
þeirra sem kynt hafa undir
óánægju og efasemdir um trú-
verðugleika Berlusconis og hæfni
hans til að stýra ESB vegna orð-
spors hans heima á Ítalíu.
Schulz sagði í viðtali við BBC í
gær að það væri vissulega broslegt
að heyra forsætisráðherra ítala,
með fortíðardraug Mussolinis í
eftirdragi, viðhafa svo kaldhæðnis-
leg ummæli. „Auðvitað er ég hon-
um reiður," sagði Schulz sem bygg-
ir gagnrýni sína á Berlusconi á
óeðlilegum hagsmunatengslum
hans sem fjölmiðlajöfurs og ríkasta
manns Ítalíu.
Schröder, kanslari Þýskalands,
krafðist þess í ræðu í þýska þinginu
í morgun að Berlusconi legði fram
formlega afsökunarbeiðni á öllum
ummælum sínum.
Aðalþjóðveginum á
Gaza lokað í morgun
Bjartsýnir á að finna
morðingja Miu litlu
Bjartsýni ríkir innan lögregl-
unnar í Ringsted í Danmörku á
að morðingi hinnar tólf ára
gömlu Miu Teglgaard Sprotte
muni finnast þótt hann leiki
enn lausum hala.
Lögreglunni hefur borist mikill
fjöldi ábendinga frá almenningi
sem er mjög í mun að aðstoða við
að góma morðingjann. Lík Miu
fannst grafið í jörðu á mánudags-
kvöld, skammt frá heimili henn-
ar. Stúlkunni hafði verið nauðgað
og hún síðan kyrkt með
nælonsnúru. Síðast hafði sést til
Miu á föstudagskvöld.
„í augnablikinu höfum við ekk-
ert í höndunum sem gefur vís-
bendingar um hver morðinginn
geti verið. Við höfum fengið
margar ábendingar um ákveðið
nafn og við höfum fengið upplýs-
ingar um fleiri nafngreindar per-
sónur. Við verðum þó að hafa
traustan grundvöll að vinna á áð-
ur en við förum út og bönkum
upp á hjá fólki," segir Erik Ander-
sen, varðstjóri í lögreglunni í
Ringsted, í viðtali við danska
blaðið Jyllands-Posten í morgun.
Vasahnífur undir smásjánni
Lögreglumennirnir einbeita sér
að því að rannsaka svissneskan
vasalmíf sem fannst þar sem lík
Miu var grafið í jörðu. Hnífurinn
er rauður, með áletruninni
„Maersk Drilling Safety Award".
Hjá Maersk var í gær verið að
kanna hversu margir hefðu fengið
svona hníf og þá hugsanlega hverj-
ir.
Danska blaðið Ekstra Bladet seg-
ir frá því í dag að móðir stúlkunnar,
hin 34 ára gamla Marianne Sprotte,
hafi mátt ganga í gegnum miklar
þjáningar á lífsleiðinni. Fyrir sex
árum missti hún eiginmann sinn,
sem þá var aðeins 35 ára, og nú er
tæp vika síðan dóttirin varð fómar-
lamb morðingja.
Lögreglan telur næsta víst að
morðinginn búi í smábænum Ben-
lose við Ringsted, sama bæ og Mia,
litli bróðir hennar, móðir og stjúp-
faðir búa í.
ísraelar lokuðu aðalþjóðvegin-
um milli suður- og norðurhluta
Gaza í morgun fyrir allri umferð
Palestínumanna eftir sprengju-
árás á gyðingabyggð.
Sjónarvottar sögðu að fsraelskar
jarðýtur hefðu komið stórum og
þungum steinsteyptum hindrun-
um fyrir á þjóðveginum. Ekki em
nema örfáir dagar liðnir sfðan þessi
sami þjóðvegur var opnaður fyrir
umferð Palestínumanna, í fyrsta
sinn í tvö og hálft ár. Sú ráðstöfun
vakti vonir manna um að friðvæn-
legar horfði nú fyrir botni Miðjarð-
arhafsins.
Israelskar hersveitir skutu einnig
í morgun til bana Palestínumann á
Vesturbakkanum, fáeinum klukku-
stundum eftir að George W. Bush
Bandaríkjaforseti bar lof á ísraelsk
stjórnvöld fyrir að hafa kallað her-
menn sína burt frá Betlehem.
REYNIR HVAÐ HANN GETUR: Mahmoud
Abbas, forsaetisráðherra palestlnsku
heimastjórnarinnar, hét því I gaer að fang
elsa alla þá sem myndu rjúfa vopnahléið
við Israel. Honum hefur reynst erfitt að
hafa hemil á harðlínumönnum.