Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2003, Side 30
30 DVSPORT FIMMTUDAGUR 3. JÚU2003
Grindavík með Færeyinga í sigtinu
Sigmundur Már tíundi FIBA-dómari Islands
KNATTSPYRNA; Ingvar Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Grindavíkur, sneri
heim til fslands í gær eftir
þriggja daga dvöl í Færeyjum.
Tilgangur ferðarinnar var að
skoða þarlenda sóknarmenn
sem gætu hugsanlega leyst
markaskoraravandamál Grinda-
víkurliðsins. Ingvar tjáði DV-
Sporti að hann hefði rætt við
nokkra leikmenn en fyrst og
fremst er Ingvar talinn hafa verið
að fylgjast með hinum tvítuga
sóknarmanni Kí, Hjalgrim Elttör.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Grindavíkur, líst einnig vel á
piltinn og staðfesti við DV-Sport
að hann væri fyrsti kostur liðsins.
„Hann er ágætur og skoraði gott
mark í leiknum sem ég sá hann
spila. Ég ræddi við hann og
nokkra aðra leikmenn og voru
þeir allir reiðuþúnir að skoða
málin. Annars er ekkert ákveðið í
þessum efnum og þetta skýrist
ekki fyrr en líklega í næstu viku,"
sagði Ingvar.
„Vlð þurfum klárlega að styrkja
hópinn en það er samt ekkert
óðagot. Við förum okkur hægt
og gætum þess að gera enga
vitleysu.
KÖRFUBOLTl: Sigmundur Már
Herbertsson úr Njarðvík varð í
vikunni tíundi íslenski dómarinn
til að fá alþjóðleg réttindi til að
dæma körfubolta en hann og
Jón Bender fóru í sumar til
Amsterdam til að sitja námskeið
á vegum FIBA, Alþjóða körfu-
boltasambandsins.
(sland á nú fimm FIBA-dómara
en hinir eru Kristinn Albertsson,
Breiðabliki, Leifur Garðarsson,
Haukum, Helgi Bragason, (S, og
Kristinn Óskarsson, Keflavík.
Sjötti íslendingurinn, Aðalsteinn
Hjartarson er FIBA dómari í
Sviss.
Sigmundurerfæddur 1968, tók
dómarapróf 1994 og hóf dóm-
gæslu í efstu deild 1995, alls 163
leiki. Hann var valinn efnilegasti
dómari úrvalsdeildar 1996 og
1997.
Sigmundur hefur undanfarin ár
dæmt í úrslitakeppninni og hef-
ur tvisvar dæmt bikarúrslitaleiki
karla (2000 og 2003).
Hin síðari ár hefur orðið æ erfið-
ara að fá alþjóðleg réttindi og
framboð dómara í Evrópu hefur
verið yfirdrifið nóg svo að ekki er
um eiginlegt próf að ræða þar
sem menn falla eða ná.
4-
1
Stórsigur
0-1 Matthfas Guðmundsson 31.
0-2 Jóhann Möller 34.
0-3 Hálfdán Gfslason 53.
0-4 Jóhann Möller 60.
0-5 SlgurðurS. Þorsteinsson 66.
0-6 Sigurður S. Þorsteinsson 75.
„Þetta var vægast sagt dapurt
hjá okkur. Þetta féll ekki með okk-
ur að þessu sinni. Við fengum
nokkur mjög góð færi áður en
þeir skoruðu. Þeir voru orðnir
pirraðir í stöðunni 0-0 og famir
að rífast en tókst svo að skora tvö
mörk fyrir hlé. Þriðja markið
skiptir gríðarlega miklu máli í
knattspymu og það datt þeirra
megin. Eftir það var eins og mínir
menn gæfust upp. Við þurfum
bara að gyrða okkur í brók," sagði
Sigurður Þorsteinsson, þjálfari
Aftureldingar, eftir að hans menn
höfðu steinlegið heima fyrir Val,
6-0.
Valsmenn verða því í pottinum
þegar dregið verður í 8-liða úrslit
bikarkeppninnar en Afturelding
hefur lokið þátttöku þetta árið.
Valsmenn vom mikið sterkari
aðilinn í leiknum ef fyrsti stund-
arfjórðungurinn er undanskilinn.
Heimamenn fengu góð færi til að
komast yfir en Þorvaldur Guð-
mundsson fór illa að ráði sínu í
tvígang með stuttu millibili. Vals-
menn náði síðan góðum tökum á
miðjunni sem þeir héldu út leik-
inn. Tvö Valsmörk vom skomð í
fyrri hálfLeik og vom það þeir Jó-
hann Möller og Matthías Guð-
mundsson sem þau gerðu og
lögðu þeir einnig upp mörkin
hvor fyrir annan. Valsmenn gerðu
síðan út um leikinn í byrjun
seinni hálfleiks þegar þeir fengu
mark á silfurfati eftir skelfileg
mistök í vöm Aftureldingar og eft-
ir það var einungis spuming
hversu stór sigurinn yrði þar sem
heimamenn virtust niðurbrotnir.
Sigurður Sæberg Þorsteinsson,
sem lék stórvel í vöm Vals megn-
ið af leiknum, færði sig framar í
seinni hálfleik og gerði tvö góð
mörk. Fyrra markið hans var með
stórglæsilegu skoti af 22 metra
Við vorum steinsof-
andi fyrstu 20 mínút-
urnar og vorum
heppnir að fá ekki á
okkurmark.
færi og það seinna eftir mikið
harðfylgi.
Sigurður var ánægður með
spilamennsku liðsins þegar harm
var tekinn tali að leik loknum.
„Þetta kom hjá okkur í seinni
hálfleik. Þeir stóðu í okkur í þeim
fyrri en í þeim seinni var þetta
aldrei spurning. Við vorum
steinsofandi fyrstu 20 mínútum-
ar og vomm heppnir að fá ekki á
okkur mark. Þeir broma sfðan
saman í seinni hálfleik. Okkur
tókst að spila okkar bolta þar sem
við náðum góðu spili og nýttum
kantana vel. Við höfum ekki náð
þessu spili í mörgum leikjum í
sumar en vonandi er þetta komið
hjá okkur. Þá emm við í mjög
góðu formi og það sýndi sig í lok
leiksins.
Maður leiksins: Sigurður Sæ-
bergÞorsteinsson
-Ben
Veigar Páll og
gerðu gæfumuninn íleik íslandsmeistara
1 -0 Veigar Páll Gunnarsson 26.
2-0 Sigurvin Ólafsson 55.
KR-ingar tryggðu sér sæti í 8-liða
úrslitum VISA-bikarsins í gær-
kvöld þegar liðið bar sigurorð af
U23 ára liði ÍA í Frostaskjólinu í
gærkvöld. Frammistaðan var
hins vegar ekki góð og hefði að
öllum líkindum verið jafn léleg
og gegn Grindvíkingum í síðustu
viku ef liðið hefði ekki notið
krafta þeirra Sigurvins Ólafsson-
ar, og þá sérstaklega Veigar Páls
Gunnarssonar, í leiknum.
Svart og hvítt á vel við þegar rætt
er um mikilvægi Veigars Páls Gunn-
arssonar í leik KR. Með hann innan-
borðs fær liðið allt aðra ásýn og í
leiknum í gærkvöld ákvað Willum
Þór Þórsson, þjálfari KR, að setja
hann í uppáhaldsstöðu' sína- rétt
fyrir aftan sóknarmennina - leikandi
lausum hala - í stað þess að hafa
hann á hægri vængnum eins og
hlutskipti Veigars hefur verið í upp-
hafi íslandsmótsins. „Kominn tími
til,“ heyrðist sagt á KR-vellinum, og
það með réttu, því að í þeirri stöðu á
Veigar heima og hvergi annars stað-
ar. Hann sýndi frábæra takta framan
af leik, skoraði gott mark og var sí-
fellt að velgja varnarmönnunum í
liði ÍA undir uggum. En áhyggjuefni
Willums felst í því að hann er sá eini
sem er að gera það sem til þarf.
Hreint ótrúlegt var að fylgjast með
„Áhyggjuefni Willums
felst íþví að Veigar Páll
er sá eini sem gerir það
sem tilþarf."
Arnari Gunnlaugssyni. Hann virtist
frískur á fyrstu fimm mínútum leiks-
ins eða svo og var að gera fína hluti,
en síðan ekki söguna meir. Honum
var endanum skipt út af í hálfleik.
Hvort sem um var að kenna meiðsl-
um eða formleysi þá átti Amar
sennilega slakasta leik sinn í óra-
tíma.
Sá sem leysti hann af, Einar Þór
Daníelsson, gerði ekki neinar rósir.
Eftir að hafa haft sig lítið í frammi
fyrir fyrsta hálftímann, utan þess að
næla sér í gult spjald fyrir kjaftbrúk,
braut Einar gróflega á Ellert Jóni
Björnssyni, sem átti góðan dag sem
fyrirliði ÍA. Brotið var viljaverk og
hefði eitt og sér verðskuldað brott-
vísun. Einar fékk hins vegar annað
gult spjald og var það nóg til að hann
fauk út af. Það vildi Einar Þór hins
vegar ekki gera og á meðan verið var
að huga að Ellert, sem lá óvígur á
vellinum, veittist Einar Þór að Þórði
Birgissyni. Þetta atvik á mjög líklega
eftir að draga dilk á eftir sig og hreint
með ólíkindum að sjá jafn reynslu-
mildnn leikmann og Einar Þór, sem
auk þess er fyrirliði liðsins, láta ung-
linga ofan af Skipaskaga fara jafn
mikið í taugarnar á sér.
Tíðar tæklingar frá ÍA
Því verður hins vegar ekki neitað
að Skagamenn voru oft á tfðum ein-
um of villtir. Tæklingamar vom ekld
sparaðar og eftir því sem leið á leik-
inn fóm leikmenn KR að hoppa upp
úr þessum tæklingum.
En Ólafur Þórðarson og lærisvein-
ar hans geta borið höfuðið hátt. Þeir
sýndu fslandsmeistumnum enga
virðingu og hefðu með smáheppni
getað skorað mark. Langskotum var
mikið beitt og áttu þau vel rétt á sér