Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Side 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRUSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRIT5TJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550 '
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan
auglysingar@dv.is. - Drelflng: dreifing@dv.is
Akureyrl: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins (
stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. DV greiðirekki viðmælendum fyrir
viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Forstjóra B&L sagt upp
- frétt bls. 4
Heimilislausir fá
húsaskjól
- frétt bls. 6
Boðsferðir þingmanna
- frétt bls. 6
Glæsileg dagskrá á
flughátíð
- frétt bls. 8
Flugsýningu mótmælt
- frétt bls. 8
Vísindamaraþon HÍ
- frétt bls. 8
Rafmagnsleysið í
Bandaríkjunum
- erlend frétt bls. 12
DV Bingó
Nú spilum við allt
spjaldið og ætti
ekki að líða á
löngu áðuren
einhver fær bingó.
Verðlaun fyrir bingó á
allt spjaldið eru afar glæsileg,
vikuferð til Portúgals með Terra
Nova Sól. Athugið að samhliða
einstökum röðum hefurallt
spjaldið verið spilað í sumar
þannig að tölurnar sem dregnar
hafa verið út í bingóleik DV til
þessa gilda á allt spjaldið.
29. talan sem kemur upp er 36.
Þeir sem fá bingó láti vita í síma
550 5000 innan þríggja daga. Ef
fleiri en einn fá bingó er dregið úr
nöfnum þeirra.
Flokksráðsfundur VG í dag
HERMÁL Flokksráðsfundur
Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs hófst í gær á
Hótel Loftleiðum og lýkur í
dag. Á fundinum verður rætt
um kosningarnar í vor og gert
grein fyrir heildarkostnaði
kosningabaráttunnar. Einnig
verður horft til framtíðar og
rætt um flokksstarfið á kom-
andi kjörtímabili.
Aukalmennra stjórnmálaum-
ræðna verða sérstakar um-
ræður um veru hersins á (s-
landi sem hefjast á morgun.
Frummælendur í þeim um-
ræðum eru Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður
VG, og Katrín Jakobsdóttir,
formaður ungra Vinstri
grænna.
Hólahátíð
HALDIÐ TIL HAGA: Sagtvarfrá
þvi í DV fyrir helgi að Hólahátíð
hefði hafist í gær. Hið rétta er
að hátíðin mun hefjast á morg-
un, sunnudag, með messu kl.
14, þar sem Jón Aðalsteinn
Baldvinsson vígslubiskup
predikar. Þá munu biskup (s-
lands, vígslubiskup Hólastiftis
og sr. Dalla Þórðardóttir annast
altarisgöngu.
Hundur drapst í Smáralind í vikunni þegar hann lenti á milli stafs og hurðar:
Hundur klipptist í tvennt
Hundur drapst í Smáralind í vik-
unni þegar hann klemmdist á
milli hurðar og stafs. Nýverið
voru öll öryggisatriði í Smára-
lind yfirfarin og lokaúttekt gerð
á húsinu og því eiga öll öryggis-
atriði þar að vera í lagi.
Slys átti sér stað í Smáralindinni á
miðvikudaginn þegar hundur
drapst er hann klemmdist á milli
hurðar og stafs í snúningshurð sem
er í verslunarmið-
stöðinni. Tvær
ungar stúlkur voru
með hundinn fyrir
utan verslunar-
miðstöðina þegar
slysið átti sér stað.
Hundurinn mun
hafa hlaupið frá
stúlkunum og elt fólk sem var á leið
inni í Smáralindina. Þegar að hurð-
inni var komið settist hundurinn
hins vegar niður á jörðina í stað
þess að fara inn og vildi þá ekki bet-
ur til en svo að hann lenti á milli
ytra og innra glers á snúningshurð-
inni þannig að hann hlaut bana af.
Sjónarvottar segja að um smá-
hund hafi verið að ræða og að hann
hafi hreinlega klippst í sundur þeg-
ar hurðin lenti á hálsi hans. Hurðin
mun hins vegar hafa haldið áfram
að snúast samkvæmt sömu heim-
ildum.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá öryggisstjóra Smára-
lindar mun ekkert vera athugavert
við hurðina en athugun á henni
hefur þegar farið fram. Öryggis-
stjórinn staðfesti í samtali við DV að
hundurinn hefði drepist við um-
ræddar aðstæður en hann gat þó
ekki fullyrt hvort hann hefði klippst
í tvennt.
„Samkvæmt því sem sást á örygg-
ismyndavélum stakk hundurinn
hausnum á milli innra og ytra glers
sem er á snúningshurðinni og lenti
þar á milli. Ekkert mun samt vera
athugavert við
hurðina. Á henni
eru nemar sem
skynja ef einhver
aðskotahlutur
lendir á milli en
þetta grey var
bara svo lítið og
því fór sem fór.
Þetta er auðvitað leiðindaatvik en
svona getur alltaf gerst."
Þær upplýsingar fengust hjá
byggingarfulltrúa Kópavogs að ný-
búið væri að fara yfir húsið og gera
á því lokaúttekt og því ættu öll ör-
yggisatriði að vera í lagi. Samkvæmt
því er það opinber staðreynd að
húsið sé öruggt og því ekki að búast
við neinum aðgerðum af hálfu yfir-
vaida vegna atviksins. agust@dv.is
SLYSAGILDRA: Slys átti sér stað í vikunni
þegar hundur lenti á milli stafs og hurðar
við snúningshurð, eins og sést á myndinni,
i Smáralind. Sjónarvottar segja hundinn
hafa farið í tvennt en nýverið var lokaúttekt
gerð á Smáralindinni og því eiga öll öryggs-
atriði þar að vera í lagi. DV-myndirHari
Sjónarvottar segja að
hundurinn hafi hrein-
lega klippst ísundur
þegar hurðin lenti á
hálsi hans.
HVERJIR ERU 0DYRASTIR?
Skólavörurnar
eru að koma
inn hjd okkur.
Krakka og unglinga
BUXUR
Tilboð
Kr. 890
FATALAND
Gistirými í
borginni yfirfullt
Allt gistirými á höfuðborgar-
svæðinu er yfirfuilt og þess
eru dæmi að fólk hafi ekki
fengið gistingu. Hafa sumir
leitað gistingar upp á Akra-
nes eða í Borgarfjörð eða
austur í Árnessýslu.
Ráðstefnu norrænna geð-
lækna þessa dagana sækja um
800 manns og 600 manns eru á
norrænni ráðstefnu um rann-
sóknir í viðskiptafræði, en báðar
þessar ráðstefnur standa yfir í
Reykjavík þessa dagana. Auk
þess er Menningarnótt Reykja-
víkur í dag og kvöld sem dregur
að sér tugþúsundir gesta og
Reykjavrkurmaraþon fer fram í
dag sem aldrei fleiri hafa bókað
þátttöku í, bæði fólk utan af
landi og útlendingar.
Flugsýning sem fram fer yfir
miðborg Reykjavíkur í tilefni
Menningarnætur hefur verið
kærð af Höfuðborgarsamtökun-
um, en þau telja það ekki verj-
andi að halda flugsýningu yfir
miðborginni þegar tugþúsundir
manna séu þar á ferðinni. Höf-
uðborgarsamtökin vilja að
borgaryfirvöld, lögregluyfirvöld
og flugmálayfirvöld komi í veg
fyrir sýninguna. gg@dv.is