Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Side 4
4 FRÉTTIfí LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003
Stóraukin ásókn
fjárglæfrafyrirtækja
hingað tíl lands - Ijótar sögur affólki sem hefur látíð glepjast
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk.
Skr. 6/01, ek. 75 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Suzuki Liana 2WD, 5 d., bsk.
Skr. 2/02, ek. 22 þús.
Verð kr. 1350 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
Skr. 7/99, ek. 59 þús.
Verð kr. 1140 þús.
Suzuki Wagon R+ 4x4.
Skr. 5/00, ek. 13 þús.
Verð kr. 890 þús.
Hyundai Santa-Fe 2,4, bsk.
Skr. 2/01, ek. 42 þús.
Verð kr. 1760 þús.
Nissan Primera Comfort, bsk.
Skr. 7/01, ek. 25 þús.
Verð kr. 1370 þús.
M-Benz A-140, bsk.
Skr. 7/02, ek. 35 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Peugeot 406 2,0, 3 d., ssk.
Skr. 11/98, ek. 72 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Alfa Romeo 156, bsk.
Skr. 9/98, ek. 60 þús.
Verð kr. 1180 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---///A-------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
Ásókn erlendra fyrirtækja, sem
bjóða fjármálaþjónustu hér á
landi án heimildar, hefur stór-
aukist á undanförnum misser-
um, að sögn Páls Gunnars Páls-
sonar, forstjóra Fjármálaeftir-
litsins. Starfsmenn eftirlitsins
hafa heyrt„ljótar sögur"af fólki
sem hefur látið tilleiðast að
leggja fram fjármuni til kaupa á
verðbréfum eða í innlán, en
þeir fjármunir hafa síðan reynst
tapaðir.
Fjármálaeftirlitið hefur nýlega
sent frá sér viðvörun þar sem at-
hygli var vakin á því að fjögur tiltek-
in fyrirtæki hefðu ekki starfsleyfi
sem fjármálafyrirtæki hér á landi,
né heldur hafi þau heimild til stofn-
unar útibús fjármálafyrirtækis eða
til að veita þjónustu fjármálafyrir-
tækis án stofnunar útibús.
Þessi fyrirtæki eru De Verre Lloyd
& Co Ltd., Drexel Asste Mana-
gement, Mutual Capital og
Solomon Christie. Skömmu áður
hafði Fjármálaeftiriitið sent frá sér
sams konar viðvörun vegna fyrir-
Um 1500 manns komu saman í
ráðhúsi Stokkhólms í gær til
þess að minnast Önnu Lindh,
utanríkisráðherra Svía, sem
myrt var í síðustu viku. Össur
Skarphéðinsson var meðal
þeirra sem sóttu athöfnina og
sagði hana hafa verið mjög til-
finningaþrungna.
„Þetta var mjög sérstök, hófstillt
en jafnframt hátíðleg athöfn," sagði
Össur Skaphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sem var við-
staddur minningarathöfn um
önnu Lindh, utanríkisráðherra Svf-
þjóðar, í ráðhúsinu í Stokkhólmi í
gær. össur var þar sem fulltrúi ís-
lenskra jafnaðarmanna ásamt
Guðmundi Áma Stefánssyni en auk
þeirra voru Svavar Gestsson sendi-
herra, Guðrún Ágústsdóttir sendi-
herrafrú og Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra viðstödd athöfnina
fyrir íslands hönd.
„Þarna var öll stórfjölskylda jafn-
aðarmanna í heiminum saman
komin ásamt sænsku ráðherrun-
um, með Persson í broddi fylking-
ar. Hann hélt svo mjög tilfinninga-
þrungna ræðu þar sem hann
minntist önnu og talaði hann sér-
staklega fallega til drengjanna
hennar tveggja sem þarna voru
staddir ásamt föður sínum. Góð-
vinkona önnu, Nafin Pekgul, for-
maður kvennahreyfingar sænskra
jafnaðarmanna, riljaði síðan m.a.
upp samskipti þeirra önnu þegar
þær voru báðar ungar mæður að
stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum,
en inn á miili var flutt mjög fögur
og viðeigandi tónlist," sagði össur
sem sagði athöfnina hafa verið
mjög tilfinningaþrungna.
Alls var um 1500 manns boðið til
minningarathafnarinnar sem hald-
in var af sænska Jafnaðarmanna-
tækjanna Team Marketing
fnternational og World Wide Auto-
bank
„Ferlið er oftþannig að
þessi fyrirtæki bjóða
fólki þjónustu sína. Síð-
an er notuð sú aðferð
að fólki er boðin glæsi-
leg þóknun fyrir að ná í
fleiri viðskiptamenn
þannig að sú kynning
leiði til samninga."
„Ábendingum til okkar fer fjölg-
andi frá fólki sem erlend fyrirtæki
hafa boðið þjónustu sína,“ sagði
Páll Gunnar. „Þessi fyrirtæki, sem
varað er við, hafa ekki getað sýnt
fram á heimildir til að reka fjár-
málaþjónustu hér á landi. TU þess
að fá þær þurfa þau að uppfylla
ákveðin skUyrði og fara í gegnum
ákveðið ferli. Aðeins að því undan-
flokknum, flokknum sem Anna
Lindh var meðlimur í. Fjöldi for-
seta, sendiherra og þingmanna
annarra ríkja sótti athöfnina ásamt
sænsku konungsfjölskyldunni og
nldsstjórn. Þá lék hluti Stokk-
hólmssinfóníunnar tónlist, auk
þess sem ljóð voru lesin. agusmdv.is
SÁRTSAKNAÐ: Tilfinningaþrungnar ræður
voru haldnar þegar minningarathöfn um
Önnu Lindh fór fram í Stokkhólmi í gær.
Páll Gunnar Pálsson.
gengnu mega þau bjóða þjónustu
sína hér.“
Páll Gunnar sagði að ein 5-10 er-
lend fyrirtæki væru nú til athugun-
ar á borði Fjármálaeftirlitsins. Þess
bæri að geta að alls ekki reyndust
öll þau fyrirtæki sem skoðuð voru
vera í ólagi. Við starfsemi sumra
þeirra væri ekkert að athuga. Varað
væri við hinum, sem sum hver virt-
ust vera fjárglæfrafyrirtæki, þótt
ekki væri hægt að fullyrða um það í
öllum tilvikum.
„Ferlið er oft þannig að þessi fyr-
irtæki bjóða fólki þjónustu sína.
Síðan er notuð sú aðferð að fólki er
boðin glæsileg þóknun fyrir að ná í
fleiri viðskiptamenn þannig að sú
kynning leiði til samninga," sagði
Páll Gunnar.
Hann sagði ennfremur að dag-
lega kæmu ábendingar frá fólki
sem fengið hefði slfk boð. Fjár-
málaeftirlitið setti sig þá í samband
við viðkomandi fyrirtækj og óskaði
eftir tilteknum upplýsingum. Flest
þeirra svöruðu ekki og væri þá birt
viðvörun.
Páll Gunnar sagði að til viðbótar
við fyrirtækin væru svo Nígeríu-
mennirnir sem væru að bjóða fólki
hér á landi gull og græna skóga
gegn tilteknum fjármálaviðskipt-
um. Fjármálaeftirlitið og lögreglan
reyndu eftir föngum að aðstoða þá
sem létu glepjast af slíkum gylli-
boðum. -JSS
Athöfn til minningar um Önnu Lindh
haldin í Stokkhólmi í gær:
Tilfinninga-
þrungin athöfn
Sólarlag f Sólarupprás á
kvöld morgun
Rvík 19.38
Ak. 19.26
Rvík 07.06
Ak. 06.46
Síðdegisflóð
Rvík. 13.41
Ak. 18.14
Árdegisflóð
Rvík 02.32
Ak. 07.05
Veðriðkl.
Akureyri
Reykjavík
Bolungarvfk
Egiisstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
London
Barcelona
New York
París
Winnipeg
. 12igm
alskýjað 8
skýjað 9
rigning 9
léttskýjað 9
alskýjað 7
þokumóða 19
skýjað 13
15
skýjað 11
skýjað 20
léttskýjað 26
skýjað 24
léttskýjað 29
skýjað 6