Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Síða 6
6 FRÉTTIF, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 Grænfáninn afhentur Mótmæla fullyrðingum UMHVERFl: Hallormsstaðaskóli fær Grænfánann í ár, viðurkenn- ingu fyrir framúrskarandi starf að umhverfisvernd og umhverf- is- og náttúrufræðslu. Fáninn verður afhentur á þriðjudag að viðstöddumTómasi Inga Olrich menntamálaráðherra. Grænfán- inn er umhverfismerki sem nýt- ur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og um- hverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar þess að hafa leyst Ijölþætt verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Að baki Grænfánanum stendur sjálfs- eignarstofnun, Foundation for Environmental Education (FEE). Landvernd hefur umsjón með Grænfánanum á (slandi. SJÁVARÚTVEGUR: Forstjórar tveggja útgerðarfyrirtækja á Austfjörðum, þeir Björgólfur Jóhannsson hjá Síldarvinnsl- unni hf. í Neskaupstað og Elfar Aðalsteinsson hjá Eskju hf. á Eskifirði, sendu í gær frá sér tilkynningu þar sem þeir mót- mæla fyllyrðingum alþingis- mannanna Einars Odds Krist- jánssonar, Sjálfstæðisflokki, og Jóns Bjarnasonar, Vinstri grænum, þess efnis að meðal- afli íslenskra kolmunnaskipa sé þúsundirtonna. Forstjór- arnir segja þingmennina fara rangt með staðreyndir. Þeir segja þingmennina ennfremur slíta staðreyndirnar úr samhengi og blása málið upp í fjölmiðlum. Nýtt nafn KOSNINGAR: íbúar sameinaðs sveitarfélags Búða- og Stöðvar- hrepps kjósa nýja sveitarstjórn í dag. Samhliða verður kosið um nýtt nafn á sveitarfélagið. Valið er um Austurbyggð, Búða- og Stöðvarhrepp, Suðurfjarðabyggð og Sjávarbyggð.Tveir listar bjóða fram, B-listi Framsóknarfélags Fá- skrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar og S-listi Samfylkingar og óháðra. Starfshópur SAMKEPPNI: Iðnaðar- og við- skiptaráðherra mun í samráði við dómsmálaráðherra skipa starfshóp til að kanna hvort breytinga sé þörf á samkeppn- islögum. Verður kannað hvort Samkeppnisstofnun þurfi að senda formleg erindi til ríkis- lögreglustjóra til þess að lög- regla geti hafið rannsókn á samkeppnismálum. Útlit fyrír að einangrun gæludýra hverfi afborði landbúnaðarráðuneytis Opnað á einkareknar einangrunarstöðvar Ljóst þykir að landbúnaðar- ráðuneytið muni draga sig út úr rekstri einangrunarstöðvar fyr- ir gæludýr sæki þar til bær einkaaðili um slíkan rekstur og uppfylli settar kröfur. Tveir aðilar hafa spurst fyrir um rekstur einangrunarstöðvar fyrir gæludýr hér á landi. Annars vegar er Dýralæknastofan í Garðabæ og varnarliðið hins vegar, að sögn Há- konar Sigurgrímssonar hjá land- búnaðarráðuneytinu. Ein stöð er nú starfrækt fyrir állt landið, í Hrís- ey, og er rekstur hennar á könnu ráðuneytisins. Með tilkomu nýrrar reglugerðar frá því í júnf síðastliðnum geta einkaaðilar sótt um rekstur ein- angrunarstöðvar. Landbúnaðar- ráðuneytið mun veita leyfi til rekstrarins, að uppfylltum ákveðn- um skilyrðum. Ljóst er að uppsetn- ing slíkrar stöðvar er kostnaðar- söm, svo sem strangar reglur um aðbúnað og umönnun hafa í för með sér. Hákon Sigurgrímsson sagði við Tveir aðilar hafa spurst fyrir um rekstur ein- angrunarstöðvar fyrir gæludýr hér á landi. DV í gær að forráðamenn Dýra- læknastofunnar í Garðabæ hefðu sótt um leyfi á sínum tíma. Ljóst hefði verið að ekki væri hægt að svara þeim fyrr en nýja reglugerðin væri tilbúin. Um leið og það hefði gerst hefði hún verið send forráða- mönum Dýralæknastofunnar til upplýsingar. Engin umsókn hefði HUNDALÍF: Með tilkomu nýrrar reglugerðar frá þvi I júní sl. geta einkaaðilar sótt um rekst- ur einangrunarstöðvar. borist þaðan enn sem komið væri. Þá hefði varnarliðið einnig sent inn fyrirspurn um hvort það mætti setja upp eigin stöð. Ekkert frekar hefði gerst í því máli. „En þetta er alveg opið með til- komu nýju reglugerðarinnar,1' sagði Hákon. „Meðan engin önnur stöð er í rekstri ber landbúnaðarráðuneyt- inu skylda til þess að sjá um ein- angrunina. En ég geri ráð fyrir því að um leið og einkarekin stöð tekur til starfa dragi ráðuneytið sig út úr rekstrinum. Ef sú staða kemur upp er líklegt að ráðuneytið leigi út eða selji rekstur Hríseyjarstöðvarinnar. Það eru engar forsendur fyrir því að ríkið sé að standa í þessu eftir að einn eða fleiri einkaaðilar eru komnir inn." -JSS Landbúnaðarráðherra skiparnefnd um vanda sauðfjárbænda: Nefndinni er ærinn vandi á höndum Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, hefur skipað nefnd sem fjalla á um vanda sauðfjár- bænda og þann tekjusamdrátt sem þeir hafa orðið fyrir síðustu misseri. Nefndin á að skila tillög- um til stjórnvalda. Sýnt er að sauðfjárbændur hafa orðið undir að ýmsu íeyti í baráttunni á kjötmarkaðinum við framleiðendur svínakjöts og kjúldingakjöts. Lækkun afurðaverðs á innanlandsmarkaði er orsök þessarar samkeppni, sem og of- framleiðsla, en hvort tveggja hefur orðið til þess að flytja þarf á erlenda markaði hærra hlutfall af kindakjöts- framleiðslu en verið hefur mörg síð- ustu árin. Markaðsverð erlendis er mun lægra en fæst fyrir dilkakjöt á innlendum markaði. Landbúnaðar- ráðherra telur mikilvægt að leitað verði raunhæffa leiða til að tryggja sauðfjárbændum viðunandi rekstrar- umhverfi og afkomu. - En er ekki fullreynt að ekki næst samkomulag þar sem engin grein vifl draga úr kjötframleiðslunni? „Fyrsti fiandurinn hefur nú ekki ver- ið haldinn en verður í dag (fostudag, innsk. blm.) svo erfitt er að segja um það. Það er þó Ijóst að okkur er ærinn vandi á höndum þó við fjöllum ein- göngu um vanda sauðfjárbænda. En við ædum okkur ekki langan tíma og stefnum á að skila nefndarálitinu eigi síðar en um miðjan októbermánuð. Ég vil ekkert segja um líkur á árangri, nefndin þarf frið til að fara yfir verk- efnið," segir Drífa Hjartardóttir, for- maður landbúnaðarnefndar Alþingis og einn nefndamianna. Formaður nefndarinnar er Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki, en nefndina skipa einnig, auk Drífu, þeir Ari Teitsson, formaður Bændasam- takanna, Jóhannes Sigfússon, formað- ur Landssambands sauðljárbænda, og Ólafúr Friðriksson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu. gg @dv.is Álf askeifl Mjög snyrtileg 50 ferm. stúdíóibúö á þessum sívínsæla stað í Firöinium, auk 23,7 ferm. endabílskúrs. Parket á öllu, góðir skápar í svefnherbergi, stórar suðursvalir. Áhv. byggingarsj. og húsbr. Verð 8,9 m Oddrún (825-3060) og Davíð (696-4959) taka vel á móti þér sunnud milli 15.00 og 17.00. Formaður utanríkismálanefndar: EES-samningurinn stendur fyrir sínu Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, er ekki sammála Árna Magnús- syni félagsmálaráðherra um að ekki verði unað við óbreyttan EES-samning öllu lengur. „Samningurinn um EES stendur alveg fyrir sínu og hefur dugað okk- urvel," segir Sólveig. „Evrópuréttur- inn er auðvitað í stöðugri þróun og ríki ESB eru að dýpka samstarf sitt. Það breytir því þó ekki að EES- samningurinn hefur að mínu mati reynst okkur vel, ekki síst varðandi Sólveig Pétursdóttir. vöruviðskipti og aðgang að mörkuð- um, sem er okkur íslendingum auð- vitað afar mikilvægt." Árni Magnússon félagsmálaráð- herra gerði lýðræðishallann í EES- samningnum að umtalsefni f ræðu í Háskólanum í Reykjavík í gær og ræddi einkum takmarkaða aðkomu sveitarfélaga að lagasetningu ESB. „Ég tel að við þurfum að ná fram [...] breytingum á samningnum," sagði Árni í viðtali við fréttastofu Útvarps í kjölfarið og bætti við að hann teldi að „við svo búið [yrði] ekki unað öllu lengur".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.