Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Qupperneq 22
22 DVmtmHBlMB LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 Betri helmingurinn Umsjón: Arndís Þorgeirsdóttir, arndis@dv.is Signý Ormarsdóttir sýnir hönnun úr hreindýraleðri: Kjólar hafnir yfir tískustrauma Signý er meðal frumkvöðla þegar kem- ur að hönnun og vinnslu á fatnaði úr ís- lensku hreindýraleðri. Undanfarin tíu ár hefur Signý getið sér gott orð íyrir hönn- un á fatnaði úr hreindýraleðri. Hún hefur að mestu leyti einbeitt sér að klassískum fatnaði. Meðal þess sem hún hannað og saumað eru jakkar, kápur, veiðivesti og húfur. Einnig hefur hún hannað heimilis- línu úr lambs- og nautsleðri; diskamott- ur, dúka, púða og svuntur sem margir kannast vafalaust við. „Það er alltaf einstakt að vinna með hreindýraskinn því ég kaupi húðirnar beint af veiðimönnum. Síðan læt ég súta þær og vinn svo áfram með þær. Þannig ræð ég ferlinu frá upphafi til enda,“ segir Signý. Hún segir flíkurnar á sýningunni vera TOPPUR: Þessi toppur er unninn úr laxaroði en það er efni sem Signý vinnur jafnframt með. Kjólar úr hrelndýraleðri eru meðal þess sem ber fyrir augu í Listhúsi Ófeigs frá og með deginum í dag. ÞarsýnirSigný Ormarsdótt- ir, menningarfulitrúi á Austurlandi, glæsi- lega hönnun á flíkum sem unnar eru úr hreindýraleðri og einnig öðrum skinnum. Auk þess að vinna úr hreindýraleðri notar Signý einnig laxaroð, lambaskinn, kálfaskinn, úlfaskinn, refaskinn og kaníu- skinn. Signý kveðst leggja áherslu á há- gæðahönnun; þar sem fatnaðurinn er ávallt hafinn yfir breytilega tískustrauma og úreldist því ekki. Því má vel segja að hver flík sé einstök enda engar tvær húð- ir. Sýning Signýjar stendur til 8. október næstkomandi. árangur þróunarstarfs sem hún hefur unnið síðustu ár. „Flíkurnar á þessari sýningu eru svolítið frá- brugðnar því sem áður gert. Það má segja að brjóti margar hefðir því nú vinn ég sérstaklega með hverja húð og nota ekki hefð- bundin snið. Þess í stað drappera ég flíkina á lík- amann og vinn þannig með hverja flfk sem ein- stakt listform," segir Signý um hönnun sína. Það að flíkin sé drapperuð SfÐKJÓLL: Stórglæsilegur síðkjóll eftir Signýju. Kjóllinn er úr hreindýraleðri og snýr holdrosinn út.Til hliðarsést mittisjakki úr sams konar leðri. á lfkmann þýðir að Signý getur ekki not- ast við hefðbundnar gínur. Hún segir langskemmtilegast að hanna kjóla á kon- ur sem hafa pantað fyrir fram. Þá segir Signý það spennandi við hreindýraskinn- in að hún komist jafnan yfir húðir af gömlum hreindýrum. Húðirnar séu oft með skotgötum og fláningsgötum eftir hnífa veiðimannsins. Þá sjáist stundum för eftir hryggjarsúluna á eldri húðum. Signý snýr holdrosanum á húðinni út, þ.e. bakhliðinni. Húðirnar eru oft með skot- götum og fláningsgötum eftir hnífa veiðimannsins. JD: Signý hafði I nógu að snúast í gær þegar hún var að leggja á sýningu sína í Listhúsi Ófeigs. Margrét Rósa Einarsdóttir er aivaldur í Iðnó en þar rekur hún fjölbreytt leikhús og veitingastaðinn Tjarnarbakkann. Um þessar mundir er Margrét að leggja lokahönd á dagskrá haustsins og því í nógu að snúast. Dagskráin er afar fjöl- breytt og oflangt mál að telja upp hér en hægt er að kynna sér málin á heima- síðu Iðnó. Atla jafna notar Margrét Rósa snyrtivörur íhófi þrátt fyrir að snyrti- buddan hennar sé full affínu dóti. Alltaf eftir bað „Ég er nýbúin að eignast þetta dag krem og líkar það vel. Það heitir No Age og er frá Christian Dior. Ég á það til að prófa alltaf ný og ný dag- krem því ég man sjaldnast nafn- ið á síðasta kremi. Þetta er ekkert síðra en önnur sem ég átt.“ Fínn maskari „Maskarann nota ég ekki dags daglega. Þessi heitir Flextencils og er frá Lancóme. Hann er sagður lengja og þykkja augnhárin. Það kann vel að vera. Mér hefur líkað hann ágætlega." legt að bera það sig. Mér finnst oft þægilegra að vera með litað dagkrem heldur en stífan farða." Pínulít- ið spari „Þetta krem heitir Créme Teintée og er frá Christian Dior. Þetta er sem sagt litað dagkrem. Ég nota kremið ef ég ætla aðeins að punta mig enda fljót- Mikið spari „Ég á alltaf meik í snyrti- buddunni og nota það þegar eitthvað mikið stendur til.' Ég' hef undanfarin misseri notað þessa tegund; Teint Diorlift frá V Christian Dior. Ég sé enga ástæðu \ til að skipta því út enda passar það ^ mér ágætlega." 1 Ofurfyrirsætuilmur „Ég keypti þetta ilmvatn í fríhöfn- inni fyrir þó nokkru. Þetta er ilmvatn Naomi Campbell og er mjög frísklegt. Það léttir lundina og er langt frá því að vera yfirgnæfandi eins og sumir ilmir geta verið. Þegar ég fer eitthvað fínt þá nota Coco frá Chanel." Frískandi fyrir augu „Augnkremið er ansi sniðugt. Þetta tiltekna krem heitir „Capture Essente Yeux“ og er frá Christian Dior. Ég ber þetta gjarnan í kringum augun og þetta er af- 3^ skaplega frískandi. Svo hefur þetta einnig þægileg kælandi áhrif." I I í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.