Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2003, Page 25
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2003 WHBUZA8BLAH 25 DV-myndir Pjetur Friðrik var búinn að elda núðl- urnar og léttsteikja grænmetið og hneturnar þegar okkur bar að garði en hér veiðir hann núðlurnar upp úr soðinu, eins og sjá má. Núðlurnar eru settar með gætni út í pottinn með olíunni og grænmetinu og að síðustu er ostrusósunni bætt i og allt hrært saman. Litríkt grænmeti er lystaukandi og hér sker Friðrik niður papriku til að dreifa yfir núðlurnar á diskinum. erval Hildar Harnar Hrefnukjöt er loks á boðstólum í ein- hverju magni og margir sem freistast til að smakka. Sjálfsagt eru viðbrögðin á alla vegu en Friðrik á Fjörukránni býður upp á skemmtilega útfærslu á hrefnukjöti hér til hliðar sem ætti að hugnast mörgum. Hildur Hörn Daðadóttir hjá Karli K. Karlssyni tók hiklaust áskoruninni um að velja vín með kræsingunum. Ákvað hún að leita alla leið til andfætlinga okkar í Vestur-Ástralíu eftir hinum dýru dropum. Rétturinn hér til hliðar er spennandi og því ekki úr vegi að sýna áræði og velja djörf vín frá vínræktarhéruðum á þessu landsvæði. Þar sem hrefnukjötsrétturinn hefur ákveðna sætu í sér en um leið ákveðna remmu valdi Hildur vínin með hliðsjón af eikar- og sýrustigi. Þannig er hvítvínið eikað en þó með áberandi köld- um ávexti til að vega á móti ostrusósunni og engiferinu. Shiraz vínið er hins vegar einfalt og kryddað með gott sýrustig sem hún telur að nái að fanga saman hin ólíku Daðadóttur hjá Kar bragðeinkenni núðlanna og hrefnukjöts- ins. En snúum okkur að vínunum. Palandri Chardonnay er flaggskip framleiðandans Palandri, ættað frá Margaret River f Vestur-Ástralíu. Palandri Chardonnay hefur ilm af sítrus og suð- rænum ávöxtum og það vottar fyrir eplatónum. f munni er vínið mjúkt og fágað með yndislegum, mjúkum keim af perum, grænum eplum og múskati. Smávegis vottur af eik og vanillu er að finna í eftirbragðinu sem er hreint, langt og ferskt. Vínið var 10 mánuði á amerískri og franskri eik. Flaskan af Palandri Chardonnay kostar 1590 krónur í ÁTVR, Solora Shiraz, rauðvínið, er mjúkt og ríkulegt vín með léttum ávaxtakeim sem kitlar bragðlaukana allt frá því það renn- ur í munninn og þar til því hefur verið kyngt, þ.e. frá byrjun til enda. Solora Shir- az hefur áberandi ávaxtakeim frá plóm- um og svörtum berjum með hvítum pip- ar í undirtóni. í munni er vínið einnig i K. Karlssyni ávaxtaríkt, með safaríkum plómum og skógarberjum ásamt kryddtónum. Um 20 prósent þess voru gerjuð á amerískum eikartunnum, blöndu gamalla og nýrra tunna. Solora Shiraz er annars best með bragðmiklum mat en flaskan af því kostar 1190 krónur í ÁTVR. Þess má geta hér til fróðleiks að Vestur- Ástralíu, þ.e. svæðinu í kringum Perth, er skipt í vínræktarsvæðin Margaret River, Perth Hills og Swan Valley. Vínframleiðsl- an í Vestur-Ástralíu er ekki mikil en á móti kemur að það sem vantar í magni er bætt upp með gæðum. Vínrækt í Vestur- Ástralíu byrjaði snemma á 20. öldinni í Swan Valley. Margaret River er eflaust þekktasta svæðið í Vestur-Ástralfu, þó svo að vínframleiðsla hafi ekki byrjað þar fyrr en á 7. áratug síðustu aldar. Það var þeg- ar rannsóknir sýndu að jarðvegi og veð- urfari svipaði mjög til þess sem gerist í Bordeaux í Frakklandi, þekktasta vínhér- aði heims.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.