Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2003, Page 9
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 9
Fyrrverandi formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur segir enga óreiðu á fjár-
málum nefndarinnar. Markaðsmenn ehf. fá fjórðung af tekjunum fyrir símsölu á
geisladisknum Betra líf fyrir Mæðrastyrksnefndina og Fjölskylduhjálp íslands.
IMðsmenn In fjóröung
al mæðrastyrkjum
Fyrirtækið Markaðsmenn ehf.
fær um fjórðung alls þess fjár sem
kemur inn vegna símasölu fyrirtæk-
isins á geisladisknum Betra líf sem
gefinn er út til styrktar Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur og Fjölskyldu-
hjálp íslands.
Sala gengur þokkalega
Karl Guðlaugsson hjá Markaðs-
mönnum segir fyrirtækið nú hafa
selt Betra líf í einn til tvo mánuði.
Ekki sé hægt að segja til um það að
svo stöddu hversu háa upphæð fyr-
irtækið hefur unnið sér inn með söl-
unni.
„Við hringjum í fyrirtæki og biðj-
um um framlög gegn disknum. Við
nefnum tíu þúsund krónur en upp-
hæðin er þó frjáls. Salan hefur geng-
ið þokkalega," segir Karl.
Samkvæmt heimildum DV nem-
ur þóknun Markaðsmanna um 25%
af því fé sem skilar sér vegna sölu
fyrirtækisins. „Ég tel ekki rétt að
upplýsa í hverju samningur okkar
við Mæðrastyrksnefnd er fólginn.
Hins vegar get ég upplýst að þóknun
fyrir okkar vinnu er venjulega 30%,“
segir Karl.
Engin óreiða segir Ásgerður
Eins og fram kom í DV í gær íhug-
ar Mæðrastyrksnefnd næstu skref í
kjölfar brotthvarfs fyrrverandi for-
manns, Ásgerðar Jónu Flosadóttur.
Mörg atriði tengd styrktarsöfnun-
inni og öðrum þáttum þykja tor-
tryggileg og þarfnast nánari skýr-
inga.
Nýr formaður nefndarinnar,
Hildur G Eyþórsdóttir, sagðist í gær
ekkert hafa um. málið að segja.
Fundur var hjá nefndinni í gær-
kvöldi vegna málsins.
Ásgerður Jóna, sem fer fyrir Fjöl-
skylduhjálp íslands, sendi í gær frá
sér yfirlýsingu vegna fréttar sem
birtist um málið í DV í gær. Hún seg-
ir meðal annars að rangt væri að
Mæðrastyrksnefnd væri að leita að
1,5 til 2 milljónum króna sem verið
hefðu á söfnunarreikningi vegna
Betra lífs og að 600 þúsund króna yf-
irdráttur hefði kominn í staðinn. Yf-
irdrátturinn væri nú aðeins 300 þús-
und krónur og gjaldkeri nefndarinn-
ar hefði bókhaldið undir stjórn. Sjálf
fjármunir sem höfðu verið lagðir inn
á reikninginn vegna fyrirframsölu
disksins eyddust þegar kostnaður
við útgáfuna væri greiddur. Þetta var
heimildarmönnum blaðsins ljóst og
söguburður þeirra hlýtur því að
stafa af meinfýsi og ef til vill öfund.
Útistandandi í dag eru geisladiskar
að andvirði um krónur 10 milljónir,"
segir meðal annars í yfirlýsingu Ás-
gerðar.
gar@dv.is
Hjá Mæðrastyrksnefnd
Útistandandi eru geisladiskar fyrir um 10 milljónir króna, segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
svarsmaður Fjölskylduhjálpar l'slands. Söguburður hljóti afstafa afmeinfýsi og eftil vill öfund.
kæmi Ásgerður þar hvergi nærri:
Meinfýsinn söguburður
„Þessir fjármunir sem þarna er
rætt um voru vegna þessa sérstaka
verkefnis sem varðaði útgáfu geisla-
disksins og allt reikningshald í sam-
bandi við hann liggur fyrir. Þegar
hefur verið greiddur verulegur
kostnaður vegna útgáfunnar svo
sem til listamanna, auglýsingagerð
og stefgjöld og því eðlilegt að þeir
hjálp Íslíinds:
Nlæöpastypksnetnú
leitar að millionam
ai |x*»n «8 NV“°<J v'ýn* fmrMul
fíift. .ímar. “li ** 'J ÍÍX rn
SZTSSSSfSSS&iis:
SSSÍ.cíSC 1
„b i.'ud 2
i«ö h<ift
um. f
« kutnwo
kðð þúsund
ólt.iM
DV í gær Þorbjörg Inga Jónsdóttir, lögmaður Mæðrastyrksnefndar og formaður
Kvenréttindafélags Islands, sagði í DV i gær að fjármál nefndarinnar væru til
skoðunar.
Mí i aftsdðras Ke\kjane:s
Duushús í Keflavík
Árnasýning eftir áramót
Efnt verður til sýningar á Reykjanesbæ fljót-
lega eftir áramót á höggmyndum Árna Johnsen
sem hann vann í fangelsisvist sinni á Kvíabryggju.
Myndirnar voru fluttar í gær að vestan og í Njarð-
vík þar sem þeim hefur verið komið fyrir í
geymslu. Sýningin verður væntanlega haldin í
Duushúsunum í Keflavík, en hvenær nákvæmlega
er ekki ákveðið að sögn Valgerðar Guðmunds-
dóttur menningarfulltrúa Reykjanesbæjar.
„Mér þykja myndirnar skemmtilegar og virki-
lega öðruvísi," sagði Valgerður í samtali við DV.
Hún fór vestur á Kvíabryggju fýrir nokkru, skoðaði
myndverkin og heillaðist af. Falaðist eftir því í
framhaldinu að fá þau til sýninga í sínum ranni og
það hafi blessunarlega gengið eftir.
sigbogi@dv.is
Listaverkin Lista-
verk Árna Johnsen
skipta tugum, I fjölda
sem tonna. Sýnd
suður með sjó.
Mynd frá 4. nóvember 2003.
Bill lenti út afveginum Islæmu
skyggni. Atvikið var rannsakað af
öryggisdeild Impregilo og tjóna-
skýrsla var skrifuð.
Á að tilkynna
óhöpp
„Þegar slys verður við
Kárahnjúka á að tilkynna það
til Neyðarlínunnar," segir
Ómar R. Valdimarsson upp-
lýsingafulltrúi Impregilo. „Þá
er sent út neyðarkall á björg-
unarlið Impregilo. I slfkum
tilvikum fær lögregla ávallt
boð,“ segir hann. „Þegar um
er að ræða vinnuslys er ávallt
haft samband við Vinnueftir-
lit ríkisins. Þá sendir öryggis-
deild Impregilo ávallt mann
á staðinn til að kanna að-
stæður og meta hvernig hægt
sé að koma í veg fyrir að slíkt
endurtaki sig.“
DV greindi fr á því á laug-
ardag að umferðaróhöpp
væm algeng við Kárahnjúka
og væm oft ekki tilkynnt til
lögreglu. Ómar segir að þegar
umferðaróhöpp verði þar
sem engin slys verða á fólki,
sé öryggisfulltrúi sendur á
staðinn. Þá er einnig skrifuð
tjónaskýrsla, sem síðan er
send til tryggingarfélaga.
„Frá upphafi starfsemi
Impregilo við Kárahnjúka,
heftir verið haldið nákvæm-
lega utan um slysatíðni.
Mánaðarlega em þessar tölur
sendar sem hluti af mánað-
arskýrslu til Landsvirkjunar.
Sama verklag er viðhaft á öll-
unt starfstöðvum Impregilo
út um allan heim,“ segir
Ómar.
Hagnaður
banka ræddur
Hagnaður bankanna
verður til umræðu á Alþingi
í dag. Utandagskrámmræða
verður þar sem ræða á um
vexti, bæði innláns- og út-
lánsvexti og þjónustugjöld.
Jón Bjarnason þingmaður
Vinstri Grænna segist vilja
kanna hvernig viðskiptavin-
irnir komi til með að njóta
þess þegar bankarnir raki
saman gróða.
Hagfræðileg
rök ráði
evruaðild
Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði í gær
að Bretar mættu ekki úti-
loka upptöku evrunnar í
framtíðinni. í ræðu sem for-
sætisráðherrann hélt á við-
skiptaráðstefnu í Birming-
ham ítrekaði hann að Bretar
ættu eingöngu að láta hag-
ffæðileg rök ráða því hvort
að þeir gerist aðilar að
myntbandalaginu.
Lögreglan
engu nær
Lögreglan í Hafnarfirði er
engu nær um hver ffamdi
vopnað bankarán í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar að
morgni föstudagsins síðasta.
Unnið er hörðum höndum
að rannsókn málsins og em
lögreglumenn meðal annars
að tala við vitni og vinna úr
vísbendingum sem borist
hafa ffá almenningi. Lýsing á
ræningjanum er ekki tiltæk
þar sem hann huldi andlit
sitt við ránið.