Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2003, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2003, Síða 11
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003 11 Ofstopastúlka í Keflavík Lögreglan í Keflavík handtók stúlku á veitinga- stað í bænum aðfaranótt laugardags eftir að hún réð- st á dyraverði. Henni hafði verið meinuð innganga vegna slagsmála á staðnum fyrr í vikunni. Stúlkan er fremur smá í sniðum og olli ekki skaða á dyravörðum, þrátt fyrir ofstopa sinn. Hún var tekin á lögreglu- stöðina þar sem rætt var við hana þar til hún róaðist. Að því loknu var henni sleppt. Að sögn lögreglunn- ar í Keflavík hefði atvikið hugsanlega flokkast undir líkamsárás, hefði verið um karlmann að ræða, eða meiri aflkonu. Síldveiði glæðist Sfldveiði hefur verið að glæðast og hafa skip með flottroll verið að fá sæmi- legan afla í Jökuldjúpinu út af Faxaflóa. Að sögn sjó- manna er sfldin sæmilega stór og falleg. Engin veiði hefur verið í nót. Sfldveiði hefur verið frekar dræm það sem af er vertíðinni. Livingstone gæti tapað á flokksaðild Ken Livingstone hefur minni möguleika á að halda borgarstjórastólnum í Lund- únum ef hann fer fram fyrir Verkamannaflokkinn. Þetta kemur fram í könnun sem breski Ihaldsflokkurinn lét gera. I könnuninni kom fram að 23% kjósenda væru ólíklegri til þess að kjósa Livingstone ef hann færi fram fyrir hönd Verka- mannaflokksins. Living-sto- ne, sem var rekinn úr Verkamannaflokknum fyrir síðustu kosningar, bauð sig fram sem óháður og vann kosningarnar. Sátt hefur tekist á milli hans og verka- mannaflokksins og hefur Tony Blair boðið borgar- stjóranum að ganga aftur til liðs við hann. Átján á móti kaffihúsi Átján athugasemdir bár- ust vegna vínveitingastaðar sem sótt hefur verið um að fáist innréttaður í Ingólfs- stræti 5. Bæði meðeigendur í húsinu og nágrannar allt í kring eru andvígir áformunum. Samkvæmt umsókninni er ædunin að’ reka kaffi- og vínveitinga- stað á 1. hæð og í kjallara hússins. Afgreiðslu málsins var frestað á síðasta fundi skipulags- og byggingar- nefndar Reykjavíkur. Það er fyrirtækið Eldhugar í Kópa- vogi sem hyggst reka stað- inn. Rithöfundurinn Einar Bragi heitir 50 þúsund króna verðlaunum fyrir bestu hugmyndina til framfara í atvinnu- og menningarlífi Raufarhafnar. Einar Bragi gat ekki þegið boð á hátíðina Bjart er yfir Raufarhöfn vegna erfiðra veikinda: Framfarastyrkur frá rithöfundi Rithöfundurinn Einar Bragi hefur heitið 50 þúsund króna verðlaunafé fyrir þá hugmynd sem best horflr til framfara í atvinnu- og menningar- málum Raufarhafnar. Einar Bragi stríðir við erfiðan sjúkdóm. Eftir „róttæka skurðaaðgerð," eins og hann segir sjálfur, er hann nú í geislameðferð. Af þessum sökum gat hann ekki þegið boð forstjóra Hótel Norðurljósa í október um að koma norður á Raufarhöfn til að vera viðstaddur hátíðahöldin „Bjart er yfir Raufarhöfn." Á hátíðinni var hins vegar lesið upp úr bréfi Einars Braga til bæjarbúa. Hann sagði heimboðið hafa glatt sig mikið og hug sinn vera hjá bæjarbúum. „Ég óska Raufarhöfn og íbúum hennar langra lífdaga og gæfu um alla framtíð," sagði rithöfund- urinn, sem í endurreista blaðinu „Verk- smiðjukarlinum" lýsti í sumar eftir raunhæfum framfarahugmyndum og ítrekaði þær í bréfinu: „Ég hef brennandi trú á að lausn hvers vanda búi í höfðinu á hugmyndaríku góð viljuðu fólki og félagslegu málin verði að leysa í anda samhjálpar. Það á sérstak- lega við um litlar einingar eins og ís- lensku sjávarþorpin. Ef hver skarar eld að sinni köku og forsmáir hið forna boð um að gæta bróður síns, þá er voðinn vís,“ sagði skáldið. Sveitastjóri Raufar- hafnar og forstjóri Hótels Norðurljósa voru af Ein- ari Braga tilnefndir í dómnefnd. Sjálfan til- nefndi hann sig ritara nefndarinnar með mál- frelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar: „Nema svo fari að hinir tveir komi sér ekki saman, þá öðlast ég at- kvæðisrétt og ræður at- kvæði mitt úrslitum," sagði í kveðju Einars Braga tii veislugesta á Hótel Norðurljósum sem gerðu góðan róm að efni bréfsins og skemmtu sér kon- Einar Bragi Stofnaði veggblaðið Verksmiðjukarlinn þegar hann var slldarstrákur á Raufarhöfn sumarið 1944. ■U,.ártangitf .... —B*rfartwfnZ4jiiltmi —I- tMuWajl verksmiðjukari INM Góðir lesendur! Langt er umliðið síðan Verksmiðjukarhnn kvaddi sér seinast hljóðs. Haldið var upp á 10 ára afmæli hans með mannfagnaði á Raufar- höfn sumarið 1954. Hvort hann kom út eftir það munum við ekki svo gjörJa en teljum hér upphaf 11. árgangs. Það fer vel á blaði! unglega fram eftir nóttu við undirleik danshljómsveitarinnar Legó frá nágrannabænum Kópaskeri. Einar Bragi segist í samtali við DV enga tillögu hafa fengið enn. Skilafrestur er til 12. desémber. Hann segir þá dagsetningu ekki vera tilviljun. Þennan dag árið 1948 hafi fyrsta bókin með nafni hans á titilsíðu komið á prent: „Það var þýðing á Dittu mannsbarni eftir Mart- in Anderson Nexö. Sama mánaðardag 1953 kom út fyrsta tölublað tímaritsins Birtings. Þar á ofan á ég von á að næstkomandi 12. desember komi út sjö- unda bókin mín í miklum flokki þýðinga á samísk- um skáldskap," útskýrir Einar Bragi. Sjálfur er Einar Bragi ffá Eskifirði. Hann kom fyrst til Raufarhafnar árið 1941 og var þar iðulega á sfld á sumrum allt-til ársins 1954. „Ég stofnaði veggblaðið Verksmiðjukarlinn á Raufarhöfn þegar ég var þar síldarstrákur árið 1944. Við gáfum þetta út á sumrin í að minnsta kosti tfu ár. Blöðin vom á fleka og fest á þrærnar hjá verksmiðjunni," segir Einar Bragi, sem end- urvakti Verksmiðjukarlinn með sérstöku hefti í kjölfar frétta af versnandi atvinnu- ástandi á Raufarhöfn: „Ég hefði alls ekki getað stundað nám ef ég hefði ekki fengið þar svo góða vinnu á hverju sumri. Það var hörmulegt að svo var komið í þessu blómlega þorpi, sem var uppspretta einhverra mestu auðæfa sem nokkurs staðar hafa borist á land í ver- öldinni miðað við íbúafjölda, að menn flýðu stað- inn unnvörpum. Þeir sem eftir voruvissujafnvel ekki sitt rjúkandi ráð,“ segir Einar Bragi sem harmar að hafa misst af Bjart er yfír Raufarhöfn. „Það þurfti endilega að hittast svo djöfullega á að ég var að byrja f geislameðferð daginn áður en ég átti að koma. En ég vildi telja í menn kjark og sýna þeim samstöðu og vináttu." gar@dv.is Ókádreng og stakk af Ökumaður á hvítum sendi- bfl keyrði á níu ára dreng á hjóli á Hafnar- götu í Vogum á Vatnsleysu- strönd á laug- ardaginn. Hnokkinn slapp nánast ómeiddur og reiðhjólið að mestu óskaddað. Hann fór heim til sín eftir hremmingarnar en ökumað- urinn hvarf af vettvangi og hefur ekki spurst til hans frekar, að sögn lögreglu. OgVodafone: Síminn tengi Kárahnjúka Farsímadeila Úrskurður Póst- og fjarskiptastofnunarinnar kveður á um að Siminn þurfi ekki að veita OgVodafone reiki á 50 sendum, en aftur ámóti verði reikiþjónusta veitt við Kárahnjúka og víðar. Pétur Pétursson, upplýsinga- stjóri OgVodafone, æskir þess áð Landssíminn tengi OgVodafone við reikiþjónustu við Kárahnjúka, Gn'msey og Blöndu, um leið og lok- að verður á reiki viðskiptavina fyrir- tækisins á 50 sendum á Suður- og Vesturlandi. Fram kemur í úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar að Síminn sé ekki skyldugur til að veita OgVodafone reiki á sendunum 50, en jafnframt kemur fram að Og- Vodafone skuli fá reiki á Kárahnjúk- um, Grfmsey og Blöndu, þar sem það svari ekki kostnaði fyrir fyrir- tækið að koma þar upp eigin send- um. Síminn áformaði að loka á sendana á miðnætti liðna nótt. Pét- ur telur heildar þjónustu Og- Vodafone batna með úr- skurði stofnun- arinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.