Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2003, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Rösklega 600 fréttamenn héðan og þaðan úr heiminum flykktust til Sacramento til að fylgjast með Arnold
Schwarzenegger taka við embætti ríkisstjóra í gær. Athöfnin fór fram að viðstöddum 7500 boðsgestum og
komust því mun færri að en vildu.
Krattajötunn
stýrir
Kalifnrníu
í gær klukkan 11 fyrir hádegi að staðartíma
sór Arnold Schwarzenegger eið og var þar með
orðinn 38. ríkistjóri Kalíforníu, sem er fjöl-
mennasta ríki Bandaríkjanna og eitt stærsta
hagkerfi heims. Austurríkismaðurinn knái hef-
ur náð mun lengra en margan grunaði, en allt
frá því að hann var kjörinn „Herra Alheimur"
fyrir 36 árum hefur hann stöðugt stefnt upp á
við og er hinn vel heppnaði endasprettur tal-
inn vera að miklu leyti eiginkonu hans Mariu
Shriver að þakka, en hún er systurdóttir John
F. Kennedy fyrrum Bandaríkjaforseta og hefur
mikil tengsl og verksvit í stjórnmálum. Einnig
átti leikarinn kröftuga endurkomu á hvíta
tjaldið með þriðja hluta „Tortfmandans" sem
kom út og naut gífurlegra vinsælda fyrr í ár.
Mildur repúblíkani
Schwarzenegger er nokkuð hófsamari
repúblíkani en margir flokksbræður hans en
hann er til dæmis hlynntur fóstureyðingum og
sér ekkert athugavert við samkynhneigð. Auk
þess virðist stefna hans í umhverfismálum
stangast á við stefnu Bush Bandaríkjaforseta
en Schwarzenegger styður meðal annars skóg-
verndaráætlun sem Clinton-stjórnin setti á
laggirnar og hyggst skipa Terry Tamminen
formann Umhverfisstofnunar Kaliforníuríkis
en hann er óflokksbundinn og ötull umhverf-
isverndunarsinni. Ákvörðunin þykir djörf,
jafnvel á meðal margra frjálslyndra
Demókrata.
Erfið fjárhagsstaða
Þótt allt hafi gengið upp hjá Schwarze-
negger hingað til er þó erfiðasti hjallinn eftir:
Skuldastaða Kaliforníuríkis er hrikaleg og hvfla
núverandi fjárlög á ýmiss konar skuldabréf-
um, víxlum og bókhaldsbrellum. Fjárlagahall-
inn er talinn nema allt að 10,7 milljörðum dala
Skuldastaða Kaliforníuríkis
erhrikaleg og hvíla núver-
andi fjárlög á ýmiss konar
skuldabréfum, víxlum og
bókhaldsbrellum.
og spáð er að halli næsta árs geti orðið allt að 8
milljarðar auk þess sem ríkið skuldar lífeyris-
sjóðum 2 milljarða dala í skuldabréfum.
Schwarzenegger hefur þegar útilokað að
hækka skatta eða skera niður hjá opinberum
stofnunum og er því talið mjög lfldegt að tekið
verði allt að 20 milljarða lán til að brúa bilið.
Það ku vera nokkuð skynsamleg lausn en þá
og því aðeins að vextir hækki ekki mikið á af-
borgunartímabilinu.
Fallandi vinsældir Bush
Schwarzenegger gæti brugðið á það ráð að
biðja ríkisstjórn George W. Bush um lánveit-
ingu og er ólfldegt að Bush myndi neita að
verða við slíku láni, enda þarf hann á stór-
auknum vinsældum að halda fyrir forseta-
kosningarnar á næsta ári. Íraksstríðið er farið
að kosta Bush of mörg atkvæði og gætu gífur-
legar vinsældir Arnolds hjálpað Bush að rétta
sig við f skoðanakönnunum. Einnig er stríðs-
haukunum í Washington sú staðreynd í hag að
skuldirnar söfnuðust saman í tíð ríkisstjóra
sem var fyrsti demókratinn til að gegna emb-
ættinu í 20 ár. Einnig þarf Schwarzenegger að
beita sér töluvert í orkumálum ríkisins en þau
eru ásamt fleiru í miklum ólestri. Þó mun
einungis tíminn leiða í ljós hvaða stefnu
Arnold tekur enda er hann ekki búinn að vera
rfldsstjóri lengur en í tæpan sólarhring þegar
þetta er ritað...
ari@dv.is
Litríkur æviferill Arnold Schwarzenegger
1947 - Arnold Alois
Schwarzenegger fæðist 30. júlí í
smáþorpinu Thal bei Graz, í Aust-
urríki
1966 - Vinnur titilinn Herra
Evrópa í vaxtarrækt
1967 - Vinnur titilinn Herra
alheimur (alls fimm sinnum)
1968 - Flyst til Bandaríkj-
1970 - Vinnur titilinn „Herra Al-
heimur" og einnig „Herra Ólympia"
og ver titilinn til 1975. Leikur sitt
fyrsta hlutverk í myndinni
„Hercules in New York"
19/7 - Kemur fram í heimildarmyndinni
„Pumping Iron" og kynnist sjónvarpskonunni Mariu
Shriver, sem er komin af Kennedy-fólkinu
1979 - Útskrifast með B.A. gráðu í viðskipta-
fræði frá Háskólanum í Wisconsin
1982 - Leikur sitt fyrsta stóra hlutverk í ævin-
týramyndinni „Conan the Barbarian"
1984 - Gerist bandarískur ríkisborgari þann 16.
september, leikur í spennumyndinni „TheTerm-
inator" og kemst við það í hóp ofurstjarna í
Hollywood
1986 - Giftist Mariu Schriver 26. ágúst. Þau
eignast fjögur börn.
1990 - George Bush eldri útnefnir
Arnold formann í nefnd sem fjallar um
málefni tengd líkamlegri heilsu. Siðar
meir gerist Schwarzenegger ötull tals-
maður Ólympíuleika fatlaðra og áberandi í starfi
Repúblíkanaflokksins. Leikur („Terminator II:
Judgement Day" við fádæma góðar undirtektir
1991 - Opnar Planet-Hollywood veitingastaða-
keðjuna með félögum sínum Bruce Willis og Sylv-
ester Stallone
1994 - Leikur í „True Lies" eftir James Cameron
sem slær í gegn í miðasölunni
1997 Gengst undir aðgerð á hjartaloku. Sá orð-
rómur kviknar að steranotkun sé um að kenna
1998 - Lögsækir tvo æsifréttaljósmyndara fyrir
að stofna óléttri eiginkonu sinni í hættu, og sigrar
2003 - Þann 6. ágúst tilkynnir Schwarzenegger
öllum að óvörum að hann muni bjóða sig fram til
ríkisstjóra komi Gray Davis til með að hrökklast úr
embætti
2003 - Þann 7. október flytur Schwarzenegger
sigurræðu sína
2003 -17. nóvember. Schwarzenegger tekur
við embætti ríkisstjóra Kalíforníu
Leiðiráþví
að vera
álitnir lúðar
Þjóðverjar eru leiðir á
því að Bretar líti á þá sem
nákvæma lúða og hafa því
ákeðið að hefja markaðs-
átak á Bretlandseyjum þar
sem nýrri ímynd af Þjóð-
verjum verður komið á
framfæri. Að sögn forstöðu-
manns Goethe-stofnunar-
innar í London leggja
breskir íjölmiðlar áherslu á
seinni heimsstyrjöldina og
þýska bfla í umfjöllun sinni
um Þýskaland og það geri
að verkum að Bretar átti sig
ekki á hversu líflegir og
hressir Þjóðverjar eru. Hluti
af markaðsátakinu verður
dreifing á veggspjaldi með
mynd af Claudiu Schiffer
undir fyrirsögninni: þú lítur
vel út ef þú lærir þýsku.
Ráðherrar með opna buddu:
Ekkert þak á eyðslu ráðherra
í risnu og ferðakostnað
SEX EFSTU
Ekkert þak er á því hversu miklu
ráðherrar mega eyða í ferðakostnað,
fæði og risnu. Strangar reglur gilda
um útreikning dagpeninga, en ráð-
herrar geta valið hvort þeir fá dag-
peninga eða framvísa einfaldlega
reikningum. Ráðherrar kjósa hins-
vegar yflrleitt ffekar að framvísa
reikningum og fá endurgreitt sam-
kvæmt þeim, og er það fullkomlega
heimilt, segir Sveinn Arason, skrif-
stofustjóri hjá Ríkisendurskoðun.
Hann segir þó að gerðar séu þær
kröfur að menn gæti hófs, og séu ekki
að velja dýrar hótelsvítur og fágætan
mat á borðið. Eftir stendur að ráð-
herrar ákveða í raun sjálfir hve miklu
þeir eyða í ferðalög, fæði og risnu.
Haft var samband við nokkur
hótel og veitingahús á landsbyggð-
inni. Eitt þeirra hafði nýlega fengið
í heimsókn tvo ráðherra og fylgdar-
lið í hádegismat. Pöntuð var þrí-
réttuð máltíð, þar sem aðalréttur-
inn var hreindýrasteik. Á meðan
lágu birgðir af rétti dagsins f ofnin-
um, lax sem kostaði þriðjung af
andvirði hreindýrasteikurinnar.
Þjóni á staðnum, sem ekki vildi láta
nafns si'ns getið, sagðist svíða mjög
að afgreiða slíkan veislumat fyrir
upphæð sem nam meiru en mán-
aðarlaunum hans á einu bretti - vit-
andi að greiðslan fyrir matinn
kæmi í raun úr hans eigin vasa sem
skattgreiðanda.
Risnu-, aksturs- og ferðakostnaöur
rikisins - í milljónum
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðun.
803
Menntamálaráðuneyti 611
Samgönguráðuneyti 590
Utanríkisráðuneyti 400
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 278
Æðsta stjórn ríkisins 219
Samtals allir 3.960.000.000
Bifreiða-, ferða- og risnukostnað-
ur ríkisins var samtals rúmir fjórir
milljarðar króna í fýrra.
A sama tíma voru fóru 80 stofn-
Ekki bara ráðherrar sem eyða pening-
um: Ferða- og risnukostnaður Ólafs Ragn-
ars Grímssonar var 25 milljónir í fyrra, á
sama tima og embættið fór2l milljón fram
úr fjárlögum.
anir og aðalskrifstofur ráðuneyta
fram úr fjárheimildum sínum, sam-
kvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar.
Það eru þó fleiri en ráðherrarnir
sem fara fram úr heimildum. Um-
framútgjöld æðstu stjórnar ríkisins
voru nánast öll vegna reksturs for-
setaembættisins sem fór um 20
milljónir fram úr heimildum.
Ferða-, risnu- og aksturskostnaður
embættisins var þó enn hærri eða
25 milljónir.