Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2003, Blaðsíða 21
DV Fókus
MÁNUDAGUR 17. NÚVEMBER 2003 21
Stjörnuspá
Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumað-
ur Höfuðborgarstofu, er 38 ára í dag,
„Kynlíf og ást eru án efa mjög mikil-
vægir þættir í lífi hennar en
þeir fullnægja ekki þörf
hennar fyrir veraldlegri
viðurkenningu. Hún veit
svo sannarlega hvað hún
þráirað upplifa og er
sigurvegari á því
sviði sem hún velur
sér," segir í stjörnu-
spá hennar.
Svanhildur Konráðsdóttir
VV Vatnsberinn (20.jan.-i8. febrj
W --------------------------------------
Ekki hika við að biðja um það
sem þig vanhagar um en láttu ímynd-
unaraflið ekki hlaupa með þig í gönur
og hafðu hugfast að góðir hlutir gerast
sannarlega hægt.
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Ef dagsformið er ekki í lagi
ættir þú að taka þér stutt leyfi og hlaða
orkustöðvar þínar. Ekki loka dyrum
gagnvart ástinni næstu daga og vikur.
Leyfðu þér að njóta stundarinnar til
fullnustu með þeim sem þú elskar og
þráir.
HfÚtW'm (21. mars-19.apn1)
H
T
Gættu þess vel að hafa gott
jafnvægi í kringum þig. Þú birtist hér
næm/ur i nóvember og sækist ómeðvit-
að eftir því góða sem lífið hefur upp á
að bjóða en átt það til að gleyma smá-
atriðum líðandi stundar.
Nautiö (20.april-20.mai)
Ö
Ómarkvisst skref, þegar ástin
er annars vegar, gæti kostað þig tilfinn-
ingalegan sársauka af einhverjum
ástæðum þegar stjarna nautsins er
könnuð. Ekki hika við að taka áhættu
þegar hjarta þitt kallar til þín.
Tvíburamirpf. mai-21.júni)
Þér finnst þú jafnvel til-
neydd/ur að berjast fyrir eigin frelsi
þegar ástin er annars vegar, jafnvel af
óskiljanlegum ástæðum. Þú verð að
sama skapi rétt þinn til hamingju og
fullnægir eigin tilfinningasviði.
Krabbinn (22.júni-22.júii)
Glettnisglampi þinn er áber-
andi og segir til um jákvæða spennu
sem ríkir innra með þér. Þú ert hér til-
búin/n að fórna þér fyrir aðra og ættir
því að hugsa þig tvisvar um varðandi
þann eiginleika næstu daga.
l\6n\b (23. júli-22. ágúst)
Ekki bæla eigin veikleika og
ekki gera aðra ábyrga fyrirtilfinningum
þínum. Hlustaðu betur og sýndu þolin-
mæði næstu vikur. Þegar þú leyfir hlut-
unum að hafa sinn gang gengur allt
sem þú óskar þér einfaldlega upp.
Meyjanf23.fljiisr-22.se/rrj
Þú ert án efa mjög við-
kvæm/ur þessa stundina en hér kemur
einnig fram að þú ættir að sleppa tak-
inu af ýmsum gömlum minningum
sem tengjast reynslu fortíðar.
Q Vogin (23.sept.-23.okt.)
Þú kýst hér að vera frjáls eins
og loftið eða vindurinn og að sama
skapi kemur fram að þú skarar án efa
fram úr og ert meðvituð/meðvitaður
um það. Hér kemur fram að stjarna þín
er skrefi á undan öðrum á sama tíma og
hún fer óhefðbundnar leiðir.
Sporðdrekinn (24.ota.-21.mv.)
Yndislegt skopskyn einkennir
þig hérna þar sem þú virðist ávallt finna
jákvæðar hliðar á hverju sem þú tekur
þér fyrir hendur. Gefðu fólki lausan
tauminn og minnkaðu kröfur þínar ef
þú ert fær um það næstu daga og vikur.
/
Bogmaðurinnr22.nw.-2í.<fej
Þú kýst að hafa stórt hlutverk
og vald en kemst varla hjá því að hafa
áhyggjur af því að standast ekki eigin
kröfur. Hættu þessu og efldu eiginleika
þína með þvi að taka hverri stund eins
og hún birtist þér áhyggjulaus og frjáls.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Þú verður bæði að fá útrás í vinnu og
ást til að geta blómstrað og gefa og
þjóna jafnt í starfi sem í einkalífi. Þú
gætir hins vegar átt það til að gleyma
þér í ánægju af sama krafti og þú helgar
þig vinnu þinni og skyldum. Slakaðu á
og hættu að leita að fullkomnun.
Öl’AMADl 'lvlÖ
Birgitta Haukdal og félagar í hljómsveitinni írafári voru aö
senda frá sér nýja plötu. Sigurður Samúelsson, bassaleikari
sveitarinnar, myndi seint teljast hafa týpískt poppstjörnuútlit.
Mgwður Samúelsson er bastatríhnri Ira-
(grs oi) ri) sem lielur siq minnst i frammi
iifmeðlimum sveitgrinnar Hann segir að
harm ng Palli hljómbDrðsteikori fái lang
mlnnstu athygllna þegai Iratár kemui
fram en et alls ekkl ásáttur við það.
DV Mynd Pjetui
sem
„Við erum hæstánægð með út-
komuna," segir Sigurður Samúels-
son, bassaleikari írafárs, en sveitin
sendi fyrir helgi frá sér aðra breið-
skífu sína, Nýtt upphaf. Sigurður er
uppalinn á Isafirði en flutti í bæinn
1995. Hann hefur verið í hljómsveit-
inni frá stofnun hennar.
Siggi segir írafár hafa viljað
breyta til við kynningu á plötunni. í
stað þess að þræða sveitaballarúnt-
inn er sveitin byrjuð á tónleikaferða-
lagi um landið, á alls tólf stöðum.
„Þetta eru hörkutónleikar sem við
bjóðum upp á, spilum alla nýju plöt-
una í gegn og tökum svo fimm lög af
fyrri plötunni svo fólk fái líka að
heyra lög sem það þekkir."
Hvernig fer salan afstað?
„Hún fer bara mjög vel af stað. Ég
var einmitt að tala við útgáfustjór-
ann áðan og hann sagði mér það
þannig að við erum mjög ánægð.“
Þið selduð eins og ég veit ekki
hvað af síðustu plötu, verður ekki
erfítt að fylgja því eftir?
„Já, við seldum rúmlega 18 þús-
und eintök á níu mánuðum, sem er
víst hraðamet. Við viljum ekki gera
okkur of miklar væntingar núna og
stefnum ekki á neina ákveðna tölu.
Það má auðvitað ekki verða þannig
að ef við seljum 10 þúsund þá verði
það álitið flopp,“ segir Siggi en á
næstunni mun sveitin taka upp nýtt
myndband við lagið Stel frá þér.
Hvað viltu segja um þá gagnrýni
að lagið Fáum aldrei nóg hljómi al-
veg eins og Todmobile?
„Það er nú dálítið fýndin saga á
bakvið þetta lag. Við vorum í æfmga-
húsnæðinu og Hanni var að leika sér
að tromma lag með Todmobile sem
heitir Sætari en sýra af plötunni
Spillt. Hann sagði við Vigni að það
væri gaman að gera lag í þessum
takti og þá kom Vignir með laglínu á
móti og lagið varð til. Við vorum bara
að djamma þetta lag og það átti ekk-
ert að fara á diskinn, en það komst
inn bakdyramegin. Ég held að það sé
söngurinn, þegar Vignir og Birgitta
syngja saman, sem minni fólk á Tod-
mobile. Mér er nú svo sem sama þó
okkur sé líkt við Todmobile, það er
ekki leiðum að líkjast."
Hvernig er svo lífíð á bak við
Birgittu?
„Hún er ótrúlega sterk að höndla
þessa athygli og allar kjaftasögurnar.
Við vitum náttúrlega betur heldur en
að trúa þessum sögum, sem ég ætla
ekki að fara út í, en maður dáist alveg
að æðruleysi hennar."
Hvernig er athyglinni skipt á
meðlimi írafárs?
„Það er náttúrlega fyrst og ffemst
Birgitta sem fær athyglina en svo
Vignir og Hanni. Vignir er
lagahöfundurinn og er í Grease og
Hanni er fyrrverandi kærasti Birgittu
og góður frontur líka. Við Andri tök-
um svo bara leifamar, eða þannig,
vinnum meira bak við tjöldin," segir
hann og hlær áhyggjulaus, enda í
sambandi.
Líturðu áþigsem poppstjörnu?
„Nei, ég geri það nú ekki. Ég er
auðvitað á kafi í þessum bransa og
veit að ég er í vinsælli hljómsveit en
ég upplifi mig samt ekki þannig. Það
er helst að fólki í kringum mig finnist
að ég hafa breyst eitthvað en þó veit
maður ekki. Maður er bara búinn að
vaxa með þessari hljómsveit frá byrj-
un og er ekki að pæla í þessu lengur,"
segir Siggi að lokum.
Þær Christina Aguilera og Britney Spears eru enn og aftur
komnar í hár saman:
Stríð Britney og Christinu heldur áfram
Christina Aguilera lýsti því yfir á
dögunum að Britney Spears væri
ekki almennilegur listamaður. Hún
segir einnig að það hafi verið brella
hjá Britney að kyssa söngkonuna
Madonnu á MTV verðlaunahá-
tíðinni, eingöngu til að
halda aðdáendum sín-
um heitum.
„Svona fólk er ekki
listamenn, það er
bara falskt og yflr-
borðskennt, eins og
sýndi sig á hátíð-
inni,“ sagði
Aguilera. Hún sagði
einnig í samtali við
tímaritið Blender að
Britney hefði oft mæm-
að á tónleikum sínum
Aguilera gagnrýndi
einnig MTV fyrir frétt
þeirra um kossinr
fræga. „Ég er mjög
vonsvikin. Sjáið
bara hvernig koss-
inn sem ég kyssti
Madonnu var meðhöndlaður. Þeir
sýndu hann ekki almennilega heldur
klipptu strax á viðbrögð Justins Tim-
berlake. Hversu fýrirsjáanlegt og
ömurlegt var það?“
Hún segist hafa stungið upp á
því við Britney að þær
en þær vissu að Madonna yrði með
þeim á sviðinu. „Ég var alveg til í að
kyssa Britney en hún vildi það ekki,“
sagði Aguilera að lokum.
Þetta er ekki í fyrsta skipt-
i sem kastast í kekki á milli Christinu
og Britney. Þær virðast hreinlega
ekki þola hvor aðra þótt sag-
an segi að þær hafi verið
vinkonur þegar þær
X komu báðar fram í
1 Mikka mús-sjón-
varpsþættinum ung-
í ar að árum. Það er
í, lfldega samkeppnin
þeirra á milli sem
veldur því að þær
hatast svo þrátt
fyrir tilraunir
beggja til að fá
fólk til að
halda að allt
sé í góðu á
milli þeirra.
Já, hann er
harður popp-
heimurinn ...
A móti sól á
Gauknum
Magni og félagar í Á móti sól
voru í góðum gír á Gauknum á
laugardagskvöldið, tóku alla
slgarana sína og nokkur sterk
tökulög í bland.
Þoð vantar aldrei neitt upp ó stemning-
una ó böllum hjó A móti sól enda ein
sterkasta ballsveit landsins.
Harpa Hrund og Sigga Dóra
skemmtu sér vel d Gauknum.
Rúnar Snæland og Sigurgeir höfðu
ekki yfir neinu að kvarta - góð
tónlist og fullt afsætum stelpum ó
staðnum.
Sigga, Binna og Helena hituðu upp i
bjórnum d Gauknum óður en þær skelltu
sér d dansgólfið.
'strókarnir horföu vongóðir yfir d þetta
orð þar sem Anna Rún, Heiða Rós, Karó,
Elsa og Sigurborg sótu. Ekki ferþó
neinum sögum afþvi hvernig kvöldið
endaði.