Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2003, Page 4
4 MÁNUDAGUR I. DESEMBER2003
Fréttir DV
Barlómur
bænda
Jóhann Óli Hilmarsson,
formaður Fuglaverndarfé-
lagsins, segir bændur fyrir
austan sýna á sér barlóm í
kxöfum sínum um að álfta-
veiðar verði leyfðar. „Það er
út í hött að spá í að veiða
álftir. Menn geta bara sett
upp fuglahræður. í mjög
mörgum tilfellum þar sem
menn barma sér undan
náttúrulegum óvini eru
menn ekki að sjá um túnin
sín. Þetta grær allt upp og
sprettur jafnvel betur.,“
segir hann. Hann segir fá-
ránlegt af Siv Friðleifsdótt-
ur umhverfisráðherra að
„hlaupa á eftir" hinum
hefðbundna íslenska bar-
lómi. „Enginn er búmaður
nema hann barmi sér, eins
og sagt er,“ segir hann.
22 framseldir
Stjórnvöld í Sýrlandi af-
hentu tyrkneskum stjórn-
völdum í gærkvöldi 22 aðila
sem eru grunaðir um að
vera viðriðnir
sprengiárás-
irnar í Istan-
bul þann 20.
nóvember. Að
sögn Anatolia-
fréttaskrifstof-
unnar höfðu
mennirnir flú-
ið Tyrkland
skömmu eftir sprenging-
arnar íjórar en í þeim létust
meira en 60 manns og var
árásunum beint að tveimur
bænahúsum gyðinga í
borginni, breskum banka
og breska sendiráðinu en
meðal þeirra sem létust var
Roger Short, sendiherra
Bretlands í Tyrklandi.
Á laugardag lögðu tyrk-
nesk stjórnvöld fram fyrstu
kæruna vegna málsins.
Þvag
geimfara
Eitt klósett er í geimsku-
tlum sem notar blástur til
að leiða úrganginn í gegn-
um kerfið, segir á Vfsinda-
vef Háskólans. Úrgangs-
vatni er dælt út í geiminn
en annað er
innsiglað í
plastpoka og
fjarlægt eftir
heimkomu.
Þvag geimfar-
anna verður að
gasi þegar út í
geiminn er
komið, því þar er lofttæmi
eða hverfandi þrýstingur.
Hreinlæti er mikilvægt því
komið hefur í ljós að vissar
bakteríutegundir fjölga sér
óvenju hratt í þyngdarleysi.
Því er allur úrgangur,
óhrein föt og áhöld innsigl-
uð í plastpoka og skutlan
þrifin hátt og lágt reglulega.
Lækna köngu-
lóarfælni
Breskir vísindamenn
hafa fundið lyf sem læknar
menn af köngulóarfælni
sem talið er að allt að fjórð-
ungur manna þjáist af. Það
var fyrir tilviljun sem þetta
fælnilyf fannst en þessi
lækning felst í hliðaráhrif-
um af lyfi sem lengi hefur
veirð á markaðnum við
berklum. Það tekur aðeins
viku að losa hræðsluna við
köngulærnar.
Þrítugur hnefaleikari frá Reykjavík fékk blæðingu inn á heila eftir að hann var
rotaður á fyrsta hnefaleikamótinu í Vestmannaeyjum. Forsvarsmenn hnefaleika-
íþróttarinnar segja slysið afar óheppilegt, en að slys verði í öllum íþróttum. Talið
er að öllum reglum hafi verið fylgt.
HILL*
Bardagi í Vestmannaeyjum Gunnar
Halldórsson úr Hnefaleikafélagi
Reykjavikur nefbrotnaði i Eyjum. Félagi
hans fékk blæðingu inn á heila.
„Þetta er falskt öryggi. Höfuð
og heilaáverkar eru einkenn-
andi fyrir þessa íþrótt
Ari Ársælsson, þrítugur boxari úr Hnefa-
leikafélagi Reykjavíkur, var sendur alvarlega
slasaður af boxmóti í Vestmannaeyjum á laug-
ardagskvöldið. Ari fékk blæðingu inn á heila eft-
ir að Heiðar Örn Sverrisson frá Grindavík hitti
hann rothöggi í fjórðu lotu. Hann var fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur og var ástand
hans metið ágætt eftir atvikum meðan hann lá
undir eftirliti lækna á Landsspítalanum í gær.
Ari er reyndur hnefaleikakappi með yfir 50 bar-
daga að baki, en þetta var annar bardagi Heið-
ars.
Um var að ræða fyrsta hnefaleikamótið í
Vestmannaeyjum, og það fyrsta utan höfuð-
borgarsvæðisins og Reykjanesbæjar. Á annað
hundrað manns voru á staðnum og var stemn-
ingin að sögn mótshaldara góð.
Samkvæmt rannsókn hnefaleikadeildar
íþróttasambands Islands var allur búnaður
samkvæmt reglum. Ari hafði höfuðhlíf, sem
dugði ekki til. „Það er mjög leiðinlegt að þetta
skuli koma fyrir. En það verða alltaf slys í íþrótt-
um. Þetta er ekki algengt í áhugamannahnefa-
leikum, en öll umgjörð var í topplagi. Við leggj-
um áherslu á að þetta sé í lagi, þannig að þetta
er afar óheppilegt á fyrstu metrum íþróttarinn-
ar á íslandi," segir Engilbert Olgeirsson, for-
maður hnefaleikanefndarinnar.
Katrín Fjeldsted, fæknir og fyrrverandi Al-
þingismaður, gagnrýndi frumvarp sem leyfði
ólympíska hnefaleika á sínum tíma. Hún segir
rannsóknir benda til þess að höfuðhlífar verndi
aðeins ytra byrði höfuðsins, en ekki það sem er
inni í höfuðkúpunni. „Þetta er falskt öryggi.
Höfuð- og heilaáverkar eru einkennandi fyrir
þessa íþrótt."
Hnefaleikamenn hafa bent á að slysatíðni í
ólympískum hnefaleikum sé lægri en í mörgum
öðrum íþróttum. Katrín segir það vera vegna
þess að í tölfræðinni séu borin saman tilkynnt
slys, og hnefaleikamenn veigri sér við að til-
kynna áverka. „Það kom í ljós að það var mun
hættulegra að vera kfappstýra í liði heldur en að
stunda box, en það er fráleitt. Menn tilkynna
ekki meiðsl því annars mega þeir ekki keppa í
langan tíma á eftir. Það eru líka vísbendingar
um að ítrekuð vægari högg á sama haus komi á
uppsöfnuðum vanda hjá hnefaleikamönnum.
En maður beygir sig undir meirihlutavaldið, þó
það hafi rangt fyrir sér,“ segir Katrín.
Samkvæmt upplýsingum læknis á Lands-
spítalanum var Ari ekki hæfur til viðræðu vegna
líðan sinnar í gær.
Fyrirhugað er að halda hnefaleikamót á ísa-
firði um þar næstu helgi sem verður það fyrsta
sinnar tegundar í bænum. Hnefaleikamenn eru
nú að kynna íþróttina um landið.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Isafirði,
segir hnefaleikamennina velkomna í bæinn.
„Ég myndi ekki keppa í þessu, mér dytti það
ekki í hug. Það er mjög leitt að heyra af þessu
slysi. En þeir sem vilja keppa í þessu eru vel-
komnir hingað. Þetta er lögleg íþrótt og þeir
sem vilja stunda þetta hljóta að átta sig á áhætt-
unni,“ segir Halldór.
jontrausti@idv.is
Kveikið á perunni og slökkvið Ijósin
Svarthöfði rakst á frétt vikunnar í
DV á laugardaginn en þar var sagt frá
því þegar Jónína Óskarsdóttir, um-
hverfis- og sparnaðarpostuli Félags-
þjónustunnar í Hafnarfirði, kveikíi á
pemnni og slökkti ljósin. Á skrifstof-
unni sinni meira að segja. Já, og hún
sparaði 200 þúsund kall af rafmagns-
reikningi stofnunarinnar.
Merkilegast við fréttína er hins veg-
ar, fyrir utan sparnaðinn auðvitað, að
opinber starfsmaður skuli sýna svo
mikið fordæmi og kveikja jafn rækilega
á pemnni. Oft er sagt að aðeins séu til
tvær tegundir opinberra starfsmanna:
Þeir sem em svo latir að það er hættu-
legt og þeir sem em svo duglegir að
það er enn hættulegra. Jónína Óskars-
dóttir sannar að til er þriðja tegundin.
Fljótlega mun hún ömgglega leggja
niður eigið embætti til að spara enn
meira. Jónína er því besta tegundin.
Hún ættí að vera öllum opinbemm
starfsmönnum gott fordæmi. Best væri
ef þeir kveiktu allir á pemnni og
slöldctu ljósin. Þannig bæm þeir hag
okkar allra fyrir brjósti. Nóg er ljósið,
og rafmagnseyðslan, af tölvum opin-
berra starfsmanna, og því geta þeir all-
ir skrúfað pemmar lausar líkt og Jón-
ína. Svarthöfði sér alla vega ekki hvaða
not skattmann hefur af ljósi yfir höfuð
og það væri hvort eð er miklu huggu-
legra að koma að heimsækja þá í
skammdeginu væru þeir bara með
kerti í tilefni aðventunnar.
Jónína Óskarsdóttir er starfsmaður
mánaðarins hjá hinu opinbera. Hún
endurnýjar trú Svarthöfða á mannkyn-
inu. Og nú er Svarthöfði svartsýnn
nöldurseggur en þetta er það allra
besta sem hann hefur heyrt. En mikill
vill meira og því ætlast Svarthöfði ekki
bara til þess að Skatturinn fari að for-
dæmi Jónínu heldur ætti Alþingi auð-
vitað að fara fremst í flokki og slökkva
ljósin hjá sér. Það veit enginn hvaða
fólk þetta er sem þar blaðrar og það vill
enginn vita það. Því minna sem við vit-
um af aíþingismönnum, því betra.
Kveikið á pemnni og slökkvið ljósin.
Svarthöföi