Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2003, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER2003
Fókus TfV
Magadans-
arasamfélag
á íslandi
„Það þurfti að skapa maga-
dansarasamfélag á íslandi," seg-
ir Elísabet Grétarsdóttir, en hún
og um það bil 30 aðrar konur
æfa magadans tvisvar í viku í
Kramhúsinu. Á laugardaginn
héldu þær konukvöld á veit-
ingastaðnum Chefs við Grensás,
þar sem boðið var upp á arab-
ískan mat, arabískir skartgripir
sýndir og konur gátu látið
skreyta sig með Hennaflúri. Ilá-
Birgitta Aðeins 13 óro gömul en hefur
strax náð tolsverðri færni í magodonsin-
um.
María Tamini Hálf-palestinsk og ólst
upp í Polestínu, en hún hefur stundað
magadans frá unga aldri.
punktur kvöldsins voru þó
magadansar, þar sem sjö maga-
dansarar sýndu listir sfnar, og
var sérstakur gestur hin danska
Anne Barner, sem er tvöfaldur
Danmerkurmeistari í greininni.
„Þetta er mjög fjölþjóðlegur
hópur," segir Elísabet, en með-
limir eru frá Tyrklandi, Palest-
fnu og Marokkó, jafnt sem ís-
landi. Félagsskapurinn heitir
Raks Sharky, sem þýðir maga-
dans á arabísku. Þær halda
kvennakvöld á 3-4 mánaða
fresti, en einstaka sinnum er
karlmönnum boðið með. Þær
hafa einnig tekið að sér að
skemmta í veislum, en þeim
sem langar til að leggja stund á
magadans er bent á að hafa
samband við Kramhúsið.
Ómar Ragnarsson með nýja geisladiska:
honum vel upp í því hlutverki - og var góður róm-
ur að gerður.
sigbogi@dv.is
Hlutirnir gengu ekki sem skyldi þegar frum-
sýna átti í Austurbæ sl. fimmtudagskvöld efni af
nýjum mynd- og hljómdiskum sem hafa að
geyma úrval mynda, laga og ljóða eftir Ómar Þ.
Ragnarsson fréttamann. Salurinn var orðinn þétt-
skipaður og eftirvænting í lofti þegar útgefandinn
Óttar Felix Hauksson sagði að vegna tækniörðug-
leika væri ekki hægt að bregða myndunum góðu á
skjáinn. Gestum var boðið að hlýða á tónlistina og
dagskrá án mynda, og að nota aðgöngumiða sína
aftur á myndasýningu kvöldið eftir. Einnig var
þeim boðið að fá mynddisk fyrir miðann ef ekki
væri heimangengt á aukasýninguna.
Hlutlæg saga og eigin upplifun
Gestir gerðu engar athugasemdir við það og
næstu klukkustundir var í Austurbæ flutt bráð-
skemmtileg dagskrá þar sem leikin voru af nýút-
komnum geisladisk lög með textum Ómars sem
hann helgar landi og þjóð. Á milli laga fór hann
með gamanmál og fróðleik; sagði frá landinu sem
hann hefur með myndum sínum og fféttum gefið
okkur svo sterka hlutdeild í.
Lög þessi voru langflest flutt í sjónvarpsþáttum
Ómars á árunum 1996 til 2000; fljótlega eftir að
hann snéri aftur til Sjónvarpsins eftir nokkurra
ára vist á Stöð 2.
í þessum þáttum sagði hann meðal ann-
ars frá sínum uppáhaldsstöðum á landinu;
sagði hlutlæga sögu þeirra og blandaði sam-
an eigin upplifun. Rétt eins og hann gerði í
Austurbæ á fimmtudag. Næsta kvöld var svo
fólki aftur hóað saman í samkomuhúsinu
góða við Snorrabraut og þá gekk sýningin
snurðulaust fyrir sig.
Meö tilþrifum
Á sviðimi í Auslurbæ
stíng Ónwr fyrir fullnn
sal af fóllii og sýndi
mikil tilþrif eins ocj
lionum einuin et lacjid.
Meö geisla-
diskinn
Á diskunum
góðu eru alls
lög iim land
og þjóO oij eru
tíll Ijóðin iKdll
tvoeftir Ömcn.
Ljóðin eftir Ómar
Ómar lands og þjóðar er yfirskrift þessara
diska sem eru þrír og gefnir út í samvinnu Rík-
isútvarpsins og Sonet-útgáfunnar. Lögin eru
alls 44 og eru ljóðin öll nema tvö eftir Ómar.
Flytjendur þeirra eru flestir af þekktustu
söngvurum landsins. _
Þeirra á meðal er Ómar sjáifur - sem með
eftirminnilegum hætti söng fýrir gesti í Austur-
bæ lagið Svona er á síld, sem hann söng upphaf-
fega inn á plötu árið 1964. í Austurbæ tók hann
11p
lagið með Helgu Möller sem söng bakraddir en
taktfast lófaklapp - sem eins konar trommuleik -
annaðist Geir H. Haade fjármálaráðherra. Tókst
Stjörnurnar flykktust til Höfðaborgar á laugardagskvöldið til að koma fram á
alnæmis-styrktartónleikum sem Nelson Mandela var í forsvari fyrir. Meira
en 30 þúsund gestir fylltu leikvanginn sem tónleikarnir voru haldnir á.
Mandela-hjónin Nelson Mandela og eiginkona
hans, Graca Machel, veifa til mannfjöldans á 46664
alnæmis-styrktartónleikunum í Höfðaborg á laugar-
dagskvöldið. 46664 er fanganúmerið sem Mandela
bar á langri fangelsisvist sinni á Robben-eyju.
Gamall og góður Brian May, gítar-
leikari hinnar sálugu sveitar Queen,
er enn að þrátt fyrir að hann teljist
nú ekkert unglamb lengur. Árnegju-
legt að hann skuli enn halda siðu og
villtu hárinu.
U2-liðar Bono og The Edge, liðsmenn U2, voru að sjálfsögðu
mættir og tóku lagið. Bono hefur sem kunnugt er verið ötull bar-
áttumaður fyrir mörgum mannúðarmálum, sérstaklega er varða
þriðja heiminn.
Beyonce Hin unga söngkona Beyonce Knowles fór mikinn á
sviðinu og vakti óneitanlega athygli viðstaddra.
DV-myndir: sigbogi@dv.is