Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2003, Side 30
II
*
30 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER2003
Síðast en ekki síst DV
blaðamaður að skoða land og þjóð.
Bifvélavirki fær gullplötu
Hljómplötusala fyrir þessi jól fer
vel af stað og eru útgefendur jafnt
sem flytjendur afar sáttir. Átta plötur
sem gefnar eru út í ár eru nú að nálg-
I ^ . ast - eða komnar yfir - gull-
plötumarkið sem eru 5.000
seld eintök. í gær var bifvélavirkjan-
um á Akureyri, Óskari Péturssyni frá
Álftagerði í Skagafirði, veitt gullplata
fyrir Aldrei einn á ferð. Hún hefur
þegar selst í 7.100 eintökum.
Sú plata sem best hefur selst í ár
eru Ferðalög þeirra KK og Magnúsar
Eiríkssonar sem kom út í sumar en
Óskar Pétursson er í öðru sæti.
„Við erum mjög ánægðir með
sölu íslenskra geisladiska, sem hefur
aukist mjög merkjanlega frá í fyrra.
Þessi aukning hefur greinilega verið
á kostnað erlendrar tónlistar," segir
Einar Bárðarson, talsmaður hljóm-
plötuútgefanda. Alls koma út 170 ís-
lenskar plötur fyrir þessi jól.
Einar segir að salan muni vænt-
anlega aukast stórum næstu daga;
meðal annars í kjölfar útgáfu Plötu-
tíðinda sem fyrir helgina var dreift á
hvert heimili í landinu. Þá getur Ein-
ar einnig tilleggs Hagkaupa, sem um
helgina lækkuðu verð á geisladisk-
um sem nemur álögðum virðisauka-
skatti.
Óskar Pétursson Tók ígær við gullplötu.
Aldrei einn á ferð hefur nú þegar selst í 7.100
eintökum.
Skák
Hér eigast við tveir óþekktir
spænskir skákmenn suður í sólinni f
keppni taflfélaga á
Spáni. Sóknin er einföld
og skemmtileg og svo
beið sólin úti!
Hvítt: M. Navarro Cia (2337) Svart:
C. Rodriguez Amezqueta (2056)
Spánska deildakeppnin. Sanxenxo
(1), 17.11.2003
Hvítur á leik!
30. Dg2 Hxc2 31. Dg7+ 1-0
Síðast en ekki síst
• Knattspyrnuá-
hugamönnum
brá nokkuð í
brún í gær þegar
þeir stilltu inn á
Boltann með
Guðna Bergs á
Sýn. Þátturinn
gekk sinn vana-
gang með Guðna
^ og Heimi Karls-
son í brúnni en gestur þeirra að
þessu sinni var Olafur Þórðarson,
þjálfari Skagamanna í knattspyrnu.
Það væri svo sem
ekki í frásögur
færandi nema að
á sama tíma og
þátturinn stóð
yfir var íslands-
mótið f knatt-
spyrnu innan-
húss í gangi. Lið
Skagamanna var
þar þjálfaralaust í
fjarveru Ólafs og
tapaði í undanúrslitum fyrir Völs-
ungi.
• Árlegt íjölmiölamót í knatt-
spymu var haldið í Fífunni í Kópa-
vogi í gær. Þátttaka var ekki eins
góð og oft áður enda fjölmiðlamenn
vanari því að leikið sé á laugardög-
um. Aðeins sjö lið mættu til leiks en
t keppnin var góð og skemmtu menn
sér hið besta. Það var Morgunblað-
ið sem stóð að lokum uppi sem sig-
urvegari eftir sigur á Stöð 2 í
æsispennandi úr-
slitaleik sem fór í
framlengingu og
vítaspyrnu-
keppni. Fróði
hafnaði í þriðja
sæti eftir sigur á
RÚVen RÚV
komst í undanúr-
sliti með því að
ná naumu jafn-
tefli við DV. Margir höfðu vonast
eftir stjörnum prýddu liði frá Stöð 2,
með menn eins og Guðna Bergs og
Eyjólf Sverrisson innanborðs, en
m ekki varð af því að þessu sinni...
Almælisveisla Rás 2 20 ár
Rás 2 hélt upp á tvítugsafmæli
sitt með glæsibrag í útvarpshúsinu
við Efstaleiti á laugardagskvöldið í
beinni útsendingu hjá Gísla Mart-
eini. Hátt í 200 manns fögnuðu þar í
dýrlegum gleðskap enda ástæða til.
Tuttugu ár í lífi útvarpsstöðvar er
langur tími og þá sérstaklega þegar
afmælisbarnið heldur heilsu og er
síkátt í erli dagsins:
„Það var skemmtilegt að geta
fært útvarpið inn í sjónvarpið eins
og við gerðum þarna á laugardags-
kvöldið. Ég er viss um að Rás 2 á eft-
ir að halda upp á þrítugsafmæli sitt
af ekki minni krafti," segir Jóhann
Hauksson, yfirmaður Rásar 2, sem í
gær var reyndar staddur í plötubúð
til að kaupa jólagjafir handa frænd-
um sínum í útlöndum. Og að sjálf-
sögðu keypti hann íslenskt: „Ég er að
hugsa um eitthvað með I svörtum
fötum. Mér er sagt að það sé ágætt,“
segir Jóhann sem er kannski ekki
með allt á hreinu varðandi íslenska
nútímatónlist en starfsmenn hans
bæta það upp og vel það: „Það er
einmitt eitt af því sem gerir Rás 2 að
því sem hún er. Það er þetta eilífa
grúsk hjá starfsmönnunum og
kynning á íslenskum hljómsveitum
sem skilað hafa miklu. Það er til
dæmis Rás 2 að þakka að hljóm-
sveitin Sigurrós var spiluð á 20 út-
varpsstöðvum í Evrópu í upphafi
ferils síns og slíkt hefur áhrif," segir
Jóhann sem heldur afmælisveisl-
unni áfram í dag. Hljóðfærum hefur
verið stillt upp í hljóðveri rásarinnar
og svo koma íslenskir tónlistarmenn
í heimsókn einn af öðrum og taka í
græjumar. Hver með sínum hætti
eins og verið hefur aðalsmerki Rásar
2 frá upphafi.
Til hamingju með daginn.
Tæknimaður með tvaer HremnValdi-
marsson tæknimaður hefur starfað á Rás
2 frá upphafi og átt sinn þátt Ítærum
tóni rásarinnar. Hér með tvær I takinu I
afmælisveislunni.
Skytturnar þrjár Þessirhafa oft hitt imark á
Ras 2: Þorgeir Ástvaidsson, fyrsti útvarpsstjóri
Rásar2, Markús Örn Antonsson, æðstiyfirmað-
ur hennar lengst afog Jakob Frimann Magnús-
son, stuð-og stjórnmáiamaður.
Utvarpsstjarna í heim-
sókn Stefán Jón Hafstein,
einhver skærasta útvars-
stjarna Rásar 2 fyrr og síðar,
lét sig ekki vanta íafmæiið.
Hérmeð Markúsi Erni.
• Eins og kunnugt er hef-
ur Jón Ólafsson sagt skilið
við ísland að sinni og er
fluttur með allt sitt haf-
urtask af landi brott. Til að
tryggja að fólk gleymdi
honum nú ekki bauð Jón til
kveðjuveislu á Hótel Nor-
dica á fimmtudagskvöldið í
síðustu viku. Dyggustu
starfsmenn hans, vinir og
kunningjar voru boðnir til
gleðinnar en þeir sem
mættu á staðinn gripu í
tómt. Jón var þá floginn út
og engin varð veislan...
• Mikla athygli vakti frétt
hér á síðunni á laugardag
um að Guðmundur heitinn
Ingólfeson djasspfanisti
væri sá maður sem í bili
virðist hafa stöðvað áform
íslenskrar erfðagreiningar um
Krossgátan
Lárétt: 1 fituskán,4 héla,
7 konungur, 8 spil, 10
ástundun, 12 húð, 13
glögg, 14 bráðlega, 15
sápulög, 16 bugt, 18
galsi, 21 fæðingu, 22
mynni,23 orku.
Lóðrétt: 1 augnhár, 2
kærleikur,3 ragur,4 sam-
svörun, 5 sveifla, 6 út-
rými, 9 risi, 11 nirfill, 16
fölsk, 17 hljóðfæri, 19
eyri, 20 óværa.
Lausn á krossgátu ’sá| oz ‘)\J 61 'oqp L l '?IJ 91 'soueu l1 j|gj} 6 '!?UJ 9
'gu s 'egæjseim p 'sne|>(jef>( £ 'ise z '?Jq l sye £z 'sojb zz 'IQJnq Lí jsjæ 81
'eo|j 91 'jn| s l 'uuas y i '>jsou £ l 'g°J Zl '!ug! 0 L 'eu? 8 '!l9fs z 'uJJJq Þ '>|?Jq L
gagnagrunn á heilbrigðissviði. Þar
gleymdist hins vegar að taka fram
að Guðmundur er nú þekktastur
fyrir að það var djasstríó hans sem
lék gömul íslensk dægurlög inn á
hljómplötu og disk undir nafninu
Gling-gló. Guðmundur
fékk Björk Guðmundsdótt-
ur til að syngja lögin og var
þetta skömmu áður en hún
sló endanlega í gegn í út-
löndum og varð heims-
fræg.
Plata Guðmundar og
Bjarkar er nú orðin mikil
„cult“-plata bæði hér á
landi og ekki síður í útlöndum, þar
sem aðdáendur Bjarkar sækjast
ákaft eftir plötunni, enda stjarnan
þeirra þar við annað heygarðshorn
en á sínum eigin plötum, en syngur
ekki síður vel.
Hermt er að margir séu
farnir að stunda það þegar
þeir fara til útlanda að hafa
jafnan í farteskinu eins og
fimm eintök af Gling-gló
plötu Guðmundar og Bjarkar,
til að bjóða í skiptum fyrir
greiða og þjónustu, og sagt er
að í útlöndum opnist flestar
dyr ef Gling-gló er í boði,..
Veðrið
Allhvasst
slödegis
+1 Gola
m
Allhvasst
síðdegis
+4’
Nokkur
vjndur
N
Gola
Nokkur
Indur
Allhvasst
síödegis
+3
-2Gola
£2>t
Gola
Gola
Hvassviðri
síðdegis
c