Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Side 14
74 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 Fréttir 0V Hundar og kettir eru ekki undanskilin því að þurfa á snyrtistofu í jólabaðið fremur en mannfólkið. Dýr- in fá líka jólagjafir og eru ekki lengi að þefa uppi sína gjöf undir trénu. Enn ánægðari eru þau í jólaföt- unum því þá fá þau verðskuldaða athygli og njóta sín vel. Það er ekki aðeins mannfólkið sem gerir sér dagamun um jólin. Heimilisdýrið verður einnig að fá gott að borða, betri föt og jóla- gjafir. Margir setja skóinn út í glugga; nota bene af einhverjum mennskum og jóla- sveinninn setur eitthvað gott í skóinn fyrir hundana. Lára Fleckenstein í versluninni Tokyo í Hafnarfirði segir mikið hafa verið að gera í desember. Mikið sé keypt af jólagjöfum fyrir dýrin, hvort sem er eitthvað gómsætt eða nýja ól eða bæli. „Það er allt milli himins og jarðar sem fólk kaupir. Hundarnir fá ný föt, þeir fá gott að borða og svo auðvitað pakka. Þeim finnst ógurlega gaman að taka upp sína pakka sjálfir en þeir þefa pakkann sinn sjálfir uppi undir trénu," segir Lára. Hún bætir við að helstu gjafirnar séu nýjar ólar, jólapokar með ýmsu góðgæti, boltar og ýmis leikföng og körfur og bæli. „Menn bíða oft með að kaupa nýtt fyrir dýrið sitt og nota tækifærið og gefa frekar í jólagjöf. Úrvalið er alltaf að aukast enda er dýrum að fjölga. Að sama skapi hugsa menn betur um dýrin sín og velta meira fýrir sér hvaða fæði er gott fyrir þau. Þetta er ekki lengur eins og það var; menn komu með sætan hvolp heim úr sveitinni og svo var honum oftar en ekki lógað þegar hann stækkaði. Nú undirbýr fólk vel kaup á gælu- dýri og gerir sér grein fyrir hvað það þýðir til framtíðar að taka að sér dýr. En dýrin fá ekki aðeins jólagjafir og ný föt. Þau þurfa jólabaðið líka rétt eins og við hin. Sýnishorn jólagjafa fyrir dýrin Vinsælast er að kaupa fyrír þau leikföng og eitthvað gott að naga. Mörg fá nýja 61, föt eða körfu til að sofa í. Þvo, blása og greiða niður hnúta Flókar og hnútar vilja myndast I feldmiklum hundum og köttum. Það er ekki nema fagmanna aðná þeim úr svo vel sé. Það þarf lika að klippa klær sem er vandasamt verk efekki á illa að fara. DV Myndir Hari Fá athygli og auka knús Á jólunum skrýðast hundarnir nýju fötun- um; Innan dyra er þau tæpast klædd nema í eitthvað létt sem puntar þau en einkum eru það jólasveinahúfurnar sem eru vinsælar. Allar eru þær sammála um að dýrunum líki það alls ekki illa að klæðast fötunum þá hljóti þau sérstaka athygli. Athyglin er þeim nauð- synleg eins og börnunum og það er einmitt það sem þau vilji. Þau fá að heyra hvað þau séu fín og sæt og fá auka knús. Bæði í Tokyo og öðrum dýrabúðum er mikið úrval af fötum og segir Guðríður í Dýrabæ fötin mjög vönd- uð og saumaskapinn og hönnunina ekki síðri en á fötum almennt. „Það er nauðsynlegt að eiga góð útiföt á flestar tegundir hunda því að klæða þá áður en haldið er út í kulda, kemur í veg fyrir að þau kólni niður. Fötin hlífa feldin- um fýrir að blotna og ekki þarf að þurrka þau og þvo þegar inn er komið. Það fer nefnilega svo illa með viðkvæman feld og þannig myndast flækjur og hnútar,“ segir hún. Menn verða að átta sig á að hundurinn stjórnar ekki hraðanum í ól eins og ef hann væri laus sjálf- ur og héldi þannig á sér hita. Guðríður Vestars í Dýrabæ, Hlíðarsmára hef- ur nóg að gera fyrir þessi jól og hefur svo ver- ið allt frá því í byrjun mánaðar. Hún segir flesta vilja fá jólabaðið eins nærri jólum og kostur er þannig að unnið er dag og nótt á Dýrabæ þessa síðustu daga fyrir jól. AIIs ekki pjatt Þar eru einungis tekið á móti köttum og hundum en hundarnir eru öllu fleiri. „Margir telja þetta tómt pjatt en svo er alls ekki. Marg- ar feldmiklar tegundir hunda og katta þarf að baða kemba, klippa og greiða regfulega. í þeirri veðráttu sem er á veturna fer það illa með feld dýranna að blotna oft því það vilja myndast flækjur smátt og smátt þegar þau eru þerruð. Það er ekki fyrir nema fagmann að ná þeim úr ef flókarnir eru orðnir miklir. Dýrunum líður illa með flóka sem stundum eru djúpt niðri í feldinum, næst húðinni og menn óttast að klippa í sjálfa húðina," segir Guðríður sem jafnframt bendir á að dýrunum líði rnjög vel á eftir baðið. Það þarf líka að klippa klær og snyrta og það er ekki á hvers manns færi að klippa klærnar því það má alls ekki klippa of langt upp en þá myndast blæð- ing sem mjög I erfitt er að stöðva. „Svo vilja auðvitað allir að dýrinu líði vel og sé líka flott þegar allt heimilisfólkið er í sínu ffnasta pússi. Hrönn Hreið- arsdóttir hunda- snyrtistofunni Erluhólum tekur undir orð Guð- ríðar og bætir við að það sé að fær- ast í aukana að fólk láti klippa hundana sína stutt. Hún segir menn svo önnum kafna að þeir megi hreinlega ekki vera að því að sjá um feldhirðu á hundi með síðan feld. „Það er svo mikið að gera að mönnum er nóg að sjá fyrir daglegum þörfum dýranna eins og göngutúra. Ef vel á að vera þarf að kemba sumar tegundir á hverjum degi til að koma í veg fyrir flóka. Dýrunum líður afar illa ef þau eru óhrein með stóra flóka,“ segir Erla og ann sér ekki hvfldar fyrr en í hádeginu á aðfanga- dag. „Sá síðasti kemur til mín þá en mjög mikið hefur verið að gera allan desember," segir hún. Baða, klippa og blása ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Tilboð 1. Rafmagnsgítartilboð. Rafmagnsgítar, magnari, ól og snúra. Tilboðsverð 27.900,- stgr. Opið alla daga til jóla til kl. 22 Gítarinn ehf. Stórhöfða 27 sími 552-2125 og 895 9376 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is Tilboð 2. Kassagítar. Tilboðsverð 15.900,- stgr. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.