Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2003, Blaðsíða 37
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 3? Þórey Edda Elísdóttir, stangvarstökkvari úr FH. Þórey Edda átti gott ár þar sem hún stökk yfir 4,50 metra innanhúss og margoft yfir 4,40 utanhúss. Þórey Edda komst í tólf manna úrslit á heimsmeistaramótinu í haust en datt úr leik þar sem hún felldi byrjunarhæð sína í þrígang. Hermann Hreiðarsson, knattspyrnu- maður með enska liðinu Charlton. Hermann Hreiðarsson lék með tveimur enskum úrvalsdeildarliðum á árinu, Ipswich og Charlton auk þess að leika stórt hlutverk í íslenska landsliðinu. Hermann átti ffábæra leiki gegn Þjóðverjum þegar íslenska landsliðið var í fyrsta sinn í baráttunni um sæti á stórmóti ffam í síðasta leik. íþróttamaður ársins verður útnefndur með viðhöfn 1 48. sinn 30. desember næstkomandi en í gær var tilkynnt hvaða íþróttamenn skipa tíu efstu sætin i kjöri íþróttafréttamanna. Ólafur Stefánsson, handboltamaður hjá Ciudad Real á Spáni. Ólafur Stefánsson, varð Evrópumeistari með þýska liðinu Magdeburg á árinu og var kosinn besti leikmaður þýsku deildarinnar af leikmönnum sjálfum. Ólafur gekk til liðs við spænska liðið Ciudad Real í sumar. Ólafur var aðalmaðurinn í íslenska landliðinu sem náði 7. sæti á HM og tryggði sig inn á Ólympíuleika í fyrsta sinn í tólf ár. Örn Arnason, sundmaður úr ÍRB. örn Amarson vann siffurverðlaun í 100 metra baksundi á nýju Norðurlandameti á Evrópumótinu í 25 metra laug í Dublin í desember og komst auk þess í úrslit í bæði 200 og 50 metra baksundi á mótinu. örn var auk þess sigursæll á mótum hér heima og vann 7 verðlaun, þar af 4 gull á Smáþjóðaleikunum á Möltu í sumar. Ragnhildur Sigurðardóttir, golfari úr GR. Ragnhildur vann öll stærstu golfmót kvenna á árinu, varð íslandsmeistari, stigameistari á Toyota- mótaröðinni og vann síðan karlana í árlegri holukeppni á Nesinu. Ragnhildur var þá aðeins einu höggi frá því að komast áfram í úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.