Alþýðublaðið - 15.04.1969, Síða 12
12 Alþýðuiblaðið 15. apríl 1969
MÁLVERK
Nú er Malta ekki lengur flotastöð Breta. Á myndinni er
flotinn að yfirgefa eyna í síðasta sinn og eyjabúar fjölmenna
til að vera viti a ðatbunrðinum, og veifa brezku sjóliðumum
í kveðjuskyni. Nú eru um 170 ár liðin frá því að Nelson flota
foringi sigldi flota sínum til Möltu til að aðstoða innfædda
gegn frönskum uppreisnarmönnum, en frá þeim tíma hefur
Malta verið flotastöð brezka hersins.
Framhald af bls. 16
armaðurinn, en strax og það sér
málverkin, fer það í flýti. — 16 ára
, piltur sagði, að það væri heimsku-
legt að eyða fé í það sem ekki á
hið minnsta skylt við list. En einn
, maður bar fram þá skoðun sem
virtist vera almennust: Borgun er
miklu litríkari nú en áður. Eg mundi
sakna málverkanna, ef þau hyrfu
skyndilega.
Listafélagið gaf út bækling fyrir.
ferðamenn, sem í voru lýsingar á
leiðinni um götur Brandes : Akið
í áttina til kirkjunnar, segir í upp-
„ hafi, — og eftir Aðalgötu, í áttina
að húsi dagblaðsins. Þar getur að
líta litskrúðuga túlkun á hug-
myndaflugi K. Björn Knudsens. —
Þegar þér beygið inn á Járnbraut-
arveg, sjáið þér skreytingar Poul
Aggcrs á grjótmulningsvélinni. —
Frá grjótmulningsvélinni liggur
leiðin fram hjá skreytingu Leifs
Pespens á girðingunni umhverfis
skrangeymsluna — og svo fram-
vegis.
— Við erum hreykin af borg-
inni okkar, sagði ferðafélagið á
staðnum á fundi, þar sem rætt var
um ferðamannastrauminn til borg-
arinnar í framtíðinni, — og við von-
um að þið séuð það líka.
SIGVALDl
Framhald af 7. ítifiu.
lionum þú vera göfugmenni, geng-
ur burt og brosir. Ég hef séð ,það
sjálfur. En hann sezt ekki niðtfl' áð
eta appelsínuna, hann fer með hana
heim að gefa börnunum. Svoleiðis
lostæti hafa þau kannski aldrei feng-
ið, því meirihluti bænda getur varla
haft aðra fæðu en þá sem þeir
rækta sjálfir. Ef hann ræktar ekki
appelsínur — og venjulegur ind-
verskur bóndi ræktar ekki appels-
mur — fá börn hans ekki appels-
ínur. Hann ræktor bara kornmat,
hrísgrjón eða hirsi, og á ef til vill
eitthvað af skepnum.
Eg hef séð þessa fátækt, góðir
hálsar, séð hana oft, en ég skil hana
ekki enn. Svo mikið veit ég þó að
hún á ekkert skylt við að geta ekki
veitt sér það sem mann langar til,
— það að langa til einhvers er ekki
iilnln ^við tsjóncleildarhring, allt
svoleiðis lagað er hinum megin við
solarlagið — hún er eilíf spurning
um hvort manni veitist áfram sú
náð að fá að vera til eða ekki.
Maðurinn er heldur ekki einn
á Indlandi.
Alþekkt vandamál eru heilögu
kýrnar. Að vísu er meira gert úr
því á VeSturlöndum en rétt er, en
samt eru til svæði þar sem mikill
fjöldi af óskilanautpeningi er á
flækingi um vegi og torg. Auðvitað
etur hann heilmikið fóður frá
mjólkurkúm og öðrum þarfari
gripum, og samt er þessi heilagleiki
kvalinn af sulti og sjúkdómum.
Þá þykir mér hlýða að geta hér
tveggja dýrategunda óvirðulegri
sem hjálpa mönnum og kúm ó-
sleitilega til að eta upp allt sem
ættlegt er í landinu, en það eru
rottur og kakkalakkar. Rottuþjóð-
in er miklu eintakafleiri en mann-
fólkið og fjölgar að sama skapi, og
kakkakkkarnir reynast líklega
þeim mun fleiri sem þeir eru
smærri og líklega þeim mun stór-
virkari í eyðileggingarstarfi sínu.
Ég hef lesið einhvers staðar í rit-
lingum sem Indverjar láta ein-
hverjum stofnunum Sameinuðu
þjóðanna í té, að þessi hvimleiðu
dýr valdi meira tjóni á Indlandi en
unnt sé að meta.
Rétt til að gefa mönnum hug-
mynd um hve dýraríkið er ágengt
í þessu landi vil ég greina frá þvf
að þegar ég kvöld eitt fyrir ekki
löngu síðan var að borða hrís-
grjón og karrý í mesta sakleysi á
garðrestauranti einum hér í borg-
inni kom fjöldi hungraðra katta
til að sníkja bita og meira að segja
nokkrir mangúsar, villt lítil dýr
sem hafast við í borginni og víð-
ar. Þar að auki er allt fullt af
flækingshundum, og öll þcssi mis-
lita hjörð — sem í rauninni fylgir
manninum fremur en hún eigi
heima í náttúru landsins — hjálp-
ar til að sjúga til blóðs brjóstin á
þessu landi, landi sem með hverri
öld er að verða þurrara og blástv
ara og virðist imeira nagað af
mönnum og skepnum en það þol-
ir.......
Gunnar Myrdal hinn sænski er
þeirrar skoðunar, sennilega fróðast-
ur allra manna og færastur um að
dæma, að ekkert dugi á Indlandi
nema yfirmannlegt átak í land-
búnaði. Raunar sé stjórnin lin og
íhaldssöm þótt hún þykist vera rót-
tæk og framgjörn. En það sé eng-
in önnur leið að vinna bug á fá-
tæktinni en nýr landbúnaður sem
byggist á öllum sviðum á hávís-
indalegum grunni.
Maður sér strax bóla á þessum
nvja tíma.
Það er græna byltingin.
Bylting er það sannarlega, og
ekki síður { hugsun en í vinnu-
brögðum.
Það sést á því meðal annars að
þegar nokkrir bændur í Gujarat
voru spurðir hvort þeir vildu láta
syni sína læra landbúnað í skóla
svöruðu flestir eitthvað á þessa
lund:
— Drengirnir kunna að búa,
kennið þeim eitthvað annað sem
þeir hafa gagn af.
En þeir kunna ekki að búa. 'Það
þarf ekki Gonda til, venjulegt ó-
tipplýst sveitafólk veit ekkert hvar
skórinn kreppir að, það finnur
bara eins og þeir, að guð alls-
nægtanna er á braut.
Græna byltingin er ný hugsun,
ný menntun, nýtt skipulag, nýtt
sáðkorn, ný tækni í landbúnaði —
sem hægt og hægt er að byrja að
breiðast út frá vísindalegum land-
búnaðarstofnunum í Punjab, Mad-
res og víðar. Bændur eru í dag
skattlagðir til að unnt sé að halda
áfram rannsóknum héraðlútandi
og útfæra það í hagnýtu starfi.
Og ef þetta bjargar ekki van-
pærðum milljónum lítilla barna á
Indlandi, ja, þá er betra að fara
að biðja fyrir sér.
Eftir þv{ sem ég veit meira um
þsesa grænu byltingu sem er í vænd-
um, verður mér betur ljóst hvers
konar stórkostlegt kraftaverk hún
er: hver lítil akurskák verður marg
falt meira virði, á jafnlöngum
tíma verður arðurinn mörgum
sinnum meiri.
Mér dettur í hug sagan um
fimrn brauð og tvo fiska.
S i g v a 1 d i.
ÍÞRÓTTIR
Framhald 9. síðu.
vegna Alcindor. NBA-atvinnu-
mannasambandið setti einnig regl-
ur varðandi Wilt Chamerlain og
Bill Russell. Nú er að sjá hvernig
Aldndor vegnar sem atvinnumanni,
í fyrsta lagi hvort hann verður til
þess að kollvarpa skot-reglunum þar
einnig, og í öðru lagi hvernig hon-
um gengur gegn öllum þessum
stóru stjörnum, sem fyrir eru og
aðallega gegn Chamerlain. Það verð
ur einvígi framtíðarinnar í körfu-
knattleik.
Aftureldingar
€0 jra afmæli
Ungmen nafélagsiireyfi ngi n á Is-
landi er á margan hátt merkileg,
þó að mörgum finnist nú á dögum,
að hún sé að verða úrelt. En því
fer.-þó fjarri, og um það sannfærð-
uir^t við á laugardag í borðhaldi
Umf. Aftureldingar í Mosfellssveit,
en 'Jélagið varð 60 ára 11. apríl.
Fórrnaður félagsins er Birgir Sig-
urðsson, Reykjadal, varaformaður,
Guðmundur Magnússon, Leirvogs-
tungu, ritari, Gunnar Magnússon,
Reykjadal, gjaldkeri, Lísa Einars-
dóttir og meðstjórnandi, Asgeir
Indriðason, Víðigerði.
Afturelding hefur átt góðum
íþróttamönnum á að skipa í glímu,
frjáísum íþróttum, knattspyrnu,
sundi og handknattleik. A dagskrá
hjá féiaginu hefur einnig verið leik-
list, málfundir og ræktun.
Fjölmargir sóttu áðurnefnt af-
mælishóf, bæði ungir og aldnir. —
Margar ræður voru fluttar, m.a. tal-
aði Eiríkur J. Eiríksson, sambands-
stjóri, UMFI, Guðjón Einarsson,
varaforseti ISI o.fl.
Yeizlustjóri var Guðmundur
Magnússon.
Iþróttasíðan óskar Aftureldingu
tiljhámingju með afmælið og óskhr
féklginu allra heilla í framtíðinni.
—------------------------------
viuum íslenzkt-/I«5\
ÍSUENZKAN IÐNAÐ
HLÝTUR
Framhald bls. 1)
Gilrl.“ Þetta er í þriðja sinn,
sem Katlherinie Heþburn hlýt
lur Óskaxsverðlaun, en Bar-
bala Streisand hefiuir Ihingað til
eimkium vierið Ikumn isiem söng
kona, og fær verðlaunin nú
fyrj- fyrsita IkvLkimyndahl'Ut-
verk sitt.
Cliff ÍRobertson hlaut víerð
launin fynir beztjan leik karl-
maninla, og var það frammi-
staða hans í tmyndinmi „Char-
í'y,“ sem afiaði hanuim verð-
launamnia. Bezta miysnd ársins
viar hins vegiar talin btnezki
söngleikiurinn ,,01iver,“ sem
er gerður teftlir sögu D.okens,
Oliver Twist. IHlault sú mynd
al’ls 11 verðélaun, þar á meðal
hlaiut leiikstjóninln 'Sir Carol
Reed verðlaunin fyirlr bezta
Eleifestjóm. ,
TROLOFUNARHRINGAR
ÍFIjót afgréiðsla
Sendum gegn póstkr'öfíi.
CfUÐM: ÞORSTEINSSPN;
. gullsmiður
BankastrætT 12..