Alþýðublaðið - 15.04.1969, Qupperneq 16
Aljmhi
blaðið
Afgreiðslusími: 14900 Auglýsingasími: 14906
Ritstjómarsímar: 14901, 14902 Pósthólf 320, Reykjavík
Verð í áskrift: 150 kr. á mánuði
Verð í lausasölu: 10 kr. eintaki?
íbúar borgarinnar Brande á Jótlandi eru farnir a'ð venjast
málverkunum. Andúðin á þeim fer minnkandi, og fleiri óg
fleiri af þeim fimm þúsundum, sem í borginni búa, komast á
þá skoðun, að ef til vill sé í raun og veru um listaverk að
ræða. Og íbúarnir eru vissulega hreyknir að eiga tfurðulegasta
safn nútímamálvcrka, sem um getur, síðan Alec Gulinness
strauk kústinum um húsveggina í myndinni ,,The Horse's
Mouth“. En álitið á málverkunum hefur ekki alltaf verið slíkt,
í Brande gætti mikilla efasemda á gildi málverkanna allt frá
því ,að byrjað var að mála þau. I
Urðu undrandi
— Þegar við komum, sagði And-
ers Kirkegárd málari, áleit fólk að
við værum síðhærðir klessumálar-
ar, sem aðeins gætum slett málning-
arklessum hér og þar, og síðan ekki
söguna ,meir. Það varð alveg undr-
andi þegar við birtumst með stiga,
klæddir vinnufötum og með hlífðar-
gleraugu, og byrjuðum að brjóta
upp pússninguna á veggjunum til
þess að komast að tígulsteinunum.
— Nú getur að líta í Brande mál-
verk á girðingum, húsagöflum og
veggjum. Það sem gerðist í Brand-
és hefur breytt þessari hljóðlátu borg,
og hún verður aldrei söm aftur.
Þessar framkvæmdir hófust þeg-
ar meðlimir í Listafélagi Mið-fót-
Iands byrjuðu að ræða um það sín
á milli hvernig gæða mætti útlit
borgarinnar meira lífi. Félagið hafði
staðið fyrir hljómleikum og leiksýn-
ingum, en það var samt eitthvað
sem á skorti.
Lífga tilveruna
— Á meðan við sátum hér og
veltum fyrir okkur hvað \ið ættum
að gera til að lífga upp á tilveruna,
sagði dr. Ole Bendix, einn af aðal-
forivarsmönnum félagsins, sat -hóp-
ur ungra listamanna í Kaupmanna-
höfn og hugleiddi, hvar þeir gætu
fundið borg til að skreyta. Og við
náðum saman. Við báðum listasjóð
ríkisins um fjárhagshjálp og það
var ákveðið að borga 25% af kostn-
aðinum.
Samanlagður kostnaður var um
180 þús. d. kr. Mestur hluti kostn-
aðarins var fólginn 1 því að borga
listafólkinu, en það fékk um 10.000
d. kr. Afgangurinn fór í að borga |
efni, aðkeypta vinnu og annan
kostnað. Hópur fólks hjálpaði lista-
fólkinú við að undirbúa veggina
undir málningu.
Hafizt var handa við skreyting-
una síðastliðið sumar, og þá bjóst I
enginn við því að allir íbúar Brand- I
es væru hrifnir af framkvæmdun- j
um. Það mikilvægasta, sagði dr. I
Bendix, var ekki listin sjálf, heldur
það að gera eitthvað til að rjúfa til-
breytingarleysið, og það varð ein-
mitt svo.
— F.g ber virðingu fyrir því fólki,
sem eyddi tíma sínum í þetta, sagði
Hans Schack, en myndirnar eru
hræðilegar; ég hefði frekar viljað,
að peningarnir hefðu verið látnir
í gosbrunn á markaðstorginu.
— Þetta er betra en ég hélt það
yrði, sagði Karen Hansen, en það
er svo dýrt. F.g verð nauðsynlega
að fara ,að mála húsið mitt, en mér
hefði ekki dottið það í hug, hefði
ekki verið farið að mála borgina.
Ósamkomulag
Þegar að því kom, að afhenda i
átti borginni málverkin, varð borg-
arráðið ósammála um, hver ætti að
afhenda gjöfina. Eftir að greitt'
hafði verið atkvæði um málið, á-
kvað borgarráðið að draga sig út úr
hítiðárhöldunum. Það var ferðafé- ]
lag borgarinnar sem tók á móti
menntamálaráðherra Danmerkur, K.
Helweg Petersen. Ráðherrann sagð-
ist vera því eindregið fylgjandi að
fé ríkisins væri notað í þágu listar-
innar, og boðað til almenns um-
ræðufundar um ríkisstyrki til lista-
manna. Og það stóð ekki á fólk-
inu að koma á fundinn.
— Það getur verið að þau dragi
fólk til borgarinnar, sagði póstburð-
Framhald á bls. 12.
Anders Kirkegard við vinnu
sina á húsgafli.
Og liér er ein púskamynd enn
frá ísafirði: Einar Valur
Kristjánsson, gamall skíða-
kappi, heldur hér á syní sín-
um, Atla, sem virðist una sér
vel á skíðaslóðum.
(Ljósm. Isak).
V e r zl u narmsðstöd
Norðmenn hafa opnað vfc'rzl
•unarmiðstöð í Englandi til að
auðvelda viðskipti fyrir
norska útflytjendur. Þeir opn
uðu slíka miðstöð í Svíþjóð
fyrir tveimur árum.
Erik Werner, sem er teikn-
ari við Berlingske Tidende í
Danmörku, fékk nýlega 500
dollara verðlaun fyrir þessa
mynd af De Gaulle á tfc'ikni-
myndasýningu í Montreal
Ný liósmynda-
stofa 1
Ungur Haifnfírðingur Kristjári
Guffimundsson opnaði Xjósmynda
istofu þar í bæ og tekur að sér1
mydatökur af öllu tagi. Stofart
•er til húsa að Skerseyrarvegi 7,
•og kallar eigapdinn hana Ljés-
imyndastofu Kristjáns.
Hrístingur slæmur
ÞAÐ er nú komið' á daginn.
að menn, sem vinna við mikinn
Ihristing, t.d. þeir sem stjórna
loftborum eiga öðrum fremur á
Ihættu að verða kynferðilega
vanmegna. Er hætta þessi talin
samfara venkfænum. er „hrisb
ast“ 40 — 140 sinnum á mín
útu, og eru fyrstu sjúkdómsein
kennin dofi og kuldi í höndum.
Það eru itvö stærstu verkalýðs
félög Breblands, „Transport“
og „General Wonkers", sem
látið 'hafa mlál þetta til sín taka,
og vinna þau nú að n'ábvæmrl
ranrisókn þess, hversu mikið sé
•upp úr vandamáliniu leggjandi
og hvernig úr megi bæta.