Dagblaðið - 24.09.1975, Side 5

Dagblaðið - 24.09.1975, Side 5
Dagblaðið. Miðvikudagur 24. september 1975. 5 Kaffi hœkkar á heimsmarkaðnum: Tvöfaldast kaffiverðið hér? „Búast má við verðhækkun á kaffi hér á landi eins og annars staðar, þvi kaffiverð á heims- markaði rauk upp úr öllu valdi er frosthörkur herjuðu stóra hluta af kaffiekrum i Brasiliu. Hækkaöi þá heimsmarkaðsverð um 50% og gefið var i skyn að búizt væri við enn meiri hækk- un,” sagði talsmaöur eins af stærstu kaffiinnflytjendunum er Dagblaðið hafði tal af. „Þessara verðhækkana á kaffi hefur hins vegar ekki gætt enn hér á landi. Það er langt til Brasiliu og pantað er fram i timann,” bætti hinn sami við. Kaffiverð hérlendis er ákveð- ið i nánu samstarfi við verðlags- stjóra og til þessa hefur verið stefnt að þvi að deyfa allar verðsveiflur. Fólk hefur kvart- að undan þvi, að kaffiverð lækkaði hér ekki, þótt það lækk- aði úti i heimi, og nú njótum við þess væntanlega að kaffiverð hér hækki seinna en annars staðar er raun á vegna frost- skemmdanna i Brasiliu. Kaffiinnflytjandinn, sem Dagblaðið ræddi við, sagði að i landinu væru ætið 1-2 mánaða kaffibirgðir, annað eins magn, er til tslands ætti að fara, væri til umskipunar i Evrópuhöfn- um, og þriðja sendingin væri þá tilbúin til sendingar frá Brasi- liu. Væru nú þannig á leiðinni til íslands kaffisendingar i 6 skip- um og þar af væru aðeins tvær sendinganna ófarnar frá Brasi- liu, eða u.þ.b. að fara þaðan. Kaffiinnflytjandinn sagði, að nýjustu verðútreikningar á kaffi væru nú til meðferðar hjá verð- lagsstjóra. Dagblaðið hafði samband við verðlagsstjóra i gær. Sagði hann að búast mætti við hækkandi kaffiverði, en hann gæti ekkert nánar sagt um það mál að svo stöddu. Dagblaðinu er kunnugt um, aö verð á kaffi i neytendaumbúð- um i stórverzlunum i Banda- rikjunum hækkaði um helming á fyrstu tveim vikunum eftir að frostskemmdirnar urðu á kaffi- ekrum Brasiliumanna. Má þvi ætla að kaffiverð hérlendis verði ekki lengi óbreytt. Þá ræddi Dagblaðið við aðal- innflytjendur „Nescafe”. Þeir kváðust engar fréttir hafa feng- ið um hækkandi innkaupsverð þeirrar vörutegundar. Heims- markaðsverð á kaffi hefði áhrif á verð á Nescafe, en þess gætti siðar á innflutningi Nescafe en á venjulegu kaffiverði. Innflutn- ingur á Nescafe hefur mjög aukizt, og er i stöðugum vexti, og gildir það jafnt um báðar tegundir kaffiduftsins, hins venjulega og þess sem kallað er ,,luxus”-tegund. ASt. Fáskrúðsfjörður: r Arangurslaus leit Gunnar Ragnarsson, Vikur- gerði við Fáskrúðsfjörð, heitir maðurinn, sem saknað hefur verið frá þvi aðfaranótt sunnu- dags. Gunnar er 26 ára gamall. Hann var á heimleið frá dansleik á Reyðarfirði, en skil- aði sér ekki, og hvarf hans er sett i samband við hvarf báts frá næsta bæ, Vik. Báturinn fannst mannlaus á hvolfi i Fá- skrúðsfirði en leit að Gunnari hefur enn engan árangur borið. Geir Helgason lögreglumaður sag.ði Dagblaðinu að fjörur hefðu verið gengnar, en ekkert fundizt. —ASt. EG KEM AFTUR,- VERIÐ ÞIÐ Lézt undir stýri 67 ára gamall vörubif- reiðarstjóri frá Hafnarfirði lézt undir stýri á bil sinum á Alftanes- vegi i fyrradag. Rann billinn, sem er stór vöruflutningabifreið með krana á palli, siðan út af vegi og lenti ofan i gjótu. Farþegi i bilnum stakkst út um framrúðuna og hlaut nokkur meiðsl af. Bil- stjórinn hafði áður kennt lasleika fyrir hjarta. —ASt. Guðbergur Birkisson. Söludrengur Dagblaðsins rœndur Einn af þeim mörgu drengjum, sem af dugnaði selja Dagblaðið, varð i gær fyrir barðinu á illa inn- rættum pilti á Hondu- hjóli. Blaðsölu- drengurinn, sem heitir Guðbergur Birkisson, seldi Dag- blaðið fyrir utan Glæsibæ. Að honum vatt sér kona, sem vildi fá blaðið, en hafði ekki nema 1000 kr. seðil. Guðbergur litli, sem er senn 11 ára gamall, gat skipt seðl- inum, en rétt eftir að konan sneri sér frá honum og hann var að láta peninga sina i budduna, kom pilt- urinn á Hondunni eins og valur i vigahug og þreif til peninganna og tókst á þann hátt að ná i 1000 kr. seðilinn sem Guðbergur var að skipta. Þetta var ljótt bragð og fékk að vonum nokkuð á Guðberg. Málið mun verða kært til lögreglunnar. —ASt. VISS! Þær eru senn á förum flug- urnar, sem margir hafa kannski bölvað, ekki sizt i sól- riku héruðunum fyrir norðan og austan. Reykvikingar hafa ekki haft svo mikið að segja af þessuhúsdýri. Þessa hittiljós- myndarinn okkar þó fyrir einn af þessum fáu sólardögum núna fyrir skemmstu. „Ég- kem aftur, verið þið viss.” gæti hún hafa hugsað, þessi húsfluga, sem senn fær sér vetrarblundinn. (PB-mynd Björgvin Pálsson, tekin með Nikon F2 og Micro Nikkor 44 mm linsu. Stækkuð á Ufobrompappír. Flugan er ekta og iifandi. Var gerð aðeins ljósari með vatnslitapensli með bleiki- baði, sem núið var á staðinn þar sem flugan situr). DIXIE Á BORGINNI Þeir minna á „gömlu góðu dagana” þessir sjö félagar á myndinni, sem taka ofan fyrir lesendunum. Minna á þá daga þegar dixie- landinn og bluesinn voru upp á sitt bezta. En nú ætlar Borgin. þ.e. Hótel Borg, að bjóða gestum sinum dixielandhljómsveit svona til tilbreytingar. A myndinni eru þeir Guðmundur Steingrimsson, tromm- ur, Kristján Fr. Jóns- son, trompet, Þórarinn Oskarsson. básúna, Arni Isleifsson, pianó, Bragi Einarsson, tenór- saxófónn og klarinett, Njáll Sigurjónsson. bassi. og Gunnar Ormslev, tenórsaxófónn. Þeir munu leika á laugar- dögum i vetur undir dunandi dansi og munu þvi bjóða upp á marg- brevtilega tónlist auk þess að hafa i frammi dixie.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.