Dagblaðið - 09.10.1975, Page 3
Pagblaðið. Fimmtudagur 9. október 1975
3
Burt með blokkirnar -
bcer skvaaia á sólina
— segia
ungir íbúar
Efstalands-
hverfis í
Kópavogi
Enn einu sinni vill fólk fara i
hár saman Ut af húsabygging-
um byggingarfélaga. í þetta
sinn eru það Byggingarsam-
vinnufélag Kópavogs og Bygg-
ung i Kópavogi sem verða fyrir
barðinu á reiðu fólki i Efsta-
landshverfinu innst i Kópavogi.
Byggingarfélögin tvö hafa
fengið heimild til þess að reisa 7
sex til tiu hæða ibúðarblokkir á
svæðinu sunnan og austan við
Efstalandshverfið nær Breið-
holtinu. Aðalskipulagið fyrir
þetta svæði var samþykkt fyrir
um 6—7 árum og var þá gert ráð
fyrir háhýsum þarna.
Bæði félögin eru tilbúin að
hefja framkvæmdir, en væntan-
legir nágrannar þess fólks, er i
blokkunum ætlar að búa, eru
ekki á þvi að framkvæmdir
hefjist þar i bráð. Nú um helg-
ina gengu áskriftarlistar og
dreifibréf i flesta stigaganga i
hverfinu og var aðalefni bréfs-
ins það að ibúar hverfisins mót-
mæli harðlega þeirri ákvörðun
bæjarstjórnar að leyfa bygg-
ingu blokkanna þarna á þeirri
forsendu fyrst og fremst að þær
komi til með að skyggja á sólina
fyrir stórum hluta hverfisins.
Telja dreifendur bréfsins að sól-
in muni ekki sjást um allt hverf-
ið i skammdeginu, þegar hún er
lægst á lofti, og sé ekki af of
miklu að taka i þeim efnum nú
þegar.
Auk þess er hvatt til stofnunar
hverfasamtaka og menn beðnir
að ljá máli þessu lið með þvi að
rita nafn sitt á undirskriftar-
lista, sem leggja á fyrir fund
bæjarstjórnar nú i dag.
t samtali við Dagblaðið sagði
Ölafur Gunnarsson bæjarverk-
Nýju blokkirnar eiga að risa sunnan og austan við Efstalandshverfið, efst á myndinni handan við blokkasamstæðuna þar. Þvkir hinum,
er lægra búa, það heldur súrt i broti og óttast sólarleysið. DB-mynd BP.
fræðingur að samkvæmt þvi
skipulagi, sem samþykkt hefði
verið fyrir nokkrum árum, hefði
átt að reisa þarna 12—15 hæða
ibúðarblokkir allt að 60 metra
langar. Þó hefði verið horfið frá
þeirri ákvörðun, enda hefði það
reynzt allt of dýrt i byggingu.
Þessar blokkir, sem nú ætti að
byggja, væru sem sagt frá 6—10
hæða og svo væri einnig áform-
að að byggja tveggja hæða rað-
húsalengjur á svæðinu, sem allt
i allt myndi verða um 2 hektarar
að flatarmáli.
Aður en lengra væri haldið
vildi hann hvetja fólk til þess að
koma niður á skipulagsskrif-
stofu og skoða skipulagið áður
en menn æstu sig meira upp.
Hefðu allmargir gert það nú
þegar og séð að hér væri ekki
um jafnhættulega hluti að ræða
og margur vildi vera láta. HP
LÍTIL
BLAÐA-
SAGA
ÚR
MIÐBORG
Sæll vertu óli, láttu mig hafa eitt
eftirmiðdagsblað, vinur.
Oúpps — þar lá ég I þvl. Þau eru
orðin einum of þung þessi eftir-
miðdagsblöð upp á siðkastið.
i baksýn er bæjarstjórinn i Kefla-
vík og furðar sig á ástandinu á
apótekshorninu.
Óli blaðasali hefur hjálpað við-
s'kiptavini sinum á fætur eins og
vera ber og telur aurana i lófa
sinum. Bezt að hafa sig upp og
haldá áfram göngunni hugsar
hinn óheppni blaðakauþandi.
(DB-myndir: Björgvin).
Uppsagnir
verða 100%
,,Ég geri ráð fyrir að upp-
sagnir verði 100%,” sagði
Björn Jónsson forseti Al-
þýðusambandsins við
fréttamann DAGBLAÐSINS
i gær. Björn sagði að mið-
stjórnarfundur ASI yrði
haldinn i morgun. Sá fund-
ur tekur ákvörðun um
dagsetningu árlegs sam-
bandsstjórnarfundar og
kjaramálaráðstefnu. ,,Ein-
hver aðildarfélög eru þegar
farin að ákveða fundi,” sagði
Björn. „Samningum þarf að
segja upp fyrir 1. desember og
ég geri ráð fyrir að uppsagnir
verði hjá öllum félögum ASl.”
—BS-
FOSSARNIR
BJARGA
RÍKISSKIP
þegar Baldur strandaði
Þaö varð ekki mikið úr þvi að
Flóabáturinn Baldur tæki að sér
Vestmannaeyjaferðir fyrir
strandferðaskipið Herjólf sem fór
I slipp fyrir nokkrum dögum.
Baldur strandaði nefnilega á
Breiðafirðinum áður en til kast-
anna kom.
Ekki urðu alvarlegar skemmd-
ir á skipinu en samt nógar til að
það þarf að fara i slipp til við-
gerða. Skipaútgerð rikisins varð
þvi að fá aðstoð frá Eimskip.
Múlafoss kom við i Vestmanna-
eyjum siðasta þriðjudag og siðan
mun Múlafoss fara i mjólkur-
flutninga til Eyja á miðvikudag-
inn kemur. -AT-
Þar má spara
milljónir:
ER FYRINGIN RETT STILLT?
1 þjóðfélaginu er alltaf verið
að tala um að spara og aldrei
meir en á þessum siðustu og
vers tu timum. Þvi var það fyrir
tilstuðlan viðskiptaráðherra,
Ólafs Jóhannessonar, að nám-
skeið var haldið á vegum
viðskiptaráðuneytisins og
Sambands islenzkra sveitar-
félaga fyrir menn er læra vildu
stillingará oliukynditækjum. Ef
tækin eru rétt stillt og yfirfarin
r.eglulega getur það það nefni-
lega sparað um 10% hitunar-
kostnaðar að jafnaði.
Haldin voru fjögur námskeið
og sóttu þau alls 64 menn viðs-
vegar að af landinu. Skrifaði
Samband islenzkra sveitar-
félaga sveitarfélögum um allt
land og bauð þeim að senda
menn til námskeiðsins sem og
sum þeirra gerðu. En nú er hætt
við að ef mönnum þeim, er
námskeiðið sóttu, er ekki haldið
við efnið og þeim ekki útvegað-
ar nauðsynl. upplýsingar um
gerðir og smiði katla auk
pöntunarþjónustu fyrir vara-
hluti megi búast við að starfs-
kraftar þeirra nýtist ekki sem
skyldi.
Einnig mun nú bráðlega losna
mikið af kynditækjum i Hafnar-
firði og Kópav. Vafalaust er
þörf á öllum þessum tækjum úti
á landi þvf viða er oliukostnaður
svo hár sem raun ber vitni
vegna önógra og lélegra tækja. I
þeim tilgangi að stuðla að
nýtingu starfskrafta stillinga-
mannanna og upplýsingamiðlun
þeirra á milli hafa þeir er sóttu
námskeiðið stofnað með sér
félag, Félag eftirlitsmanna með
oliukyndingum. Er hugmynd
stofnendanna að félag þeirra
sjái félögunum fyrir hinni nauð-
synlegu upplýsinga- og
varahlutamiðlun. Hafa þeir i
Ívi skyni sótt um styrk til
oma á fót i Reykjavík aðstöðu
fyrir félagið þar sem hægt væri
að miðla þessu til hinna dreifðu
félaga um allt land. Mætti ef til
vill nefna þetta framtak vott um
byggðastefnu i framkvæmd þvi
kæmist aðstaða fyrir félagið á
legg mundi hún veita þeim er
búa i dreifbýlinu langmesta
þjónustu við miðlun þeirra
upplýsinga og varahluta sem
hægt er að útvega hér á höfuð-
borgarsvæðinu.
Námskeiðin sóttu sem fyrr
segir 64 menn og voru þeir úr
fjölda starfsgreina og á öllum
aldri. Ef eftirlit þessara
manna kemstá er einnig fólgið i
þvl mikið öryggi þvi hve oft
heyrum við ekki um bruna og I
lok fréttarinnar er bætt við
„álitið er að eldurinn hafi
kviknað út frá oliukyndingu”.
Með reglulegum athugunum
eftirlitsmanna hlýtur hættan á
viðskiptaráðuneytisins til að
ikveikju út frá oliuhitun að
minnka stórlega.
Æ-f. ,-Jr i' jp"' v :•?
Óskar Guðlaugsson formaður
Félags eftirlitsmanna meðoliu-
kyndingum.