Dagblaðið - 09.10.1975, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 09.10.1975, Blaðsíða 7
Pagblaðið. Fimmtudagur 9. október 1975 7 V ÓMAR VALDIMARSSOh j»*i Á ■■■). Erlendar fréttir REUTER Vopnaðir hermenn augliti til auglitis — í Oporto í nótt og morgun Chou Hsing látinn Dagblað alþýðunnar i Peking skýrði frá þvi i morgun, að Chou Hsing væri látinn. Hann tók þátt i byltingu Maos og var I göngunni miklu upp úr 1930. Chou Hsing átti sæti i miðstjórn kinverska kommúnistaflokksins. Að sögn Dagblaðs alþýðunnar lézt hann 3. þessa mánaðar, 70 ára gamail. A siðustu árum var hann aðstoðarráðherra almanna- varna. Uppreisnargjarnir hermenn og hersveitir stjórnarinnar stóðu aug- liti til auglitis i borginni Oporto i Norður- Portúgal i nótt. Báðir hóparnir voru vel vopnaðir og með bryn- varða bila. Til þessa atburðar dró eftir að komið hafði til óeirða tveggja hópa mótmælenda óbreyttra borgara. Að minnsta kosti 45 manns meiddust i átökunum. Sínaí-samkomulagið: FuHtrúadeHdin samþykkti 341:69 Fulltrúadeild banda- ríska þingsins samþykkti í nótt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða áætlun stjórnarinnar um að senda 200 bandaríska tæknimenn til eftirlitsstarfa í Sínaí- eyðimörkinni. 341 greiddi atkvæði með, 69 á móti. Áætlun þessi er f samræmi við samkomulag Egypta og ísraelsmanna um Sínaí. Öldungadeildin hefur hafið umræður um málið, en ekki er búizt við at- kvæðagreiðslu þar fyrr en seint í kvöld eða á morgun — áður en deildin fer í 10 daga leyfi. OECD-tölurí moraun: Upphaf óeirðanna var það, að þúsundir stuðningsmanna mið- f lokksins ( PPD ) mótmæltu er vinstri- sinnaðir hermenn tóku búðir stórskotaliðs i úthverfi borgarinnar. Efnahagsvandinn gœti orðið vinstrifíokkum til framdráttar — segir hershöfðingi úr stjórn Spínóla Portúgalski hershöfðinginn Galvao de Melo sagði i viðtali, sem birtist i franska ihaldsblað- inu Le Figaro i Paris i morgun, að Portúgal væri andspænis al- varlegum efnahagsvandræðum. Þessi vandræði gætu orðið öfga- sinnuðum vinstriflokkum til framdráttar, sagði hershöfðing- inn. De Melo er hægfara stjórn- málamaður. Hvatti hann Frakkland og önnur frjálslynd Evrópuriki til ,,að hjálpa okk- ur”. Hershöfðinginn sagðist ekki hafa barizt árum saman gegn einræðisstjórn fasista til þess eins að viðurkenna fall Portúgals undir einræðisstjórn kommúnista. De Melo átti sæti i fyrstu rikisstjórninni, sem komið var á fót eftir fall Caetano-stjórnar- innar i april i fyrra. Hann sagði öfgasinnaða vinstrimenn vera að berjast fyrir völdum i land- inu með ólýðræðislegum aðferð- um. „Kommúnistaflokkurinn hef- ur komið herskáum félögum sinum alls staðar,” sagði hers- höfðinginn, „og þá sérstaklega i f jölmiðlunum . Portúgölsk alþýða hefur spyrnt fótum við þessari óheiliaþróun.” De Melo er fulltrúi borgarinn- ar V'iseu — i norðurhluta lands- ins — á portúgalska stjórnar- skrárþinginu. Hann sagði að lokum i viðtalinu við Le Figaro: „Portúgalska þjóðin neitar al- gjörlega að fallast á kúgunar- stjórn af nokkru tagi. Við viljum að i Portúgal riki lýðræði sam- kvæmt evrópskri hefð og frjáls- lynt lýðveldi.” Hrópaði mannf jöldinn: ,,Fólkið i norðri vill vinnu, ekki strið!” og stormaði til búðanna. Áður höfðu miðflokks- menn lýst stuðningi við yfirmann búðanna, Antonio Pires Veloso, sem vinstrimenn vilja fá settan af. Er andmælendurnir héldu til baka inn i borgina, voru þeir grýttir og koma þá til áðurnefndra átaka. i ,, FRITIMA RUmlega fertug hóra i Omaha í Nebraska i Bandarikjunum sagði i út- varpsviðtali þar i gærkvöldi, að hún hefði staðið i kynferðis- sambandi við um það bil 60 lögreglumenn i borginni — og þar af suma á meðan þeir áttu að standa sina vakt. Yfirvöld skýrðu frá þvi skömmu siðar, að verið. væri að rannsaka málið. Lögreglu- stjórinn vildi ekkert segja fyrr en þeirri rannsókn væri lokið. Hóran sagði i viðtalinu. að hún hefði ákveðið að tala hreint út eftir að hún var dæmd fyrir vændi — og helztu vitnin voru fjórir lögreglu- þjónar. ^ ^ ^ ^ ^ ^ i Islenzk verðbólga fer vaxandi SKÁKMÓTIÐ í MANILA: Ljubojevic heldur forystunni minnkar verulega í öðrum Evrópulöndum Mjög dró úr verðbólgu i vest- rænum iðnaðarrikjum i ágúst. í nokkrum löndum varð meira að segja vart lækkunar á neyzlu- vörum. Kom þetta fram i hagtöl- um, sem Efnahags- og framfara- stofnun Evrópu (OECD) lét frá sér fara i Paris i morgun. Neyzluvörur hækkuðu i ágúst að meðaltali um 0,4% i hinum 24 aðildarlöndum OECD. í júli var hækkunin 0.8%. Verðbólgan i löndunum á árinu, sem lauk 31. ágúst, var að meðal- tali 11%. Fyrir árið sem lauk 31. ágúst 1974 var verðbólgan að meðaltali 13.2%. tsland á enn verðbólgumetið - og kemst þar enginn með tærnar hvar við höfum hælana. A tima- bilinu sept. '74—31. ágúst 1975 var islenzka verðbólgán 54.5% - en fyrir árið þar á undan var hún „aðeins” 42,9%. Næst kemur Bretland með 26.9% og þar á eftir Tyrkland með 21.1%. Júgóslavneski stórmeistarinn Ljubomir Ljubojevic heldur enn forystunni á alþjóðlega skák- mótinu i Manila á Filipseyjum. 1 gær gerði hann jafntefli við helzta keppinaut sinn, Sovét- manninn Lev Polugaévskl. Ljubojevic hefur ekki tapað neinni af sjö skákum sinum. Hann féllst á jafntefli við Polugaévski eftir 42 leiki. Þá hafði Rússinn riddara yfir. Rosendo Balinas frá Filips- eyjum þvingaði Lubomir Kava- lek frá Bandarikjunum til upp- gjafar eftir 40 leiki, Gruenfeld- vörn. Balinas hafði svart. Brasiliumaðurinn Mecking vann biðskák við Kavalek i sjöttu umferð og gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Mikola Kraklaic frá Júgóslaviu. Vestur-Þjóðverjinn Helmut Pfleger vann skák sina við Torre frá Filipseyjum, sem hafði svart, eftir 44 leiki, ensk byrjun. Attunda umferð verður tefld i dag og sitja þá Norðurlandabú- arnir Leif Ogaard og Bent Larsen hjá. Staðan eftir sjö um- ferðir er þessi: 1. Ljubojevic 5v. 2. Balinas 4 1/2v. 3. Polugaévski 4 v. 4. Mecking 4v. 5. Pfleger 3 1/2v. 6. Torre 2 1/2v. ALLSHERJARVtRKFALL I NIW YORK? Enn magnast erfiðleikar New York-borgar, sem þegar er á barmi gjaldþrots. Verkalýðs- leiðtogar i borginni — sem hafa um 300 þúsund verkamenn á bak við sig — sögðu i morgun, að þeir veltu nú fyrir sér möguléik- anum á almennri verkfallsboð- un vegna mikillar kjaraskerð- ingar. Kjaraskerðingin er til- komin vegna ráðstafana til að bjarga borginni. Ef af verkfall- inu verður, er það fyrsta alls- herjarverkfallið i sögu New York. Verkalýðsleiðtogarnir héldu i morgun fund með Abraham Beame, borgarstjóra, og voru augsýnilega öskureiðir að hon- um loknum. Beame hafði þá skýrt fyrir þeim áætlanir sinar um áframhaldandi launastöðv- un i þrjú ár, fækkun borgar- starfsmanna um 20 þúsund manns og verðstöðvun, án þess þó að verðbólga hafi verið til- takanlega mikil i New York. Aætlun borgarstjórans er ör- væntingarfull tilraun til að bjarga borginni frá efnahags- legu hruni áður en varasjóðir hennar eru þurrausnir i desem- ber.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.