Dagblaðið - 09.10.1975, Síða 4
4
*J
Oagblaftið. Fimmtudagur 9, október 1975
ÞJÓNUM VIÐ TÆKNINNI
EÐA HÚN OKKUR?
Gamla bió. Westworld
Bandarisk, gerð 1973, Panavisi-
on, Metrocolour.
Leikstjóri: Michael Crichton.
Martin og Blane (Richard
Benjamin og James Brolin)
fara til Westworld sem er ná-
kvæm eftirliking af villta vestr-
inu kringum 1880. Þessi borg
stendur inni i miðri Sahara á-
samt tveim öðrum borgum,
önnur með rómversku sniði og
hin með miðaldasniði. Þetta eru
orlofsskemmtistaðir framtiðar-
innar, eins konar Munaðarnes
eða Olfusborgir, bara miklu
tæknilegri þarsem þetta er reist
einhvern tima kringum alda-
mótin 2000. Þarna er hægt fyrir
þá, sem hafa efni á þvi, að lifa
upp alla sina dagdraumóra.
Gervimenn ganga um og eru
,,prógrammeraðir” til að þjóna
gestum bæði andlega og likam-
lega. En Adam er ekki lengi i
Paradfs þvi gervimenn geta
orðið veikir eins og þeir sem
stjórna þeim.
Michael Crichton er fæddur
1942. Hann útskrifaðist sem
læknir frá Harvardháskóla 1969.
Hann hefur skrifað nokkrar
bækur og eru tvær þær kunnustu
þegar orðnar að kvikmyndum.
Það eru The andrometa strain,
sem sýnd var i Laugarásbiói, og
The terminal man sem ekki hef-
ur verið sýnd hérennþá. Cricht-
on skrifaði handritið að báðum
þessum myndum en Westworld
er hins vegar fyrsta myndin
sem hann leikstýrir. Westworld
er ágætismynd. Miðað við að-
stæður er hún hreint furðulega
góð. Crichton varð að gera hana
hjá Metro þar sem ekkert annaö
framleiðslufyrirtæki vildi taka
hana að sér. Nú er þvi þannig
variö að margir leikstjórar hafa
kvartað sáran yfir þeirri Utreið
sem myndir þeirra hafa fengið
hjá Metro. Má þar t.d. nefna
Robert Altman, Blake Ed-
wards, Stanley Kubrick, Fred
Zinneman og Sam Peckinpah.
Þessir leikstjórar hafa allir
kvartað um ósanngjarnar
þvinganir, gjörræðislegar hand-
ritsbreytingar, ónóga eftir-
vinnslu (þ.e. klipping, hljóð-
setning) og snyrtilega endur-
klippingu á fullgerðum mynd-
um þeirra. En hvað um það,
þrátt fyrir borgarastyrjöld
meðal yfirmanna Metro fékkst
leyfi fyrir myndinni. En það var
ýmislegt sem Crichton og félag-
ar þurftu að kljást við. Það
fyrsta var fjármagnið. Áætlunin
fyrir myndina hljóðaði upp á
1250000 sem er anzi tæpt miðað
við þriggja timabila mynd með
mörgum leikmyndum úr hverju
timabili. Það sem næst kom upp
var timaáætlunin. 30 vinnudag-
ar er gróflega stuttur timi fyrir
mynd af þessari lengd. Þá var
það stUdióið sem var allt of litið.
Crichton þurfti að kljást við
vandamál númer 4 þar til 48
timum áður en tökur áttu að
hefjast. Þá fyrst fékk hann að
vita hverjir léku i myndinni.
Siðustu vandamálin voru ein-
göngu tæknilegs eðlis. NU er
myndin byggð upp á kringum-
stæðum (situations) sem eru
orðnar útnotaðar (cliché) i öðr-
um myndum. Þetta er áberandi
i öllum kranaskotum sem eru
gegnumgangandi i myndinni.
Myndavélin hreyfist upp og nið-
ur af engri annarri ástæðu en
þeirri að svona var þetta gert I
gömlum myndum. Annað er
notkun á ,,slow-motion” i skot-
senum myndarinnar. Þar sem
Kurosawa, Penn og Peckinpah
hafa notað og kannað þennan
effekt er hann orðinn að hefð.
Crichton fékk ekkert tækifæri til
að endurtaka atriði sökum
timaskorts, einnig varð hann að
miklu leyti að klippa i tökunni
sem kallað er. Það þýðir að það
er aldrei tekin sena fra einu
myndhorni og svo aftur frá
öðru, heldur er tekinn smábútur
frá einu horni og svo frá öðru
homi. Það þýðir að það er ekk-
ert að ráði hægt að velja um
möguleika i klippingu eftir að
töku myndarinnar er lokið. Ef
senan virkar ekki verður að
sleppa henni, nema hægt sé að
taka hana aftur, sem i þessu til-
felli var ekki hægt. Dave
Bretherton, sem fékk Óskars-
verölaun 1973 fyrir klippingu á
Cabaret, tók að sér klippinguna
og lauk henni á tveim mánuð-
um. Crichton hefur látið hafa
það eftir sér á prenti að hann
hafi bjargað myndinni frá þvi
að lenda I ruslakörfunni, sem’
hefði verið skaði þar sem þessi
mynd vekur ýmsar áleitnar
spurningar.
r S 7S
ÞORSTEINN igr
ÚLFAR
BJÖRNSSON VL'” Ft i
Plfc-.-/ ,
Kvik
myndir
Byssubófinn (Yul Brynner) dettur út um glugga eftir einvigi viö
Martin. Takiö eftir dýnunni á götunni.
DR. ÖRN HÆTTUR
Póstur og sími vill spara:
„Sparnaður sem veldur
tekjumissi og óhagrœði
fyrir viðskiptavini"
— segja símamenn ó landsfundi sínum
Dr. örn Erlendsson hefur látið
af störfum framkvæmdastjóra
Sölustofnunarlagmetisins. Vegna
mismundandi sjónarmiða, sem
upp hafa komið hjá dr. Erni
annars vegar og stjórn S.L. hins
vegar hefur nú orðið að sam-
komulagi, að dr. örn láti af
störfum með óskertum greiðslum
fullan uppsagnarfrest.
Vitað er um ágreining, sem
verið hefur i ýmsum greinum
milli hinnar siðastkjörnu stjórnar
S.L. og framkvæmdastjórans að
undanförnu. Þar sem ekki hefur
tekizt að setja niður þann
ágreining, hefur nú rekið að þvi,
að dr. örn Erlendsson lætur af
störfum. Hann hefur verið fram-
kvæmdastjóri þessarar stofnunar
frá upphafi.
Núverandi stjórnarformaður
S.L. er Lárus Jónsson, alþingis-
maður, og varaformaður, Heimir
Hannesson, lögfræðingur. -BS-
Skertur þjónustutimi
simstööva veldur bæði tekju-
missi Pósts og sima og óhag-
ræði fyrir viöskiptamenn,
segja simamenn i ályktun,
sem gerð var á landsfundin-
um, sem haldinn var á Húsa-
vik 2.-5 október sl.
Telja simamenn, að i þessu
tilliti sé farið alrangt að. í
ályktunum skipulagsmál er
þess krafizt að fullt samráö sé
haft við Félag islenskra sima-
manna um þær breytingar,
sem kunna aö veröa gerðar,
svo sem reglur kveða á um.
1 þvi sambandi er bent á, að
staða einstakra starfsmanna
og hópa i „skipulaginu sé
óviða svo óljós, að enginn viti i
raun og veru undir hvaða yfir-
menn þeir heyra. _bs —
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa. Upplýsingar á staðn-
um.
Sæla-Café.
^ Útvarp
14.30 Miðdegissagan: „Endur-
sögn” eftir Anders Bodelsen
Þýðandinn, Bodil Sahn
menntaskólakennari, les
fyrri hluta sögunnar.
15.00 Miödegistónleikar Ann
Griffiths leikur á hörpu
„Siciiiana” eftir Respighi/
Grandjany og Sónötu i Es-
dúr op. 34 eftir Dussek. Gér-
ard Souzay syngur þrjár
ariur úr óperum eftir Lully.
Enska kammersveitin leik-
ur með, Raymond Leppard
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Barnatimi: Agusta
Björnsdóttir stjórnar Sitt-
hvað af Suðurlandi.
17.30 Mannlif i mótun Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit
stjóri rekur endurminning-
ar sínar frá uppvaxtarárum
i Miðfirði (6).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 Gestur i útvarpssal:
EUsworth Snyder leikur á
pianó verk eftir Charles
Ives, Burt Levy og David
Ahlstrom.
20.00 Leikrit: „Astir og
árekstrar” eftir Kennett
Horne Þýðandi: Sverrir
Thoroddsen. Leikstjóri:
GIsli Halldórsson. Persónur
ogleikendur: Jill Peabody:
Anna Kristin Arngrimsdótt-
ir. Julian Peabody: Ævar
Kvaran. Stephen Clench:
Agúst Guðmundsson. Mark
Graham: Sigurður Skúla-
son. Phyllis Peabody: Soffia
Jakobsdóttir. Violet Wat-
kins: Briet Héðinsdóttir.
Læknirinn: Valur Gislason
21.50 „Medea”, forleikur eftir
Luigi Cherubini Kammer-
sveitin i Prag leikur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbruk" eftir Paul
Vad Þýðandinn Úlfur Hjör-
var, lýkur lestri sögunnar
(26).
22.35 Krossgötur Tónlistar-
þáttur I umsjá Jóhönnu
Birgisdóttur og Björns
Birgissonar.
23.25 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur
10. október
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Björg Arnadóttir les
söguna „Bessi” eftir
Dorothy Canfield i þýðingu
Silju Aðalsteinsdóttur (5).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Spjallað viö
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25. Morguntón-
leikar kl. 11.00: William
Bennett og Grumiaux-trióið
leika Flautukvartett i D-dúr
eftir Mozart/ Suk-trióið
leikur Trió i a-moll op. 50
fyrir fiðlu, selló og pianó
eftir Tsjaikovski.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
13.30 Setning Alþingisa. Guös-
þjónusta I Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Jónas Gisla-
son. Organleikari: Ragnar
Björnsson. Dómkórinn
syngur. b. Þingsetning.
Það gerist alltaf eitthvað
^ Viku. Yiðtal við Sigurbjörn Einarsson biskup — Vondur draumur um
Kryddfrœðsla — Babbl á Röðli og Sögu