Dagblaðið - 09.10.1975, Side 6
6
Pagblaðið. Finimtudagur 9, október 1975
Páfi líknar sjúkum
Tugir sjúkra i hjólastóium og á sjúkrabörum söfnuðust saman á
tröppum St. Péturskirkjunnar iRóm á sunnudaginn til að hiýða á
messu Páls páfa VI. Rúmlega 50 þús. manns hlýddu á messuna.
Páfi sjálfur smurði rúmlega 50 (af 200) sjúka með heilagri oliu til
að likna þeim. Vinstra megin er stytta Péturs postula.
Indverska stjórnin
lokar fyrir Reuter
vegna þessarar fréttar.
Indverska stjórnin
hefur látiö skera á telex-
og símalínur á rit-
stjórnarskrifstofum
Reuter-fréttastofunnar í
Nýju Delhi. Einnig hefur
verið skorið á línur
heimasima þriggja
fréttamanna Reuters.
Ástæðan er sú, að sögn
yfirmanns indversku rit-
skoðunarinnar, að frétt
frá Reuterá mánudaginn
(birtist i DAGBIj-AÐINU
á þriðjudag) um pynting-
ar pólitískra fanga í
Tihar-fangelsinu, brýtur
gróflega í bága við rit-
skoðunarlögin.
Indversk stjórnvöld
hafa ekki borið fréttina
til baka. Fréttamaður
ástralska útvarpsins er
einnig símalaus, að því er
virðist vegna sömu frétt-
ar, sömuleiðis rit-
stjórnarskrifstofa frétta-
stofunnar United Press
International. Aðrir fjöl-
miðlar eiga einnig i stríði
við indversku stjórnina.
Fréttin sem stöðvaði starfsemi
Reuters i Nýju Pelhi, eins og
hún birtist i' PAGBLADINU á
þriðjudaginn.
, Bandaríkin blinduð
af kvalalosta'
Áskrifendur athugið
Hlutafjárútboð Dagblaðsins
Mikilvægur þáttur þeirrar ætlunar að gef a út f rjálst, óháð dagblað er sá, að
eigendur þess séu starfsmenn blaðsins og lesendur þess.
Starfsmönnum buðust hlutabréf þegar í upphafi. Það boð þágu þeir strax
og iðrast þess ekki, því að augljóst er, að hver dagur, sem liðinn er frá því að
útkoma blaðsins hófst, hefur skilað góðri afkomu. Það er að vísu langt um-
fram allar vonir, en staðreynd samt sem áður.
Þúsundir íslendinga kaupa Dagblaðið í lausasölu á degi hverjum. Til þeirra
lesenda er þvi miður ekki unnt að ná. Nöf n þeirra eru hvergi til á skrá.
Hverjir áskrifendur Dagblaðsins eru, vitum við hins vegar. Og við treystum
því, að þeir vilji frjálst, óháð dagblað. Því kjósum við þá sem meðeigendur
okkar að rekstri blaðsins og bjóðum þeim nú hlutabréf.
Stærð hlutabréfanna er mjög í hóf stillt, til þess að sem f lestir áskrifendur
geti orðið hluthafar. Fyrir aðeins eitt þúsund krónur getur áskrifandi gerzt
hluthaf i í Dagblaðinu. Stærri hlutir bjóðast að sjálfsögu einnig. Skilyrði er, að
kaupandi sé áskrifandi að blaðinu.
Þetta boð stendur til 1. nóvember n.k. Hringið í síma 27022 (3 línur) og látið
skrá yður sem kaupanda að hlutabréf i eða fáið nánari upplýsingar, ef þörf er
á. Símaþjönustan verður opin f rá 9 til 22 hvern dag til 1. nóvember.
Vinsamlega afsakið það, ef illa gengur að ná sambandi. Skiptiborð Dag-
blaðsins er mjög áhlaðið. Auk venjulegs álags berst mikill f jöldi áskriftar-
pantana daglega og beiðnir um birtingu smáauglýsinga eru miklu f leiri en við
var búizt, svo sem blaðið ber með sér. Svo virðist sem Dagblaðið þjóni þar
stærri markaði en vitað var, að væri í landinu. Þar af leiðir, að hlutabréfa-
þjónustu verður aðeins. unnt að veita í
síma 27022
ÁSKRIFENDUR DAGBLAÐSINS
Gjöriðsvo vel. Síminn er 27022 (3 línur J.Opiðtil kl. 22 á kvöldin.
Virðingarfyllst
Dagblaðiðhf.
— segir Gaddafi og staðfestir
fréttir um byltingartilraun
Moammar Gaddafi, þjóðarleið-
togi Libýu, hefur sakað Banda-
rikin um að ögra landi sinu, að
sögn libýsku fréttastofunnar
ARNA.
Gadaafi bar fram ásökun sina i
ræðu, sem hann flutti i fyrra-
kvöld, er haldið var hátiðlegt að
FLUG-
SLYS
Sexmanns.þar á meðal 2ja
ára drengur, týndu lifi i flug-
slysi nærri Asuncion i noröur-
hluta Paraguay i gærkvöldi.
Vélin var i eigu þýzkra trú-
boða.
Voru þeir á leið frá trúboðs-
stöðinni i Capitan Bado, 580
km norður af höfuðborginni,
þegar eldingu laust i vélina.
fimm ár eru liðin siðan itölsk
völd, áhrif og eignir færðust i
hendur þjóðarinnar. Italir i Libýu
voru þá um 18.000.
Gaddafi likti Bandarikjunum
við ttaliu, sem hann sagði i upp-
hafi aldarinnar hafa verið „blind-
aða af valdi kvalalosta.”
Heldur kalt hefur verið á milli
Libýu og Bandarikjanna undan-
farin ár og hefur enn kólnað á
undanförnum dögum eftir að
stjórn Libýu hefur bannað banda-
riska oliufyrirtækinu Occidental
Oil að selja oliu sina út úr Libýu.
Þess i stað hefur stjórn Gaddafis
boðizt til að selja viðskiptavinum
Occidental hráoliu á sama verði.
Oliufélagið hefur brugðizt hart
við og hvatt viðskiptavini sina til
að þiggja ekki boð libýsku
stjórnarinnar.
1 áðurnefndri ræðu staðíesti
Gaddafi einnig fréttir egypskra
blaða i ágúst um að gerð hefði
verið tilraun til að velta honum úr
sessi. Voru þar að verki tveir
félagar bytlingarráðsins. ARNA
gat einnig um aðra byltingartil-
raun en greindi ekki nánar frá
henni.
PERON BOÐIÐ
LANGA FRÍIÐ
Stigandi alda ofbeldisverka i
Argentinu undanfarna daga,
sem kostað hefur 89 mannslif á
siðustu fjórum dögum, hefur ýtt
undir umtal þess efnis, að Maria
Estela Peron, forseti landsins,
eigi ekki afturkvæmt i forseta-
stól.
Oruggar heimildir Reuter-
fréttastofunnar segja bráða-
birgðaforseta landsins, Italo
Luder, og innanrikisráðherr-
ann, Angel Robledo, hafa farið
þess á leit við Peron, að hún
framlengdi leyfi sitt út þetta ár,
^vo að sterkari rikisstjórn gæti
glimt við vaxandi urhsvif
skæruliðahreyfinga.
Heimildir herma, að á skyndi-
fundi rikisstjórnarinnar á
mánudaginn hafi verið sam-
róma álit, að sterkari stjórnar
en þeirrar, sem Peron gæti veitt
forystu, væri þörf i Argentinu.