Dagblaðið - 27.10.1975, Blaðsíða 2
2
Oagblaðiö. Mánudagur 27. október 1975.
„Þú tapaðir skákinni góði
minn,” sagöi mótsstjórinn
Lombardy, þegar Timman
mætti til leiks þrem stundum of
seint. — PBmynd Bjarnleifur.
Timman mœtti of
seint, — missti
hann af lestinni?
Allt hór þarfnast umhirðu
rminal
Hollendingurinn Timman var
ekki mættur til leiks i 5. umferö,
þegar skákin hófst. Klukkan var
sett á stað, og þegar hún hafði
gengiö 1 klukkustund á Timrnan
úrskurðnð. mótsstjórinn,
Lombardy . að skákin væri töpuð
hjá Timn.an og unnin hjá
Guernsey-manninum Laine.
,,Það er ekki gaman að fá
svona vinning”, sagöi Laine,
„sérstaklega ekki, þegar haft er
i huga, að Timman er einn
þeirra, sem átti góða möguleika
á mótinu.” y
Stórmeistarinn Timman hafði
sézt fara frá Hótel Esju um kl.
13. Mótið byrjaði stundvislega
kl. 14. Menn settust aö töflum,
klukkur fóru i gang, en ekki
kom Timman.
Klukkan rúmlega 4 fréttist af
honum á hótelinu og fór Bragi
Kristjánsson, aðstoðarmóts-
stjóri upp á herbergi stórmeist-
arans. Var hann þá að búast til
keppni, sem hann taldi að ætti
að hefjast kl. 17. Reyndar er það
venjulegur keppnistimi, en á
sunnudögum er teflt frá kl. 14.
Timman tók orðnum hlut eins
og karlmenni og stórmeistari,
en Guernsey-maðurinn var ekk-
ert ánægður með svona ódýran
vinning. Sem sagt Timman —
Laine: 0-1.
Friðrik Ólafsson haföi hvitt á
móti Ribli, tefldu þeir Griinfeld-
vörn. Friörik tefldi stift til vinn-
ings, en Ribli þvingaöi fram
uppskipti og jafntefli blasti við
eftir 25 leiki: 1/2-1/2.
Hamann haföi hvitt á móti
Poutiainen. Þeir tefldu kóngs-
indverskt tafl. Skákin fór i biö
og var siðan tefld áfram i gær
kvöldi. Aftur fór hún i biö, en
erfitt er að sjá, hvernig
Poutiainen getur varizt Danan-
um, sem teflir af hörku til vinn-
ings. Skákin er ennþá i biðstöðu.
Zwaig hafði hvitt á móti Van
den Broeck. Þeir tefldu væng-
tafl eða Reti. 1-0 fyrir Norð-
manninn, sem er þannig efstur
á mótinu með 4 vinninga.
Liberzon hafði hvitt á móti
Birni Þorsteinssyni. Upp kom
spánskur leikur. Þetta var
hörkuskák, sem fór i bið. Liber-
zon tefldi mjög vel og þegar bið-
skákin var tefld, var útlitið
m kadus
er hárnæring, sem ekki á að skola úr hár-
inu.
Notið terminal Quick alltaf eftir hárþvott.
Það er svo auðvelt.
Stærðir: 20 ml og 85 ml.
Kristján .lóhannesson s/f simi 32399 Keykjavik
Sjónvarpskaupendur
athugið
Vorum að fá hin frábæru Ferguson
sjónvarpstæki. Engir lampar. Mjög gott
verð.
Fullkomin viðgerða- og varahluta-
hifSniKsta
Liberzon tekur þátt i endurskoðun þeirra Friðriks og Ribli á jafn-
teflisskákinni úr umferðinni i gær.
reyndar þegar orðið tvísýnt hjá
Birni. Enda fór svo, að Liberzon
sigraði.
Murray hafði hvitt á móti
Parma. Þeir tefdlu Nimso-ind-
verskt tafl, sem fór i bið eftir 40
leiki. Þegar biðskákir voru svo
tefldar i gærkvöldi var allt útlit
fyrir jafntefli, en hart barizt.
Þeir hafa hvor sinn hrók og
hnifjöfn peð. Þannig fór skákin
aftur i bið kl. 11.
Ostermayer hafi hvitt á móti
Jansa. Þeir tefldu Sikileyjar-
vörn Þegar skákin fór i bið, var
almennt spáð jafntefli. Reyndist
sú spá rétt: 1/2-1/2.
Eftir 5 umferöir er Norömaö-
urinn Zwaig efstur með 4 vinn-
inga, næstur er Liberzon meö
3 1/2 v., og siðan i 3.-4. sæti
Friðrik og Timman meö 3 vinn-
inga Hamann og Parma eru
meö 2 1/2 vinning og biðskák,
Jansa er með 2 1/2 vinning.
Ahorfendur voru margir i gær
og meðal þeirra þekktust Egill
Valgeirsson rakari, Reynir
Þórðarson knattspyrnu- og
verkamaður, Guðmundur J.
Guðmundsson Dagsbrún, Jó-
hann Friöriksson kaupmaður,
Einar Þorfinnsson, Páll
Hannesson verkfræðingur, Ingi
G. Ingimundarson, Róbert
Gestsson, Baldur Kristjánsson
skrifstofustjóri, Vilmundur
Gylfason, og meðal kunnra
fyrrverandi og núverandi skák-
manna Jón Þorsteinsson, Lárus
Johnsen, Ingvar Ásmundsson,
Benóný Benediktsson, Guð-
mundur Agústsson, og að sjálf-
sögðu Jón Pálsson, Bragi
Kristjánsson, Gunnar Gunnars-
son, svo einhverjir séu nefndir.
Hartston fékk mörg aukastig
á vinsældalistanum fyrir það,
að hann stóð eins og hetja i hlið-
arsal og útskýrði skákir fyrir á-
horfendum.
I dag eiga keppendur fri frá
skákinni, en njóta gestrisni
borgarstjórans, Birgis Isleifs
Gunnarssonar, i Höfða. I fyrra-
málið verða tefldar biðskákir,
en kl. 5 á morgun hefst svo al-
vara mótsins á ný með 6. um-
ferð.
Þá tefla þessir:
Ribli — Zwaig
Poutiainen — Friðrik
Hartston — Hamann
Van Den Broeck — Timman
Laine — Liberzon
Björn Þorsteinss. — Murray
Parma — Ostermayer
Jansa situr yfir þessa umferð.
Verð á tæki með 24” skermi kr. 71.325,-
Sjónvarpsmiðstöðin s.f.
Þórsgötu 15, Reykjavik. Simi 12880.
Club Mallorka á fundi vegna lesendabréfs:
„BRÉFIÐ ER MARKLEYSA EIN"
— telja að bréfritari hafi lýst því yfir að eyðileggja klúbbinn
Oðru hverju berast
dagblöðunum bréf frá
óánægðu fólki, sem hefur
brugðið sér utan og talið
sig vera svikið um þá
þjónustu, sem því hefur
verið lofað. Síðast á
fimmtudaginn birtl Dag-
blaðið eitt slíkt bréf á les-
endasíðu sinni, þar sem
maður nokkur lýsir von-
brigðum sínum vegna
vanefnda frá hendi Club
Mallorka.
Vegna þessa bréfs boðuöu
ferðafélagar mannsins blaða-
mann Dagblaðsins á sinn fund.
Þar lýstu þeir þvi yfir að bréfiö
væri markleysa ein, og aöbún-
aðurinn hafi hvorki verið betri
né verri en þeim hefði verið lof-
aö.
„Okkur þykir það hart, að
maður, sem var drukkinn allan
timann, sem ferðin stóð yfir, sé
að rægja félagið og bera upp á
þaö alls konar sakir, sem fá ekki
staðizt,” sagði einn af ferðafé-
lögunum, „en það var svo sem
ekki við öðru að búast. Maður-
inn lýsti þvi yfir á fyrsta degi
ferðarinnar, að hann ætlaði að
gera allt, sem hann gæti, til að
eyðileggja klúbbinn.”
I bréfi mannsins segir meðal
annars, að hann telji það skyldu
sina að vara fólk við óábyrgum
ævintýramönnum, sem ætli að
afla sér skjótfengins gróöa af
grandalausum ferðamönnum.
Vegna þessa vildu forráðamenn
Club Mallorka taka það fram að
félagið væri eign félaganna 800,
og þar væri kosin stjórn árlega.
Það væri þvi engum mögulegt
að stinga nokkrum sköpuðum
hlut undan, fyrir utan, að fjár-
hagur félagsins biði tæplega upp
á neitt slikt. Þessi skrif manns-
ins væru þvi aðeins ein mark-
leysan enn.
-AT-