Dagblaðið - 27.10.1975, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 27.10.1975, Blaðsíða 7
Pagblaðið. Mánudagur 27. október 1975. 7 ranco í dauðateygjunum Spánski þjóðarleiðtoginn Francisco Franco var í dauðateygjunum í morg- un. í Madrid voru á kreiki sögusagnir um að hann væri þegar látinn. Síðasta heilsufarsyfir- lýsing lækna Francos, sem út var gefin seint í gærkvöldi, sagði að heilsu hans hefði hrakað skyndilega og hefði gamli maðurinn nú einnig feng- ið magablæðingar. Fyrir var hjartað orðið mjög veikt og hjartsláttur óreglulegur. Fréttastofan Europa Press skýrði frá því í ,,E1 Ctaudillo” — leiðtoginn — ásamt Juan Carlos kveður þjóð sina i siðasta sinn fyrir nokkrum dögum. morgun, að hópur kvik- myndatöku- og tækni- manna spænska sjón- varpsins væri kominn til upplýsingamálaráðu- neytisins og er talið, að forsætisráðherrann, Carlos Arias Navarro, hafi í hyggju að ávarpa þjóðina jáegar eftir að hin aldni ,,Caudillo" (leið- togi) hef ur gef ið upp önd- ina. Fjöldi háttsettra gesta hef ur streymt til heimilis forsetans 7 km utan við Madrid. Þeirra á meðal voru forsætisráðherrann og Juan Carlos, prins, eftirmaður Francos. Annar gestur var Aljandro Rodriguez de Valcarcel, forseti þings- ins, sem einnig á sæti í þríeykisstjórninni, sem lýsa mun Júan Carlos konung Spánar. Víðsvegar um allt land liggur fólk á bæn og biður fyrir heilsu og lífi Francos. Spánverjar, sem fæddir eru eftir borgarastyrjöldina 1936- 39 þekkja ekki annan leið- toga. Meðal stjórnarandstöð- unnar biða menn átekta. Flestir leiðtogar andstöð- unnar hafa látið þau orð falla i einkasamtölum, að þeir muni bíða og sjá til hver fyrstu skref Carlos- ar kóngs verða áður en þeir koma fram úr skug* unum, sem Franco hefur neytt þá til að starfa í. Erlendar fréttir REUTER 17 konur tróðust til bana Sautján konur voru troðnar til dauða og sex slösuðust al- varlega i Madurai i Indlandi i gær, þegar hópur kvenna ruddist að til að fá fria ,,sari”-búninga (algildur klæðnaðurkvenna i Indlandi), að sögn lögreglunnar i borg- inni. Einn maður lét einnig lifið i kösinni, sem myndaðist eftir að hliðin að skólalóðinni höfðu verið opnuð. Sariunum var dreift ókeypis vegna ljóshátiðar Hindúa i næstu viku. Fjöldi mynda frá Venus Sovézkir visindamenn hafa fengið fjölda mynda af skýi þvi er umlykur plánetuna Venus frá geimstöðunum tveimur er lent er þar, segir i Tass-fréttum. 12000 km breið skýjamynd- un var ljósmynduð að með ljósmyndvélum geimstöðv- anna og myndirnar sendar til jarðar. Vegna hins háa hita á yfirborði plánetunnar sendu tækin þó ekki nema i innan við tvo tima. Visindamenn sögðu Tass- fréttastofunni, að plánetan væri umlukin kerfi öflugra hvirfilvinda, sem er sama nið- urstaða og ameriskir visinda- menn komust að, eftir för Mariner-geimstöðvarinnar árið 1973. Sahara-aanaan mikla 100.000 þegar mœttir til leiks — galvaskir Kurt Waldheim, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, er i dag á fundi með for- setum Máritaniu, Moktar Ould Daddah og Alsirs, Houari Bou- medienne, til að reyna að leysa deiluna um yfirráð spænsku Sahara. Waldheim fór i gærkvöldi frá Marrakesh, höfuðborg Mar- okkó, til Nouakchoot, höfuð- borgar Máritaniu, eftir að hann hafði rætt málin við Hassan, konung Marokkó, sem beitir sér fyrir göngu 350 þúsund lands- manna sinna inn i spænsku Sa- hara til að leggja áherzlu á landkröfur sinar. Þegar hafa rúmlega 100 þús- und manns safnazt saman i smábænum Tarfaya nærri landamærum Marokkó og spænsku Sahara. Þar eru ibúar fimm sinnum færri. 1 Marokkó sagði Waldheim ástandið mjög alvarlegt og myndi hann gera sitt til að reyna að leysa vandamálið hið fyrsta. Vopnaður Kóraninum og fána Marokkós heldur þessi sjálfboða- liði af stað í Sahara-gönguna ásamt hundruðum þúsunda landsmanna sinna. Dr. Herrema enn í haldi: Málið í sjálfheldu — eftir að rœningjarnir neita að fallast á tilmœli IRA um að láta Herrema lausan Skæruliðarnir tveir, sem halda hollenzka iðnjöfrinum dr. Tiede Herrema i gislingu i smábænum Monastervin i irska lýðveldinu, neituðu i morgun að taka til greina áskoranir frá fyrrverandi félögum sinum i írska lýðveldis- hernum (IRA) um að gefast upp. írska rikisstjórnin hefur einnig neitað að eiga frekari viðræður við skæruliðana. Þannig virðist málið komið i algjöra sjálfheldu. Skæruliðarnir tveir, Eddie Gall- agher, 28ára,ogMarion Coyle, 19 ára, eiga i höggi við hundruð lög- reglu- og hermanna. Það eina, sem gerzt hefur á undanförnum sólarhring, var i gærkvöldi, er nokkrir lögreglu- menn skriðu upp á þak hússins, sem Herrema er haldið i, og Skæruliðarnir Marion Coyle og Kddie Gallagher. losuðu nokkrar þakplötur. Talið er, að það hafi verið gert til að eiga auðveldara með að heyra samtöl skæruliðanna. Bæði Coyle og Gallagher eru fyrrum félagar i IRA. Rory O’Brady, leiðtogi Sinn Fein — stjórnmálahreyfingar IRA — hvatti þau i gær til að láta Herr- ema lausan, rán hans þjónaði engum tilgangi. Ekki er vitað hvort ræningjarnir hafa útvarp, en lögregiumenn á neðri hæð hússins eru sagðir hafa komið boðum O’Bradys áleiðis. Að sögn blaðamanna á staðnum hefur Hererema nú fengið kvef og hefur hann heyrzt hósta i gegnum hlustunartæki lögreglunnar. Lög- reglan hefur skýrt frá þvi, að hann virðist vera i betra andlegu jafnvægi en mannræningjarnir. Um helgina hentu þau Gall- agher og Coyle pokum og flöskum með saur og þvagi i lögreglu- mennina og eru þau sögð vera sifellt orðljótari og æstari. Mat hafa þau litinn fengið undanfarna viku. „Ór landi innan sólar- hrings!" Hópur öfgasinaðra hægri- manna á Spáni, sem gengur undir nafninu ..Dauðasveit- in”, hefur fyrirskipað 17 virt- um Katalóniumönnum að koma sér úr landi innan sólar- hrings frá dauða F’rancos eða mæta dauða sinum sjálfir. Að sögn áreiðanlegra heim- ilda eru 17-menningarnir fé- lagar i ólöglegum stjórnmála- flokkum kommúnista. sósial- ista og kristilegra demókrata. Að auki er um að ræða nokkra iðnjöfra og lögíræðinga. 1 hópi lögfræðinganna eru lögfræðingarnir. sém vörðu Baskann Juan Paredes Manot. er tekinn var af lifi á- samt fjórum öðrum skærulið- um 27. september.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.