Dagblaðið - 27.10.1975, Side 6

Dagblaðið - 27.10.1975, Side 6
6 Pagblaðið. Mánudagur 27. október 1975. Jack Ford, sonur Bandaríkja- forseta, segir Hvita húsið vera ágætan stað til að heimsækja við og við, en honum líkar bú- seta þar svo illa, að hann gæti fullt eins hugsað sér að verða einsetumaður. Jack (John G.) er næstelztur fjögurra barna Bandarikjafor- seta. Hann lét þessi orð falla i viðtali við blaðið Washington Post i gær. Hann sagði þar einn- ig, að sér væri orðið ljóst, að ýmsar gerðir sinar og orð gætu valdið umtali og jafnvel skaðað Hvita húsið. Hann nefndi sem dæmi þá yfirlýsingu sina, að hann hefði reykt marijuana, viðtal hans við popp-listarmanninn Andy War- hol og kvöldverður með tilheyr- andi myndatökum með Biöncu Jagger, eiginkonu Micks, söngvara Rolling Stones. Forsetasonurinn er ókvæntur og kvartar sáran yfir þvi, að geta ekki farið um að eigin vild. „Konnie (Keagan, fyrrv. fylkis- stjóri Kaliforniu), þú mátt hirða Kaliforniu,” segir Ford forseti á þessari teiknimynd úr Los Angeles Timcs. „HVÍTA HÚSIÐ CR ÓÞOLANDI" — segir Jack, sonur forsetans „Hvernig þætti þér að fara út á kenderi með tvo hálfsextuga leyniþjónustumenn i eftir- dragi?” spurði hann fréttamann blaðsins. ,,i siðasta mánuði fór ég i úti- legu i Minnesota ásamt vini minum. Þarna vorum við bara tveir i óbyggðunum, nema hvað að ég vissi af átta leyniþjón- ustumönnum hinum megin við ásinn með fjarskiptatækin i beinu sambandi við Washing- ton. Þeir hafa i rauninni ekki á- hyggjur af þvi hvort ég verð drepinn eða ekki. Þetta er vegna sálarheillar forsetans.” Ford hinn ungi sagði að morð- tilræðin, sem föður sinum hefðu verið sýnd i Kaliforniu nýlega, yllu sjálfum sér „miklu meiri á- hyggjum en honum. Ég reikna alls ekki með að láta sjá mig þar meira.” Blaðamaður Washington Post segirfrá þvi i viðtalsgrein sinni, að Jack hefði litið út um glugg- ann á herberginu sinu á veit- ingastofu á þaki hótels i grennd inni 9g sagt: „Næst þegar þú ert þarna, veifaðu mér þá. Stund- um verður hálf-einmanalegt hérna.” Jack býr i Hvita húsinu ásamt foreldrum sinum og systur, Sus- an. Samsœti Undirritaðir aðilar hafa ákveðið að efna til samsætis í tilefni af sjögutsafmæli Ragnars Guðleifssonar mánudaginn 27. okt. (í kvöld). Samsætið verður í Félagsheimilinu Stapa og hefst kl. 20.30. öllum vinum og velunnurum hans er boðin þátttaka. Upplýsingar í síma 92- 2085. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur Bæjarstjórn Keflavíkur Kaupfélag Suðurnesja UTBOÐ Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboð- um i 145.000 m af álblönduvir fyrir 220 kV háspennulinu milli Geitháls og Grundar- tanga. útboðsgögn verða seld á skrifstofu Lands- virkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykja- vik, frá og með mánudeginum 20. október 1975 og kostar hvert eintak kr. 2.000.—. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 14.00 föstudaginn 5. desember 1975. Reykjavik, 20. október 1975 LANDSVIRKJUN SKARNI Er lífrœnn, jarðvegs bœtondi óburður og hentar vel við rœktun hvers konar gróðurs. SKARNI er afgreiddur alla daga frá stöðinni — Sími 3 40 72. Sorpeyðingarstöð Reykjavíkurborgar Ártúnshöfða Patty Hearst hreinsuð af morðákœrum Patricia Hearst og félagar hennar i Symbiónesiska frelsis- hernum (SLA) hafa verið hreins- uð af áburði um hlutdeild i þrem- ur morðum, sem framin voru i Kaliforniu, að sögn San Francisco-lögreglunnar. Rannsóknir á skotvopnunum, sem fundust i felustað þeirra i borginni, leiddu ekkert i ljós, sem gat flækt þremenningunum i morðmálin, að sögn lögreglu. Nokkur tonn sönnunargagna — þar á meðal skotvopn, sprengiefni, fatnaður og ýmis pappirsgögn — voru send til aðal- stöðva alrikislögreglunnar FBI i Washington til rannsóknar eftir að Patricia Hearst var handtekin 18. september. Þessi sönnunargögn voru tekin úr ibúðunum, sem Patty hafði dvalizt i og þeirri, sem William og Emily Harris höfðu verið i. Rétt- arhöld i máli þeirra hefjast i næsta mánuði. Morðin þrjú, sem um er að ræða, eru morð á lögreglumanni i Los Angeles, lögreglustjóranum i nágrannabænum Union City og morðið á fangelsisáhuga- og and- ófsmanninum Popeye Jackson. Samninaaviðrœðum um Panama-skurðinn lokið USA VARÐ OFAN Á — halda skurðinum til aldamóta Panama hefur fallizt á, að stjórn Panama-skurðarins verði á vegum Bandarikjastjórnar allt til aldamóta, að sögn forseta landsins, Omars Torrijos. For- setinn skýrði frá þessu að aflok- inni tveggja daga heimsókn til Bólivi'u. Akvörðun þessi var tekin eftir harðar og strangar samningavið- ræður Panama-stjórnar og Bandarikjastjórnar. Þýðir þetta að sjónarmið USA hafa orðið ofan á i þeim viðræðum. Torrijos skýrði einnig frá þvi, að samkvæmt samkomulaginu myndu llaf 14herstöðvumásvæð- inu meðfram skurðinum verða lagðar niður á næstu 24 árum. „Innan þriggja ára verður póst- og lögreglustjórnin i okkar hönd- um,” sagði forsetinn, „og smám saman mun þjóðvarðlið Panama taka við gæzlu allra mannvirkja við skurðinn.” Þessi mynd er rétt til að verma gömul hjörtu I haustnepjunni, sem er að gera sig heimakomna. Vicky Baker býr á Flórida, þar er enn langt i vetur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.