Dagblaðið - 27.10.1975, Page 8

Dagblaðið - 27.10.1975, Page 8
8 Oagblaðið. Mánudagur 27. október 1975. BIAÐIÐ frfálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason tþróttir:' Hallur Simonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir Ilallur Hallsson, Helgi Pétursson, ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Asgrlmur Pálsson, Hildur Gunniaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur BjárnleifsSon, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Eiriksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. t lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- greiðsla Þverhoiti 2, simi 27022. Róm er að brenna Upplausnin i þjóðfélaginu magnast viku eftir viku. Okkur berast i sifellu nýjar og nýjar upplýsingar um, að Róm sé að brenna. Jafnframt fjölgar stöðugt þrýstihópunum, sem skera upp herör til að ná sem mestu her- fangi úr rústum efnahagslifsins. Um daginn fengum við að vita, að þorskurinn færi þverrandi á íslandsmiðum vegna gifurlegrar of- veiði og að fiskútgerðina yrði að draga saman til að bjarga fiskistofnunum. Núna fyrir helgina fengum við að vita, að þjóðar- tekjurnar muni á þessu ári rýrna um 9% eða meira en nokkru sinni siðan þjóðin fékk sjálfsforræði og að ekki eru horfur á bata að sinni. Við vissum áður, að lifskjörin hafa stórversnað og að flestar mikilvægustu atvinnugreinarnar hanga á nástrái. Við vissum áður, að gjaldeyrisvarasjóður- inn var búinn að vera og að lánamöguleikar erlendis hafa rýrnað að marki. Við erum alltaf að fá nýjar og nýjar staðfestingar á, að Róm er að brenna. Rikisstjórnin steig hálft skref til úrbóta, er hún lagði fram fjárlagafrumvarp með verulegum niðurskurði á ýmsum sviðum. En hún steig ekki skrefið til fulls, þvi að frumvarpið gerir ráð fyrir 20% aukningu rikisútgjalda á næsta ári. Og svo eiga þingmennirnir eftir að hlaða á frumvarpið margvis legri og kostnaðarsamri óskhyggju sinni. Þeir eru mjög fáir, sem hlusta á aðvörunarorð rikisstjórnarinnar, enda hefur hún ekki gengið á undan með nægilega góðu fordæmi. Hún þorir ekki að hverfa frá smáskammtalækningunum yfir i hreinan uppskurð, sem einn getur snúið við hinu ömurlega efnahagsdæmi. í auraleysi rikisins voru námsmenn skornir niður. Þeir risu upp á afturfæturna og höfðu raunar gild rök til sins máls. Allar horfur eru á, að rikið gefist upp fyrir þeim og lofi fullum leiðréttingum, þótt það hafi engin efni á sliku. Opinberir starfsmenn láta ófriðlega og heimta verkfallsrétt. Þeir hóta að beita ólöglegum verk föllum til að knýja hann fram. Þeir eru sjálfsagt orðnir langþreyttir á lélegum lifskjörum og kunna að fá sitt fram. En vonandi kemur þá ekki i ljós, að skattgreiðendur telji þá bezt geymda i verkfalli. Sjómenn hafa siglt i land, sáróánægðir með lágt fiskverð og sjóðagreiðslur framhjá hlutaskiptum. Klögumál þeirra eiga mikinn rétt á sér eins og margra annarra. Gallinn er sá, að sjálfir fulltrúar sjómanna bera með öðrum ábyrgð á þvi fiskverði, sem nýlega var sett, þannig að raunar hefði það staðið sjómönnum nær að koma á betra sambandi milli sin og fulltrúa sinna. En flotinn er i höfn og menn æpa hver á annan. Enginn fyrirfinnst gullasninn, er geti leyst hina botnlausu fjárþörf á þessu sviði fremur en öðrum. Skattgreiðendur verða svo ekki flegnir fremur en orðið er, þegar Róm er brunnin. Sadat vill vinna hug Sadat Egyptalandsforseti kom til Bandarikjanna i gær i opinbera heimsókn. Tilgangur heimsókn- arinnar er að vinna hug og hjörtu bandarisku þjóðarinnar — og að fara heim með samning um efna- hags- og hernaðaraðstoð Banda- rikjanna. Heimsókn Sadats er fyrsta heimsókn Egyptalandsforseta til rikis, sem gerði það að verkum, að Israel tókst að sigra Egypta- land i þremur styrjöldum og ná yfirráðum yfir stórum landsvæð- um, nefnilega Sinai-eyðimörk- inni. Fyrir tveimur árum siðan — eftir fjórða strið Egyptalands og tsraels, i hverju bæði rikin fögn- uöu sigri — hefði heimsókn sem þessi verið óhugsandi. í Egyptalandi voru Banda- rikjamenn taldir helztu óvinir egypzku þjóðarinnar að Israels- mönnum undanskildum. I Banda- rikjunum, þar sem Gyðingar eru fleiri en i sjálfu Israelsriki og opinber stuðningur við ísrael verulegur — var litið á Egypta- land sem árásaröflin, er stefndu að eyðileggingu Israelsrikis. Hugur og hjörtu i fyrir- rúmi. Eftir að sáttaumleitanir Kiss- ingers, utanrikisráðherra Banda- rlkjanna, leiddu til samkomulags ísraels og Egyptalands um Sinai, fóru Egyptar að gera sér vonir um að hlutdrægni Bandarikjanna i garð ísraels gæti á endanum lokiö. Samt sem áður eru Egyptar enn þeirrar skoðunar, að almenn- ingsálitið i Bandarikjunum sé hliðhollt ísrael og að sjónar- miöum Egypta og Araba sé ekki nægilegur gaumur gefinn. embættismaður egypzku stjórn- arinnar hefur bent á, að ,,al- menningsálitið i Bandarikjunum hafi skipt verulegu máli i þeirri breytingu, sem varð á Vietnam- stefnu bandarisku stjórnar- innar.” Meining hans er augljós: aukin samúð almennings i USA myndi gera þinginu mun auðveldara að samþykkja þá aðstoð, sem Egyptaland hefur þörf fyrir eftir að stjórnin i Kairo dregur úr vin- skap sinum við stjórn Sovét- rlkjanna. „Helzti tilgangur farar Sadats til Bandarikjannaer að vinna hug og hjörtu bandarisks almenn- ings,” segir háttsettur embættis- maður stjórnarinnar i Kairo. „Efnahags- og hernaðaraðstoð er einnig mikilvæg, en hún skiptir minna máli. Við getum leyst það vandamál án þess að forsetinn færi til Washington.” Egypzka efnahagslifið i rústum Samt fer ekki á milli mála, að þessi tvö markmið eru mjög tengd. Annar háttsettur Stjórn Sadats gerir sér einnig grein fyrir þvi, að þarfir landsins eru svo geigvænlegar, að blátt áfram óskir um aðstoð gætu virk- að þveröfugt. Þvi er talið öruggt, að Sadat forseti muni leggja mikla áherzlu á röksemdafærslu, sem erfitt verður fyrir Washing- ton að neita : Undirritun Egypta á Sinai-samkomulaginu hefur dregið mjög úr likum á öðru oliu- afgreiðslubanni eða öðru striði HÆVERSKUR HÆFILEIKI um minningarsýningu Drífu Viðar í Bogasal Þjóðminjasafnsins Nú er á siðasta snúning minn- ingarsýning um Drifu heitina Viðar i Bogasal Þjóðminjasafnsins, en hún lést .eftir siðustu sýningu sina 1971. Að sýningunni standa börn, móðir og systir listakonunnar en Þorvaldur Skúlason sá um val á myndum og uppsetningu þeirra og eru þær alls 38. Handleiðsla Hofmanns Ekki veit ég hversu stórvirk Drifa Viðar var og ekki hef ég séð margar myndir hennar áður, og bætir þessi sýning aliavega úr þvi siðara hvað mig snertir. En þótt hér sé gott úrval mynda hennar þá er erfitt að gera sér grein fyrir þró- un hennar sem listmálara, þvi ekk- ert verka sinna virðist Drifa hafa timasett og hefðu upplýsingar i sýningarskrá verið vel þegnar. En eftir þvi sem ég kemst næst mun hún hafa numið i New York, undir handleiðslu Légers, einhverntima milli 1945 og 1950. Benda myndir hennar nr. 8—13 til sterkra áhrifa frá Léger: samband flatra og þri- viðra forma sem raðað er saman á • afstrakt hátt. En dekoratif til- hneiging Drifu verður ávallt yfir- sterkari þeirri áherslu sem Léger, sem myndlistarmaður og kennari, lagði á rökræna uppbyggingu mynda. Myndir Drifu verða þvi varla meira en forvitnilegur þáttur ihennareigin þróunarsögu, fremur en sjálfstætt listrænt framlag. Eftir 1950 nemur Drifa hjá Hans Hofmann, guðföður ameriskra afstrakt-expressjónista og virðist það verða til þess að hún hreinsar til á litspjaldi sinu og tekur til við að athuga strúktúr mynda á mark- vissari hátt en áður, — en strúktúr var einmitt stór hluti af kennslu Hofmanns. En hjá þeim ágæta kennara hafði önnur listakona, Nina Tryggvadóttir, numið um skeið eftir 1943. Kennsla Hofmanns virðist hafa haft svipuð áhrif á Drifu eins og hún gerði á Ninu, en munurinn var sá að Nina var mun sterkari persónuleiki og náði að nýta kennslu Hofmanns betur. I nyndum nr. 14—20 vinnur Drifa i dökkum litum þar sem fyrirsætur eru málaðar i sterkum, þéttum blökkum og þótt sumar myndir hennar af þvi tagi, t.d. „Maður” (nr. 16) og „Fyrírsætan” (nr. 20) séu athyglisverðar( og vel þess virði að Listasafnið eignaðist þær), þá falla þær i skuggann fyrir myndum Ninu vegna þess hversu itarlega hún kannar alla möguleika mynda af þessu tagi. Drifu eru nr. 24-28, svo afstrakt- og hér neyð- myndir myndir umst við aítur til að höfða til Ninu Eins og hún vinnur Drifa með óreglulegar litblakkir, oft með spaða, en nær aldrei að samræma þessi vinnubrögð sin heilsteyptri myndrænni hugsun, i einhvern fastan strúktúr, heldur lætur and- stæður dekoratifra lita ráða ferð- inni. Eru þessar myndir þvi heldur veikar sem heild, þótt einstaka sinnum bregði fyrir djarlegri sam- setningu lita. I siðustu mynd sýn- ingarinnar, „Haustlitir” nr. 38, virðist hún vera á leið á aðrar slóðir, en náði aldrei að þróa þessi nýju vinnubrögð sin. Frjálsari vinnubrögð Siðan virðist Drifa fara aftur yfir i sterkari liti og frjálsari vinnu- brögð, eins og t.d. i „Ruggustóll” sem sýnir allnokkurt hugarflug sem er þó ekki fylgt á eftir. Siðustu Tímaskekkjan við Þegar ég kom fyrst vestur um haf vorið 1953 lá mikið farg á bandarisku þjóðinni: „nornaveið- ar” Josephs MacCarthys voru i algleymingi og margir stundu þungan, einkanlega þó háskóla- menn 'og starfsmenn fjölmiðla sem varla þorðu sig að hræra fyrir þessum hálfgeggjaða kommúnistahatara, sem bókstaf- lega sveifst einskis til að hlaða undir sig og skósveina sina. Þau voru ófá mannslifin sem þessi of- stækismaður og sporhundar hans höfðu á samviskunni, og ýmsa uggði að honum mundi lánast að hrifsa til sin öll völd i þjóðfélag- inu. Ég hafði ekki dvalist nema ■ rúmt ár vestra þegar vald þessa skelfilega manns hafði verið brot- ið á bak aftur: það gerðu hvorki réttkjörin yfirvöld né starfsmenn fjölmiðla, heldur aldurhniginn og rólyndur lögfræðingur sem tók að sér að verja herinn gegn ásökun- um ofstækismannsins. Það voru æsilegar vikur þegar nálega öll þjóöin fylgdist dag eftir dag með réttarrannsókninni á sjónvarps- skerminum, og menn stóðu næst- um á öndinni meðan spilaborg svikahrappsins hrundi til grunna og hann var afhjúpaður sem sál- sjúkur og samviskulaus mann- orðsmorðingi. Þvi rifja ég þetta upp hér, að mér er i minni hvernig ég kom heim aftur fjórum sumrum eftir vesturförina með þá bláeygu von, að islendingar hefðu eitthvað lært af þeim gerningum sem áttu sér stað vestan hafs. Við vorum vist margir sem ólum slika von i brjósti. Við héldum semsé að æði kalda striðsins einsog það birtist i liki MacCarthys og hans nóta mundi smámsaman renna af mönnum eftir að spámaðurinn var fallinn. En þvi var ekki að heilsa. Það sannaðist enn einu- sinni að islendingar eru ævinlega tveimur til þremur áratugum á eftir öðrum þjóðum að átta sig á þvi sem gerst hefur i heiminum og draga lærdóma af fenginni reynslu sjálfra sin og annarra. Kannski stafar þetta ótrúlega seinlæti eða andlega slen að ein- hverju leyti af einangrun eybúa, en hitt er jafnvist að i landinu eru áhrifamikil öfl sem verja til þess miklum fjármunum og fyrirhöfn að koma i veg fyrir hverskonar framþróun eða breytingar á rikjandi hugmyndum og hugar- fóstrum. Ég hóf að starfa á Morgunblað- inu fljótlega eftir heimkomuna og komst áður en varði að raun um, að hér tiðkuðust önnur vinnu- brögð i blaðamennsku en al- gengust voru vestan hafs. Hér varð að þegja þunnu hljóði um ýmsa fréttnæma atburði i þjóðlif- inu, af þvi þeir höfðu „rangan lit”. Það mátti til dæmis ekki segja frá samkomum eða öðru

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.