Dagblaðið - 27.10.1975, Page 13

Dagblaðið - 27.10.1975, Page 13
mig betur settan i Viking. Þeir spila hraðan og góðan hand- knattleik og ég vona að ég fái notið min þar. Ég flyt til Reykjavikur um áramótin og sennilega spila ég mina fyrstu leiki með minum nýju félögum á móti Gróttu og FH.” Já, það verður gaman að sjá Björgvin aftur, hann er alltof dýrmætur fyrir islenzkan hand- knattleik til þess að daga uppi austur á Egilsstöðum. „Auðvitað var erfitt að yfir- gefa mina gömlu félaga i Fram en sannleikurinn er sá, að Fram er ekki nema svipur hjá sjón. Þar er enginn til að mata mann á linu, og þetta yrði tómt hnoð. Ég hef nú verið frá handknatt- leik i eitt ár og i raun byrjar maður upp á' nýtt, þvi eins gott-að skipta um, fara til liðs sem spilar skemmtilegan hand- knattleik. Svo vona ég bara, að komast sem fyrst i góða þjálfun og auð- vitað vonast ég til að komast i landsliðið.” Það þarf ekki að efa að Björgvin setur aftur skemmtilegan svip á fslands- mótið, slikur handknattleiks- maður sem hann er. h.halls Björgvin Björgvins- son, handknattleiks- maöurinn snjalli, hefur gengið yfir i Viking. Ekki er að efa að hann mun styrkja liðið mik- ið, það væri annað hvort, bezti linumaður á íslandi. Um áraraðir hefur hann verið ein af máttarstoðum Fram. Hver man ekki frábæra sam- vinnu hans og félaga hans Axels Axelssonar, bæði meö Fram og landsliðinu. Þeir hafa oft glatt hjörtu islenzkra handknatt- leiksunnenda. En nú er Fram aðeins skugginn af sjálfu sér, enginn til að mata Björgvin og þvi hefurhann gengið yfir i rað- ir fslandsmeistaranna, sem nú hafa á að skipa einu skemmti- legasta liði i islenzkum hand- bolta. „Ástæðan að ég geng yfir i Víking er sú, að þeir hafa á að skipa geysilega skemmtilegu liði,” sagði Björgvin i samtali við Dagblaðið f morgun. „Ég tel Björgvin Björgvinsson hefur nú gengið yfir i Viking. Þessa mynd tók Bjarnleifur þegar Björgvin lék með landsiiðinu á móti Póiverj- um. Tilburðir þeir, sem Björgvin sýnir þarna eru ekki á færi hvers sem er. Pagblaðið. Mánudagur 27. október 1975. Dagblaðið. Mánudagur 27. október 1975. íþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Staðan í 1. deild Úrslit leikja um helgina: Fram — Þróttur 12-12 Valur — Haukar 13-13 2. deild KA — ÍR 19-21 Þór — 1R 15-22 KR —Leiknir 29-16 Staöan i 1. deild. Valur 3 2 1 0 57-39 5 Haukar 3 2 1 0 53-43 5 Fram 3 1 2 0 40-36 4 FH 2 10 1 41-36 2 Vikingur 2 1 0 1 39-36 2 Þróttur 2 0 1 1 22-32 1 Armann 2 0 1 1 26-37 1 Grótta 3 0 0 3 46-65 0 Markhæstu leikmenn: Hörður Sigmarsson, Haukum 22/4 Pálmi Pálmason, Fram 13/1 Páll Björgvinsson, Víkingi 11/4 Biörn Pétursson, Gróttu 10/5 Stefán Gunnarsson, Val 10/1 Viðar Simonarson, FH 10/4 Næstu leikir verða á miðvikudaginn i Laugardalshöllinni. Þá leika fyrst Þróttur — Ármann og siðan Vikingur — FH. Fyrri leik- urinn hefst kl. 20.15. Bandaríkin hlutu 114 gullverðlaun Amerikuleikjunum i Mexikó-borg lauk i gær. Bandarikin voru sigursælust i kcppninni að venju — hlutu 114 gullverðlaun. Kúba kom i öðru sæti með 58 gullverðlaun og er það mikil framför frá leikjunum i Cali 1971, þegar iþróttafólk Irá Kúbu hlaut 30 gullverðlaun. i Mexikó nú varð Kanada með 18 gullverðlaun i þriðja sæti. Siðan komu Mexikó og Brazilia. Bandariska sundfólkið var afar sigursælt i keppninni — hlaut gullverðlaun i 27 greinum af 29 og mótsmet voru sett i 23 greinum. i hnefaleikum hlutu Kúbumenn sjö gullverð- laun i 11 þyngdarflokkum. Alls tóku 3850 iþróttaincnn og konur þátt i leiknum að þessu sinni og er það metþátttaka. Nærri helming- ur þeirra var farinn heim áöur en að loka- athöfninni kom i gær. Langmesta afrekið i kcppninni vann Braziliumaðurinn Oliveira — stökk 17.89 m í þristökki, sem er nýtt heims- met. Jafntefli hjó Standard Liege — en Charleroi tapaði í Belgíu Tólfta umferðin i belgisku 1. deildinni i knattspyrnu var leikin i gær. Standard Liege — liðið, sem Asgeir Sigurvinsson leikur með lék þá i Ostende og varö jafntefii 1—1. Ásgeir skoraði ekki i leiknum. Charleroi, lið- ið, sem Guðgeir lcikur með, lék viö citt bezta lið Belgiu á útivelli og tapaði með litlum mun 2—1. Guögeir skoraði ekki I leiknum. Annars urðu úrslit þessi. Louvierc—Beerschot.............0-0 Anderlccht—Charleroi...........2-1 Malines-Autwerpen............ 1-0 Ostende—Standard...............1-1 Lierse—Molenbeck ..............0-0 Beveren—Malinois...............1-0 Bruggc—Beringen............... 0-0 Waregem—Brugeois .............,0-3 Bcrchem—Lokeren................1-1 Lokeren er nú i efsta sæti mcð 16 stig — en óvænt var stórtap cfsta liðsins fyrir umferð- ina Waregem á heimavelli fyrir liði neðar- lega á töflunni. Liöið hefur 15 stig eins og Molenbeek og Antwerpen. Standard hefur 13 stig og Charleroi sjö stig. Þrjú Islandsmet í kraftlyftingum Skúli óskarsson, sterki Austfirðingurinn, setti þrjú ný islandsmct í léttþungavigt i kraftlyftingum á laugardag. i hnébeygju- lyftu náði hann 245 kg, og lyfti 290 kg i rétt- stöðu. Ilvort tveggja islandsmet og einnig setti hann met samtals — lyfti 665 kilóum. llún var ekki stór smugan sem Elias Jónasson fékk en nægði þó. Þarna hefur hann komið boltanum fram hjá Jóhannesi Stefánssyniog JóniP. Jónssyni. Stefán og Steindór horfa ör- væntingarfullur á eftir boltanum i netið, aðeins nokkrum sekúndum fyrir leikslok og jafntefli varð staðreynd, 13—13. Ógnunin í leik Vals hvarf og um leið glataðist stig ,,Það er greinilegt að sigrar Hauka gegn Vik- ing og FH voru engin til- viljun,” sagði áhorfandi eftir að Haukar höfðu unnið upp fjögurra marka forskot Vals og náð að jafna á siðustu sekúndum leiks Vals- manna og Hauka i íslandsmótinu i gær- kvöldi. Gott skot Eliasar Jónassonar hafnaði i markinu og um leið eitt dýrmætt stig i sarp Hauka. Já, Valsmenn virtust hafa leik- inn i hendi sér. Fimmtán minútur voru eftir, staðan 13—9 og Vals- menn höfðu verið sterkari allan leikinn en allt getur gerzt i hand- bolta. Það sannaðist rétt einu sinni i gærkvöldi. Ef við annars litum á Ieikinn skoruðu Haukar tvö fyrstu mörk- in, Elias, en Valsmenn sigu fram úr og staðan i hálfleik var 8—6 Valsmönnum i vil. Nýliðinn þeirra Vaismanna, Gunnar Björnsson, hafði þá verið drjúg- ur, skorað 3 góð mörk, og verið mjög ógnandi. Afram hélt bilið að breikka i siðari hálfleik og þegar 15 minút- ur voru eftir var munurinn orðinn 4 mörk og Jón Karlsson hafði skorað á stuttum tima 3 mörk. Valsmenn höfðu fram að þeim tima spilað hraðan og skemmti- legan handbolta, verið ógnandi og brestir voru farnir að koma fram i leik Hauka, sem þarna höfðu mætt ofjörlum sinum eða svo hélt maður að minnsta kosti. En einhvern veginn hvarf allur broddur úr sókn Vals, eins og boltinn ætti bara aö ganga manna á milli fyrir utan án nokkurrar ógnunar. Haukarnir gengu á lag- ið, Hörður, Ingimar og Hörður aftur skoruðu fyrir Hauka og staðan skyndilega orðin 13—12 og allt gat skeð. Þegar aðeins þrjár minútur voru eftir fengu Vals- menn viti og um leið tækifæri til að gulltryggja sigurinn. Gunnar Björnsson tók vitið, skaut himin- hátt yfir — reynsluleysi varð hon- um að falli hann gerði afdrifarik mistök i lokin, fékk dæmdan á sig ruðning og missti boltann út af þegar 50 sekúndur voru eftir og það nægði Haukum, hörkuskot Eliasar tryggði Haukum stig, já, dýrmætt stig. Valsmenn fengu eicki tækifæri til að byrja á miðju, svo naumt var það. Lengst af i þessum leik spiluðu Valsmenn hraðan og skemmti- legan handbolta, byggðu upp jafnt og þétt örugga forystu en þeir einfaldlega höfðu ekki mann til að fylgja sigrinum i höfn — ógnun i leik þeirra hvarf, enginn gat þá tekið af skarið og skorað. Markhæstur Valsmanna varð nýliðinn Gunnar Björnsson með 4 mörk en hann er jú nýliði og þó hann spilaði lengst af mjög vel, þá urðu honum á afdrifarik mis- tök i lokin. Jón Karlsson skoraði 3 mörk, Jón P. Jónsson og Jóhann Ingi 2 mörk hvor, Stefán Gunnarsson og Guðjón Magnús- son skoruðu eitt mark hvor. Þetta stig, sem Haukar fengu, verður þeim dýrmætt, ekki aðeins sem stig, heldur einnig eykur það þeim vafalaust sjálfstraust að vinna upp svo gott forskot, sem Valsmenn höfðu náð. Eins og fyrri daginn var Hörður Sigmarsson markhæstur Hauk- anna, skoraði 5 mörk, þar af eitt úr viti. Elias Jónasson skoraði 3 mörk en þrátt fyrir það átti hann ekki góðan dag, gerði hvað eftir annað mistök. Það fer ekkert á milli mála, að hann heldur spilinu gangandi og mark hans i lokin sýndi, svo ekki varð um villzt, að hann þarf ekki stóra glufu i varn- arvegg til að koma boltanum i netið. Ingimar Haraldsson skor- aði tvö mörk, Jón Hauksson Þor- geir Haraldsson og Sigurgeir Marteinsson skoruðu eitt mark hver. Leikinn dæmdu þeir Kristján Örn og Kjartan Steinback á sann- færandi hátt, þó auðvitað alltaf megi finna að einstaka dómnum. h.halls Meíssen 20. október. Hiðunga þýzka landslið verður enn um sinn að bíða sins fyrsta sigurs í millilandakeppni frá því Vlado Stenzel — sá sem þjálfaði ólympíumeistara Júgóslavíu á ólympiu- leikunum í Miinchen 1972 — tók við liðinu. Um síð- ustu helgi, 17.—19. októ- ber, tók þýzka landsliðið þátt i fjögurra landa keppni i Austurríki ásamt Ungverjalandi, Hollandi og gestgjöfunum, Austur- riki. Eftir sigur V-Þjóðverja gegn Austurríki 15—13 og Hollandi 18—10 var Ijóst, að um hreinan úrslítaleik yrði að ræða við Ung- verja, þar sem þeir höfðu einnig unnið Austurriki 28—18 og Holland 26—12. Úrslitaleikurinn var mjög spennandi og á köflum vel leik- inn. Ungverjar höfðu þó yfirleitt frumkvæðið og i hálfleik stóð 8—7 fyrir þá. 1 byrjun siðari hálfleiks virtust Ungverjarnir ætla að gera út um leikinn með gömlu kempunum Varga og Kovacs, ásamt frábærum markverði. Þeir komust i 17—12. Þjóðverjar voru þó ekki af baki dottnir og siðustu tiu minúturnar spiluðu þeir frábær- an og hraðan varnarleik og skynsaman, þannig að smám saman söxuðu þeir á forskotið. Siðustu 10 minúturnar skor- uðu þeir sex mörk gegn aðeins einu ungversku. Jöfnunarmark- ið kom þó ekki fyrr en 10 sekúnd- um fyrir leikslok. Þetta iafntefli nægði Ungverjum til sigurs i keppninni, þar sem markahlut- fall þeirra var töluvert betra. Beztir Þjóðverjanna voru Deck- arm, Gummersbach, sem skor- aði sjö mörk, Horst Spengler, Huttenberg, með fjögur mörk. Beztir Ungverja voru Varga með fjögur mörk og Kovacs, sem einnig skoraði fjórum sinn- um, og markmaður þeirra. Þýzka landsliðið er um þessar mundir i æfingabúðum — i allt fjórtán daga — og þvi lýkur með tveimur landsleikjum i Tékkó- slóvakiu gegn tékkneska lands- liðinu. Einn leikur f Bundeslígunni Einn leikur, fór fram i Bundesligunni ínorðurdeild). Þar áttust við Phöi.ix Essen og Derschlag og lauk leiknum með jafntefli 14—14. Þetta var leikur eins og þeir gerast verstir hér i Bundesiigunni. Var haft á orði, að þar hefði lögreglan átt að skerast i leikinn. Ekki var nóg að leikmenn stæðu i slagsmál- um leikinn út — heldur kom einnig til handalögmála á leið til búningsherbergjanna. Mark- vörður Derschlag gerði sér litið fyrir, þegar einn af leikmönnum Phönix Essen lá inni i vitateign- um, og sparkaði framan I hann. Leikmaðurinn var borinn út af. Þetta var byrjunin á einum harðasta og ljótasta leik, sem háður hefur verið i Bundeslig- unni. Þjálfari Phönix Essen, sem einnig leikur með liðinu, var siðar t leiknum borinn af leikvelli eftir að hafa verið sleg- inn niður. Hann mun þó hafa náð sér furðu. fljótt, þvi eftir leikinn sló hann markmann Derschlag svo i andlitið að flytja varð hann blóðugan i sjúkrahús. En slagsmálin hafa komið nokkuð jafnt út, þvi leiknum lauk með jafntefli 14—14. Auf wiedersehen. Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson. Nýbakaðir Keykjavfkurmeistarar ÍR með sigurlaunin, sem Kristinn Jörundsson heldur á kolli Kolbeins Kristinssonar. Kolbeinn vann einnig sin „einkaverðlaun”. Hann varð vitakóngur mótsins, meö 87,5% vitaliittni. Þeir alhvítu sigruðu Alhvitir ÍR-ingar urðu Reykja- víkurmeistarar þvert ofan i spár flestra. Þeir sigruðu Ármenninga i mjög skemmtilegum og vei leiknum leik á laugardaginn 85:78. Já, þeir byrjuðu vel. ÍR-ingarn- ir náðu fljótt forystu 10:2 en Ar- menningar réttu úr kútnum, komust i 14:15, og var leikurinn i jafnvægi það sem eftir var hálf- leiksins. IR-ingar voru stigi yfir i hálfleik 35:34. Virtist sem Ármenningar væru mjög taugaóstyrkir og náðu þeir aldrei að sýna sinar réttu hliðar. Á meðan flest gekk upp hjá IR- ingum var Iukkan ekki með Ár- menningum. IR-ingar byrjuðu siðari hálfleik af miklum krafti, sérstaklega var þá Kolbeinn Kristinsson atkvæðamikill og komust tR-ingar i 72:59. Þá fóru þeir að tinast einn af öðrum út af með fimm villur, Agnar, Kol- beinn og loks Þorsteinn Hall- grimsson. Héldu menn jafnvel að Ar- menningar næðu að jafna en þetta var einfaldlega ekki þeirra dag- ur. Þeir misstu sina máttar- stólpa einnig út af, þá Jón Sig- urðsson og Jimmy Rogers. Þannig að lokatölur uröu 85:78. Það er greinilegt, að IR-ingar verða sterkir i vetur og sennilega verður lokauppgjör Islandsmóts- ins milli þessara tveggja liða. Beztir IR-inga voru þeir Krist- inn Jörundsson, hann skoraði 32 MAAARRRKKKK S-'-j .Jjjiii Ll J.1L stig og var sérlega virkur og ógn- andi, Kolbeinn Kristinsson. sem skoraði 23 stig, og Agnar Frið- riksson 14. Einnig var Þorsteinn Hallgrimsson drjúgur. Þó Armenningar hafi ekki náð titlinum þarna, þá fer ekki á milli mála, að þeir hafa yfir að ráða mest leikandi liðinu i körfunni. Jimmy Rogers skoraði 24 stig. Jón Sigurðsson 16 og einnig var Guðsteinn virkur. Á undan leik 1R og Armanns fór fram leikur KR og ÍS um þriðja sætið. Er skemmst frá þvi að segja að KR-ingar virkuöu alltaf sterkari og sigruðu 84:75 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 38:26 þeim i vil. Maðurinn á bak við sigur þeirra var „Trukkurinn”, sem skoraði 44 stig og er ég hræddur um. að ekki færi mikið fyrir KR ef hans nyti ekki við. Hjá stúdentunum var Jón Héð- insson beztur en sennilega verður 1S ekki með i toppbaráttunni i vetur, ef marka má Reykjavikur- mótið. hhalis

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.