Dagblaðið - 27.10.1975, Síða 14
Pagblaðiö. Mánudagur 27. október 1975.
Jþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
/\lan Taylor a miöri myndinni skoraði fyrra mark West Ham á laugardag og eina mark West Ham i Evrópukeppninni á miðvikudag
gegn Ararat Jerevan.
Þúsundir í slagsmálum
og leikurinn stöðvaður
— þegar West Ham sigraði Manch. Utd. í Lundúnum á laugardag — QPR
komst aftur í fyrsta sœti í 1. deild eftir nauman sigur gegn botnliðinu
Sheff. Utd. — Sunderland í efsta sœti í 2. deild
West Ham/ austurbæj-
arliö Lundúnabogar, veiti
Manch. Utd. úr efsta sæti
1. deildarinnar ensku á
laugardag, þegar liöið
sigraði á Upton Park 2-1.
Leikurinn var hreint frá-
bær — knattspyrna eins
og hún gerist bezt og leik-
urinn var afar prúö-
mannlega leikinn. Ekki
leikmaður bókaöur og
mjög litiö um brot. West
Ham var afar heppið að
sigra —Manch. Utd. sótti
miklu meira i leiknum,
einkum þó i síðari hálf-
leik, en sóknarloturnar
brotnuðu á góðri vörn
West Ham og frábærri
markvörzlu Merwyn
Day.
En það var önnur saga á á-
horfendapöllunum — þar logaði
allt i slagsmálum i einu horni
vallarins og þúsundir áhorf-
enda tóku þátt i þeim. Fólkið
ruddist niður á völlinn og var
dómarinn að stöðva leikinn i 20
minútur. Leikmenn fóru til bún-
ingsherbergja meðan lögreglan
kom ró á aftur og hún hafði i
miklu að snúast. Þetta skeði
þegar 12 min. voru af siðari
hálfleiknum og leikmaöur braut
þá á öðrum og þá fór allt á stað.
Þetta er með alvarlegri uppþot-
um, sem orðið hafa á enskum
knattspyrnuvöllum. Yfir 100
manns særðust i átökunum —
þar af niu fluttir á spitala. Þá
handtók lögreglan 38 manns,
mest unga stráka, sem höguðu
sér hreint eins og villidýr. Og
flestir þeirra voru áhangendur
Manchesterliðsins — verstu á-
horfendur Englands viðs vegar
að úr landinu. Þegar lögreglan
kom ró á aftur mynduðu lög-
reglumennirnir „vegg” með-
fram áhorfendasvæðunum en
þeir voru 200 talsins og veitti
ekki af.
Þetta var slæmt, þvi leikurinn
var frábær skemmtun og virki-
lega góð knattspyrna, sem liðin
sýndu. West Ham náði forustu
mað marki Alan Taylor á 6.
min. og þannig stóð, þar til ólæt-
in brutust út. Þó hafði Man-
chester-liðið fengiö ágæt tæki-
færi til að jafna t.d. Stuart Pear-
son tvivegis, en hann notaði
bæði illa og hefur sennilega
eyðilagt möguleika sina á að
verða miðherji enska landsliðs-
ins gegn Tékkum á miðvikudag
i Evrópukeppni landsliða. En
hann var þó ekki einn i sökinni
— Irarnir Mcllroy og Nichols
fóru einnig illa að ráði sinu.
Þegar leikurinn hófst aftur
eftir ólætin skoraði Lou Macari
strax fyrir Manch. Utd. og liðið
virtist sigurstranglegt i leikn-
um, þar sem þreyta gerði vart
við sig hjá West Ham-liðinu,
þegar liða tók á leikinn. Erfitt
ferðalag til Ararat i Kákasus i
vikunni sat i leikmönnum. En
leikmenn Manch. Utd. voru ekki
á skotskónum og svo skoraði
Bobby Gould óvænt sigurmark
West Ham á 70. min. Þar við sat
þrátt fyrir mikinn sóknarþunga
á mark Lundúnaliðsins loka-
minútur leiksins.
Úrslit urðu annars þessi á
laugardag.
1. deild
Arsenal — Middlesbro 2-1
Aston Villa — Burnley 1-1
Leeds — Coventry 2-0
Leicester — Tottenham 2-3
Liverpool — Derby 1-1
Manch. City — Ipswich 1-1
Norwich — Birmingham 1-0
•QPR — Sheff. Utd. 1-0
Stoke — Newcastle 1-1
West Ham — Manch. Utd. 2-1
Wolves — Everton 1-2
2. deild
Blackburn —Chelsea 1-1
Blackpool —BristolR. 1-4
Bristol City — WBA 0-2
Carlisle — Charlton l-l
Fulham — Or.ient 1-1
Hull City — Bolton 2-2
Nott. Co. —Portsmouth 2-0
Oldham — Nottm. For. 0-0
Plymouth — Oxford 2-1
Southampton —York 2-0
Sunderiand —Luton 2-0
QPR náði á ný efsta sæti i 1.
deild, en gekk afar illa með
neðsta liðið i 1. deild, Sheff. Utd.
á heimavelli sinum i vesturbæ
Lundúna. Þeir Masson og
Bowles fóru illa að ráði sinu i
fyrri hálfleik — misnotuðu auö-
veld tækifæri, sem þeir fengu
fyrir QPR. Það var ekki fyrr en
á 61. min. að Don Givens tryggði
sigur QPR — skallaði þá i mark
fyrirgjöf frá Gerry Francis, fyr-
irliða QPR og Englands. Fleiri
urðu mörkin ekki, en skozki
landsliðsmarkvörðurinn Jim
Brown átti stórleik i marki
Sheff. Utd.
Liverpool lék mjög vel gegn
Derby i fyrri hálfleik — en i lok-
in var liðið þó heppiö að ná öðru
stiginu. Þrivegis siðasta stund-
arfjórðunginn átti að dæma viti
á Liverpool, en dómarinn Keith
Stiles lokaði augunum. Leik-
menn Derby urðu alveg æfir —
og Colin Todd var bókaður.
Fyrst komst Roger Davies i
gegn frir inn i vitateiginn — en
Ray Clemence, markvörður,
greip um fætur hans og felldi
hann. Dómarinn færði brotið út
fyrir vitateiginn — og rétt á eftir
var Davies brugðið innan vita-
teigs. Ekkert dæmt og ekki nóg
með það. I lokin sló Phil Thomp-
son, miðvörður Liverpool,
knöttinn innan vitateigs i horn
— en dómarinn sá ekki neitt, og
linuverðir hans gerðu heldur
enga athugasemd.
Það var ekki furða, þó leik-
menn Derby töluðu ,,um rán”
eftir leikinn, en Liverpool-liðið
var þó 'betra i leiknum. John
Toshack skoraði fyrir Liverpool
i fyrri hálfleik, en Francis Lee
jafnaði á 62. min. Það var held-
ur ódýrt mark — Charlie George
lá á vellinum og héldu leikmenn
Liverpool að dómarinn ætlaði að
stöðva leikinn — hættu, en ekki
Lee, sem komst frir aö markinu
og skoraði.
Loks tapaði Middlesbro — eða
i fyrsta skipti frá 13. september
og liðiö fékk nú loks á sig mark i
sjö leikjum. Það var á leikvelli
Arsenal, Highbury, i Lundúnum
og Arsenal sigraði 2-1. Stapleton
skoraði fyrir Arsenal á 16.
min. — Mills jafnaði á 53. min.
fyrir Middlesbro, en þremur
min. fyrir leikslok skoraði Alex
Cropley sigurmark Arsenal —
og fyrsta tap Middlesbro i 11
leikjum var staðreynd.
Leeds vann öruggan sigur á
Coventry, en Miðlandaliðið lék
sterkan varnarleik i fyrri hálf-
leik og þá tókst Leeds ekki að
skora. Hinsvegar voru leikmenn
Coventry ekki eins harðir i
vörninni i siðari hálfleiknum og
þá skoraði Leeds tvivegis. Fyrst
Terry Yorath, sem lék miðherja
að þessu sinni. Það var á 63.
min. og 10. min. siðar gull-
tryggði Alan Clarke sigur
Leeds. Larry Llod missti þá
knöttinn til Clarke innan vita-
teigs og slik tækifæri lætur sá
kappi ekki ganga sér úr greip-
um. Lék laglega á Bryan King
markvörð og ýtti knettinum
með innanfótarspyrnu lausri i
markið.
Um aðra leiki er það að segja,
að Peter Noble, Burnley var i
sviðsljósinu á Villa Park —
skoraði bæði mörk leiksins.
Fyrst réttu megin i mark Villa
siðan sendi hann knöttinn i eig-
iðrmark. Jimmy Greenhoff
skoraði mark Stoke gegn New-
castle og það virtist ætla að
nægja til sigurs. Komið framyf-
ir venjulegan leiktima og New-
castle-liðið varla átt færi i leikn-
um. En svo slapp Alan Gowling
og lék skemmtilega a Shilton
áður en hann sendi knöttinn i
mark Stoke. Malcolm McDon-
ald var afar slappur i liði New-
castle og litlar likur að hann
komist i landsliðið gegn Tékk-
um. Markvörður Ipswich,
Cooper, var hetja Ipswich-liðs-
ins á Maine Road — varði
nokkrum sinnum snilldarlega.
Ipswich náði forustu i leiknum á
17. min. þegar Bryan amilton
skoraði — en rétt áður hafði
hann misnotað auðvelt tækifæri.
Colin Bell tókst aö jafna fyrir
City i siðari hálfleik.
Keith Weller náði forustu fyrir
Leicester snemma leiks gegn
Tottenham, en svo skoruðu þeir
Ralph Coates og Martin Chivers
tvö mörk fyrir Tottenham á
tveimur min. og öll leikgleði
hvarf þá frá leikmönnum
Leicester — bókstaflega upp-
gjöf. Perryman skoraði 3ja
mark Tottenham — en Weller
aftur fyrir Leicester. Phil Boyer
skoraði eina markið i leiknum i
Nórwich i fyrri hálfleik — og
það nægði Norwich-liðinu til að
hljóta tvö dýrmæt stig. Þá töp-
uðu Úlfarnir enn — Martin Dob-
son og Garry Jones skoruðu fyr-
ir Everton, en Ken Hibbitt eina
mark úlfanna.
Bristol City tapaði óvænt fyrir
WBA á laugardag og missti við
það forustu i 2. deild. Sunder-
land komst aftur i efsta sætið
eftir sigur gegn Luton, þar sem
þeir Kerr og Robson skoruðu.
Mörk WBA skoruðu þeir Alister
Brown og Tony Brown. Mike
Channon var stórgóður hjá Dýr-
lingunum og skoraði bæði mörk-
in gegn York.Hið fyrra úr vita-
spyrnu, en hið siðara eftir fyrir-
gjöf frá Peter Osgood, en hann
hafði komið inn sem varamaður
á 74. mín.
Gamli landsliðskappinn Terry
Paine, sem nú er leikmaður og
þjálfari hjá Hereford (áður
Southampton) náði merkum á-
fanga á laugardag. Lék þá sinn
765 deildaleik og það er nýtt
met.Enginn enskur leikmaður
hefur áður leikið svo marga
deildaleiki. En leikurinn var
ekki ánægjulegur fyrir Paine —
lið hans tapaði 2-4 á heimavelli
fyrir Peterbro.
Staðan er nú þannig:
l.deild
QPR 14 7 5 2 22- 9 19
Manch. Utd. 14 8 3 3 24-13 19
West Ham. 13 8 3 2 20-15 19
Derby 14 7 4 3 20-18 18
Liverpool 13 6 4 2 19-11 17
Leeds 13 7 3 3 20-14 17
Everton 13 7 3 3 20-18 17
Middlesbro 14 6 4 4 16-12 16
Manch. City 14 5 5 4 21-13 15
Stoke 14 6 3 5 16-14 15
Norwich 14 5 4 5 23-25 14
Newcastle 14 5 3 6 28-23 13
Arsenal 13 4 5 4 18-15 13
Ipswich 14 4 5 5 12-14 13
Aston Villa 14 4 5 5 14-19 13
Coventry 14 4 4 6 13-17 12
Burnley 14 3 6 5 16-21 12
Tottenham 14 2 7 4 19-21 11
Birmingham 14 3 3 8 19-25 9
Leicester 14 0 9 5 13-23 9
Wolves 14 2 4 8 15-24 8
Sheff.Utd. 14 1 1 : 12 6-30 3
2. deild
Sunderland 14 9 2 3 22-10 20
BristolCity 14 8 3 3 29-16 19
Bolton 13 7 4 2 26-15 18
BristolRov. • 13 6 5 2 18-11 17
Notts Co. 13 7 3 3 14-11 17
Fulham 13 6 4 3 18-10 16
Sothampton 13 7 2 4 25-16 16
Oldham 13 6 4 3 20-18 16
Charlton 13 5 4 4 15-19 14
Blackpool 13 5 3 5 13-18 13
Luton 13 4 4 5 13-12 12
Hull City 13 4 4 5 11-13 12
Chelsea 14 3 6 5 14-18 12
WBA 12 3 6 3 9-14 12
Nottm. For. 13 3 5 5 12-13 11
Orient 13 3 5 5 9-12 11
Plymouth 13 4 3 6 13-17 11
Blackburn 13 2 6 5 12-14 10
Oxford 13 3 3 7 12-20 9
Carlisle 13 2 4 7 11-19 8
Portsmouth 12 1 6 5 8-18 8
York 13 2 3 8 12-22 7