Dagblaðið - 12.11.1975, Qupperneq 6
6
Dagblaöið. Miövikudagur 12. nóvember 1975.
13 CIA-menn við bandaríska
sendiráðið í Helsinki
— segir bandarfskur blaðamaður í Finnlandi
Þrettán starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar
Cl A eru starfandi við sendiráð Bandaríkjanna í Helsinki/
að sögn bandariska blaðamannsins Georges Lennox,
sem nýlega Ijóstraði upp nöfnum CIA-manna við banda-
ríska sendiráðið í Stokkhólmi.
Lennox hefur skýrt frá þessu I I
fjölmiðlum i Finnlandi og sýnt
ljósmyndir sem hann hefur tekið !
af helztu CIA-mönnunum, þ.á m. |
yfirmanni Finnlandsdeildar.
Bandariska sendiráðið i
Helsinki hefur hvorki viljað stað-
festa né afneita fullyröingum
Lennox um að á diplómatalista
þess væru sjö starfsmenn CIA.
Hinir sex eru ekki i hópi
diplómata heldur gegna ýmsum
öðrum stöðum i tengslum við
sendiráðið.
Lennox segist hafa fullvissað
sig um sannleiksgildi nafnalista
sins með þvi að bera hann saman
við lista er finnst i skjalaskápum
Center for National Security
Studies (Miðstöðvar þjóöar-
öryggismála) i Washington. Sú
stofnun var sett á laggirnar eftir
að upp komst um Watergate-
hneykslið.
CIA sýnir Finnlandi mikinn
áhuga, segir Lennox. Vegna sér-
stöðu þess bæði landfræði- og
stjórnmálalega hefur leyni-
þjónustan skiljanlega áhuga á að
vera vel inni i málum þar eystra.
t Helsinki er til dæmis sérstak-
ur CIA-maður hafður i öllu er
viðkemur verkalýðshreyfingunni
og einstökum fagfélögum.
Lennox segir það hafa verið
sérstaklega erfitt að vinna i
Finnlandi vegna ósamvinnuþýðni
ibúanna. — Þá var nú einhver
munur að vera i Stokkhólmi,
sagði hann i viðtali við Tor
Högnas, fréttamann Dagens
Nyheter i Helsinki.
Lennox er náinn vinur Philips
Agee, fyrrum CIA-manns, sem
skrifaði merkilega bók um undir-
róðursstarfsemi CIA nýverið.
Brezkir og skozkir tog-
aroeigendur krefjast 200
mílna fyrir órslok '76
Sambönd brezkra og skozkra togaraeigendar hafa
hvatt rikisstjórn Bretlands til að lýsa yfir 200 mílna fisk-
veiðilögsögu eigi síðar en í árslok 1976. Gildir þá einu
hvort alþjóðlegt samkomulag hefur náðst á hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, að því er segir í brezka
blaðinu Times.
Fimm
tonn af
físki f
höfnina f
Ostende
Belgiskir sjómenn hentu
fimm tonnum af nýjum fiski i
höfnina i Ostende á fimmtu-
daginn i fyrri viku til að mót-
mæla lágu fiskverði.
Ostende er einn helzti fisk-
markaður Evrópu og þar hafa
islenzkir bátar oftlega landað
afla sinum.
Það er þvi viðar en hér sem
sjómenn eru óánægðir með
fiskverðið.
Þessi tvö sambönd ráða öllum
úthafsflota Breta. Samböndin
lögðu á það áherzlu, að þau væru
þvi ekki hlynnt að gripið yrði til
einhliða útfærslu eins og tslend-
ingar hefðu gert. Þess í stað
skyldi haft samflot með öörum
aðildarlöndum Efnahagsbanda-
lags Evrópu og þá einnig þjóðum
er hagsmuna ættu að gæta, s.s.
Noregi.
Austen Laing, formaður Brezka
sambandsins, sagði i viðtali við
Times að Bretar væru að missa af
lestinni i þessum efnum. „Við
höfum ekki efni á að biða öllu
lengur, það er vaxandi ótti við að
það sé einmitt það sem er að
gerast. Aðrar þjóðir i Norður-
Atlantshafi virðast liklegar til aö
færa út sina lögsögu fljótlega eftir
ráðstefnu Sþ og það liklega áður
en við gerum það. Það getur haft
skelfilegar afleiðingar fyrir fisk-
iðnað okkar og komið i veg fyrir
að við verðum sjálfum okkur nóg-
ir með fiskframleiðslu,” haföi
Times eftir Laing.
Hann bætir við: „Við getum
ekki farið að dæmi Islendinga og
fært út einhliða en við getum
heldur ekki beðið lengur og séð
hvað verða vill. Við vitum hvað á
eftir að gerast og, á sama hátt og
Norðmenn, ættum við að undir-
búa okkur fyrir það.”
Gullsleginn númeraskjöldur af einkabifreið Adolfs Hitlers — Ilklega
þaö eina úr riki hans er dugaö getur i 1000 ár — var nýlega seldur
á uppboöi INew York fyrir andviröi 580 þús. isl. kr.
Viðbrögð við dómnum í máli Karenar Quinlan:
„Betra að treysta
lœknum en lögmönnum"
Fjöldi lækna og kirkj-
unnar manna víöa um
heim hefur látið í Ijós
ánægju sina með að úr-
skurður dómarans í máli
Karenar Quinlan féll á þá
lundað um læknisfræðilegt
vandamál væri að ræða.
Dómarinn sagði í dóms-
orði sínu að ákvörðun um
að taka stállungað, sem
hefur haldið Karen á lifi í
sjö mánuði, úr sambandi
væri læknisfræðilegs eðlis
og læknar hennar hefðu
ekki viljað gera það.
„Ég tel þessa ákvörðun
góða,” sagði séra William
Smith, guðfræðingur við
guðf ræðideild róverks-
kaþólsks skóla í New York.
„ Ég álít að betra sé í þessu
tilfelli að treysta orðum
þeirra læknislærðu manna,
sem eru á staðnum, en lög-
spekinga er hvergi koma
nærri".
Margir læknar hafa tek-
ið undir þessa skoðun víða
um heim.
Virðist hún vera í fullu
samræmi við það álit og
fullyrðingu margra lækna
að ákvarðanir um að hætta
að berjast við að bjarga
mannslífum séu teknar í
þögn og ró á ýmsum
sjúkrahúsum. Dómstóll
laga, samkvæmt þessari
skoðun, hefur engu hlut-
verki að gegna við slíka
ákvarðanatöku.
Bretaprins stöðugt ástfanginn
1 hópi fagurra meyja I
Papúa-Nýju Glneu.
Karl Bretaprins, erfingi krún-
unnar, viðurkenndi i viðtali við
brezkt tlmarit að hann hefði oft-
lega orðið ástfanginn af ýmsum
stúlkum og að hann hefði i
hyggju að halda þvi áfram.
1 furðulega opinskáu viðtali
sagði eftirsóttasti piparsveinn
brezka samveldisins að hann
væri hreint ekki tilbúinn til að
kvænast. Karl verður tuttugu og
sjö ára á föstudaginn. Hann tel-
ur aö heppilegasti timinn fyrir
mann til að ganga i hjónaband
sé um þritugt.
„Ég hef orðið ástfanginn af
alls konar stúlkum og hef svo
sannarlega i hyggju að halda
þvi áfram,” sagði hann i viðtali
við blaðið Womans’s Own. „Ég
er búinn að koma i veg fyrir að
ég hafi rokið til og gifzt fyrstu
stúlkunni sem ég varð ástfang-
inn af. Maður verður að lita á
allt þetta hjónabandsstúss sem
mikið mál, þvi ég geri mér vonir
um að vera giftur sömu konunni
það sem eftir er.”
Prinsinn bætti þvi við að hann
reyndi aö taka mið af mistökum
annarra i þessum efnum, bæöi i
sinni eigin fjölskyldu og ann-
arra. „Ég vona að ákvörðun
min, þegar þar að kemur, verði
skynsamleg.”
Prinsinn sagði það að sjálf-
sögðu skipta sig miklu máli að
hann veldi sér réttan lifsföru-
naut i upphafi, þvi hann gæti
ekki skilið og gifzt aftur eins og
honum þóknaðist.
Er hann var spurður hvernig
sérstaða hans takmarkaði vin-
áttusambönd hans við stúlkur
svaraði hann: „Ég verð að fara
mjög varlega. Ég flæki mér
ekki of mikið I málin.”
I lok viðtalsins sagi erfingi
brezku krúnunnar: „Hjónaband
er miklu mikilvægara en aðeins
það að verða ástfanginn.”