Dagblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 20
Ásiglingin: BRETAR SEGJAST HAFA BOÐIÐ ÞÓR AÐSTOÐ! Sendiherra í London kvartar undan síðbúnum fréttum fró Landhelgisgœzlunni á myndinni sést vel, hvernig Loydsman hefur beygt til ab geta „hæft” varöskipiö. Kjölfariö sýnir þetta greinilega, svo aö enginn vafi er um staðreyndir málsins. Þór siglir beint áfram eins og augljóst er á kjölfari hans. „Bretarnir auglýstu það í út- varpi hér i gærkvöldi, að drátt- arbátarnir hefðu boðizt til að hjálpa Þór, eftir að þeir voru búnir að sigla á hann. Það átti vist að sýna, hve Bretinn er „heiðarlegur”!” sagði Niels P. Sigurðsson, sendiherra i Lond- on, í morgun. Brezku blöðin fjalla um málið þannig, að segja, að Þór hafi skotið á óvopnuð skip. Þetta er þvert á móti þvi, sem áherzla er lögð á heima,” sagði sendiherr- ann. „Við höfum reynt að koma leiöréttingum á framfæri, og komu þær i kvöldblöðum i gær, útvarpi og sjónvarpi. Sendiherrann kvartaði yfir þvi, að fréttir bærust seint frá islenzku Landhelgisgæzlunni. Bretarfengju sinar fréttir beint frá herskipunum, og kæmu þær til dæmis hálftima eftir, að at- burðirnir yrðu. Frá Landhelgis- gæzlunni kæmu fréttir miklu siðar. Þetta setti islenzka sendi- ráðið í vanda. „Ég fékk birta stóra grein i blaöinu Times i gær,” sagöi Niels. „Þar lagði ég áherzlu á, að þetta væri orðið mál stórra fyrirsagna I blöðum en aöalatriðið gleymdist, ástand fiskistofna og efnahagur ts- lands. Daily Mirror birti til dæmis heilsiðu mynd, þar sem varðskip var i nokkurra metra fjarlægð frá brezku skipunum.” „Líklega vatnsslanga” Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, sagði i morgun, að liklega hefði það, sem varðskipsmenn sögðu, að „liktist taum” milli dráttarbát- anna, verið vatnsslanga. Ein- hver báturinn hafi verið að taka vatn. Um gagnrýni sendiherr- ans i London sagði Pétur: „Bretar hafa þann hátt á, að fréttamenn i herskipunum fá að senda það. sem þeir vilja. Við sendum ekki frá okkur neitt nema staðreyndir, sem lengri tima tekur að fá fram. Menn við störf i varðskipunum hafa ekki tima til að senda itarleg skeyti. Við sendum ekki beint til sendi- ráðsins heldur gegnum ráðu- neytiö.” Þvi má bæta við, að það tekur gæzluna yfirleitt klukkutima eða þar um bil að þýða dulmálsskeyti frá varð- skipunum, þótt við það séu fær- ustu menn, að sögn Jóns Magnússonar, talsmanns gæzl- unnar. Fyrirsát Aðfarir dráttarbátanna i gær liktust helzt fyrirsát. Varðskipið Þór hafði verið á Seyöisfirði við að draga upp gamla kafbáta- girðingu. Það fann þrjá dráttar- báta, þegar út var siglt, rúma sjómflu frá landi. Virtist vera taug milli tveggja þeirra. Henni var sleppt, þegar varðskipið kom. Tveir bátanna héldu til hafs, og varðskipið á eftir. Loydsman hafði haldið kyrru fyrir. Star Aquarius beygði skyndilega þvert inn á bak- borðshlið varðskipsins, sem sneri undan til stjórnborða til að hindra árekstur. Þá sigldi Loydsman allt i einu á varðskip- ið bakborðsmegin. Varðskipið skaut aðvörunarskoti, framhjá Loydsman. Loydsman sigldi þá aftur á varðskipið. Þá skaut varðskipið i bol Loydsman, og lauk þar viðureigninni. —HH Síöustu fréttir: Varðskipið Þór kom inn til Seyðisfjarðar rétt fyrir hádegis- bilið. Skipið var illa laskað, sagði fréttamaður DB á Seyðis- firði, talið að þyrlupallurinn nefði skekkzt og gat á bolnum, sem.tekizt hafði að sjóða i. frjálst, úháð datfblað Föstudagur 12. desember 1975. Eiga Flugleiðir eignir umfram skuldir? // Því svara ég hiklaust // játandi — segir Sigurður Helgason forstjóri „Þvi svara ég hiklaust ját andi,” sagði Sigurður Helgason, forstjóri hjá Flugleiðum, þegar Dagblaðið spurði hann, hvort Flugleiðir ættu fyrir skuldum. Vegna máls Air Viking og Sunnu höfðu menn spurt, hvort Flugleiðir gætu ekki talizt gjaldþrota, ef málið væri kann- að til fullnustu. Sigurður sagði, að i ágúst hefðu Flugleiðir tekið lán með rikisábyrgð fyrir eftir- stöðvum kaupverðs á tveimur flugvélum. Lánið var upp á tvo milljarða króna, tekið hjá Export-Import bankanum I Washington og Manufacturers Hanover Trust Company i New York. Hann sagði, að ekkert segði skýrar, að Flugleiðir ættu fyrir skuldum en það, að þessir aðilar veittu lánið eftir að hafa þaulkannað stöðu fyrirtækisins. Slikir aðilar veittu ekki lán ella. Þessi fjárhæð væri eftir- stöðvar af 3,7 milljarða kaup- verði flugvélanna. Flugleiðir væru búnar að greiða 1,7 milljarða. Alls hefðu Flugleiðir greitt 10 milljónir dollara, eða um 1,7 milljarða af lánum á þessu eina ári, 1975. .. —HH Garðar vill skjóta Garðar Sigurðsson (Ab) var róttækastur þeirra alþingis- manna, sem ræddu ásigling- una utan dagskrár á þingi i gær. Hanr. vildi helzt, að Is- lendingar fengju betri byssur á varðskipin og skytu sem mest á Bretana. Flokksbróðir hans, Lúðvik Jósefsson, var hógværari. Hann taldi, að tslendingar ættu að ganga úr Atlantshafs- bandalaginu. Margir þingmenn tóku til máls. Umræðurnar hófust um hálffjögur leytið, eftir að þing- menn höfðu frétt um siðustu atburði á miðunum. Báðu þeir ráðherra að skýra málið, sem var gert. —HH Ríkisstjórnin Rikisstjórnin var i morgun á fundi með verkalýðsforingjum um kjaramálin. Ákvörðun um, hvað gera skyldi eftir ásiglingar dráttarbátsins Lloydsmar, á Þór voru teknar i gær. Einar Ágústs- son utanrikisráðherra flutti á- kærur íslendinga á hendur Bret- um á fundi Atlantshafsráðsins, sem hófst klukkan tiu i morgun. gerir lítið Rikisstjórnin ætlar um sinn ekki að gera annað en að kæra á- siglinguna, sem varð aðeins 1,9 milur frá landi, fyrir öryggisráð- inu og Atlantshafsráðinu. Komi til fleiri aðgerðir verða þær lik- lega ekki ákveðnar fyrr en eftir heimkomu utanrikisráðherra um helgina. TYR HJÁLPAR ÞÓR Verið var að gera við Þór til bráðabirgða i morgun fyrir aust- an. Varðskipið Týr aðstoðaði við viðgerðina. Þór mun halda áfram gæzlu- störfum, og endanleg viðgerð verður seinná. Einhver lek', kom að vélar- rúmi, að sögn Landhelgisgæzl- unnar i morgun, og hluti af þyrlu- þilfari brotnaði. Týr ætlaði að reyna „að toga út” beygluna, sem komið hafði á Þór. Um borð i varðskipunum eru logsuðumenn, sem geta gert við skemmdir til bráðabirgða. HH Borgarafundur Dagblaðið fregnaði i morgun að i uppsiglingu sé borgarafundur i Reykjavik um málefni Sunnu, Air Viking og Seðlabankans. Ekki fékk blaðið staðfest hverjir það væru, sem standa fyrir fundinum, en það munu vera nokkrir lögfræðingar og jafnvel um Sunnumólið einn þingmaður ásamt nokkrum áberandi mönnum i þjóðlifinu. Fundurinn mun eiga að fara fram i einhverju stærri sam- komuhúsanna i byrjun næstu viku. Nánar verður sagt frá þessum fundisiðar. —JBP— Lögbannið beinist gegn heilbrigðisyfirvöldum segir íbúinn sem kvartar undan kryddlyktinni Lögbannsmálið að Hátröð 3 i Kópavogi virðist nú allt vera að færast i aukana. 1 morgun boð- aði Gylfi Guðmundsson, sem fer fram á lögbannið, til blaða- mannafundar, þar sem hann gerði grein fyrir málinu frá sinni hlið. „Ég fer fyrst og fremst fram á þetta lögbann til að taka fram fyrir hendurnar á Heilbrigðis- eftirliti Kópavogs, sem ég tel hafa staðið mjög slælega að þessu máli,” sagði Gylfi. Það var fyrir einu og hálfu ári, sem ég vakti fyrst athygli á þessu máli við eftirlitið, en það hefur litið gert nema að gera sam- þykktir og þá stundum þvert of- an i fyrri samþykktir sinar.” 1 Dagblaðinu I gær var greint frá þessu máli frá hlið gerðar- þolanda, Guðmundar Pálsson- ar. Hann sagði meðal annars að vélakostur heildsölufyrirtækis sins væri ein litil og hljóðlaus pökkunarvél. Þetta sagði Gylfi vera alrangt. Vegna hávaða frá vélum gætu ibúar hússins yfir- leitt ekki sofnað fyrr en eftir miðnætti. Þá var Gylfi spurður að þvi, hvaðylliþviaðhannfæri fram á lögbann, þegar aðeins væru tuttugu dagar þar til nágranni hans flytti út. „Ég hef enga trú á þvi að hann flytji út,” svaraði Gylfi, ,,ég held að hann ætli aðeins að spila á þetta kerfi hérna i Kópa- vogi. Einnig er það svo að fyrir jólin er hvað mest að gera i kryddpökkuninni, svo að ég sá 'fram á að ég og fjölskylda min fengjum engan frið vegna þess- arar starfsemi.” t gær átti að kveða upp úr- skurð i lögbannsmálinu, en þvi var frestað. Taldi Gylfi að úr- skurðarins yrði að vænta um fjögurleytið i dag. —ÁT—

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.