Dagblaðið - 05.01.1976, Page 6
Hagblaöið. Mánudagur 5. janúar 1976.
VELKOMINN í HEIMINN:
Þessi mynd var viða um heim talin ein af fréttamyndum ársins 1975. Hún var tekin á enskri fæðingar-
stoiu, þar sem faðirinn tók sjálfur á móti barni sfnu eftir að liafa sótt fræðslutima um fæðingarhjáip.
Bæði voru þau hjónin yfir sig hrifin af fæðingunni.
Hastinqs:
Guðmundur oftarlega
Sovézku stórmeistararnir
Victor Kortsnoj og David Bron-
stein eru enn efstir eftir fimm
umferðir á skákmótinu i Hast-
ings i Englandi.
Bronstein, sem tók forystu á
mótinu þegar i upphafi, átti i ó-
væntum erfiðleikum með skák
sina við unga Englendinginn
Robert Bellin. Kortsnoj gerði
jafntefli við Tékkann Vlastimil
Hort, sem er hálfum vinningi
undir Sovétmönnunum.
Þriðji sovézki skákmeistar-
inn. Mark Taimanov, gerði
jafntefli við lékkann Vlastimil
Jansa, eftir að hafa klúðrað
góðri byrjun.
Hollendingurinn Gennadi
Sosonko bætti mjög stöðu sina á
mótinu þegar hann sigraði Bret-
landsmeistarann William Hart-
ston i hörkukeppni. Evrópu-
meistari unglinga, John Nunn,
vann skák sina við Bandarikja-
manninn Arthur Bisguier.
Eftir fimmtu umferð er stað-
an þessi:
1. Bronstein og Kortsnoj með
3.5 vinninga,
2. Uhlmann og Hort með 3
vinninga, báðir með eina bið-
skák
3. Taimanov með 3 vinninga,
4. Jansa, Sosonko og Stean
með 2.5 vinninga,
5. Hartson og Nunn með tvo
vinninga,
6. Keene, Miles og Guðmund-
ur Sigurjónsson með hálfan
annan vinning og allir eina bið-
skák,
7. Bellin og Bisguier eru báðir
með hálfan annan vinning.
Barnaflokkar — Unglingaflokkar — Flokkar fyrir fullorðna einstak-
linga — Flokkar fyrir hjón — Byrjendur og framhald
Allir nýjustu táningadansarnir — svo
sem Hustler, Bump (Boom), Kung Fu,
El Bimbo, Brazilian Carneval, Harlem
og margir fleiri.
SIÐASTI INNRITUNARDAGUR er miðvikud. 7. jan.
Innritun daglega frá kl. 10-12 og 1-7.
Reykjavík
Brautarholt 3 sfmar 20345 og 24959.
Breiöholt. Kennt veröur i nýju húsnæöi
aölDrafnarfelli 4 simi 74444.
Kópavogur
Félagsheimiliö slmi 84829.
Hafnarf jörður
Góötemplarahúsiö simi 84829.
Seltjarnarnes
Félagsheimiliö simi 84829.
Unglingar
Superstar-menn
semja óperu um
Evitu Perón
Eva Perón, sem varð valda-
mesta kona Suður-Ameriku á sin-
um tima og lifandi þjóðsagnaper-
sóna, verður nú miðdepill nú-
timalegrar óperu eftir höfunda
rokkóperunnar Jesus Christ
Superstar.
,,Þetta á ekki beinlinis að verða
rokk-ópera, meira söngleikur eða
nútimaleg ópera,” sagði Tim
Rice, sem samdi „Superstar” á-
samt Andrew Lloyd-Webber, en
verkið fór mikla sigurför um all-
an heim og hefur til þessa gefið 50
milljón sterlingspund i tekjur.
Eva Perón, sem i munni al-
mennings i Argentinu er „Heilög
Evita”, var önnur kona Juans
Peróns, Argentinuforseta. Hún
dó: úr krabbameini 1952, þá að-
eins 33 ára, dýrkuð af þegnum
sinum og mjög valdamikil.
Smurður likami hennar liggur i
opinni kistu, skreyttri bláu silki, i
grafhýsi forsetahallarinnar i
Buenos Aires, þar sem þriðja
kona Peróns, Maria Estela, er nú
forseti.
Hár Evitu er gullið og áferð
húðarinnar jafn slétt og fögur og
daginn sem hún dó.
Ópera þeirra félaga Rices og
Lloyd-Webbers um Evu Perón
mun bera heitið ,,Eva”. Búizt er
við að óperan komi út á hljóm-
plötum siðar á þessu ári. Verið er
að semja verkið og eru hlutar
þess á spænsku. Rice og Webber
hafa i hyggju að setja verkið á
svið og jafnvel að láta kvikmynda
það.
Sagan af Evu er sú, að þegar
hún var fimmtán ára strauk hún
að heiman til að verða leikkona i
Buones Aires. Hún kynntist Per-
ón, sem þá var lágt settur i hern-
um, giftist honum og varð svo
vinsæl meðal almennings, að hún
hafði — óformlega að visu — engu
minni völd en maður hennar, þeg-
ar hann varð forseti. Hún var
aðalmanneskjan á bak við og i
rauninni tákn fyrir sex ára langa
þjóðfélagsbyltingu i Argentinu.
„Ég kveikti á útvarpinu og
hlustaði á siðustu fimmtán min-
úturnar i heimildadagskrá um
hana. Ég varð þegar mjög
spenntur,” sagði Tim Rice. „Ég
fór að kynna mér þessa konu og
hvernig manngerð hún var — og
komst að þeirri niðurstöðu, að hér
væri saga um raunverulega
öskubusku.”
Læknirinn, sem smurði lik Evu
Perón á sinum tima, segir að það
þurfi aldrei að skemmast, frekar
en smurt lik Lenins.
60 tíma
predikun
Séra Robert Marshall setti i
gær nýtt heimsmet i predikun.
Hann predikaði yfir söfnuði
sinum i sextiu stundir og þrjá-
tiu og eina minútu stanzlaust.
„Fólkið hrópaði og dansaði
á milli kirkjubekkjanna,”
sagði presturinn eftir þolraun-
ina.
Séra Marshall er hálfsex-
tugur prestur i Sameiningar-
kirkjunni. Hann taldi sig ekki
hafa sett jafn glæsilegt heims-
met og hann i rauninni setti,
þvi samkvæmt hans klukku
stóð predikunin „aðeins” i
sextiu stundir og tuttugu og
fimm minútur.
Þegar hann steig úr stólnum
eftirað hafa flutt predikunina,
sem hann kallaði „frá Abra-
ham til Ágústinusar” sagði
fréttamaður Reuters honum
þau tiðindi, að metið, sem
hann var að slá, væri aðeins
fimmtiu stundir og tuttugu og
fimm minútur. 45 safnaðarfé-
lagar hlýddu á alla predikun-
ina.
•ÁRSHÁTÍÐ
DALE CARNEGIE
námskeiðanna
19651975
Verður haldin að Hótel Sögu, Súlnasal — föstudaginn 9.
janúar 1976 og hefst með borðhaldi kl. 20:00, húsið
opnað kl. 1 9:00.
Dagskrá:
Ræða: Gunnar Thoroddsen félagsmálaráðherra
Ávarp: Dick Morgal frá Garden City,New York
Dale Carnegie námskeiðin á íslandi
10ára: Konráð Adolphsson
Ljóðaflutningur: Hermann Guðmundsson bóndi, Blesa-
stöðum, Skeiðum,
Leikþáttur
Söngur: Skagakvartettinn
Dansað til kl. 2 eftir miðnætti.
Miðar fást á eftirfarandi stöðum:
Reykjavík:
Ljósborg,Skipholti 21
Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8
Skóbúðin Suðurveri.
Akranes:
Hörður Pálsson og Þórhallur Björnsson
SelfOss:
Birgir Jónsson og Klemenz Erlingsson
Grindavík:
Ólina Ragnarsdóttir
Keflavík:
Esther Þórðardóttir og Valur Margeirsson.
Við vonum að við sjáum ykkur á fjörugu balli 9. janúar
1976.
Samstarfsnefnd Dale Carnegie klúbbanna.
STJÓ/SM YUÍShÓlJXY