Dagblaðið - 05.01.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 05.01.1976, Blaðsíða 15
Pagblaöið. Mánudagur 5. janúar 1976. I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Ármeraiingar með pálmann í höndunum eftir sigur á ÍR — en naumur var sá sigur 90-89. ÍR-ingar hafa hug á að kœra Ármann vegna Símonar Ólafssonar, sem þeir telja ólöglegan Armenningar standa nú með pálmann i höndunum eftir sigur gegn ÍR á iaugardaginn 90—89. Naumur var sigurinn og um leið var leikurinn æsispennandi. Þeg- ar aðeins rúm minúta var eftir var staðan 85—85 — þá höfðu ÍR- ingar náð aö vinna upp gott for- skot Ármenninga, sem i þokkabót höfðu misst sinn bezta mann út af með 5 villur — nefnilega Simon Ólafsson. Þegar aðeins ein min- úta var eftir fengu Ármenninga'- Þeir skora flest mörk i Englandi er ávallt vel fylgzt mcð þvihverjir skora flest mörk- in. Markhæstu menn eru nú: 1. dcild: Ted MacPougall, Norwich 20 Penis Tueart, Manch. City 18 John Puncan, Toítenham, 17 Peter Noble, Norwich, 15 Alan Gowling, Newcastle og Puncan McKenzie, Leeds II! 2. deild Perek Hales, Charlton, 15 Paul Cheesley, Bristol City 13 Mick Channon, Southampton og Les Bradd, Notts County 12 Mick VValsh, Blackpool, Tom Ritchie, Bristol City og Paul Mariner, Plyinouth 11 3. deild: Frcd Binncy, Brighton 17 Peter Silvester, Southend og Alan Buckley, Wallsall 16 Pavid Cullerton, Port V'ale og Tony Evans, Cardiff 15 4. deild: Ronnie Moore, Tranmere 25 Brendan O’Callaghan, Poncaster 19 John Ward, Lincoln 18 Percy Freeman, Lincoln 14. dæmt vitakast — Jón Sigurðsson skoraði úr öðru og skömmu siðar bætti Jón Björgvinsson við körfu og staðan 88—85. En ir-ingar voru ekki af baki dottnir og Agnar Friðriksson skoraði 88—87, spennan i hámarki. Stuttu siðar bætti Kristinn Jörundsson annarri körfu við fyrir ÍR og kom því þar með yfir — annað skiptið i leikn- um. Ármenningar með boltann og áhorfendur á háa céi. Þegar að- eins 15 sekúndur voru eftir af leiknum fengu þeir dæmt viti — Jón Sigurðsson tók fyrra vitið — skoraði. Þá siðara vitið og aftur skoraði hann — staðan 90—89 Ar- manni i vil. IR-ingar brunuðu upp og þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir fékk Kolbeinn Kristins- son dæmt viti og sigurinn blasti við ÍR — eða var svo? Kolbeinn leit upp til körfunnar — skelfing var allt i einu orðið langt i hana. Fyrra vitið fór i súg- inn. Hann átti þó alltént mögu- leika á að jafna i siðara vitinu — en taugarnar voru ekki i lagi. Sið- ara vitið fór einnig i súginn og sigurgleði Ármenninga var geysi- leg — liðið stendur nú langbezt að vigi — eina tapiausa liðið i deild- inni. KR hefur tapað tveimur stigum — á erfiðan leik i Njarð- vikum og íslandsmeistararnir frá i fyrra 1R hafði tapað 4 stigum. En þessi sigur Armanns á eftir að draga dilk á eftir sér. IR-ingar hafa fullan hug á að kæra — vilja meina að Simon Ólafsson sé ólög- legur. Eins og kunnugt er hefur Simon stundað nám i Bandarikjunum — i University of Cornell i New York. Þar hefur hann leikið með varaliði skólans — sem tekur þátt i keppni á vegum NCAA — Körfu- knattleikssambands Bandarikj- anna. Hins vegar benda Armenn- ingar á að Simon hefur aldre skrifað undir neina pappira Bandarikjunum og þvi hljóti hann að teljast löglegur með Ármanni. Hvað um það — og hvernig sem fer þá var leikurinn á laugardag- KA í erfiðleikum með Fylki fyrlr norðan Það voru ekki bara landsliðs- mennirnir, sem voru i eldlinunni um helgina. Fylkir fór norður fyr- ir heiðar og lék við Þór og KA i 2. deild. Ekki höfðu þeir þó erindi sem erfiði — töpuðu naumt fyrir KA 16-17. Já, naumt var það — þegar aðeins 3 minútur voru eftir var staöan jöfn en þá missti Fylkir mann út af og það nýtti KA — skoraöi úrslitamarkið skömmu fyrir leikslok. í gær lék Fylkir siðan við Þór — Ekki áttu þeir góðandag, enda Þórsararharðir i horn aö taka og sigruöu örugg- lega 19-12. i Höllinni mættust KR og Breiðablik og eins og við mátti búast sigraði Vesturbæjarliðið örugglega 26-17. i 1. deild kvenna áttust við Val- ur og Vikingur. Ekki náö.u Vik- ingsstúlkurnar að standa i Val eins og i Reykjavikurmótinu — störsigur Vals 17-4. Á eftir leik Vals og Vikings léku Ármann og KR —þar sigraöi Ármann nokkuö örugglega 12-8. inn leikurinn hans Simonar. Hreint frábær drengurinn sá. Ekki aðeins drjúgur i sókninni — skoraði 33 stig — heldur og var hann mjög góður i vörn — hrein- STAÐAN Úrslit leikja i körfunni á laug- ardag: Ár m a n n — 1R 90-89 Valur— Frant 75-59 Staðan i 1. deild er nú: 5 0 496:416 10 4 2 524:471 8 3 1 373:302 6 3 2 403:405 6 2 3 405:404 4 1 3 295:305 2 5 1 4 408:466 257:388 lega hélt Agnari alveg niðri. I lokin varð Simon að fara af velli með 5 villur — en Ármenn- ingar sýndu hvers þeir eru megn- ugir — og sigurinn var i höfn. Jón Sigurðsson var einnig mjög góður og skoraði 17 stig — Birgir Orn Birgis 15 og Jón Björgvinsson 13. Kristinn Jörundsson var lang- beztur IR-inga. Þegar leikurinn virtist vera að tapast fyrir IR — Armenningar náðu góðu forskoti i siðari hálfleik — 75—64 — tók Kristinn til sinna ráða og skoraði lOstig f röð en það var einfaldlega ekki nóg — þrátt fyrir 29 stig Kristins. Bróðir hans Jón skoraði 21 stig og Kolbeinn Kristinsson 12 stig. Siðari leikurinn á laugardaginn var milli Vals og Fram. Þvi fyrr sem honum er gleymt þvi betra — afspyrnu lélegur. Valsmenn hlutu sin fyrstu stig i mótinu — sigruðu 75—59 mest fyrir tilstilli Þóris Magnússonarsem skoraði 27 stig. h.halls Minden sigraði Eintracht Minden — liöið, sem Kristbjörg Magnúsdótt- ir, eiginkona Axels Axels- sonar — ieikur með i Þýzka- landi, sigraði á laugardag Admira Landhaus frá Aust- urriki með 15-10 i fyrri lcik liðanna i Evrópukeppni mcistaraliða. Leikiö var i Minden ogstaðan var 6-3 fyr- ir Eintracht i hálfleik. Walker vann John Walker, Nýja-Sjálandi, heimsmethafinn i miluhlaupi sigraöi hinn mikla keppinaut sinn Rod Pixon i miluhlaupi i Manurewa i Nýja-Sjálandi i gær. En hörð var keppnin — báöir fengu sama tima 3:57.8 min. — og það var rétt á siö- asta metranum, sem VValker náði sigri. Dixon varð 3ji i 1500 m á Olympiuleikunum i Munchen. Litlar likur eru nú á að nokkuð verði af einvigi Walker og Filbert Bayi, Tanzaniu, sem fyrirhugaö var i þessum mánuöi. GREIDENDUR vinsamlega veitið ef tirfarandi erindi athygli: Frestur til aó skila launamiöum rennur út þann 19. janúar. Það eru tilmæli embættisins til yöar, aö þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miöana og vandið frágang þeirra. Meö þvi stuðlió þér aö hagkvæmni í opin- berum rekstri og firriö yður óþarfa tímaeyöslu. RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.